Morgunblaðið - 17.11.1985, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 17.11.1985, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985 53 Hagfræðingur VSÍ um vaxtahækkun: Vaxtahækkun er afleiðing skorts á innlendu lánsfé „KOMI til vaxtahækkunar á næst- unni þá er það afleiðing þess, að í landinu er ekki nægjanlegt innlent lánsfé - enn þarf að leita eftir því til útlanda," sagði Vilhjálmur Egils- son, hagfræðingur Vinnuveitenda- sambands íslands, er Morgunblaðið leitaði álits hans á yfirvofandi hækk- un bankavaxta, sem greint hefur verið frá í blaðinu á undanförnum dögum. „Við erum nú að súpa seyðið af því, að sparifé landsmanna var brennt upp í óðaverðbólgunni á árum áður. Háir vextir í dag eru bein afleiðing þess, hve lítið varð úr okkar eigin sparifé," sagði hann. Vilhjálmur sagði að val okkar stæði nú milli „tveggja slæmra Æskulýösfélag Fella- og Hólakirkju: Unglinga- samkomur Æskulýðsfélag Fella - og Hóla- kirkju hefur hafið starfsemi sína og heldur fundi í kirkjunni á mánudagskvöldum kl. 20.30. t fréttatilkynningu frá Fella - og Hólakirkju segir að starfsemin sé opin öllum unglingum í hverfinu á aldrinum 13 - 16 ára. Á fundun- um eru m.a. umræður um efni sem snerta unglinga, unnin eru verk- efni, leikrit æfð, kristin trú hug- leidd og sungið. Sveinbjörn Óskarsson, fjármálastjóri Rarik: „Reynum að hlífa veitukerf- kosta: að fá lánsfé og borga fyrir það eða fá peningana einfaldlega ekki. Besta leiðin til að lækka vexti er að koma á stöðugleika í efna- hagslífinu og minnka verðbólgu, svo fólk öðlist trú á framtíðina og að sparnaður skili sér,“ sagði hann. „Þetta er ekki síst hagsmunamál þeirra, sem greiða í lífeyrissjóði - því eins og er standa sjóðirnir ekki við skuldbindingar sínar og því þarf að stokka það kerfi upp. Ef slakað er á ávöxtunarkröfu sjóð- anna getur það leitt til þess, að fólk borgaði hærri skatta og hærri líf- eyrissjóðaframlög. Skárri kostur er að borga háa vexti frekar en há framlög í lífeyrissjóðina og þar á munar miklu, því að fyrir hvert prósentustig, sem ávöxtunarkrafa sjóðanna lækkar, þá hækkar ið- gjaldaþörfin um 2,5-3,5%,“ sagði Vilhjálmur Egilsson. Hrein fjárfesting. Hreinánægja. Míele annað er mála- miðlun. . [T1JÓHAHN ÓLAFSSON & C0. ^ 4) SuotUbom 104 KfTÍM«0> Simt 12044 W Míele þvottavélar !••• DRJFBÚNAÐUR ER SÉRGREIN OKKAR Eigum jafnan á lager allar algengustu stærðir og gerðir afdrif-ogflutningskeðjum ásamt tilheyrandi tannhjólum, ástengi, niðurfærslugíra, tannhjólasamstæður og hraðabreyta (variatora). Einnig kílreimar, reimskífur, og handstýrða hraðabreyta | (variatora) fyrir kílreimadrif. Veitum tæknilega ráðgjöf við val á drifbúnaði. RENOLD FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 inu eins og kostur er“ „í fjárlagafruravarpinu eru fram- lög til okkar vegna fjárfestinga 200 milljónir króna en verða að líkindum skornar niður í 165 milljónir. Þó ekki sé búið að ganga frá því ennþá hvar verður skorið niður er Ijóst að við reynum að hlífa veitukerfinu eins og frekast er kostur,“ sagði Svein- björn Óskarsson, fjármálastjóri Rafmagnsveita Ríkisins í samtali við Morgunblaðið er hann var spurður álits á því er Þorsteinn Pálsson, fjár- málaráðherra, sagði í fjárlagaræðu sinni, að dregið verði úr framkvæmd- um og endurnýjun búnaðar nokkurra ríkisfyrirtækja - þar á meðal RARIK. „Við höfum rætt þetta mál við Pálma Jónsson, stjórnarformann RARIK. Hann vil að stjórnin komi saman áður en nokkuð verður ákveðið og Kristján Jónsson fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins er erlendis þannig að það liggur varla endanlega ljóst fyrir fyrr en undir mánaðarlok hvar skorið verður niður," sagði Sveinbjörn. „Þetta er ansi hátt hlutfall, 35 milljónir af 200 og það kann að gera okkur erfitt fyrir. Við eigum eftir að skoða það betur. Við höfum ekki verið krafðir um ákveðin svör hvernig og hvað eigi að skera nið- ur. Ég reikna þó með að það sem við skerum niður verði hlutir eins og endurnýjun á bílum og þá má búast við að húsnæðiskaupum verði frestað. Búið er að segja okkur upp því húsnæði sem við erum í í dag og við ætluðum að reyna að komast úr leiguhúsnæði í okkar eigið til að skapa okkur ákveðið öryggi. Þá er ljóst að eitt- hvað verður að ganga á veitukerf- ið,“ sagði Sveinbjörn Óskarsson, fjármálastjóri RARIK. Nýjar gardmur á 50 krónur! Ef gardínurnar þínar þola vatn þá þola þær líka Bio-tex - undraþvotta- efni sem gerir gömlu gardínurnar sem nýjar á 15 mínútum. Þú setur ylvolgt vatn í bala eða baðker og 1 dl af bláu Bio-tex í hverja 10 1 af vatni. Þegar duftið hefur blandast vatninu leggur þú gardínurnar í. Eftir að hafa dregið gardínurnar fram og til baka í vatninu í u.þ.b. 10 mín. skolar þú þær í hreinu vatni og hengir til þerris. Árangurinn er augljós, gardínurnar verða sem nýjar og íbúðin fyllist ferskara lofti. Blátt Bio-tex í allan handþvott og grænt Bio-tex í þvottavélina (forþvottinn). Undraefni í allra hendur. Fæst í næstu verslun. Halldór Jónsson hf. Dugguvogi 8-10, sími 686066 \ -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.