Morgunblaðið - 17.11.1985, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 17.11.1985, Blaðsíða 56
56 MORGÚNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985 Minning: Guðfinna S. Breið- fjörð (Minna) Fædd 12. ágúst 1921 Dáin 10. nóvember 1985 Nú er vinkona mín, hún Minna, loksins búin að fá hvíldina. • Ég þekkti Minnu frá því að ég var barn að aldri. Minna var ein- hver sú fallegasta stúlka og glæsi- legasta kona, sem landið hefur átt. Og ég var alltaf hreykin af því, þegar sagt var, að Minna væri frá Hafnarfirði. Við unga fólkið í Hafnarfirði stofnuðum skemmti- klúbb og höfðum alltaf böll á gamlárskvöld, og enn þann dag í dag sé ég Minnu fyrir mér eins og fallega álfamey — í hvítum kjól; pilsið var alltaf í hvítum blúndu- pífum; miðlungsháa og fagurlim- aða; með þetta þykka mikla ljósa hár niður fyrir herðar; fallegu bláu augun og fallega brosið. En Minna fann hins vegar aldrei sjálf, hve falleg hún var. Hún var hlédræg, næstum feimin. Minna var forkur til vinnu, setti upp hár- greiðslustofu, eina þá fyrstu í Reykjavík, og hún var einhver sú færasta í sínu fagi í Reykjavík. Jlún vann iðulega myrkranna á ^TilIi. Eitt átti Minna í ríkum mæli — það var húmor. Minna hafði átt erfiða ævi og háði harða baráttu gegnum árin, en hún var bardaga- kona og lét ekkert buga sig né aftra. Hún var stolt kona — og aldrei heyrðist hún kvarta. Hún sá alltaf björtu hliðarnar á lífinu. Eitt sem Minna átti ekki til var að öfunda aðra. Hún samgladdist öllum, sem vel gekk hjá — og aldrei heyrði maður hana tala illa um nokkurn mann. Þegar við vor- um einar saman, sagði hún alltaf: „Ásta, við stöndum okkur, og við eigum eftir að gera svo margt í lífinu." Og svo hló hún dátt. Saumaklúbbur okkar vinkvenn- anna er alveg sérstæður, unnið mikið og hlegið dátt. Til að mynda enduðum við alltaf klúbbkvöldið með því að yrkja vísu. Einu sinni skrifuðum við framhaldssögu; ein byrjaði og önnur tók við — og svo framvegis. Alltaf var föndrað fyrir jól og páska. Við í saumaklúbbnum komum saman til að gleðjast og Kransa- og 1 kistuskrey tingar Raykjavíhurv«g* 00, sími S3S40. ')r ÁHtwámmt*. >inWJ3l7t. fnófinm Suðwtendsbraut 10 106 Reykjavfk. Sími 31099 Opiðöti kvðkJ tH id. 22,-einnig um heigar. Skreytíngar við öii tiiefni. Gjafavörur. /Ar hlæja. Okkur fannst við alltaf vera sextán ára og skemmtum okkur konunglega. Við vorum tíu í þess- um klúbb: Minna, Ásta, Ása, Ásta Bald, Dísa, Steinunn, Maddý, Ruth, Bagga og Todda. Nú er skarð fyrir skildi, þar sem Minna er fallin frá. Ég veit að Minna er við hliðina á mér, þegar ég skrifa þessar fá- tæklegu línur til að þakka guði fyrir að hafa fengið að þekkja hana öll þessi ár. Þau hafa verið mér mikils virði. Ég bið guð að vernda ættingja hennar, og ég veit, að við hittumst hinum megin. Ásta Baldvinsdóttir Elskuleg vinkona mín er látin, 64 ára að aldri. Hún verður jarð- sett á morgun, mánudaginn 18. nóvember, kl. 1.30 frá Krists- kirkju. Þó kynni okkar væru ekki löng urðu þau samt svo góð að mér fannst að við hefðum þekkst lengi. Minna kom inn í líf mitt síðast- liðið sumar vegna þess að ég hóf að vélrita fyrir hana æviminning- ar hennar. Hún kom oft til mín á meðan ég var að byrja á þessu verki. Við þurftum að lesa saman það sem hún var búin að skrifa og samstarfið var svo gott að ég gat haldið áfram að vinna við upphaf bókarinnar, þó hún færi til dóttur sinnar norður í Eyjafirði. En er Minna kom til baka þurfti hún á hjálp að halda, en hún var með sjúkdóm sem þurfti meðferð- ar við og sem svo dró hana til dauða sl. sunnudagskvöld. En Minnu fannst þessi sjúkdómur, sem hún hafði ekki neitt á við sjúk- dóminn sem hún hafði í mörg ár og sem gerði það að verkum að hún varð að vera meira og minni inni- lokuð á stofnunum. En síðastliðin 10 ár hafði Minna verið frísk. Hún notaði þessi ár vel og lifði þannig að hún vildi öllum gott gera. Hún var trúuð kona og svo átti hún 3 elskuiegar dætur sem hún mat mikils og fjölskyldur þeirra. En bókin hennar Minnu á eftir að sjá dagsins ljós, þó að hún sjálf hafi ekki getað lokið við hana, enn er margt óunnið úr pappírunum hennar. Bókin mun hafa mikinn boðskap til alls hugsandi fólks og það er margt sem Minna hefur að segja þeim sem ekki skilja að fólk sem veikist andlega á líka sínar tilfinningar og sinn tilverurétt. Blessuð sé minning hennar. Dætrum hennar Helgu, Kristínu og Gyðu, fjölskyldum þeirra og systur hennar sem kom frá Amer- íku sendi ég mínar samúðarkveðj- ur og bið Guð að styrkja þau öll. Aldís Ragnarsdóttir Meðal óvenjulegri manna, sem orðið hafa á lífsleið minni, verður á morgun til moldar borin í Krists- kirkju, en það er Guðfinna Sigurð- ardóttir Breiðfjörð, sem jafnan gekk undir nafninu Minna Breið- fjörð. Hún var fædd í Reykjavík, en ólst upp í Firðinum, en þangað lá leið mín löngum hér áður fyrr. Var hún ein þeirra, sem slæddist í kunningjahópinn þar. Urðum við fljótlega góðir vinir, sem jókst með árunum, enda þótt oft liði langur tími án þess að við hittumst eða spjölluðum saman. Mér þótti alltaf gott að heyra í henni og þó hún þyrfti að leita úrræða eða væri í einhverju basli, sem hún vonaði að mér mætti takast að hjálpa henni að leysa, þá var hún alltaf svo hýr og gíöð og lét ekki bugast. Strax í upphafi duldist mér ekki, að skaparinn hefði verið örlátur og í góðu skapi, er hann hellti úr náðarfötu sinni yfir hana, því Minna var gædd góðum hæfileik- um. Um tíma helgaði hún leiklist- inni krafta sína og tóks vel á leik- sviðinu. Listrænir hæfileikar hennar nutu sín m .a. í hár- greiðslustörfum, en hún var meist- ari í þeirri grein. Líf hennar var ekki dans á rós- um, hún átti um langt skeið við vanheilsu að stríða og var á geð- veikrahæli. í Morgunblaðinu 7. desember 1980 birtist hreinskilið og hispurslaust viðtal Árna John- sens við hana og er það viðtal þess virði að lesast oftar en einu sinni. Þar sagði hún frá vonleysi sínu og baráttu til þess að „brjótast í gegnum margar lokaðar dyr út í lífið." Hve kerfið í þessum „vernduðu stofnunum" væri erfitt og mikið átak að hætta lyfjatöku sem þar væri stundum yfirþyrmandi. Einn skemmtilegasti og athyglisverð- asti kafli viðtalsins, var um það er þessi mikla dama fór í salt- fiskvinnu í BÚR og sýndi vel hve laus hún var við allan tepruskap og fánýta hugsun. Hún taldi að þessi vinna innan um gott fólk, hefði gefið henni aukið þrek. Minna var gift Magnúsi Thor- berg um árabil og eignuðust þau þrjár dætur: Þorbjörgu Gyðu, Kristínu og Helgu. Það var í 60 'ara afmælisveislu Steingríms Stefáns Thomasar Sigurðssonar rithöfundar og list- málara sl. vor að við sáumst síðast. Hún hyllti afmæisbarnið með hressilegri ræðu. Það duldist eng- um að hún hafði sigrast á erfiðleik- unum og að lífið blasti við henni á ný, ekki datt mér í hug að hún ætti svona stutt eftir ólifað. Það er erfitt að vera maður, en það var Minna. Hún var æðrulaus, hugrökk, einlæg og laus við öfund og illmælgi, drengur góður. Hún mat manngildið ofar öllu og hélt með reisn yfir landamæri lífs og dauða. Gunnlaugur Þórðarson Elskuleg vinkona, Guðfinna Breiðfjörð, er látin. Við Minna, eins og hún var alltaf kölluð, erum báðar aldar upp í Hafnarfirði. Þegar ég byrjaði í skóla og kynnt- ist yngri systur hennar Gyðu, man ég vel eftir þessari glæsilegu stúlku sem var 2—3 árum eldri en við og var fyrirmynd okkar í einu og öllu: Falíeg, greind og glaðleg. Systurnar misstu móður sína ungar og voru aldar upp hjá ömmu sinni, Þorbjörgu Breiðfjörð og Guðmundi Knútssyni við mikið dálæti. Minna hafði gaman af leiklist og lék oft í skólaleikritum og seinna með Leikfélagi Hafnar- fjarðar og þótti hafa mikla hæfi- leika. Seinna fékk hún svo hlutverk hjá Leikfélagi Reykjavíkur og stóð sig vel og þótti lofa góðu. Minna var gift Magnúsi Thorberg og voru þau búsett í Vestmannaeyjum svo það varð ekki framhald á leikstarfi hennar hér í Reykjavík. í Vest- mannaeyjum hafði hún tekið þátt í leikstarfsemi, lék og setti upp leiksýningar. Þau eignuðust þrjár dætur. Fjölskyldan fluttist síðan til Reykjavíkur. Minna, sem var hár- greiðslumeistari, setti hár- greiðslustofuna Pirola á stofn og hafði margar stúlkur í vinnu. Hún og Magnús slitu samvistum en dæturnar voru þá á skólaldri. Tóku nú við erfiðleikatímar. Hún missti heilsu sína og átti við erfið- an sjúkdóm að stríða í mörg ár. Með ótrúlegum dugnaði og kjarki náði hún sér aftur. Um svipað leyti fór hún að taka þátt í saumaklúbbi með nokkrum hafnfirskum vin- konum sem stofnað höfðu þann klúbb fyrir mörgum árum. Minna var sterkur persónuleiki, fínleg, orðvör, með ríka kímnigáfu og kona smekkleg. Þessir góðu eigin- leikar hjálpuðu henni oft. Við átt- um margar ánægjulegar stundir með Minnu í saumaklubbnum. Á síðasta ári bauð hún klúbbnum til sín í Hveragerði, en þar hafði hún aðstöðu vegna vinnu sinnar. Tvo til þrjá daga í viku greiddi hún konum á dvalarheimili aldr- aðra þar og var þar mörgum til ánægju og aðstoðaði með ýmsu móti. Hún gat ætíð miðlað öðrum af bjartsýni sinni og kjarki. Er mér kunnugt um að fólk sem átti í erfiðleikum sóttist eftir návist hennar. Heimsókn okkar til Minnu í Hveragerði verður okkur minnis- stæð fyrir einstaklega hlýjar og veglegar móttökur hennar og kom enn einu sinni í ljós smekkvísi hennar og alúð. Við söknum Minnu mikið. Það var gott að vera í návist hennar. Hafi hún þökk sauma- klúbbsins fyrir samveruna. Herdís Þorvaldsdóttir Elskuleg bróðurdóttir mín, Minna, lést í Landspítalanum að kvöldi 10. nóvember sl. eftir stutta legu. Þar með brást von okkar um bata henni til handa. Með Minnu hef ég fylgst, allt frá því hún fæddist í húsinu Vesturgötu 46 Reykjavík. Þar bjuggu þá foreldr- ar hennar Guðfinna Ólafsdóttir, ólafs Bjarnasonar í Gestshúsum á Álftanesi og fyrri konu hans Guðfinnu. Faðir hennar var Sig- urður Breiðfjörð stýrimaður, son- ur Þorbjargar Guðmundsdóttur frá Marteinstungu og Jóns Gests Breiðfjörð kennara og hreppstjóra á Brunnastöðum á Vatnsleysu- strönd. Nokkru seinna fluttu þau hjón með Guðfinnu litlu vestar í Vestur- bæinn, síðan í Hafnarfjörð á meðan þau byggðu sér hús úti á Álftanesi, rétt hjá Gestshúsum æskuheimili Guðfinnu eldri. Hét það hús Gerðakot og heitir víst enn. Er mér minnisstætt er ég, systir mín og vinkona okkar fórum á milli jóla og nýárs 1923 á jóla- trésskemmtun út á Nes hve mág- kona okkar tók okkur vel. Kom með okkur á skemmtunina, söng þar og spilaði, og lék við hvern sinn fingur. Þá komin langt á leið að þriðja barninu, en 2. október 1922 hafði hún eignast dótturina Þorbjörgu Gyðu. Rúmum 'h. mán- uði síðar eignaðist hún svo þriðju dótturina, Guðrúnu Petronellu, fallegt barn og efnilegt. Nokkru síðar veiktist Guðfinna, móðirin, og var flutt á Landakotsspítala, þar sem hún lést þann 10. febrúar. Guðfinna var búin að biðja mömmu mína að taka Gyðu að sér ef eitthvað kæmi fyrir sig. Minna varð eftir í Gestshúsum, afa sínum til huggunar, hann var þá ekkju- maður. Mamma tók Gyðu að sér og skildu þær ekki fyrr en Gyða gift- ist. Einnig tók hún nýfæddu telp- una. Síðar kom Sigurður einnig heim til okkar, sannaðist þá eins og oft að þar sem er hjartarúm er húsrúm. Litla telpan virtist dafna vel, en eftir þrjá mánuði varð hún lasin og var dáin áður en dagurinn var áenda runninn. Um þetta leyti var Minna oftast hjá afa sínum og Oddnýju móður- systur. Hjá okkur var hún þegar pabbi hennar var í landi, enda mikið uppáhald. Árið 1930 kvæntist Sigurður aftur, Margréti Guðmundsdóttur, prentara í Reykjavík. Eignaðist með henni tvö börn, Kristjönu, sem er gift kona í Ameríku, og Sigurð, prentara í Reykjavík. Þá átti Margrét dóttur fyrir, Sigríði, sem Sigurður reyndist sem besti faðir. Enda endurgait hún honum það. Ætlunin var að Minna flytti heim til föður síns, en þar sem systir hennar bjó heima hjá mömmu okkar sótti hún þangað og varð heimilisföst fram að gift- ingu. Eftir að ég flutti út á land var Minna barnfóstra hjá mér á sumr- in, þar til hún fór að læra hár- greiðslu, að loknu gagnfræðaprófi. Hún passaði tvo elstu syni mína og var dásamlegt að fá hana vestur á hverju vori, því hún var bráð- skemmtileg. Vorið 1936 fermdust þær systur, Minna og Gyða, í Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði. Ég fór að sjálfsögðu suður með syni mína. Veislan var haldin á Hótel Birninum hjá Guðrúnu frænku mömmu. Um haustið þetta sama ár vor- um við Minna tvær einar með litlu strákana vestur á ísafirði. Einn morgun hringdi maðurinn minn sem staddur var í Reykjavík og sagði okkur þau válegu tíðindi að slys hefði orðið á togaranum Tryggva Gamla og pabbi Minnu og bróðir minn hefði drukknað. Þvílíkt áfall. Mér þótti óumræðan- lega vænt um þennan fallega en umfram allt góða bróður. Hann hafði misst föður sinn fimm eða sex ára gamall suður á Vatnsleysu- strönd, fluttist þá með mömmu til Hafnarfjarðar þar sem hún vann fyrir þeim að uppskipun og öðrum störfum sem hægt var að fá. Nokkrum árum seinna giftist hún Ingvari föður mínum, hann drukknaði frá okkur þrem alsystk- inum, er ég var fjögurra ára, systir mín tveggja og yngri bróðirinn ófæddur. Varð þá Siggi eins og við kölluðum hann í Flensborgarskól- anum að hætta námi. Tók vinur mömmu hann á togara ungan drenginn til að vinna fyrir heimil- inu. Það var hnípin fjölskylda sem fór suður með Esju þenna sama dag og við fréttum látið. Heim til mömmu sem alltaf stóð og bifaðist ekki, þrátt fyrir sorgir og mótlæti. Með Sigurði missti hún sitt þriðja barn, yngri soninn 1934 og dóttur 1926. Svo skammt var stórra högga ámilli. Eftir gagnfræðapróf frá Flens- borg hóf Minna hárgreiðslunám hjá „Marsí" við Skólavörðustíg. Var hún þar í mörg ár, en bjó heima í Hafnarfirði hjá mömmu og lék með leikfélagi Hafnarfjarð- ar, því Minnu var margt til lista lagt. Enga hef ég þekkt skemmti- legri. Hún sagði vel frá, söng og lék af innlifun. Eftir að Sigurður faðir þeirra systra lést, tók mamma yngstu systurina Kristjönu, sem hann átti með síðari konu sinni Margréti. Var hún hjá mömmu þar til mamma lést í júlí 1954 og reyndist henni afburðavel. Eftir að Minna hafði lokið hárgreiðslunámi giftist hún Magnúsi Thorberg. Fékk hann stöðu í Vestmannaeyjum og fluttu þau þangað. Þar hafði hún hár- greiðslustofu og lék með leikfélag- inu á staðnum. Eignuðust þau þrjár efnilegar dætur, Þorbjörgu Gyðu, Kristínu og Helgu. Þær hafa allar stofnað heimili og eiga alls sex börn sem sárt sakna nú ömmu sinnar. Það var gaman að heimsækja þau Minnu og Magnús til Eyja og fannst mér þeim líða vel þar. En svo seig á ógæfuhliðina, maðurinn missti atvinnuna og var þá flutt til Reykjavíkur, upp frá því skildu leiðir. Telpurnar fylgdu mömmu sinni, sem fór á þessum árum til Amer- íku að endurmennta sig. Um tíma ætlaði hún að setjast þar að, en kom aftur. Það hvað ekki betra að vera einstæð móðir í Ameríku en hér heima. Hárgreiðslustofur setti Minna á stofn, bæði á Grettisgötu og Hverf- isgötu. Voru þær báðar mjög vel sóttar. Hárgreiðslustofan „Raffó" á Hverfisgötu var mjög stór, þar hafði hún fjölda manns í vinnu og lærlinga. En þá varð álagið á Minnu of mikið og hún missti heilsuna. Fyrst var hún á sjúkra- húsi í Reykjavík. Síðan lá leið hennar að Ási i Hveragerði. Þar fannst mér hún endurheimta heilsuna. Hún vann við hárgreiðslustörf í Hveragerði, einnig eftir að hún flutti til Reykjavíkur, svo og í Hátúni 10. Þá voru allar dætur hennar bún- ar að stofna eigin heimili. Hún var fri og frjáls. Heimsótti systur sína í Ameríku og naut þess aðverahjáhenni. Það sorgiegasta finnst mér að hún skyldi ekki fá að njóta lífsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.