Morgunblaðið - 12.01.1986, Síða 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR12. JANÚAR1986
ALITAMAL
Eru „hug-
lækningar“
prettir eða
veruleiki?
Fólk sem þjáist af liðagigt tekur
nú þátt í tilraunum sem iniða
að því að kanna hvort huglækningar
beri árangur.
Þeir sem þessar lækningar
stunda hafa nú í fyrsta sinn fallist
á þátttöku í tilraun þar sem vísinda-
menn munu skera úr um hvort
aðferðir þeirra beri tilætlaðan ár-
angur. Þeir hafa boðið ýmsum aðil-
um úr brezka heilbrigðiskerfinu að
koma og fylgjast með niðurstöðun-
um.
Tilraunir þessar fara fram í
Leeds á Englandi. Þijátíu liðagigt-
arsjúklingar sem dveljast á sjúkra-
húsi þar í borg munu fá venju-
bundna meðferð en aðrir 30 taka
þátt í vikulegum lækningasamkom-
um um sex mánaða skeið.
Áður en tilraunirnar hófust í
desember sl. voru allir þátttakendur
skoðaðir rækilega og gengið úr
skugga um með vísindalegum að-
ferðum á hvaða stigi liðagigtin
væri. Hið sama verður gert að hálfu
ári liðnu.
Samtök huglækna í Bretlandi
hafa valið liðagigtarsjúklinga til að
taka þátt í þessari fyrstu tilraun
vegna þess að hefðbundin meðferð
á þessum sjúklingum hefur þótt
TRAUST: Breskur huglæknir
leggur hendur yfir sjúkling.
skila litlum árangri. Samtökin ætla
jafnframt að beita sér fyrir tilraun-
um með börn sem sýkzt hafa af
krabbameini og fólk með illlæknan-
legan augnsjúkdóm.
í hveiju tilviki ákveða óháðir vís-
indamenn leikreglurnar, en félagar
úr Samtökum huglækna munu
annast lækningarnar. í samtökum
þessum eru um sjö þúsund manns
hvaðanæva af Bretlandi. Flestir
huglæknar telja að lækningamáttur
þeirra sé af guðdómlegum rótum,
og þótt þeir hafi mismunandi trúar-
skoðanir eru þeir sannfærðir um
að þeir hafi mátt til að lækna með
snertingu einni saman eða með
hugarorku.
Formaður samtakanna er Denis
Haviland. Hann var haldinn liðagigt
í mjöðm en hlaut bata með hug-
lækningum. Hann er sannfærður
um að þessar tilraunir muni leiða
í ljós að huglækningar geti veriíT
árangursríkar. Hann segir: „25 ára
reynsla hefur fært okkur heim
sanninn um að það er tilgangslaust
að reyna að telja lækna á að not-
færa sér reynslu okkar.“
Fyrir skömmu komu um 40 sjúkl-
ingar til meðferðar í huglækningum
í kirkju í Bromley á Kent-skaga.
Ljóst var að þeir höfðu mikla trú á
að geta fengið bata. Á meðal sjúkl-
inganna var strætisvagnastjóri,
fyrrum liðsforingi í riddaraliðssveit,
kaupmenn og húsmæður. Fólk
þetta þjáðist af margvíslegum sjúk-
dómum, svo sem krabbameini, og
mígreni svo að eitthvað sé talið.
Sjö „læknar“ taka þarna á móti
sjúklingum tvisvar í viku og reynt
er að sjá til þess að enginn þurfi
að bíða lengi eftir meðferð. Hug-
læknamir hlusta á sjúkdómslýsing-
ar fólks og leggja síðan hendur á
höfuð þess og sýkta líkamshluta.
Engrar greiðslu er krafizt fyrir
læknismeðferðina en hver getur
greitt eftir sinni getu ef honum
sýnist svo.
- ANNABEL FERRIMAN
BRASK
Fölsuð afsöl og
fleira svínarí
Mustafa Hamdan, hvít-
skeggjaður öldungur og
landeigandi í Palestínu, stóð fyrir
skömmu framan við bænahúsið í
þorpinu sínu og veifaði velktu skjali.
- „Sjáið," sagði hann og benti á
undirskrift neðst á einni blaðsíð-
unni. „Þetta héma er undirskrift
mín.“ Síðan fletti hann og benti á
annað hrafnaspark: „Þessi er föls-
uð,“ sagði hann. „Ég hef aldrei
undirritað þetta skjal." Og máli sínu
til stuðnings hefur Mustafa Hamd-
an yfírlýsingu frá ísraelskum rit-
handasérfræðingi sem fullyrðir að
mikil ósamkvæmni sé í undirskrift-
unum tveimur.
Mustafa Hamdan er í hópi hundr-
uða arabískra landeigenda á vestur-
bakka árinnar Jórdan sem fullyrða
að land þeira hafi verið svikið af
þeim. ísraelsmenn lögðu þetta land
undir sig eftir stríðið við arabaríkin
á sjöunda áratugnum og landeig-
endur saka verktaka um að reyna
að svíkja af sér lönd og selja land-
nemum frá ísrael.
I síðasta mánuði reyndi Avraham
Gindi, kunnur ísraelskur kaupsýslu-
maður, að fleygja sér út um glugga
á 6. hæð í réttarsal í Tel Aviv.
Hann hafði þar verið borinn þeim
sökum að hafa reynt að ná landi
af fólki með sviksamlegum hætti.
Þetta er nú orðið hið mesta hneyksl-
ismál.
Á meðan Hamdan sagði sínar
farir ekki sléttar streymdu að aðrir
þorpsbúar og sögðu sínar sögur af
svikum og prettum. Þeir kenna
óprúttnum arabískum milligöngu-
mönnum eða jafnvel leiðtogum sín-
um um hvernig komið er. Þá grunar
einnig að ýmsir íraelskir embættis-
menn rétti fölsurunum hjálparhönd
í viðleitni sinni til að komast yfir
land fyrir gyðinga. Þeir eru heldur
ekki einir um þessar grunsemdir.
ísraelska lögreglan hefur þegar
handtekið tvo embættismenn sem
sakaðir eru um að hafa gefíð út
fölsuð skjöl.
Aðild að þessari svikamyllu eiga
bæði arabískir landeigendur og
ísraelskir kaupsýslumenn, en til-
raunir lögreglunnar til að komast
til botns í málinu hafa mætti harðri
andspymu frá leiðtogum Likud-
bandalagsins sem fullyrða að þær
séu runnar undan rótum erkifjend-
anna í Verkamannaflokknum, sem
eru andvígir landnámi gyðinga á
vestri bakka Jórdan.
Fyrir skömmu var við hátíðlega
athöfn vígð ný byggð landnema á
vesturbakkanum. Við það tækifæri
sagði Yitzhak Shamir forsætisráð-
herra og Ieiðtogi Likudbandalagsins
meðal annars: „Hér hefur engu
landi verið stolið. Við erum komnir
til heimahaganna. Við munum
standa af okkur þennan storm
vegna þess að landnámið hér er í
samræmi við hinn sanna anda Zíon-
ísmans.
ROBIN LUSTIG
FEIMNISMÁL: Öll veröldin fylgdist með þegar þessi sovéski kaf-
bátur strandaði þar sem hann var að laumupokast nánast uppi í
kálgarði hjá Svíunum.
SVIÞJOÐ
Saka Palme um að
pukrast með kafbátana
Stjómarandstaðan í Svíþjóð
hefur sakað stjóm jafnaðar-
manna um að þegja yfir og fela
fjöldamörg dæmi um yfirgang
Sovétmanna, sem sent hafa kafbáta
sína langt inn fyrir sænska lögsögu.
Segja stjómarandstæðingar, að
þetta geri ríkisstjómin af ótta við,
að mótmæli gegn þessu framferði
Sovétmanna geti gert að engu opin-
bera heimsókn Olofs Palme, forsæt-
isráðherra, og Stens Andersson,
utanríkisráðherra, til Moskvu nú í
ár.
Palme lítur á Moskvuförina, sem
líklega verður í mars, sem tækifæri
til að auka virðingu sína á alþjóðleg-
um vettvangi auk þess sem hann
hefur áhuga á að ræða við Gorbac-
hev, leiðtoga Sovétríkjanna, um
hugmyndina um kjamorkuvopna-
laust svæði á Norðurlöndum, en hún
hefur verið baráttumál sænskra
jafnaðarmanna í mörg ár.
Palme hefur aldrei verið boðið
til Washington og finnst honum sem
það sé gert í óvirðingarskyni við
sig þar sem Reagan forseti hafi
hampað þar mörgum þjóðhöfðingj-
anum, sem Palme þykir standa sér
að baki. Hægri hönd Palmes í utan-
ríkismálum, Pierre Schori, hefur
tvisvar sinnum farið til Bandarfkj-
anna til að undirbúa komu forsætis-
ráðherrans, heimsókn, sem gæti
orðið til að auka Palme álit heima
fyrir, en í hvorugt skiptið hefur af
henni orðið.
í vesturferðunum hefur Schori
reynt að telja tortryggnum embætt-
ismönnum Reaganstjómarinnar trú
um, að hlutleysisstefna sænsku
stjómarinnar sé sjálfri sér sam-
kvæm, Palme hafi að vísu gagnrýnt
mjög harðlega stefnu Bandaríkja-
stjómar í Mið-Ameríku en jafn-
framt margsinnis farið hörðum
orðum um innrás Sovétmanna í
Afganistan.
Palme er mjög umhugað um að
Moskvuförin, þetta tækifæri til að
komast í sviðsljósið og ná sér niðri
á Reagan, fari ekki forgörðum
vegna yfirgangs sovéskra kafbáta
og telur að þau mál heyri nú sög-
unni til. Hann og Andersson, utan-
ríkisráðherra, hafa að undanfömu
lagt mikla áherslu á „eðlileg"
samskipti við Sovétmenn og tekið
fram, að sænska stjómin hyggist
ekki framar mótmæla neinum kaf-
bátaferðum í sænskri lögsögu nema
sannað sé hvaðan þeir koma. Ekki
er samt líklegt, að stjómarandstað-
an, sem stöðugt hefur verið að
sækja í sig veðrið, láti jafnaðar-
mönnum eftir síðasta orðið í því
efni. Carl Bildt, talsmaður Hægri-
flokksins, hélt því t.d. fram nú fyrir
fáum dögum, að á nýliðnu ári hefði
orðið yart við fleiri kafbáta innan
lögsögunnar en nokkm sinni fyrr.
„Við höfum upplýsingar um
marga kafbáta langt innan lögsög-
unnar í nóvember sl.,“ sagði Bildt.
„Yfírstjóm hersins lítur þetta mál
mjög alvariegum augum og þvf
getur ekki annað verið en að stjóm-
invitiafþvílíka."
— CHRIS MOSEY
LEIKFONG
Vopnaskakið var
vinsælast umjólin
Reagan-stjómin í Bandaríkjun-
um leggur mikla áherslu á
vemdarmáttinn eins og kunnugt er
og fer ekki hjá því, að það endur-
speglist með margvíslegum hætti í
þjóðlífinu. Leikfangaiðnaðurinn,
sem árlega veltir 13 milljörðum
dollara, er gott dæmi um þetta, en
á síðustu jólum má heita, að allar
verslanir hafi verið yfirfullar af
hinum tæknilegustu stríðsleikföng-
um.
Tölur benda til, að sala alls kyns
stríðsleikfanga hafi aukist um 350%
frá árinu 1981 og fimm leikföng
af þeim sex, sem best seldust á síð-
asta ári, vora af þessu taginu, ein-
hvers konar stjömustríðsleikröng.
Áætlað er, að salan í þessum leik-
föngum um síðustu jól hafi numið
um 1,2 milljörðum dollara.
Þegar kauptíðin stóð sem hæst
í desember sl. efndu „Samtökin
gegn stríðsleikföngum, sem eru
með deildir um land allt, til Al-
þjóðlegs dags gegn stríðsleikföng-
um. Var hann haldinn í Los Angeles
og fór þannig fram að Jerry Rubin,
stjómmálamaður í Kalifomíu,
nokkrir prestar og aðrir stjóm-
málamenn settu á svið útfór þar
sem stríðsleikföngin vora grafin og
kaþólskur prestur fordæmdi þessi
stríðstákn og þau áhrif, sem þau
hafa á bamssálimar. Var þessi út-
för síðan endurtekin í öðram banda-
rískum borgum.
Leikfangaiðnaðurinn virðist þó
láta sér í léttu rúmi liggja vaxandi
umræðu um stríðsleikföngin en allt
síðan á sjöunda áratugnum hafa
þau verið mikið hitamál meðal for-
eldra, kennara, þingmanna og for-
ráðamanna sjónvarpsstöðvanna.
Síðasta ár var ár stríðsleikfangs-
ins og í Kalifomíu þarr sem leik-
fangaverslanimar verða varla
greindar frá vopnaverslununum var
metsöluleikfangið Uzi-loftbyssa
fyrir átta ára og eldri, byssa, sem
skýtur einni hleðslu, sex gúmmíkúl-
um, eins hratt og bamsfíngurinn
getur ýtt á gikkinn. Er hér um að
ræða næstum nákvæma eftirlíkingu
af Uzi 9 mm, sem gerð er fyrir ísra-
elska herinn og notuð af bandarísk-
um leyniþjónustumönnum.