Morgunblaðið - 07.11.1985, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 07.11.1985, Qupperneq 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1986 Aster... ... að leiöa hana þegar húnfer yfir götu. TM Reo. U.S. Pat. Off.—all rights reserved »1985 Los Angeles Tlmes Syndlcate Svo virðist sem heimshöfín séu líka lítil? Við ákváðum að láta málið ekki komast í hendur lög- fræðinga. Það yrði okkur ofviða! HÖGNI HREKKVÍSI um.' h tEIGJAMPI / “ Á heimsmælikvarða Grímudansleikurinn í Þjóðleik- húsinu er að mínu mati ein allra besta sýning og skemmtun, sem hér hefir heyrst og sést. Ekki fer milli mála að söngur Kristjáns Jóhannssonar ber þessa óperusýn- ingu uppi, að öðrum ólöstuðum. Kristján er einn af stórtenorum heimsins í dag, það fer ekki á milli mála. Getum við Islendingar og ættum að vera stoltir af þessum stórglæsilega söngvara, sem ber hróður lands og þjóðar víða um lönd og á án efa eftir að auka þar við verulega. Enginn íslendingur hefir komist með tærnar þar sem Kristján hefir hælana á þessu sviði, þrátt fyrir að við höfum átt nokkra afburða- góða söngvara, t.d. Stefán Guð- mundsson og Maríu Markan, sem bæði gerðu garðinn frægan á sín- um tima. Það er leitt til þess að vita hve margir hafa reynt að hafa horn í síðu Kristjáns, en gott er þó til þess að vita að engan hefir það sakað nema þetta fólk sjálft og er það ótvíræð sönnun þess að gamla máltækið heldur sínu fulla gildi, „öfundin er til alls vís“. Kristján Jóhannsson hefir með ljúfmannlegri og einlægri fram- komu unnið hugi landsmanna og söngur hans töfrað hlustendur bæði hér og erlendis. Við skulum vera stolt af þessum mikla tenor, hann á ekki skilið að veist sé að honum á einn eða annan máta, hann stendur fyrir sínu og vel það. Megi gæfan fylgja honum á listaferli sem verður glæsilegri með hverjum deginum sem líður. Tenorunnandi Kostar sitt að meðhöndla peninga í skrifum Víkverja er komið víða við og ljóst að þar fer skriffinnur sem er velvakandi. í þætti sínum þann 22. október sl. víkur hann nokkuð að greiðslu- kortaviðskiptum og ber saman VISA og Eurocard, en því miður einungis fáein atriði. Þó ekki sé ætlunin að fara mikið út í þá sálma hér, enda getur undirritaður vart talist hlutlaus í þeim efnum, vil ég þó leyfa mér að vekja athygli á einu eða tveimur atriðum. Hvað varðar eindaga greiðslna, þá eiga korthafar VISA þann möguleika að láta skuldfæra launareikning sinn fyrir mánaðar- úttekt sinni á síðasta degi. Allir hinir 40.000 korthafar VISA þurfa því ekki nauðsynlega að gera sér ferð í banka/sparisjóð til að greiða, heldur geta einfaldlega sparað sér öll hlaup og fyrirhöfn með því að láta tölvukerfi VISA og bankana annast málin. Sundurliðun úttekta eftir teg- undum vöru og þjónustu missir því miður nokkuð gildi sitt þegar þess er gætt að sé verslað í stórmörkuð- um, sem selja allt milli himins og jarðar, þá fer allt undir sama flokk, hvort heldur er matvara, fatnaður eða járnvörur. Þá vill það iðulega gleymast i umfjöllun um greiðslukort að það kostar líka sitt að meðhöndla peninga og tékka. Seðlar eru dýrir í prentun, og þá þarf að telja og geyma i dýrum hirslum, tékkana þarf að framselja, hvort heldur sem þeir reynast innstæðulausir eða ekki. Með vinsemd, Einar S. Einarsson Víkverji skrifar Skemmtilegt hefur verið að fylgjast með því, hvað fram- kvæmdir ganga vel við Borgarleik- húsið í nýja miðbænum. Húsið hefur þotið upp frá því, að borgar- stjórinn í Reykjavík, Davíð Odds- son, ákvað í upphafi kjörtímabils- ins að leggja áherzlu á að ljúka þessu verki. Hann hefur staðið við þau áform eins og önnur. Það verður mikil bæjarprýði af þessu nýja leikhúsi. Þegar leikhúsið verður tekið í notkun mun það breyta miklu um leikhúslíf borgar- innar, sem nú þegar er mjög fjöl- breytt. Starfsemi Leikfélags Reykjavíkur mun að sjálfsögðu flytjast þangað og væri æskilegt, að hægt væri að tengja merka sögu Leikfélagsins með einhverjum hætti hinu nýja húsi. En hvað verður um Iðnó? Þegar Þjóðleik- húsið tók til starfa fyrir þremur og hálfum áratug töldu margir að starfsemi Leikfélagsins hlyti að leggjast niður. Svo varð þó ekki. Nú eru starfandi svo margir leik- hópar í borginni að full þörf sýnist vera fyrir Iðnó áfram, sem leikhús, þótt Leikfélagið flytji þaðan. Og þótt aðstæður í Iðnó séu erfiðar eru þær þó ekki verri en svo, að þessum litlu leikhópum mun áreið- anlega þykja það mikill fengur að fáþarinni. XXX • • Onnur stórbygging í höfuð- borginni á einnig eftir að verða bæjarprýði. Það er Þjóðar- bókhlaðan, sem risin er viö Mela- völlinn gamla. Framan af veltu menn vöngum yfir þessari bygg- ingu og sýndist sitt hverjum. Eftir að girðingin, sem staðið hafði ára- tugum saman við Melavöllinn var rifin og önnur mannvirki þar og næsta nágrenni Þjóðarbókhlöð- unnar varð að opnu svæði, hafa margir efasemdarmenn sannfærzt um að þessi bygging ætti eftir að njóta sín vel. Hins vegar er hæga- gangur á framkvæmdum of mikill. Þegar á annað borð er byrjað á byggingum sem þessum á að koma þeim upp af miklum krafti. XXX En talandi um söfn: líklega gera Islendingar sér ekki fyllilega grein fyrir því hvers konar áfangi það er fyrir listamenn, þegar heimsfræg söfn kaupa verk þeirra. Það var að sjálfsögðu stórsigur fyrir Gunnar Örn á dögunum, þegar Guggenheim-safnið í New York keypti mynd eftir hann. Víkverji bað kunnan myndlistar- mann fyrir nokkrum árum að nefna málara af yngri kynslóðinni, sem hann mundi spá nokkrum frama í framtíðinni. Einn þeirra, sem nefndur var, var einmitt Gunnar örn. Guggenheim-safnið er þekkt bæði fyrir eigin myndir og sýningar, svo og húsið sjálft, sem er ein af þeim byggingum, sem setja svip á New York. Arkitekt hússins er einn frægasti arkitekt Bandaríkjanna á þessari öld, Frank Lloyd Wright. Það er byggt utan um listasafn, sem bandarísk- ur gyðingur, Solomon Guggenheim kom upp smátt og smátt og byrjaði að sýna vinum og kunningjum í hýbýlum sínum í Plaza hótelinu í New York. Húsið er mjög óvenju- legt að allri gerð en ákaflega skemmtilegt að skoða myndir þar. Sú viðurkenning, sem Gunnari Erni er sýnd með þessum kaupum er því mikil. XXX Fasteignamarkaðurinn hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum. Stöðugar verðhækkanir fasteigna virðast liðin tíð og fasteignaverð er orðið breytilegt á höfuðborgarsvæðinu eftir hverfum. Spurningin er, hvort fólk fari ekki í auknum mæli að flytja lengra í burtu, til þess að komast yfir húsnæði á hagstæðara verði, jafnvel þótt það sæki vinnu til Reykjavíkur. Einn af samstarfsmönnum Víkverja keyrir daglega til og frá vinnu, þótt hann sé búsettur í Garðinum. Sagt er, að fullur áætlunarbíll fari daglega milli Seifoss og Reykjavík- ur með fólk til og frá vinnu. Ekki er ólíklegt, að fólk, sem starfar á höfuðborgarsvæðinu fari að sjá ýmsa kosti í því að búa á Suður- nesjum, í Hveragerði eða á Selfossi og jafnvel á Akranesi. Húsnæðis- kostnaðurinn er mun minni á þessum stöðum og þess vegna er hægt að bæta lífskjör sín töluvert með því að flytja til þessara byggð- arlaga. Vegalengdin til og frá vinnu er ekki meiri en algengt .er í útlöndum og enginn setur fyrir sig.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.