Morgunblaðið - 17.11.1985, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 17.11.1985, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985 59r~ hina djúpu og einlægu guðstrú hans, sem veitti honum styrk á erfiðum stundum, og var hjálpræði hans í lífi og dauða. Þórður Valgeir Benjamínsson fæddist í Flatey 2. ágúst 1896. Foreldrar hans voru hjónin Guð- ríður Sigurðardóttir og Benjamín Jóhannesson, kennari í Flatey. Sex ára gamall missti Þórður föður sinn, og var honum þá komið að Illugastöðum í Múlasveit í eitt ár, og þaðan að Auðshaugi í 13 ár. Hinn 18. maí 1918 kvæntist Þórður eftirlifandi konu sinni, Þorbjörgu Sigurðardóttur frá Brjánslæk. Séra Bjarni Símonarson, sem þá var prestur og bóndi á Brjánslæk, gaf þau saman, en þau hjónin virtu hann alla tíð, bæði sem mann og prest. Ungu hjonin fluttust að Hvammi á Barðaströnd og voru þar í tvö ár, en þaðan fóru þau vestur að Granda í Arnarfirði, og síðar að Feigsdal í Ketildölum, Vestur-Barðastrandarsýslu. Árið 1924 fluttust þau til Hergilseyjar á Breiðafirði, og var Þórður kennd- ur við hana æ síðan. Þá voru þrír ábúendur í Hergilsey, tvíbura- bræðurnir Guðmundur og Árni Einarssynir, en Þorbjörg og þeir voru bræðrabörn, og Magnús Ein- arsson, fjarskyldur ættingi þeirra. í Hergilsey voru þau Þórður og Þorbjörg fyrst í húsmennsku hjá Árna, og voru þau hjá honum með 4 börn, en eignuðust eftir það 12 bðrn. Strax eftir komu sína til Herg- ilseyjar réð Þórður sig á fiskiskútu um tíma, en fór síðan til Vest- mannaeyja og stundaði vetrarver- tíðir í Vestmannaeyjum frá árinu 1925 til 1933. Árið 1927 fékk Þórður ábúð í Hergilsey að litlum hluta, er Árni fluttist úr eyjunni, en fékk stærri part til ábúðar síðar. Vorið 1942 fluttust þeir Guðmundur og Magnús með fjölskyldur sínar burt úr Hergilsey, og bjó Þórður þá einn í eynni þar til hann fluttist til Flateyjar 12. ágúst 1946, þá rétt orðinn 50 ára, og voru þau Þor- björg þá búin að eignast sextán börn. I Flatey bjuggu þau fram- undir 1960, en voru þrjá vetur í Stykkishólmi áður en þau fluttust þangað alfarið. í Stykkishólmi vann Þórður mest við fiskverkun á vegum Sigurðar Ágústssonar, og í Fiski- og beinamjölsverksmiðj- unni. Hann vann einnig nokkur ár í Trésmiðju Stykkishólms og allra síðast í Frystihúsi Sig. Ágústsson- ar hf., og var kominn yfir áttrætt, eða um 84 ára gamall, þegar hann hætti að vinna. Tengdamóðir mín, ástkær, er fædd 26. október 1899 á Brjánslæk. Þau hjónin, Þórður og Þorbjörg, hafa alla tíð verið mjög samhent og einhuga í lífi sínu og starfi, og voru svo sannarlega góðir foreldrar öllum sínum mörgu og elskulegu börnum. Og ekki hafa barnabörnin og barnabarnabörnin farið á mis við ástríki og umhyggju hinna öldnu heiðurshjóna, en sá hópur er nú orðinn stór. Börn Þórðar og Þorbjargar eru þessi: Valborg Elísabet fædd 19. október 1918, Sigurður fæddur 30. apríl 1920, dáinn 1975, Dagbjört Guðríður fædd 10. október 1921, Björg Jóhanna fædd 11. apríl 1923, Auður fædd 19. júní 1925, Benja- mín fæddur 28. apríl 1927, Guð- mundur fæddur 15. júlí 1928, Ari Guðmundur fæddur 26. október 1929, Sigríður Hrefna fædd 27. maí 1931, dáin 20. desember 1945, Jóhannes fæddur 9. september 1932, Guðbrandur fæddur 24. októ- ber 1933, Ásta Sigrún fædd 3. apríl 1937, Ingunn fædd 22. júlí 1939, Gunnar fæddur 22. september 1940, dáinn í nóvember 1940, Gunnar Þórbergur fæddur 10. maí 1942, dáinn 8. mars 1969 og Sigur- björg fædd 10. maí 1945. Ég vil að lokum þakka hjartkær- um tengdaföður mínum alla hans hlýju í minn garð og órjúfandi tryggð, sem birtist i mörgum myndum og ekki verður rakin hér. Blessuð sé minning góðs drengs og vinar. „Far þú í friði, friður guðsþig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (V.Br.) Númi Ó. Fjeldstcd t Faöir minn og tengdafaöir, GUÐNI SIGURÐSSON, Faxastíg 18, Vestmannaayjum, nú til heimilis aö Bólstaðarhlíö 48, Reykjavík, andaðistíLandakotsspítalaaömorgni 15. nóvember. Erla Guönadóttir, Helgi Pálmarsson. t Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug, sérstakar þakkir til kórs Langholtskirkju, við andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar og sonar, . HALLDÓRS CARLS STEINÞÓRSSONAR múrarameistara. Harpa Haröardóttir, Guörún Halldórsdóttir, Aöalheiður Halldórdóttir, Arnór Halldórsson. ... n .i i i t Móöirokkar, GERDA STEFÁNSSON, Brekkugötu 12, Akureyri, andaöist i Borgarspítalanum 9. nóvember sl. Hún veröur jarösungin frá Akureyrarkirkju þriöjudaginn 19.nóvember kl. 13.30. Stefán Jónsson, Sveinn Óli Jónsson, Geröa Ásrún Jónsdóttir. t Móöirokkar, GUÐFINNA SIGUROARDÓTTIR BREIÐFJÖRO, sem lóst í Landspítalanum 10. nóvember 1985, veröur jarösung in frá Kristskirkju mánudaginn 18. nóvember kl. 13.30. Fyrir hönd aöstandenda. Þorbjörg Gyöa Thorberg, Kristín Thorberg, Helga Thorberg. t Móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, MAGDALENA SVEINBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR, Merkurgötu 12, Hafnarfiröi, veröur jarösungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi þriöjudaginn 19. nóvember kl. 15.00. Fyrir hönd ættingja, Daníel Kristinsson, Dýrleif Siguröardóttir, Þórir Óskarsson, Ingibjörg Þorgeirsdóttir, Sigurgunnar Óskarsson, María Hansen, Guölaug Óskarsdóttir, Sæmundur Ingólfsson. t Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, GERÐUR GUDMUNDSDÓTTIR hjúkrunarkona, Akurgeröi 9, Reykjavík veröur jarösungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 19. nóvember kl. 13.30. Sigurgeir Jóhannesson, Sigurvin J. Sigurgeirsson, Ólafur Sigurgeirsson, Auöur Ingólfsdóttir, Ingigerður Sigurgeirsdóttir, Björn Sæmundsson og barnabörn. t Þökkum innilega samúö og vinarhug við andlát og útför ÞÓRLEIFAR ÁSMUNDSDÓTTUR, Kleppsvegi 6. Helga Ásmundsdóttir, Ingibjörg Ásmundsdóttir, Jarþrúður Ásmundsdóttir, Jakobina Ásmundsdóttir, Ásmundur J. Ásmundsson, Hanna Helgadóttir, og frændsystkin. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóður og ömmu, GRETUBJÖRNSSON Betty Jónsdóttir, Bragi Einarsson, Karin Jónsdóttir, Jón Þorvarðarson, Sigurbjörg Jónsdóttir, Jóhannes Ingibjartsson, Guttormur Jónsaon, Emilía Petrea Árnadóttir, Margrét K. Jónsdóttir, börn og barnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinsemd vegna andláts og útfarar GÍSLA SIGURÐSSONAR. Vigdís Klara Stefánsdóttir, Þóra Eyjalfn Gísladóttir, Ottó Björnsson, Gunnlaugur Stefán Gíslason, Áslaug Ásmundsdóttir, Gísli Grettisson, Ester Eygló Ingibergsdóttir og barnabörn. t Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim er heiöruöu minningu eiginmanns míns og fööur okkar, SIGURDARPÁLSGUNNARSSONAR vélstjóra, Seljabraut 22, og sýndu okkur samúö og hlýhug. Guóbjörg Bjarnadóttir, Heiörún Siguróardóttir, Vignir Sigurósson. I t Þökkum innilega samúö og vináttu við andlát og útför fööur okkar og bróöur, ARNARSSNORRASONAR kennara, Framnesvegi 27, Reykjavík. Sérstakar þakkir til karlakórsins Geysi, Akureyri, og nemenda 5. stofu fyrir tryggö þeirra í gegnum árin. Fyrir hönd aðstandenda, Guörún Arnardóttir, Hjalti Arnarson. Viö þökkum af alhug öllum þeim, sem sýnt hafa viröingu, samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföö- ur, afaoglangafa. EINARS KRISTINS GUDFINNSSONAR, Bolungarvík, Guöfinnur Einarsson, María Haraldsdóttir, Halldóra Einarsdóttir, Haraldur Ásgeirsson, Hjalti Einarsson, Halldóra Jónsdóttir, Hildur Einarsdóttir, Benedikt Bjarnason, Jónatan Einarsson, Halla P. Kristjánsdóttir, Guömundur Páll Einarsson, Kristin Marsellíusdóttir, Jón Friógeir Einarsson, Margrét Kristjánsdóttir, Pétur Guóni Einarsson, Helga Aspelund barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans + þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúö og hlýhug við andlát tengdaföður míns og afa. GUÐNAJÓHANNSSONAR, skipstjóra. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks á deild F1 Hrafnistu fyrir góöa hjúkrun. Oddný Jónsdóttir, Guöni Sigþórsson, Helga Guðmundsdóttir, Guörún J. Sigþórsdóttir, Guðmundur Jónsson, Jón H. Sigþórsson, Helga Óskarsdóttir, Sigþóra O. Sigþórsdóttir, Brynjar Sigtryggsson, og langafabörn. t Öllum þeim fjölmörgu vinum og frændfólki víösvegar um landiö svo og tengdafólki og systkinum, þökkum viö auðsýnda samúö og hlý- hug viö andlát og útför fööur okkar, tengdaföður og afa, ÁRSÆLS MARKÚSSONAR, Hákoti, Þykkvabæ. Sérstakar þakkir til Hábæjarkirkjukórs undir stjórn Sigurbjarts Guðjónssonar, Hafliöa Kristinssonar, Oaníels Jónassonar og félaga þeirra og til feöginanna Hrannar Kristinsdóttur og Kristins Markús- sonar. Einnig viljum viö þakka félögunum í karlakórnum Stefni fyrir frábæran söng á kveöjustund. Guö blessi ykkur öll. Þráinn Ársælsson, Anna Guðný Ásgrímsdóttir, Markús Ársælsson, Halldóra Hafsteínsdóttír, Hildur Ársælsdóttir, Gunnar Ársælsson, Rósa Óladóttir og barnabörn. t Einlægar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug í minningu eigin- konu minnar, móöur okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐFINNU LEU PÉTURSDÓTTUR, Ölduslóö 10, Hafnarfiröi. Jón Egilsson, Egíll Jónsson, Kristjana Magnúsdóttir, Ásbjörn Jónsson, Viöar Jónsson, Helga Lea, Jón Freyr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.