Morgunblaðið - 17.11.1985, Page 1
112SÍÐUR B/C
STOFNAÐ1913
261. tbl. 72. árg.
SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hólmfríður
vekur athygli
vestanhafs
(hicago. 16. nóvember. Frá Helgu G. Johnson,
fréttaritara Morgunblaðsina.
NÝKJÖRIN „Ungfrú heimur",
Hólmfríður Karlsdóttir, hefur vakið
mikla athygli hér í borg og er langt
síðan fsland hefur verið svo ofarlega
i baugi í fjölmiðlunum.
fslenska nafnið Hólmfríður
Karlsdóttir er nokkuð, sem inn-
fæddir geta ekki borið fram og
ekki einu sinni skrifað rétt. Jafnvel
stórblaðið „Chicago Tribune" fór
ranglega með það og á forsíðu
blaðsins í dag nefnist íslenska
fegurðardísin „Holmsriour".
Blaðamönnunum fannst hins veg-
ar merkilegt, að stúlkan, sem bar
sigur úr býtum, skyldi vera frá
„landi elds og ísa“ og taka þeir
þannig til orða, að Hólmfríður
hafi „brætt dómendur í hinni al-
þjóðlegu fegurðarsamkeppni*.
íslenskt kvenfólk hefur annars
verið duglegt við að koma sér í
fréttirnar hér að undanförnu því
að kvennadagurinn 24. október sl.
vakti óskipta athygli í dagblöðum
hérna megin við hafið. Fannst
mörgum lesendum mjög tilkomu-
mikið, að þúsundir kvenna skyldu
hafa farið í skipulegt verkfall í
tilefni af lokum kvennaáratugar-
ins — og komist upp með það.
Engu að síður átti þetta framtak
íslenskra kvenna miklum vinsæld-
um að fagna hjá stöllum þeirra
hér.
Hörmungarnar í Kólumbíu:
Brottflutningur af
ótta við flóðbylgju
Ísstífla í árfarvegi getur brostið á hverri stundu
AP/Símamynd
Tvsr manneskjur sem björguðust upp á þak húss sfns í bsnum Armero f
Kólumbíu. Eðjuflaumurinn eyðilagði og fsrði f kaf 85%bsjarins.
Armero, Washington, New York, 16. nóvember AP.
HUNDRUÐ manna voru í dag flutt
á brott frá þeim svæðum, sem harð-
Leiðtogafundurinn á þriðjudag:
Reagan í Genf
Meirihluti Bandaríkjamanna styður geimvarnaáætlunina
Waahington, 16. nóvember. AP.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti heldur í dag til Genfar til fundar við
Mikhail Gorbachev Sovétleiðtoga. I morgun rsddi hann við þjóðaröryggisrið-
gjafa sína um lokaundirbúning fyrir fundinn. I gsr voru birt úrslit skoðana-
könnunar ABC-fréttastofunnar og Washington Post, þar sem fram kom, að
meirihluti bandarísku þjóðarinnar styður geimvarnaástlun forsetans og telur
ráöstafanir hans til að auka hernaðarmátt Bandaríkjanna hafa dregið úr
styrjaldarhsttunni.
Náinn samstarfsmaður Reagans
sagði, að forsetinn gerði sér engar
gjllivonir um leiðtogafundinn og
honum væri fyllilega ljóst, að þar
væri hann ekki að kljást við neina
„sætabrauðsdrengi eða sakleys-
ingja“.
Aætlað er að þota Bandaríkja-
forseta komi til Genfar kl. 22.30
að staðartíma (21.30 að ísl. tíma),
og mun hann eiga undirbúnings-
fundi með æðstu ráðgjöfum sínum
á sunnudag og mánudag, en leið-
togafundurinn hefst á þriðjudags-
morgun.
I fyrrnefndri skoðanakönnun
ABC og Washington Post kom
fram, að Ronald Reagan forseti
nýtur nú meiri vinsælda meðal
kjósenda en oftast áður í slíkum
könnunum. 67% þeirra, sem spurð-
ir voru, kváðust ánægðir með störf
forsetans. Aðeins einu sinni áður
— þegar hann varð fyrir banatil-
ræði árið 1981 — hafa vinsældir
hans verið meiri en nú. Þá lýstu
73% aðspurðra ánægju með störf
forsetans.
Samkvæmt könnuninni eru 64%
þeirra, sem spurðir voru, ánægðir
með viðskipti forsetans við Sovét-
menn; 52% studdu geimvarna-
áætlunina og 56% töldu, að aukinn
hernaðarmáttur Bandaríkjanna
drægi úr styrjaldarhættu.
ast urðu úti af völdum sprengigossins
í fjallinu Nevada del Ruiz í Kól-
umbíu, og cinnig frá bæjum og þorp-
um í grenndinni. Farvegur árinnar,
sem bæirnir standa við, hefur þornað
og er óttast, að jökulís, sem fjalliö
ruddi af sér, hafi stíflað ána og má
því búast við nýrri flóðbylgju þegar
hún brýtur hann af sér. Opinberar
tölur um fjölda látinna eru 17—
20.000.
„Farvegur árinnar er þurr, hefur
stíflast einhvers staðar, og því má
búast við nýjum ósköpum þegar
stíflan brestur," sagði bóndi nokk-
ur þegar hann var að búast til
brottfarar ásamt fjölskyldu sinni.
Björgunarmenn reyna nú að
bjarga fólki, sem enn hefst við á
húsþökum, uppi í trjám eða á
hæðum, sem eðjuflóðið náði ekki
til, og virðist sem starfið gangi nú
betur en í gær. Fréttir eru um, að
lík 4000 manna hafi fundist, þar
af 135 í Chinchina-ánni 66 km frá
eldfjallinu.
Hjálparstofnanir og ríkisstjórn-
ir víða um heim hafa brugðist
skjótt við vegna hörmunganna í
Kólombíu og streyma nú vistir og
björgunartæki til landsins. Sam-
einuðu þjóðirnar hafa falið de
Cuellar, framkvæmdastjóra sam-
takanna, að skipuleggja hjálpar-
starfið af þeirra hálfu og Banda-
ríkjamenn hafa sent 12 þyrlur og
sjúkragögn fyrir eina milljón doll-
ara til að byrja með. Kanadamenn
og flestar þjóðir í Vestur-Evrópu
hafa einnig gefið fé, lyf og björgun-
artæki og boðist til að veita þá
aðstoð aðra, sem þörf er á.
Vísindamenn í Bandaríkjunum
eru nú að velta fyrir sér hugsanleg-
um áhrifum sprengigossins í
Nevada del Ruiz á veðurfar á jörð-
inni. Rykið, sem þyrlast upp í
gufuhvolfið við slíkt gos, byrgir
fyrir sólarljósið að nokkru og er
nefnt sem dæmi, að eftir gosið, sem
varð í E1 Chichon-fjalli í Mexikó
árið 1982, minnkaði geislun sólar
um 5% sums staðar á jörðu. Kunn-
asta dæmið um afleiðingar eldgoss
á veðurfarið er frá árunum 1815-
16, eftir gífurlegt gos í Tambora í
Indónesíu. Áhrifanna gætti um
alla jörð og einkum í Norður-
Ameríku þar sem miklir kuldar
voru. Árið 1916 snjóaði í Norðaust-
ur-Bandaríkjunum, júlí var mjög
kaldur og uppskeran brást. „Árið,
sem sumarið kom ekki“ eru eftir-
mælin um þetta ár i bandarískri
sögu.