Morgunblaðið - 17.11.1985, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985
55
Matthíasar Jóhannessen, Félagi
orð, er viðtal við Bjarna heitinn.
Þar sagði hann, orðrétt eftir
haft:
„Ég tel að íslendingar hafi
stigið mikið heillaspor, þegar
þeir gerðust aðilar að NATO.
Með því sköpuðust möguleikar
til að gæta hagsmuna landsins
á miklu heillaríkari hátt en ella,
eins og m.a. kom í ljós við lausn
landhelgisdeilunnar. En aðal-
þýðingin fyrir okkur af aðild að
Atlantshafsbandalaginu er auð-
vitað fólgin í því öryggi sem
landið öðlaðist með vörnum ís-
lands...
Sem sjálfstæð þjóð verða ís-
lendingar, bæði sjálfra sín vegna
og annarra að gera sitt til að
haldið sé uppi friðargæzlu. Á
meðan varnir íslands stuðla að
henni, væri fullkomið glapræði
að hætta á að leggja varnarsam-
starfið niður.
Þá er líka auðséð, ef að Nató
leggst niður, þannig að varnar-
kerfi Vestur-Evrópu og Banda-
ríkjanna rofnaði, mundi ísland
fyrst lenda í verulegri hættu og
geta haft úrslitaþýðingu. íslend-
ingar ráða að vísu litlu um það,
hvort samstarfið innan Nató
helzt, en framtíð okkar og öryggi
krefst þess að við stuðlum að
því, að svo megi verða.“
Þessi orð hafa engu minna
gildi í dag en þá þau vóru sögð.
Mannréttindi
og farsæld
Geir Hallgrímsson, fyrrum
formaður Sjálfstæðisflokksins,
hefur gegnt embætti utanríkis-
ráðherra í tvö og hálft ár. Á
þessum tíma hefur margt verið
gert til að styrkja varnaröryggi
landsins. Jafnframt hefur verið
lagður grunnur að því að gera
okkur kleift að leggja sjálfstæð-
ara mat á gildi og þýðingu varn-
arsamstarfsins og einstakra
þátta þess.
Geir Hallgrímsson hefur í
farsælu starfi, sem unnið hefur
verið markvisst og án auglýs-
ingaskrums, reynzt verður arf-
taki Ólafs Thors og Bjarna
Benediktssonar, sem vóru höf-
undar íslenzkrar utanríkis- og
öryggismálastefnu. Að mínu
mati er Geir Hallgrímsson jafn-
hæfasti íslenzki stjórnmálamað-
urinn á líðandi stund. Við stönd-
um öll í vangoldinni þakkarskuld
við hann fyrir framsýn og farsæl
störf.
Það er einlæg von flestra
landsmanna að íslenzka lýðveld-
ið megi tryggja fullveldi sitt og
varnaröryggi — mannréttindi,
heill og velferð þegna sinna —
til langrar framtíðar. Það er
ekki síður einlæg von okkar að
friður með frelsi megi ríkja í
veröldinni, ekki einvörðungu á
áhrifasvæði Atlantshafsbanda-
lagsins í V-Evrópu og N-Amer-
iku, heldur á öllum byggðum
bólum heims. Það er þessi von
sem knýtir okkur og vinaþjóðir
okkar saman í Atlantshafs-
bandalaginu. Það hefur aldrei
farið með ófriði á hendur einum
eða neinum. Öðru máli gegnir
Sovétríkin — og er Afganistan
þar næst í tíma.
Vonir okkar standa jafnframt
til þess að okkur megi takast að
þróa þjóðfélag lýðræðis, þing-
ræðis og mannréttinda til meiri
almennrar farsældar, réttsýni
og velvilja.
Stöndum trúan vörð um stefnu
okkar í varnar- og öryggismál-
um. Sá akur einn, sem unninn
er af trúmennsku, skilar góðri
uppskeru. Á þessum akri höfum
við öll, sem standa viljum vörð
um þjóðfélagsgerð okkar, verk
að vinna.
(Þingbréf í dag er að stofni
erindi flutt á ráðstefnu Landsmála-
félagsins Varðar um öryggismál).
Skíðaútbúnaður á börn og unglinga
Blizzard skíöi
stærðir 80-90 cm
100—120 cm.
130—150 cm.
160—175cm.
kr.2.170
kr. 2.560
kr. 3.210
kr. 3.650
Nordica skíðaskór
teg. Nj 130
stærðir24—29
stærðir30—35
stærðir36—41
kr. 1.450
kr. 1580
kr. 1790
Look skíðabindingar
barnabindingar
Look 09
kr. 1.590
Unglingabindingar
Look 19 kr. 2.100
Nj 140
stærðir33—
kr. 2.630
39
Nj 160
stærðir35
kr. 3.380
—41
0>
utiuf
Glæsibæ, simi 82922
'a
Styðjum Jiflíus
tíl áframhaldandi starfa
fyrír Reykvíkinga
Prófkjör Sjálfsiœóisflokksins 24. og25nóv. 1985 - Stuðningsmenn
Við, sem studdum Júlíus Hafstein ísíðasta
prófkjöri fyrir fjórum árum,
endurnýjum nú þann stuðning
með mikilli ánœgju.
Reynslan hefur svo sannarlega sýnt,
að okkar maður uppfyllti allar
þœr vonir sem við bundum
við hann.
Júlíus Hafstein er mikilvœgur styrkur sam-
hentum borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstœðis
flokksins
Júlíus
í öruggt
sæti