Morgunblaðið - 17.11.1985, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985 •
Yurchenko sagði frá þessu á blaða-
mannafundi, þar sem sovézkir blaðamenn
skelltu upp úr hvað eftir annað þegar hann
lýsti bandarískum embættismönnum og
svaraði hæðnislega spurningum vestrænna
fréttamanna.
RÁÐGÁTA
Líklega munu menn velta því fyrir sér
árum saman hver sé í raun og veru sann-
leikurinn i þessu dularfulia máli.
Margir leyniþjónustumenn telja að mál-
ið hefði ekki fengið þessi endalok, ef CIA
hefði ekki kappkostað svo mjög að auglýsa
liðhlaup Yurchenkos og ljóstrað því upp
frá hverju hann hefði að segja til að auka
sig í áliti — áður en gengið hafði verið
rækilega úr skugga um hvort hægt væri
að treysta honum.
Upphaflega var Yurchenko kallaður
„mikilvægasti strokumaður allra tima".
Hann var m.a. talinn mikilvægur vegna
þess að hann væri ekki af sama sauðahúsi
og fyrri liðhlaupar, aðrir en Oleg Gordiy-
evsky, fyrrverandi yfirmaður KGB í Lund-
únum, sem strauk skömmu á undan honum.
Þessum tveimur síðustu liðhlaupum var
þannig lýst að það sem lægi á bak við strok
þeirra væri ekki peningafíkn eða persónu-
leg vandamál, heldur óánægja með kerfið,
sem þeir þekktu náið og höfðu komizt til
áhrifa í og notið góðs af.
Þegar skýrt var frá stroki Yurchenkos
í síðari hluta september var hann sagður
fimmti valdamesti maður KGB. Þegar
hann ákvað að snúa heim var sagt að hann
væri meðalháttsettur, en ofursti að tign.
Hann var annar æðsti maður Norður-
Ameríkudeildar KGB og hafði að baki 25
ára starfsreynslu. Hann mun hafa haft
umsjón með vali á sovézkum erindrekum
í Norður-Ameríku og haft beint eftirlit
með KGB-mönnum búsettum í Kanada.
Þeir sem telja að strok hans í Róm hafi
verið sett á svið útiloka ekki að Rússar
hafi viljað hefna sín á vestrænum leyni-
þjónustum eftir flótta Gordiyevskys. Þeir
sem trúa því að hann hafi í raun og veru
strokið eiga erfitt með að trúa því að Rúss-
setið á upplýsingum af persónulegum
ástæðum, þar sem hann hafi viljað vera
viss um að hann fengi góða meðferð. CIA
mun nú reyna að sannprófa upplýsingar
hans.
Starfsmenn Þjóðaröryggisráðsins í
Hvíta húsinu munu hins vegar telja að
upplýsingar Yurchenkos hafi sáralitla þýð-
ingu. Þeir telja það sönnun þess að um
gabb hafi verið að ræða og Reagan virðist
þeim sammála samkvæmt yfirlýsingu hans
um málið.
Ýmsir sérfræðingar segja hins vegar að
skynsamlegt sé hjá Reagan að gera lítið úr
uppljóstrunum Ýurchenkos til að halda
ráðamönnum í Moskvu í óvissu um raun-
verulega vitneskju Bandaríkjamanna um
fyrirætlanir Rússa.
TORTRYGGNI
Ýmsir þingmenn, sem eru kunnugir
leyniþjónustumálum, voru tortryggnir i
garð Yurchenkos frá upphafi.
William Cohen öldungadeildarmaður
segir að hann og tveir aðrir þingmenn
hafi skýrt CIA frá efasemdum sínum.
„Okkur var sagt að að upplýsingarnar
væru mjög mikilvægar," sagði Cohen.
„Leyniþjónustan taldi að hún gæti treyst
honum og að upplýsingarnar, sem hún
fengi, væru mjög mikilvægar. Við höfum
sagt henni að kynna sér þær á nýjan leik
Veitingahúsið íGeorgetown.
Yurchenko kemur úr bandaríska utanríkisráóuneytinu ásamt Viktor Isakor, starfsmanni sorézka
sendiráðsins (til hægri).
ar færu að nota mann eins og Yurchenko
til aðgerða gegn CIA vegna þeirrar áhættu
að hann „styngi af“ fyrir fullt og allt eða
að hann yrði neyddur til að skýra frá
mikilvægum upplýsingum.
Ýmsir halda því fram að mestu mistök
CIA hafi verið þau að gera sér ekki grein
fyrir því að flóttinn og svik við ættjörð
og fjölskyldu hafi verið Yurchenko mikið
andlegt álag.
í hópi þeirra, sem þetta álíta, eru stuðn-
ingsmenn James Jesus Angletons, fyrrver-
andi yfirmanns gagnnjósna CIA, sem gekk
ríkt eftir því að þaulkannað væri hvort
hægt væri að treysta liðhlaupum frá
kommúnistaríkjum. Þeir hafa dregið í efa
að CIA hafi haldið nógu vel á máli Yurch-
enkos allt frá því hann strauk og sögðu
að upplýsingar hans væru tilbúningur og
einskis virði.
SKIPTAR SKOÐANIR
Starfsmenn CIA og bandaríska Þjóðar-
öryggisráðsins eru ekki sammála um hvað
vakti fyrir Yurchenko og um gildi upplýs-
inga hans.
Almennt eru starfsmenn CIA þeirrar
skoðunar að hann hafi verið mikilvægur.
Leyniþjónustan skýrði Bandaríkjaþingi
frá því að hann hefði veitt mikilvæga vitn-
eskju um leyniþjónustustörf Rússa, þótt
haft sé eftir heimildum innan hennar að
lítið hafi fengizt upp úr honum síðustu
fimm vikumar áður en hann ákvað að
snúa aftur.
Skýringin á þessu er sögð sú hann hafi
og kanna hvort þær hafi í raun og veru
verið mikilvægar í ljósi þess sem gerzt
hefur.“
David Durnenberger, formaður leyni-
þjónustunefndar öldungadeildarinnar,
sagði að vandlega hefði verið gengið úr
skugga um hvort upplýsingar Yurchenkos
væru réttar og að ekkert benti til þess að
hann hefði látið í té ranga vitneskju. Hafi
ekki allt verið með felldu hafi „annaðhvort
verið um samsæri að ræða frá byrjun eða
verulegar þvinganir gegn honum“.
George Caruer, fyrrverandi starfsmaður
CIA, sagði: „Mér finnst einfaldasta og trú-
legasta skýringin sú að maðurinn hafi
viljað strjúka, en síðan hafi honum snúizt
hugur." Ef svo hafi verið muni saga Yurch-
enkos um að honum hafi verið rænt og
gefin eiturlyf og hann verið pyntaður ætluð
yfirmönnum hans í Moskvu.
William Colby, fv. yfirmaður CIA, sagði
að komið hefði fyrir áður að rússneskir
strokumenn þyldu ekki andlegt áfall við-
skilnaðar við ættjörð og fjölskyldu og
ákveðið að snúa heim.
í því sambandi er bent á hliðstætt mál
sovézka blaðamannsins Oleg Bitovs, sem
bað um hæli á Bretlandi 1983 en sneri aftur
til Moskvu í fyrra. Hann sagði svipaða
mannránssögu og Yurchenko, en brezkir
embættismenn eru sannfærðir um að þeim
báðum hafi snúizt hugur.
Þeir sem tortryggja Yurchenko benda á
að hann hafi veitt upplýsingar um erind-
reka, sem koma Rússum ekki lengur að
notum. Þeir telja að ef hann hefði raun-
verulega svikizt undan merkjum hefðu
yfirheyrslurnar yfir honum leitt til þess
að fjöldi manns hefði verið handtekinn eða
rekinn úr landi. Árangurinn af yfirheyrsl-
unum yfir honum virðist hins vegar rýr.
Frá því hefur verið skýrt að Yurchenko
hafi afhjúpað Edward Lee Howard, óán-
ægðan fyrrverandi starfsmann CIA, sem
útvegaði KGB upplýsingar um rússneskan
njósnara CIA. Howard hvarf í Santa Fe í
september og hefur sennilega flúið til
Moskvu.
Yurchenko mun einnig hafa staðfest að
KGB hafi rænt Nikolai Shadrin, sem lék
ar í leyniþjónustunefnd öldungadeildar-
innar sögðu hins vegar að Yurchenko hefði
vafalaust kynnzt nokkrum leyndarmálum,
sem kæmu Rússum að notum. Það getur
líka skipt máli að nú geta Rússar notað
mál hans til að sýna öðrum, sem kynnu
að freistast til að strjúka, að varasamt sé
að treysta hæfni bandarísku leyniþjón-
ustunnar.
RANNSÓKN
Reagan forseti íhugar nú að fyrirskipa
víðtæka rannsókn, þar sem CIA klúðraði
málinu. Hann hefur mestar áhyggjur af
Yurchenko kreður.
Húsið i Fredericksburg.
tveim skjöldum, og myrt hann í Vín 1975,
þegar hann vann fyrir CIA. Að öðru leyti
mun Yurchenko aðeins hafa veitt vís-
bendingar, en sagt er að þær geti reynzt
mikilvægar, ef þær fáist staðfestar.
FRÆDDIST HANN?
Bandarískir embættismenn halda því
fram að Yurchenko hafi lítið getað fræðzt
um bandarískar njósnaaðgerðir þegar
hann var yfirheyrður. „Hann veitti okkur
upplýsingar; við sögðum honum ekkert.
Við urðum ekki fyrir nokkru tjóni,“ sagði
Caspar Weinberger landvarnaráðherra.
Fyrrverandi starfsmenn CIA og fulltrú-
þeim mistökum að Yurchenko var leyft að
hitta ástkonu sína í Kanada með þeim
afleiðingum að hann fylltist þunglyndi og
að svo lítið eftirlit var haft með honum
að honum reyndist auðyelt að setja sig í
samband við sovézka sendiráðið og undir-
búa heimferð.
Búizt er við að æðstu menn bandarísku
leyniþjónustunnar fái ákúrur frá forsetan-
um þegar málið hefur verið rannsakað.
Gera má ráð fyrir mannabreytingum, en
þó er ekki talið að Casey, yfirmaður CIA,
verði látinn víkja, ef hann kemur á nauð-
synlegum breytingum, ekki sízt á sviði
gagnnjósna.
GH tók saman.