Morgunblaðið - 17.11.1985, Síða 52
52 MORGUNBLÁÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985
Morgunblaftið/Ólafur K. Magnússon
Þessi mynd var tekin í pósthúsinu f Pósthússtræti eftir aó breytingarnar
höfóu verió geröar á afgreiöslusalnum. Á myndinni eru talió frá vinstri:
Björn Björnsson póstmeistari, Kristján Helgason umdæmisstjóri, Þorgeir
K. Þorgeirsson framkvæmdastjóri, Guðmundur Björnsson framkvæmda-
stjóri, Jón A. Skúlason Póst- og símamálastjóri og Bragi Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri.
Fræðslufundur Krabbameinsfélags
Reykjavíkur:
Vinnuumhverfi
og krabbamein
Pósthúsið í
Pósthússtræti:
Opnað eftir
breytingar
Afgreiðsla pósthússins við Póst-
hússtræti var opnuð í gær, föstudag,
eftir gagngerar breytingar og lag-
færingar, sem staðið höfðu yfir frá
því síðastliðið vor. Er þetta önnur
meiriháttar breytingin sem gerð er
á húsnæðinu, en árið 1957 voru síðast
gerðar á því lagfæringar og nýjum
innréttingum komið fyrir.
Inngangur í pósthúsið við Póst-
hússtræti er sá sami og áður og
hefur honum ekki verið breytt, en
gagngerar breytingar hafa verið
gerðar á húsnæði afgreiðslunnar
og pósthólfadeild. Almenn póstaf-
greiðsla fer fram á fyrstu hæð
hússins en pósthólfadeildin, sem
tilbúin var í ágúst síðastliðnum,
er í kjallara hússins. „Mér líst
mjög vel á þessar breytingar, hús-
næðið er bjart og hlýlegt," sagði
Jón Skúlason Póst- og símamála-
stjóri er blaðamaður Mbl. ræddi
við hann á fimmtudag í pósthús-
inu, þar sem menn voru saman
komnir til að fagna þessum
áfanga. Jón sagðist vonast til að
breytingarnar mæltust vel fyrir
hjá starfsfólki og eins viðskipta-
vinum. „Póstafgreiðslan hefur
verið í Hafnarhvoli við Tryggva-
götu meðan á þessum lagfæringum
stóð og var það mikil hagræðing
að geta verið i eigin húsnæði þann
tíma,“ sagði Jón.
Jósef S. Reynis arkitekt hafði
umsjón með með verkinu og um
hönnun raflagna sá Egill S. Engil-
bertsson rafmagnsverkfræðingur.
Jóhann Hjálmarsson blaðafulltrúi
Pósts og síma sagði í samtali við
Mbl. að þess væri að vænta að
bætt aðstaða pósthússins kæmi
viðskiptavinum til góða og meðal
nýjunga í þjónustu Pósts og síma
væru svonefndar póstfax- og for-
gangspóstsendingar og gætu við-
skiptavinir fengið slíka þjónustu í
Pósthúsinu R-1 við Pósthússtræti.
Hann gat þess svo að endingu að
frímerkjasala til safnara yrði
einnig í afgreiðslusal pósthússins.
KRABBAMEINSFÉLAG Reykjavík-
ur efnir í vetur til tveggja fræðslu-
og umræðufunda um tengsl milli
krabbameins og umhverfis, en með
því er ekki aðeins átt við umhverfi
í venjulegri merkingu orðsins heldur
einnig t.d. neysluvenjur og aðra lífs-
hætti. Fundirnir verða haldnir í húsi
Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð
8.
Fyrri fundurinn verður mánu-
daginn 18. nóvember og hefst kl.
20.30. Verður þá fjallað um vinnu-
urahverfi og krabbamein en frum-
mælendur verða dr. Vilhjálmur
Rafnsson, yfirlæknir Vinnueftir-
lits ríkisins, og Helgi Guðbergsson,
yfirlæknir atvinnusjúkdómadeild-
ar Heilsuverndarstöðvar Reykja-
víkur, en þeir eru báðir sérfræð-
ingar í atvinnulækningum. Einnig
verður fjallað um ávana- og fíkni-
efni og krabbamein. Erindi flytja
dr. Þorsteinn Blöndal, yfirlæknir
lungna- og berklavarnadeildar
Heilsuverndarstöðvarinnar og sér-
fræðingur í lungnalækningum, og
dr. Þorkell Jóhannesson, prófess-
or, sérfræðingur í lyfjafræði og
eiturefnafræði. Fundarstjóri verð-
ur Sigurður Árnason, sérfræðing-
ur í krabbameinslækningum.
Seinni fundurinn verður vænt-
anlega í febrúar.
Öllum er heimill aðgangur að
þessum fundum.
(FrétUtilkynning)
ÓDÝRAR LOFTPRESSUR
NÝJUNG FRÁ
INGERSOLL-RAND
INGERSOLL RAND veiksmidjumcn eru heimsþekktar íyrír
íramleidslu vandadra loítþjappa og loítveikíœia.
INGERSOLL RAND
eru snlgilþjöppur, knúnar aí
loítkœldum dieselhreyíli.
INGERSOLL RAND
þjöppumar em
meöíœrilegar íyrir einn
mann og auöveldar í
drœtti fyrir litla íólksbíla.
INGERSOLL RAND býður nú
nýja gerð aí léttbyggðum,
ílytjanlegum loítþjöppum
ótrúlega mikil aíköst.
LeitiÖ nánarí upplýsinga hjá
umboösaöila ingersoll-rand
áíslandi.
• •
Onnur bók
Liv Ullmann
SETBERG hefur gefið út bókina
Þáttaskil — Svipmyndir úr lífi mínu
eftir Liv Ullmann í þýðingu Guðrúnar
Guðmundsdóttur.
Á kápusíðu segir: „Liv Ullmann
sló í gegn á nýju listasviði, þegar
hún sendi frá sér fyrstu bók sína,
„Umbreytinguna". Nú fáum við í
hendur nýja bók, sem fylgir hinni
fyrri vel eftir. Þar stillir Liv Ull-
mann sér upp í miðju mannlífsins,
sem leikari, manneskja og ekki
síst ástfangin kona, sem hlustar,
sér, finnur, skilur — og segir frá.
Lesendur munu njóta þessarar
ferðar með Liv Ullmann í gegn um
Hákon Björnsson
framkvæmdastjóri
Aburðarverksmiðjunnar:
„Við bíðum
ekki stór-
fellt tjón“
„ÉG HEF enn ekki farið í að afla
mér upplýsinga um hvað Þorsteinn
átti við í raun og veru við þannig
að ég get lítið sagt á þessu stigi. Við
vorum með ákaflega lágar áætlanir
um framkvæmdir, alveg í lágmarki,
um 40 milljónir króna,“ sagði Hákon
Björnsson, framkvæmdastjóri
Áburðarverksmiðju ríkisins, í sam-
tali við Morgunblaðið um það sem
Þorsteinn Pálsson sagði í fjárlaga-
ræðu sinni a þriðjudag um niður-
skurð til ríkisfyrirtækja.
„Við vorum ekki með neinar
nýfjárfestingar. Þessir peningar
voru nær eingöngu til viðhalds og
venjulegrar endurnýjunar á tækj-
um. Við viljum náttúrulega halda
í eitthvað af þeim peningum sem
okkur voru ætlaðir en við biðum
ekki stórfellt tjón þó eitthvað verði
skorið niður," sagði Hákon.
Liv Ullmann
brim og boða mannlífsins og verða
auðugri á eftir."
Bókin Þáttaskil er 183 blaðsíður,
sett og prentuð hjá Prentberg hf.
Siglufjörður:
Músahópar á
rölti um götur
bæjarins
Siglufirði, 14. névember.
ÓVANALEGA mikið hefur borið
á músagangi hér í haust, einkum
í þeim hlutum bæjarins, sem
liggja að fjallshlíðunum. Menn
hafa orðið varir við stóra hópa á
rölti um götur í úthverfum bæjar-
ins og vitað er að mýs hafa troðið
sér inn í íbúðarhús.
Ég sá dálítið skrítið hér á
laugardaginn - arnarunga á
flugi. Hann settist svo á há-
spennustaur hér skammt frá
og virtist alveg rólegur. Þetta
var orðinn nokkuð stálpaður
fugl, þvi hann var orðinn stærri
en fálki. Það sagði mér piltur
sem á dúfur hér í bænum, að
hann hefði orðið var við fálka
í haust og sést hefur til fálka
slá niður dúfu í bænum.
Skýringin á fálkum og örnum
hér, sem eru ekki tíðir gestir í
Siglufirði, gæti verið músa-
gangurinn - að fuglarnir séu
að ná sér í æti. - Gamlir menn
segja að músagangurinn viti á
harðan vetur.
- MJ.
ítölsku angóru- 1
peysurnar eru
komnar
Glugginn Laugavegí 40 Kúnst húsinu sími 12854.