Morgunblaðið - 17.11.1985, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1986
B 27
„Við lifðum og
hrærðumst í þessu,“
sagði Helena Eyjólfsdóttir
Helena og Finnur 25 árum síðar og afa og ömmu titlinum ríkari.
„„Buldi við brestur, og brotn-
aöi þekjan,“ er gömul íslensk
þula sem við settum í eigin
útsetningu og náði miklum
vinsældum á þessum tíma,“
sagði Helena Eyjólfsdóttir,
innt eftir hvaða lög hefðu átt
mest upp á pallborðið hjá
gestum í Silfurtunglinu fyrir
25 árum.
Helena og Finnur Eydal voru
á tíðum á síðum Morgun-
blaðsins árið 1960, þau trúlofuðu
sig og voru að byrja með hljóm-
sveit í Reykjavík.
Þegar blaðamaður sló á þráð-
inn norður á Akureyri þar sem
þau hjón búa og bað Helenu að
líta um öxl sagði hún:
„Þetta var einmitt fyrsti vet-
urinn sem Finnur var með
hljómsveit í Reykjavík. Á sumr-
in höfðum við verið með hljóm-
sveitina „Atlantic kvintett" á
Akureyri í Alþýðuhúsinu, en
breyttum nafninu er suður kom
í Hljómsveit Finns Eydal. Þenn-
an vetur trúlofuðum við okkur
líka og lékum til að byrja með
í Silfurtunglinu.
Við stöldruðum fremur stutt
við þar og byrjuðum að spila í
Storkklúbbnum, sem seinna var
kallað Glaumbær. Þar lékum við
ásamt Lúdó-sextettinum og oft
voru skemmtikraftar einnig
fengnir að erlendis frá.“
— Þetta hefur verið
skemmtilegur tími?
„Já, vissulega var þetta gam-
an. Við lifðum og hrærðumst í
þessu, þetta var lifibrauðið
okkar. Að þessum vetri loknum
fórum við aftur norður og lékum
í síðasta skipti í Alþýðuhúsinu,
því svo komum við suður og
gengum í lið með hljómsveit
Svavars Gests.
— Þegar myndin birtist af
ykkur Finni í Morgunblaðinu
fyrir 25 árum, sagðirðu að gift-
ingin væri jafnvel á næstu grös-
um?
„Já, við giftum okkur sumarið
eftir þetta og mikið ósköp hefur
tíminn nú verið fljótur að líða,
en í dag erum við Finnur orðin
afi og amma.
— Þúertennaðsyngja?
„Við höfum alltaf verið viðloð-
andi þetta síðan þarna fyrir 25
árum og verið með hljómsveit.
Núna erum við einmitt að fara
af stað eftir nokkurra mánaða
hlé. Það er kannski ótrúlegt, en
það er afskaplega erfitt að slíta
sig frá þessu og hætta. Þó eru
nú breyttir tímar hjá okkur, því
í dag erum við aðallega að þessu
ánægjunnar vegna. Það má
segja að þetta sé tómstunda-
gaman því við öll sem erum í
hljómsveitinni stundum fulla
vinnu annarsstaðar. Við erum
sem sagt ekki á þeim buxunum'
að hætta á næstunni."
— Hvar hafið þið spilað und-
anfarið?
„Hér og þar og allsstaðar. Við
höfum verið í Sjallanum, á KEA,
á Egilsstöðum, ... og svo á Sögu
á sumrin undanfarið og það
hefur verið ofsalega gaman að
hitta þar gömlu aðdáendurna."
Bladburðarfólk
óskast!
Austurbær Vesturbær
Laugavegur 34—80 Gnitanes, Skerjafiröi
Bergstaöastræti
Hverfisgata65—115
Barónsstígur4—33