Morgunblaðið - 10.01.1986, Page 14

Morgunblaðið - 10.01.1986, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR10. JANÚAR1986 14 Minning: Hrafn Marinósson aðstoðarvarðstjóri Fæddur 2. október 1938 Dáinn 3. janúar 1986 Vænn vinnumaður hefir verið kallaður af velli heim um miðian dag. Maðurinn er kvaddur til lífsins og göngu með samferðafólki. Þessi vegferð er okkur sífellt umhugsun- arefni, gangan er svo mislöng. Því er brottfarartíminn þannig að oftast er jarðvistin of skömm eða fólk bíð- ur ellimótt og sjúkt eftir hvíldinni. Dauðinn er kenjóttur og lætur einatt bíða eftir sér sé hans vænst. Manneskjan ályktar en annar ræður og því bjargast hver og einn aðeins að nái taki á klæðafaldi Drottins og sættist við móður nátt- úru og lögmál hennar. Hrafn var kallaður um miðjan dag. Glaðbeitti og ákveðni félaginn úr starfí og baráttu fyrir stétt sína er horfínn úr hópnum. Hvort lífs- gangan er löng eða skömm stendur hitt hvemig við lifendur erum skild- ir eftir. Hér á við birtan yfír minn- ingu góðs drengs er bar ljósið með návist sinni og gladdi umhverfíð. Han lifír í hugum okkar og ljúfleik- inn dregur broddinn úr treganum. Góðar minningar eru ástvinum uppspretta þroska. Þær breytast í tímanum og taka á sig nýjar myndir eftir hvað við ber hverju sinni. Slík- ar minningar varðveitir hver og einn með sjálfum sér. Það skýra orðin: „Ég lifí og þér munuð lifa.“ Hrafn Marinósson var fæddur í Vallanesi á Héraði 2. október 1938. Móðir hans, Arndís Ásgeirsdóttir, dvaldi þá hjá systur sinni Hrefnu en nafn hennar fékk drengurinn. Þau presthjónin Hrefna og séra Marinó báðu um að fá drenginn til uppeldis en þau vom barnlaus eftir rúmlega þriggja ára hjúskap. Kom til ættleiðingar en aðstæður breytt- ust skjótt. Frú Hrefna lézt 22. apríl 1939 eftir dvöl á sjúkrahúsi syðra. Fárra mánaða fór Hrafn í fóstur til móðurforeldra sinna á Blönduósi, Hólmfríðar Zóphanías- dóttur og Ásgeirs Þorvaldssonar. Um 13 ára aldur flutti hann til móður sinnar og manns hennar, Halldórs Erlendssonar kennara. Aðskilnaður við móður var því aldr- ei, heldur sterkari tenging við fj'öl- skyldu hennar. Systkinahópurinn syðra var samheldinn og fjölskyldan öll. I samtali við frú Arndísi sagði hún ekki hafa farið hörð orð á milli þeirra tveggja. Em það miklar minningar en sjálfsagt fátíðar. Hrafn nam ungur rafvirkjun og starfaði síðan í félagi við meistara sinn, Þóri Jónsson. Árið 1959 kvæntist Hrafn Sigríði Einarsdóttur, bömin urðu þtjú: Aðalbjörg, nú við nám í Bandaríkj- unum. Heim komin til að fylgja föður sínum og dvelja með fólki sínu þessa daga. Kristinn, nemandi í Háskóla Islands, og Amdís yngst. Soninn Áma átti Hrafn áður. Á heimili þeirra Hrafns og Sigríðar kom ég stöku sinnum en sporaslóðir skámst á vettvangi tengdum starf- inu. Þar var gott að koma. Aðskiln- aður þeirra hjóna varð fyrir hálfu öðm ári. Fimm ár em liðin frá því Hrafn kenndi sjúkleika en upprof urðu á veikindum hans. Þessi heilsubrestur var okkur félögum hans að mestu gleymdur því hinn glaði og jákvæði maður vék ekki tali í þá átt. Þrátt fyrir léttleikann var Hrafn búinn stóm skapi, er það styrkur í raun þegar fylgir réttsýni. Hlátur hans var tveggja tóna. Sjálf gleðin og hinn er víkur eigin erfiðleikum frá í tali við aðra. Hrafn var ríflega meðalmaður á hæð, þrekvaxinn og þéttur, manna bezt á sig kominn og hinn liprasti í öllum hreyfíngum. Í starfí lögreglumannsins bjó hann yfír kosti sem tekur fram góðum líkamsburðum en ávallt gott ef fara saman. Heilbrigð sálin í hraustum líkama skilaði Hrafni með flekk- laust sverð og heilan skjöld. Hrafn réðst í lögreglulið Reykja- víkur 1968. Varð aðstoðarvarðstjóri 1983 en settur varðstjóri frá liðnu ári. Frá ámnum er Hrafn starfaði við iðn sína var hann kunnugur samningamálum og stéttvísi. Störf hans að félagsmálum lögreglu- manna náðu nær allan starfstíma hans. Námsfélagarnir á Lögreglu- skólanum fólu honum og tveim öðmm að vinna að sérstöku kjara- máli nýliða. Þarna hafði neitun komið á neitun ofan en fullnaðar- sigur vannst. Stjómarmaður í Lög- reglufélagi Reykjavíkur var hann til margra ára og kom þar gleggst fram festan og hve fljótur hann var að meta hlutina í ljósi aðalatriða en forðast útúrdúra vegna ívafs þess er minna máli skiptir. Á þingi Landssambands lög- reglumanna í ársbyijun 1982 var leitað til Hrafns að hann tæki við formennsku og yrði þar með oddviti stéttar sinnar allrar. Þessu tók hann með hlátrinum, þegar mikið bjó undir og við hinir minntir á alla hafa fengið að styrkja hana í erfið- um veikindum. Guð blessi minningu þessarar öðlingskonu. Guðrún Jónsdóttir Ólöf Jónsdóttir frá Kirkjubæ í Skutulsfírði andaðist í sjúkrahúsi ísafjarðar 4. þessa mánaðar, tæp- lega 82 ára að aldri. Útför hennar fer fram frá ísafjarðarkirkju í dag. Ólöf Jónsdóttir var fædd að Kirkjubæ í Skutulsfírði 8. maí 1904. Foreldrar hennar vom hjónin Jón Bjamason, trésmiður, bóndi á Kirkjubæ og síðar heimilisfastur á Isafirði í marga áratugi, en hann var fæddur 2. júní 1872, og kona hans, Guðbjörg Jónsdóttir frá Ytri- Hjarðardal í Onundarfírði, en hún var fædd 2. desember 1864. Þau hjón eignuðust átta dætur og var Olöf fímmta dóttir þeirra hjóna. Nú em aðeins eftirlifandi tvær systur hennar; önnur er Guðbjörg, gift Þorvaldi Guðjónssyni, búsett í forsöguna. Nafn hans var lausnar- orðið þegar sameina þurfti krafta stéttar sem greinir á um hin minni mál en þarf að koma fram gagnvart viðsemjendum heil og óskipt. Hrafn neitaði endurkjöri og dró sig eins og hægt var út úr félags- málastörfum, líkamsmeinið hafði minnt á sig. Síðustu mánuði störf- uðum við Hrafn hvor á sinni vakt í Árbæjarstöð. Ein vaktin leysir aðra af verði. Oft vakti hann mig af nætursvefni með orðunum: „Nú er mál að vakna, ljúfurinn minn.“ Fólki hans öllu bið ég þess að blessuð verði því minningin. Orð hans sjálfs verða hér kveðju- orðin. Ég kveð mikinn ljúfling. Björn Sigurðsson Nú er fallinn sá maður sem var félagi minn, á brottu sá drengur sem ekki verður bættur. Þó er það ekki harmurinn sem fyllir btjóst mitt á þessum degi heldur gleðin yfir þeim minningum sem ekki munu fymast. Aldrei hef ég betur fundið sannindi þess að þótt deyi fé og frændur þá deyr orðstír aldregi. Þá býr mér samt ekki í huga sá orðstír sem er „ritaður á blað“ heldur sá sem er „ristur inn í fáein hjörtu“. Vissulega á Krummi þann orðstír sem á blað er festur, t.a.m. stýrði ann Landssambandi lögreglumanna um tveggja ára skeið að þrábeiðni margra manna, en minningu hans geymi ég ekki vegna þess því frami segir fátt um manngildi. Ég minnist hans sem þess manns er kunni ráð á flestum vanda hvort sem var í erfiðum útköllum eða í baktjaldamakki félagsmála. Ég minnist hans sem þess manns er ekki gerði sér mannamun en gekk á fund ráðherrans með sama fasi oghann sýndi smælingjanum. Morgunsól vermdi okkur báða á bökkum Þórisvatns og í hlíðum Húsafells. Ölið var gjarnan drukkið úr sömu krús, stundum óþarflega mikið. Gleði og griðastað áttum við hvor á annars heimili þó báðir nýttu of sjaldan. Kona mín og börn sakna þess vinar sem átti bæði hlýja hönd og léttan hlátur. Enginn maður er alger, Hrafn Marinósson ekki frekar en aðrir, honum var meira gefið en flestum, þó gekk honum ýmislegt úrskeiðis og líf hans var stormasamt, en úr styrk sínum og veikleika reis sá maður sem fáir munu gleyma. Maður af þeirri gerð að þegar hann kvaddi sér hljóðs þá hlustuðum við hin og festum okkur í minni það sem hann sagði. Á þessum síðustu dimmu dögum hef ég notið þeirrar gleði að mega heimsækja börnin hans og fyrrver- andi eiginkonu, ég segi gleði vegna þess að það fólk er hamingjusamt sem á stund hinnar dýpstu sorgar á þann innbyrðis skilning og kær- leika hvert til annars að gesturinn fínnur eina sameiginlega sál fylla hús þess. Einar Bjarnason I hringiðu hversdagsleikans finn- um við sjaldnast til nálægðar dauð- ans þó svo að hver stund sem líður færi okkur nær lokadeginum. Eng- inn kemst hjá því að sjá á eftir samferðarmanni sínum yfir landa- mæri lífs og dauða. Eðlilega fylgir slíkri kveðjustund söknuður og eft- irsjá þar sem dauðinn getur aldrei talist hversdagslegur atburður þrátt fyrir þá staðreynd að hann verður aldrei umflúinn. Við getum sætt okkur við hann þegar aldraðir og sjúkir fá hvíld — en við stöndum alltaf jafn ráðþrota og magnvana þegar maðurinn sem kenndur hefur verið við ljáinn þjófstartar og ber niður hjá mönnum sem enn eiga hálfu dagsverki ólokið. Þannig var undirritaðri innan- bijósts þegar fréttin um ótímabær- an dauða Hrafns Marinóssonar barst á fyrstu dögum nýbyijaðs árs. Kynni okkar Krumma - eins og hann var jafnan kallaður - hófust þegar ég gekk til liðs við lögregluna í Reykjavík haustið 1976. I mínum huga var hann samnefnari fyrir „hinn dæmigerða reynda lögreglu- mann“ sem sá aumur á hráblautum nýliðanum og reyndist honum betri Ólöf Jónsdóttir * Isafirði — Sunnudaginn 5. janúar sl. lést amma mín, Ólöf Jónsdóttir, á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Isafirði eftir erfíða sjúkralegu. Fyrst suður í Reykjavík og síðan vestur á ísafírði. Ólöf fæddist á Kirkjubæ við Skutulsfjörð 8. maí 1904. Þar ólst hún upp og var Kirkjubær henni afar kær. Ólöf var ein af átta systr- um og var hún fímmta í röðinni. 1930 giftist hún eftirlifandi manni sínum, Charlesi Bjarnasyni, og bjuggu þau alla tíð á ísafírði. Þau eignuðust tvö böm, Geirþrúði, sem er gift Jóni B. Guðjónssyni, og Guðbjöm, kvæntan Sigrúnu Jó- hannesdóttur. Er ég minnist ömmu minnar er mér þakklæti efst í huga. Hún var okkur systkinunum einstaklega kær amma. Alla okkar skólagöngu hlup- um við systkinin til ömmu í kaffi- tímum og þar beið okkar dekkað borð og kakó sem hvergi bragðaðist betur. Hún var mikil hannyrðakona og aldei lét hún verk úr hendi falla, hvort sem var í pijóni eða sauma- skap. Og allt var unnið af jafn mikilli natni og vandvirkni. Það em ófáir vettlingamir sem hafa yljað okkur barnabömunum í gegnum árin. Þó amma hafí orðið 81 árs gömul bar hún aldurinn sérlega vel. Hún var glæsileg kona, lífsglöð og létt í lund. Hún hafði gaman af að vera innan um fólk og hafði sterka löng- un til að ferðast en hlutimir æxluð- ust þannig að fá tækifæri gáfust til slíkra iðkana. Hún var bjartsýn og trúði á lífið og gladdist með okkur sem yngri vomm þegar við fengum tækifæri og kannski upp- lifði hún sína drauma í gengum okkur. Minmng Alla tíð hugsaði hún fyrst og fremst um aðra en sjálf var hún númer tvö. Kom það best í ljós nú fyrir jólin, þegar hún fárveik var að biðja mig að kaupa jólagjafír fyrir alla í fjölskyldunni. Og hún hafði líkað hugsað fyrir hvað hver átti að fá. í nóvember sl. kom hún suður til Reykjavíkur og lagðist inn á Landspítalann. Þar fór hún í erfíða lyfjameðferð. Það var sárt að horfa á þessa fallegu og lífsglöðu konu smám saman fjara út. Brosið dó, hún var orðin þreytt. En þrátt fyrir það var hún þakklát öllum þeim sem hjúkmðu henni þennan tíma og fannst allir svo vinsamlegir og góð- ir. En eins og máltækið segir: „Öll él birtir upp um síðir." Þegar hún fékk að vita að hún fengi að fara heim fyrir jólin var eins og kviknaði lífsneisti. Hún ljómaði af ánægju og bros, sem við höfðum ekki séð í langan tíma, vaknaði á ný. Ég var svo lánsöm að fá að vera samferða henni heim þann 21. desember sl. Þrátt fyrir slæmt veður var hún staðráðin í því að við kæmust alla leið sem við og gerðum. Þetta var eina flugvélin sem lenti á Isafírði þennan dag en aðrar flugvélar snem aftur til Reykjavíkur. Hún lagðist inn á spítalann heima á ísafirði og þar dvaldi hún um jólin í faðmi fjölskyldunnar. Það var erfítt að kveðja hana að loku jóla- leyfí og það fannst litlu barnabörn- unum hennar, sem dvöldu heima um jólin, einnig. Hún var einstök kona og ég held að allir sem kynntust henni hafí borið virðingu fyrir henni. Við systkinin kveðjum ömmu með sökn- uði en jafnframt gleði yfír því að Keflavík, og Petrína, ekkja Sigurð- ar Steindórssonar, bílstöðvareig- anda, búsett í Reykjavík. Systur hennar sem látnar em vom Margrét, sem var gift Guð- mundi Þorláki Guðmundssyni, skip- stjóra á Isafírði, og síðar um langt árabil búsett í Reykjavík, María, sem var þekkt kona á ísafirði og var gift Baldvin Þórðarsyni, bæjar- gjaldkera, Sigríður, ráðskona í Reykjavík, Guðrún, sem gift var Gísla Þorsteinssyni frá Borg, og lengi var búsett á Flateyri, Herdís, gift Bjama Sigurðssyni, póstfull- trúa á Isafírði, og nú er búsettur í Reykjavík. Lífskjör alþýðufólks á fyrstu ára- tugum þessarar aldar vom fyrst og fremst þau að afla fjölskyldunni lífsviðurværis í mat og klæðnaði; þar var ekkert afgangs til að kosta böm sín til mennta eða leita annarra lystisemda í lífinu. Það var því hlutverk þessarar konu að fara eins fljótt og kraftar leyfðu út á vinnu- markaðinn til að létta foreldrunum stritið. Ólöf fór ung í vist og var svo lánsöm að komast á góð heim- ili. Þrátt fyrir að Ólöf naut ekki mikillar skólagöngu fremur en önnur ungmenni þeirra tíma hafði hún mikla löngun til að afla sér sjálfsmenntunar. Ólöf var mjög vel gefín kona. Hún hafði mjög fallega rithönd og hafði afar gaman af Iestri giíðra bóka, var fróðleiksfús og fram eftir öllum aldri hafði hún frábært minni. Hún fylgdist afar vel með öllu sem gerðist í kringum hana í þjóðfélaginu. Hún var vel af guði gerð. Ólöf var myndarleg kona, bauð af sér góðan þokka, mjög hlý í viðmóti og það sem mest er uni vert, hún var góð manneskja, hjartahlý og traust. Ég heyrði hana aldrei leggja öðrum illt til og hún reyndi alltaf að fínna það besta í hveijum manni og reyndi alltaf að ræða það sem var jákvætt og sem stefndi fram á við í sam- skiptum manna og í þjóðfélaginu almennt. Ólöf var afar áhugasöm um fé- lagsstörf. Hún gerðist ung að árum félagi í Kvenfélaginu Ósk á ísafirði og var gerð heiðursfélagi þess fé- lags fyrir nokkrum árum. Hún átti sæti í skólanefnd Húsmæðraskól- ans Óskar um hríð og bar mjög hag skólans fyrir bijósti. Hún var virkur meðlimur í Sjálfstæðiskvennafélagi ísafjarðar og átti um langt árabil sæti í stjórn þess. Hún hafði ákveðnar skoðanir á þjóðmálum og fylgdi Sjálfstæðisflokknum að mál- um frá blautu barnsbeini, en hún kunni líka að meta skoðanir fólks úr öðrum flokkum, að skilja það sem aðrir vildu gera og setti ekki stein í götu nokkurs manns. Þetta er aðalsmerki göfugrar manneskju. Ólöf Jónsdóttir var mjög trú- hneigð kona. Hún sótti kirkju sína vel og unni kristnum fræðum. Hún var leitandi að hinu góða í lífinu og ræktaði það sem gott var með sér og vildi einnig að aðrir gerðu svo. Ólöf giftist 29. nóvember 1930 Charles Bjarnasyni, bifreiðastjóra og síðar verkstjóra, og stóð heimili þeirra ávallt á Isafirði, enda bjuggu þau hjón við þann fjörð frá fæðingu og til þess tíma að Olöf var öll. Charles býr enn á ísafírði, farinn að heilsu. Hann varð fyrir alvarlegu áfalli allsnemma á æfínni, slysi sem olli heilsuleysi og mæddi ekki síður á Ólöfu að standa þá erfiðleika af sér. Charles náði sér um hríð og gegndi um skeið mikilvægu starfi sem vegaverkstjóri á Isafírði og í nærliggjandi héruðum, en síðar sótti í gamla farið og heilsan bilaði. Þá mæddi aftur mjög á Ólöfu sem ávallt var heilsugóð, þar til á síðast- liðnu ári að upp kom sá sjúkdómur sem að lokum varð yfírsterkari. Þeim hjónum varð tveggja barna auðið. Eldra barn þeirra er Geir- þrúður, sem gift er Jóni B. Guðjóns- syni járnsmíðameistara, og starfar hún sem jgjaldkeri hjá bæjarfóget- anum á Isafirði og eiga þau þijú börn, og Guðbjörn, flugumdæmis- stjóri Vestfjarða, einnig búsettur á ísafírði, giftur Sigrúnu Jóhanns-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.