Morgunblaðið - 17.11.1985, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985
B 13
Nyerere með norrœnum fulltrúum í fyrra
Nyerere tekur við starfi forseta (1962)
hafa haft sérstakt dálæti á Nyer-
ere vegna tilrauna hans til að
bæta kjör og efla menningu smá-
bænda, þrátt fyrir þá kreppu sem
sósíalismi hans er kominn í. Nor-
rænir jafnaðarmenn hafa einkum
haft hann í hávegum og hann
hefur verið kallaður „pabbadreng-
ur Norðurlanda." Mikil velvild,
sem hann hefur notið, hefur tryggt
Tanzaníu ómetanlega aðstoð frá
Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Hol-
landi, Kanada, Vestur-Þýzkalandi
og Bretlandi.
„Við kunnum vel að meta það
sem þeir eru að reyna að gera, þótt
það sé rétt að tala megi um stjórn-
málakerfi í kreppu," sagði sænskur
stjórnarerindreki nýlega. Lána-
drottnar Tanzaníumanna eru án-
ægðir með þá dýru félagslegu þjón-
ustu, sem þeir reyna að halda uppi,
og því er ekki líklegt að stefnunni
verði breytt í bráð, þrátt fyrir alla
erfiðleika.
i „ÞORPSSÓSÍALISMI“
Þeir sem hafa hrifizt af stefnu
Nyereres hafa talið hann bjarg-
vætt, sem hafi fundið lausn á
vandamálum Afríku með „þorps-
sósíalisma" sínum. Aðrir telja að
þorpssósialisminn hafi verið
mestu mistök hans.
f upphafi sá Nyerere fyrir sér
hamingjusama smábændur, sem
lifðu í sátt og samlyndi í
„ujamaa“-þorpum. Þau áttu að
verða nokkurs konar ríkissam-
vinnufélög (hann vildi ekki tala
um „samyrkjubú"). Vinnuflokkar
þorpsbúa áttu að vinna á sam-
eignarökrum og taka nútímatækni
í sína þjónustu. Dráttarvélar og
tilbúinn áburður áttu að auðvelda
störfin. Þorpin áttu að selja afurð-
ir sínar og kaupa það sem þurfti
á samvinnugrundvelli.
Nyerere hóf tilraunir sínar upp
úr 1960. Um tíu árum síðar taldi
hann sig hafa predikað nóg og
skipaði smábændunum að flytjast
frá jörðum sínum, þar sem forfeð-
ur þeirra höfðu búið mann fram
af manni, og setjast að í þorpunum.
Sumir létu sannfærast af ræðu-
snilld Nyereres og fluttust af fús-
um vilja, en aðra varð að neyða
til þess.
Skipulagi var ábótavant: fólki
var t.d. safnað saman í þorpum,
þar sem engu vatnsveitukerfi hafði
verið komið fyrir. Sameignar-
búskapur gekk ekki vel nema á
stöku stað.
Seinna viðurkenndi Nyerere að
“ujamaa“ hefði ekki einu sinni náð
að festa rótum í þorpinu, þar sem
hann fæddist. Hann neyddist til
að draga í land og fara hægar í
sakirnar, en þá var það orðið um
seinan. Tími, sem hefði verið hægt
að nota til að tryggja hægar og
jafnar framfarir, fór í tilrauna-
starfsemi, sem gaf slæma raun.
Tíu ár fóru í súginn.
Þróunin hefur orðið sú að smá-
bændurnir hafa laumazt burtu úr
þorpunum og hafið aftur ræktun
á fyrri jörðum sínum, eða safnazt
saman umhverfis bæina, þótt
stjórnvöld hafi reynt að flytja þá
í burtu.
Margir útlendingar hafa dáðst
að Nyerere fyrir að hafa alltaf
verið sjálfum sér samkvæmur og
trúr hugsjónum sínum og háleitum
markmiðum, þótt stefna hans hafi
beðið skipbrot.
Margir þessara útlendinga hafa
heimsótt „fyrirmyndaþorp" Nyer-
eres. Sumir hafa orðið fyrir von-
brigðum, en aðrir, sem eru stað-
fastari í trúnni, vilja bíða í 20—25
ár, en að þeim tíma liðnum telur
Nyerere að „þorpssósíalisminn"
muni hafa sannað ágæti sitt að
lokum. Á meðan strita um sex
milljónir Tanzaníumanna í þess-
um þorpum, sem sum hver hafa
þanizt svo út að ekki er hægt að
veita meirihlutanum þá félagslegu
þjónustu, sem heitið hefur verið
oggumað eraf.
Einu mistökin, sem Nyerere
viðurkennir, eru þau að kenning-
um hans hafi verið beitt á rangan
hátt. Hann vill ekki kenna kenn-
ingum sínum um hið versnandi
efnahagsástand, heldur verðfalli á
útflutningsafurðum Tanzaníu-
manna. Hann bendir einnig á
upplausn Efnahagsbandalags
Austur-Afríku og kostnaðarsama
styrjöld við Uganda 1979.
Nyerere hefur sagt- að hann
muni ekki endurgreiða skuldir
landsins, ef neyða verði þjóðina til
að svelta, og barizt hatrammlega
gegn skilyrðum IMF.
INNRÁSIR
Ef til vill náði Nyerere hátindi
ferils sins þegar hann varð forseti
Einingarsamtaka Afríku (OAU) í
fyrra og stýrði árlegum leiðtoga-
fundi, þar sem athyglin beindist
að efnahagsvanda álfunnar. En
Nyerere er ekki hátt skrifaður alls
staðar í Afríku: Nígeríumenn hafa
t.d. ekki gleymt því að hann studdi
Biaframenn í borgarastríðinu í
Nígeríu.
Nyerere hefur verið fljótur að
fordæma afskipti Evrópuþjóða í
Afríku, t.d. íhlutun Frakka í Zaire,
en sjálfur hefur hann ekki hikað
við að senda Tanzaníuhermenn út
af örkinni til að styðja við bakið
á vinveittum ríkisstjórnum.
Á valdatíma hans hafa Tanza-
níumenn tvívegis sent hernámslið
til Uganda síðan Idi Amin ein-
ræðisherra var steypt af stóli. Þar
að auki hafa tanzanískir hermenn
verið sendir til Seychelleseyja og
Comoroseyja og til Mósambík, þar
sem þeir studdu hreyfinguna Fre-
limo fyrst eftir að landið hlaut
sjálfstæði. Leiðbeinendur voru
einnig sendir til Zimbabwe að
aðstoða við að koma nýjum her á
laggirnar.
Nyerere hefur sætt gagnrýni
síðan hann varð formaður sam-
taka þeirra ríkja, sem standa í
„fremstu víglínu“ baráttunnar
gegn Suður-Afríku og krefjast
sjálfstæðis Namibíu og afnáms
kynþáttaaðskilnaðar í Suður-
Afríku (SADCC). Fulltrúar í vest-
rænni samstarfsnefnd, sem hefur
reynt að ná sama árangri með
óbeinni aðferðum, hafa borið litla
virðingu fyrir honum. Nyerere
hefur getað tekið herskárri afstöðu
en leiðtogar hinna SADCC-ríkj-
anna, þar sem hann hefur minna
þurft að óttast hefndir Suður-
Afríkumanna en þeir.
NANSENSVERÐLAUN
Nyerere hlaut Nansens-verð-
launin fyrir starf í þágu flótta-
manna. En andstæðingar hans
halda því fram að hann sé ein-
ræðisherra, sem auk þess að hafa
ráðizt inn í grannríki hafi þúsund-
ir manna í haldi án dóms og laga.
Hann hefur verið gagnrýndur að
beita óspart gæzluvarðhaldsheim-
ildum til að þagga niður í andstæð-
ingum.
Hann sætti harðri gagnrýni
þegar hann samþykkti beiðni
Kenyamanna 1983 um að fram-
selja samsærismenn, sem voru
dregnir fyrir herdómstól og dæmd-
ir til dauða, í skiptum fyrir and-
stæðinga Tanzaníustjórnar, sem
nú bíða dóms og eiga dauðadóma
yfir höfði sér. Þetta samkomulag
leiddi til þess að landamæri Tanza-
níu og Kenya, sem höfðu verið
lokuð síðan 1977, voru opnuð á ný.
Ekki er óalgengt að þingmenn
bíði ósigur í kosningum í Tanzaniu,
en stjórnarflokkurinn er allsráð-
andi og frambjóðendur hans eru
gæðingar Nyereres. Hann hefur
getað notað TANU til að fá lands-
menn til að hlíta settum reglum í
einu og öllu, en hins vegar hefur
honum reynzt erfitt að stjórna
íbúum eyjanna Zanzibar og
Pemba.
Hann sameinaði eyjarnar
Tanzaníu 1964 til að geta betur
haft taumhald á íbúunum, en
spurði þá ekki áður hvort þeir
vildu glata þeirri sjálfstjórn, sem
þeir höfðu notið. Eyjarnar hafa
valdið stöðugum erfiðleikum og
aftur sauð upp úr í fyrra, þegar
settar voru fram háværar kröfur
um aukna sjálfstjórn og jafnvel
hótað aðskilnaði. Ennþá einu sinni
greip Nyerere til hersins og kom
aftur á ótryggum friði.
Nyerere hefur oft losnað úr
slæmri klípu vegna persónuþokka
og hygginda og þannig getað hald-
ið völdunum. Það hefur líka hjálp-
að honum að í landinu eru ekki
stórir ættflokkar, sem hafa haft
burði til að storka ríkisstjórn hans.
í landinu er heldur engin samstæð
og skipulögð stjórnarandstaða,
sem nær inn í herinn, og það hefur
dregið úr líkum á stjórnarbyltingu.
UPPREISNIR
ólgu hefur þó stundum gætt í
hernum. í ársbyrjun 1983 hermdu
fréttir að tilraun hefði verið gerð
til að steypa Nyerere af stóli vegna
óánægju með efnahagserfið-
leikana og matvælaskortinn.
Hundruð borgara og hermanna
voru handteknir.
Líklega varð Nyerere þó fyrir
mesta áfallinu á ferli sínum
skömmu eftir að Tanzanía hlaut
sjálfstæði. Her hans gerði upp-
reisn og neyddi hann til að fara
huldu höfði í nokkrar vikur þar til
brezkir víkingahermenn, sem voru
sendir á vettvang frá Aden að
beiðni hans, neyddu uppreisnar-
mennina til að gefast upp.
Sennilega hefur Nyerere aldrei
orðið að þola aðra eins auðmýk-
ingu og þá að verða að biðja fyrr-
verandi nýlenduherra að bjarga
sér úr klóm eigin hermanna. En
væri hann spurður nú teldi hann
það e.t.v. meiri auðmýkingu að
verða að lokum að gefast upp fyrir
vilja Alþjóðabankans og IMF og
ganga að skilyrðum þessara stofn-
ana, t.d. með því koma aftur á
nokkrum einkarekstri og leyfa
sjálfseignarjarðir og opnun lítilla
verzlana, svo að lífsnauðsynjar
komist aftur til þjakaðra lands-
manna. Kannski mundi það bæta
efnahagsástandið ' nokkuð, en á
þeim vanda finnst engin auðveld
lausn, nema ef vera kynni að olía
fyndist í Tanzaníu.
GH tók saman.