Morgunblaðið - 17.11.1985, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985
HUGVEKJA
Um varð-
veizlu friðar
— eftir séra HEIMI STEINSSON
Undanfarin ár og áratugi hef-
ur fátt brunnið heitar á mann-
kyni en áhyggja um öryggis- og
varnarmál. „Friðarhreyfingar"
fara um lönd og hvetja menn til
að halda vöku sinni. Kirkjan
leggur orð í belg að sínu leyti.
Ekkert af þessu þarf að valda
furðu. Einstaklingar og þjóðir
eru óttalsegin andspænis víg-
búnaði risaveldanna og annarra
ríkja. Óttinn brýzt út í sjálf-
sagðri umræðu og hvers konar
aðgjörðum.
Staðan
Fyrir u.þ.b. 40 árum stefndu
jarðarbúar hröðum skrefum til
móts við nýja stöðu, er ekki líkt-
ist neinu því, er áður hafði yfir
þá gengið.
Hin nýja staða einkenndist von
bráðar af tvennu: Annars vegar
var þess nú raunverulegur kostur
að tortíma heimsmenningunni
og reyndar öllum þorra manna,
hugsanlega jafnvel lífinu á jörð-
inni í heild, með hernaðargjörð-
um. Hins vegar var ekkert, sem
benti til, að látið yrði af hernað-
araðgjörðum í náinni framtíð og
tæpast heldur, þótt litið væri til
lengri tíma.
Ekki er kunnugt, að neinn
fagni þessari stöðu. Eigi að síður
hlýtur raunveruleg orðræða um
úrræði í vanda að hefjast með
því, að hver og einn gjöri sér
grein fyrir stöðunni eins og hún
er. Engum tilgangi þjónar að
formæla stöðunni. Hún verður
ekki umflúin í svip. Framtíðar-
þróun mála fær ein úr því skorið,
hvort mannkyni tekst smám
saman að vinna sig upp úr vand-
Harðir kostir
Ljóst var þegar í upphafi, að
engin þeirra brauta, sem menn
þóttust eygja út úr þessum öng-
um, yrði rósum stráð. Styrjaldir
hafa fyrr og síðar fært börnum
jarðar bölvun. Vandkvæði þau,
er vígbúnaði fylgja, hafa ætíð
verið byrði og kvöl. Ekki var við
því að búast, að þær þrautir yrðu
léttbærari í hinni nýju stöðu.
Deilur um varnarmál einkenn-
ast iðulega af því, að menn láta
sér sjást yfir hið síðast greinda.
Það á við um alla skoðanahópa.
Við teljum okkur geta bent á
tiltölulega auðveldar eða a.m.k.
einsæjar lausnir og úthrópum
andstæðinga okkar fyrir að að-
hyllast önnur viðhorf.
Þess konar afstaða er háska-
leg, veldur því þrásinnis, að við
forðumst að taka tillit til tafl-
stöðunnar í heild og erum þar
af leiðandi miður líkleg en ella
til að leggja gott til mála. Eigi
að síður er einsýnin skiljanleg í
þessu tilviki, líkt og löngum
endranær.
Þverstæður eru óþægilegar.
Við forðumst að horfast í augu
við þær. Hlutfallið milli tækni-
kunnáttu nútímamannsins og
siðferðisþroska hans er skelfileg
þverstæða, sem við reynum að
forðast með því að flýja á vit
fábrotnum úrræðum, einfaldri
heimsmynd, þar sem staðreynd-
um er jafnvel hafnað eftir geð-
þótta.
Sannleikurinn er hins vegar
sá, að rþessu máli eru allir kostir
harðir. Eigi að síður verður að
leita kostanna og taka þann upp,
er vænlegastur þykir, — ásamt
öllum þeim fyrirvörum, er hon-
um fylgja.
Ógnarjafnvægi
Það úrræði, sem risaveldin og
fylgiríki þeirra hafa leitað, geng-
ur löngum undir nafninu „ógnar-
jafnvægi". Önnur ný orð og nöt-
urleg skulu nefnd til sögunnar.
Þeirra hæst ber „fælingu".
Óþarft er að eyða rúmi í að
útskýra þessi orð. Kristinn mað-
ur hlýtur hins vegar að taka
afstöðu til spurninga, er vakna
við lestur þeirra. Þýðingarmesta
spurnirigin er gamalkunn og
hefur fylgt kristninni frá önd-
verðu: Getum við fallizt á það
sem siðræna lausn mála að hóta
hugsanlegum andstæðingi hörðu
og hræða hann frá því að áreita
okkur? — Spurningin gamla
verður að sjálfsögðu brýnni nú
en nokkru sinni og tekur á sig
nýja og hvassyrtari mynd: Þykj-
umst við á kristnum forsendum
geta unnið að varðveizlu heims-
friðar með því að búa okkur án
afláts undir það að tortíma ver-
öldinni í kjarnorkustyrjöld?
Svarið virðist liggja í augum
uppi: Slíkt getur enginn maður
varið fyrir kristinni samvizku
sinni. Á öllum öldum hefur það
„Leiðtogafundur risaveldanna œtti ekki
að vera stórviðburður á margra ára
fresti. Slíkirfundirþyrftu að eiga sér
stað með reglubundnu millibili. Þessir
menn, ásamt öllu því liði, er þeim heyrir,
eru eins konar allsherjarnefnd til
friðargœzlu. Við hljótum að vœnta þess,
að nefndin starfi. “
verið örðugt, þótt kirkjan löngum
hafi leikið mörgum skjöldum í
því efni. Nú er það ómögulegt.
Svo einfalt er svarið þó ekki.
í reynd veltur svarið á því, hvort
ógnarjafnvægið er öðrum úrræð-
um líklegra til að hindra hernað-
arátök. Kristinn maður getur
tæpast beitt sér fyrir að leggja
skilmálalaust til hliðar verkfæri,
sem varðveitir frið, þótt sá friður
kunni að vera í senn ótryggur
og illa fenginn.
Einhliöa afvopnun
Löngum hopa vígreifir „friðar-
sinnar" (pacifistar) á hæli, þegar
þeir eru spurðir, hvort þeir raun-
verulega aðhyllist einhliða af-
vopnun án allra skilyrða. Hins
vegar hallast margur góður
drengur að því, að stíga beri skref
til einhliða afvopnunar. Þar á
kynni þó að vera bitamunur, en
ekki fjár. Skref gæti orðið upphaf
lengri göngu. En ef skrefið er
stigið í von um hliðstæð viðbrögð
andstæðings og þeirra viðbragða
síðan beðið, er hugmyndin ævin-
lega íhugunar verð.
Einhliða afvopnun virðist vera
hin eðlilega lausn þessa máls
fyrir kristinn mann. Þarf ekki
að rökstyðja þá fullyrðingu fyrir
neinum þeim, er þekkir til hans,
sem bauð mönnum að snúa hinni
kinninni að meingjörðamannin-
um og sjálfur lét leiða sig til
aftöku mótspyrnulaust.
Hér er þó fleira að athuga: Ert
þú reiðubúinn að horfast í augu
við endanlegar afleiðingar ein-
hliða afvopnunar? Ert þú sú
manngerð, er beygi sig án mögl-
unar fyrir andstæðingi, er hyggst
hagnýta sér veikleika þinn?
Gjörðu þér grein fyrir því, að
einhliða afvopnun býður píslar-
vætti heim. Ert þú efni í píslar-
vott?
Alvarlegri spurning: Getur
kristinn maður í Jesú nafni tekið
þá ákvörðun, að kona hans og
börn, bræður hans og systur,
faðir og móðir skuli gjörast písl-
arvottar ásamt öðrum sam-
borgurum hans?
Andspænis síðast greindri
spurningu verður reyndar öll rót-
tæk kristin „friðarstefna" í bezta
falli tvísýn. Þar með skiljum við
það einnig betur, að kirkjan öld-
um saman lagði blessun sína yfir
vígbúnað í varnar skyni og er
reyndar ekki á einu máli um
einhliða afvopnun enn þann dag
í dag, — þrátt fyrir allt.
Fitjað upp á svari
Nokkur reynsla er fengin af
ógnarjafnvæginu. Við vitum, að
fælingin hefur átt sinn þátt í að
koma í veg fyrir styrjöld milli
stórvelda. Ekki aðeins að hún
hafi hindrað allsherjarkjarn-
orkueld, heldur einnig „hefð-
bundna" styrjöld af því sakleys-
islega tagi, sem orðið hafði ein-
um 50 milljónum manna að bana
fyrir þeim fjórum tugum ára, er
nefndir voru í upphafi þessa
máls. Við hljótum því að æskja
þess, að ríkjandi ástand fái enn
um sinn að skila þeim árangri,
sem við til þessa höfum notið.
Til lengri tíma er ekki um
annað að ræða en biðja þess og
vona það, að menn gjöri sér ljóst,
að hernaðarátök eru orðin úrelt
lausn á alvarlegum árekstrum
milli þjóða. Mannkynið fær ekki
lifað af nema þjóðir heims taki
hamskiptum varðandi raunveru-
lega samvinnu sín á milli, opna
og afdráttarlausa samvinnu í
frelsi og gagnkvæmu trausti.
Leiðtogafundur risaveldanna
ætti ekki að vera stórviðburður
á margra ára fresti. Slíkir fundir
þyrftu að eiga sér stað með reglu-
bundnu millibili. Þessir menn,
ásamt öllu því liði, er þeim heyr-
ir, eru eins konar allsherjarnefnd
til friðargæzlu. Við hljótum að
vænta þess, að nefndin starfi.
Samræður eru fóstra friðar-
vonarinnar. íslendingar geta
lagt orð í belg og tamið sig við
friðsamlegan hugsunarhátt.
Staða heimsmála og lega lands-
ins gjöra það að verkum, að við
munum skipa okkur í sveit með
áþekkum hætti og verið hefur
um sinn, enda höfum við, eins
og aðrir, notið góðs af þeirri
skipan.
Hins vegar er öldungis óþarft,
að íslenzk félagasamtök og fjöl-
miðlar séu að fjandskapast við
framandi ríki í austri, vestri eða
suðri. Sjálfgjört er, að við séum
á varðbergi og stöndum skil á
framlagi okkar til hernaðarjafn-
væ^is. En jafn eðlilegt er, að við
leggjum rækt við friðsamlegt
hugarfar í garð allra ríkja og
þjóða, einnig þeirra, sem við af
einhverjum ástæðum kunnum að
telja óalandi og óferjandi. Köp-
uryrði og hrokafullir sleggju-
dómar eru fráleitt framlag til
umræðu um heimsmálin á öld,
sem stendur andspænis þeim
hörðu kostum, er fyrr voru
nefndir. Hér er verk að vinna
fyrir kristna menn: Að draga úr
viðsjám með því að fitja upp á
hugarfarsbreytingu og varfærni
tilorðsogæðis.
Um nokkurt skeið hefur ver-
öldin öll verið ein atómstöð. Úr-
ræðið, er örla virðist á úti við
sjóndeildarhring, er í því fólgið
að breyta þeirri sömu veröld í
eina samningastöð, þar sem viti
bornir og góðgjarnir menn eigast
við í hverju máli. Meðan unnið
er að smíði slíkrar stöðvar, hljóta
allir aðilar að láta sér ógnarjafn-
vægið lynda, unz þeir í samein-
ingu taka að fækka hervopnum
og búa í haginn fyrir afkomendur
sína á Guðs grænu jörð.
SÖLUGENGI VERÐBRÉFA 18. NÓV. 1985
SjKnjskúttlnt bappdiattlslán og TwSbiél
S*wl Avöxturv
Ar-doldnx pr.kr.100 arfcrafo tJt Inni.d.
1971-1 2378240 Inntv. f S*ÖW>. 130006
1972-1 22.372,33 060% 67 A
1972-2 17.711,67 360% 297 d.
1973-1 1398343 8,60% 297 d.
1973-2 12.397,09 8,60% 67 d.
1974-1 7067,7« 360% 297 d.
1975-1 6.588,70 8,80% 52 d.
1975-2 4.668,86 380% 67 d.
1976-1 4352,72 8,80% 112 d.
1976-2 3.614,64 380% 67 d.
1977-1 3.110,15 080% 127 d.
1977-2 2.60641 fnnfv i Safttab 10.09.65
1976-1 2108,86 360% 127 d.
1978-2 1.664,34 Irmlv. 1 Scölab. 10.09.65
1979-1 1.45327 360% 97 d.
1979-2 1 085,03 Innlv 1 Saöteb 15.09.65
1980-1 98381 8,60% 147 d.
1960-2 768,42 NmN I Saóiab 25.10.85
1981-1 66387 380% 67 d.
1981-2 481,54 380% 327 d.
1982-1 456,99 360% 103 d.
1902-2 33309 Inntv. 1 S*Mab 1.10.85
1983-1 265,50 8.»% 103 d.
1983-2 167,52 8,60% 343 d.
1984-1 16372 6,60% 1 Ar 73 d.
1964-2 15351 380% 1 Ar 292 d.
1904-3 14311 360% 1 Ar354 d.
1985-1 13202 8,60% 2 Ar 52 d.
1975-G 4.007,» 360% 13 d.
1976-H 362306 8,60% 132 d.
1976-1 2.787,35 3«0% 1 Ar 12 d.
1977-J 247306 380% 1 Ar 133 3
1981-1FL 53001 800% 163 d.
1985-1IB 8602 1300% 10 Ar, 1 afb. A Arl
1985-2IB ».16 11,00% 5 Ar, 1 afb. A Arl
1985-3IB 87,45 11,00% 5 Ar, 1 efb A Arl
Veðskuldabrél - Terðtryggð
2«ft>
«*n
1 Ar
2ár
3 ér
4ir
SAr
6ér
7 Ar
8 Ar
9 Ar
lOAr
Sötugangl m.v.
12%
95
91
Veðskuldabiél - óTerðtxyggð
1 Ar
2«r
3 Ar
4«r
5Ar
Kjarobrél
Verðbréíasjóðsins
H pr. 18/11 - 14
Sókrmb
6 625
66.250
Eigendur íjarmagns,
eftirspyrjendur íjármagns!
Við getum aðstoðað þig,
hvort sem þú ert að leita eftir góðri óvöxtun
á spariíé þínu - eða þú ert í fjármagnsleit.
Við bjóðum upp á „klœðskerasaumaðar"
lausnir sem henta óskum þínum.
VerOibrófa 11 ia rkabi i r
Fjárfestingarfefagsins
Hafnarstræti 7, c» 28566
Stofnaðili að Verðbréfaþingi íslands