Morgunblaðið - 12.01.1986, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1986
B 11
HANDAVINNUPOKINN
Blúndur
Blúndur eru aftur í tizku, sem betur fer. Það er alveg ótrú-
legt hvað smá blúnduræma getur gert. Og hér koma nokkrar
hugmyndir, sem ég vona að veki áhuga ykkar.
Það eru áreiðanlega margar sem eiga liggjandi ofan í skúffu
litla „puntu“-dúka frá því þeir voru í tízku. Af hveiju ekki að
búa tíl fallegan kraga á einlitan kjól, blússu eða peysu?
Úr aflöngum dúk má til dæmis búa til þennan fallega kraga.
Og tvær smekklegar hugmyndir um hvernig má draga silki-
eða flauelsbönd í blúndurnar og nota sem háslfn eða slifsi.
Kvenlegar
náttskyrtur
Gamalli karlmannsskyrtu má
auðveldlega breyta í fallega nátt-
skyrtu. Klippið kragann af við
millistykkið (kínakragann) og
saumið rykkta blúndu á og niður
með línungunni að framan. Klipp-
ið einnig líninguna framan á
ermunum og saumið rykkta
blúndu á og niður með líningunni
að framan. Klipið einnig líninguna
framan á ermunum og saumið
blúndu á í staðinn með saumfari
fyrir teyjuband. Þá er komin þessi
líka fína náttskyrta. Það fást
blúndur í mörgum litum og
breiddum, til dæmis í Vogue-
búðunum, en notið góðar blúndur
sem þola vel þvott.
Blúndukragi
Og síðast en ekki sízt blúndu-
kragi á litla fólkið.
Blúnda rykkt á skáband eða
band með mjúkri teygju í, og lokað
með hnappi eða krækju.
VIÐ
GSTUIH
AUGLÝST
93,9%
ÁVÖXTUN!
En það væri svo sannarlega leikur að tölum,
sem reyndar er stundum leikinn
í auglýsingum. Það er nefnilega auðvelt að fá
fram háar ávöxtunartölur ef tekið er nógu langt tímabil.
Lágmarksávöxtun á
Kjörbók í 24 mánuði er 93,9% og þarf enga
vísitöluspámenn til þess að reikna það út.
En það sem skiptir máli
er að Kjörbókin ber 36%
vexti, vextir leggjast við á 6 mánaða fresti,
sem gefur a.m.k. 39,2% ársávöxtun
og innstæðan er algjörlega óbundin.
Þetta eru engir smáræðis kostir.
Kjörbókin er góð bók fyrir
bjarta framtíð.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna