Morgunblaðið - 12.01.1986, Síða 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR12. JANÚAR1986
Ófullkomin
Kvikmyndir
Árni Þórarinsson
Stjörnubíó: Fullkomin —
Perfect ☆ V2
Bandarísk. Árgerð 1985. Hand-
rit: Aaron Latham, James
Bridges. Leikstjóri: James
Bridges. Aðaihlutverk: John
Travolta, Jamie Lee Curtis,
Jann Wenner, Marilu Henner,
Laraine Newman.
Söngkonan Carly Simon
skvettir úr fullu glasi af Bloody
Mary yfír John Travolta, rann-
sóknarblaðamann við tímaritið
Rolling Stone. Hún var eitthvað
svekkt út af grein sem hann skrif-
aði um hana. Þetta gerist í upp-
hafi myndarinnar Perfect. Um það
bil þremur stundarfjórðungum
síðar hendir Jamie Lee Curtis,
vaxtarræktarkennari Johns Tra-
volta, rannsóknarblaðamanni út
úr bifreið sinni á miðjum þjóðvegi.
Hún stóð hann að því að hljóðrita
einkasamtal þeirra. John Tra-
volta, rannsóknarblaðamaður við
tímaritið Rolling Stone, er sumsé
vondur blaðamaður og skíthæll.
Kvikmyndin Perfect segir frá því
hvemig skíthællinn fær sam-
viskubit og áttar sig á því að
hann er ekki aðeins vondur blaða-
maður heldur líka vond mann-
eskja, — en það gerist ekki fyrr
en hann hefur sjálfur orðið fómar-
lamb óvandaðra blaðamennskuað-
ferða. Sá sem stendur fyrir því
er vinnuveitandi hans, Jann
Wenner, ritstjóri og stofnandi
Rolling Stone. Hann er ekki leng-
ur róttækur blaðamaður með rétt-
lætiskennd, heldur útblásinn og
alkóhólíseraður fúskari og virðist
ekki hafa meiri metnað fyrir sína
hönd og blaðs síns en að leika
sjálfan sig í mynd sem gerir blað
hans að ómarktækum æsinga-
snepli. Hvað sem öðm líður má
Rolling Stone muna sinn fífíl
fegri.
Það má James Bridges, leik-
stjóri Perfect, líka gera. Hann á
að baki ágætar afþreyingarmynd-
ir með félagslegum umhugsunar-
efnum, eins og The China Synd-
rome. Perfect hefur á teikniborð-
inu litið út sem slík mynd: Sið-
ferðileg ádrepa á tvískinnung í
bandarískri blaðamennsku með
líkamsræktarfárið í bakgrunni og
ástardrama milli Travolta og
Curtis til hliðanna. í framkvæmd
eru þessir efnisþættir hins vegar
á ská og skjön. Blaðamennsku-
ádrepan fær afar ósannfærandi
úrvinnslu og ekki eitt augnablik
trúir áhorfandinn að Travolta geti
skrifað svo mikið sem stafkrók,
nema ef vera skyldi nafnið sitt.
Hann tekur sig betur út í heilsu-
ræktarsalnum. Sá efnisþáttur er
í sjálfu sér athyglisverður og í
honum eru drög að næmlega
dreginni mannlýsingu, þar sem
er ung stúlka (Laraine Newman)
sem gerir allt til að verða líkam-
lega fullkomin í þeirri bjargföstu
trú að þannig finni hún ást og
væntumþykju. En einnig þetta
efni verður tískudekri og daðurs-
legri tilgerð að bráð með löngum
og vita gagnslausum sýningum á
spengilegum kroppum í líkams-
rækt við undirltik háværrar popp-
tónlistar. í þriðja lagi er ástaræv-
intýri Travolta og Curtis mátt-
vana vegna þess að það byggir
ekki á persónusköpun heldur útliti
tveggja leikara sem ekki ná
sambandi hver við annan.
Perfect stendur því miður ekki
undir nafni.
Jamie Lee Curtis þenur kroppinn án Ieikræns árangurs í Perfect.
Termoflex
UASTRENGIR
Termoflex er fullfrágenginn 2ja leiðara hitastrengur með
mikla notkunarmöguleika. Með margra ára notkun f
Skandinavíu hefur nafnið Termoflex orðið þekkt sem
gæðavara. Strengirnir virka án umsjónar og þarfnast ekki
viðhalds árum saman. Þeir eru vatnsþéttir og eru varðir
fyrir flestum kemiskum efnum.
Termoflex hitastrengir afhendast tilbúnir til uppsetningar
i kassa. Listi yfir fylgihluti nær yfir hitastilla og margar
gerðir uppsetningarskinna.
gangaJranU^uiJL^
..(f' " "
)
^ 3)"
ísbrjótur
um rrnö)a nott.
Hver kannast e^^innánýia
, or Asköp rómantískt
Pafheordaá|rand>aUs
ffrtsnWað,6ÞaU>,
Termotfex í þakrennuna er
lausn á þv- 1
Termoflex til gólfhitunar. Góð lausn til
gólfhitunar í baðherbergi, forstofur, arinstofur
og önnur herbergi sem eru með steyptum
gólfum eða flfsalögðum.
Termoflex til jarðvegsupphitunar. Auðvelt er
að koma Termoflex hitastrengjum fyrir og þeir
þarfnast ekki viðhalds árum saman. Hægt er
að fá ýmsar gerðir stýringa. Termoflex er mjög
heppilegur hitagjafi, meöal annars til
upphitunar á gróðurhúsum, gróðurreitum og
grasflötum. Termoflex eykur vöxt plantnanna.
Termoflex til frostvarnar. Rétta lausnin til
frostvarnar á gangstéttum, þakrennum og
niðurföllum. Með notkun Termoflex á þessum
stöðum er ísing og snjómokstur úr sögunni auk
þess sem komast má hjá peningaútlátum og
vandræðum vegna frostskemmda.
Morgunblaðið/Theodór
Verið að taka upp söng fyrir lokaatriðið í áramótaskaupi leikdeildar
Skallagríms sem gert var fyrir kapalkerfið í Borgarnesi.
Borgarnes:
Áramótaskaup í
kapalkerfi ÚSVB
Borgaraesi, 7. janúar.
LEIKDEILD Umf. Skallagrims,
ásamt nemendum úr grunnskól-
anum í Borgarnesi, alls um 15
manns, unnu hálftíma áramóta-
skaup á tveimur og hálfum degi,
fyrir kapalkerfið í Borgarnesi.
Leikdeild Skallagríms í Borgar-
nesi hefur undanfarin ár gert ára-
mótaskaup fyrir kapalkerfið í Borg-
amesi ÚSVP, en vegna tækjaskorts
var ekkert í bígerð fyrir síðustu
áramót. Sunnudaginn 29. desember
komu nokkrir unglingar að máli við
leikdeildina, höfðu þeir þá fengið
fullkomin upptökutæki að láni hjá
Pétri Geirssyni í Hreðavatnsskála
og vildu unglingamir ólmir gera
skaup fyrir „kapalinn“. Þá var allt
sett á fullt og byrjað á því að smala
saman fólki, semja handrit og taka
upp á myndband. Klukkan 18 á
gamlársdag var skaupið tilbúið og
það var sýnt tvisvar í „kaplinum"
um kvöldið.
- TKP
Ingvar Sigurðsson í hlutverki „drykkfellda þjónsins" og Guðmundur
Bragason í hlutverki „húsaeyðis Borgameshrepps“ i upptöku síðasta
atriðis skaupsins. í bakgrunni er stóra ávisunin frá SM sem gekk
svo erfiðlega að fá skipt...
Slökkvilið Akureyrar:
Teikningar tilbúnar
af nýrri slökkvistöð
— en ljóst er að ekkert verður úr framkvæmdum strax
Austurveri, Háaleifisbraut 68. Sími 84445.
Lækjargötu 22, Hafnarfirði. Símar 50022, 50023, 50322.
Akureyri, 9. janúar.
BÚIÐ er að hanna nýja slökkvi-
stöð á Akureyri en hugmyndin
er sú að hún risi ofan Klettaborg-
ar — á túninu sunnan við „gömlu
brúna“ á Glerá. „Þetta er orðið
virkilega brýnt mál. Aðstaðan
hjá okkur í dag uppfyllir ekki
reglugerð um hollustuhætti og
vinnuvernd," sagði Tómas Búi
Böðvarsson, slökkviliðsstjóri, í
samtali við Morgunblaðið í dag.
Húsið sem hannað hefur verið
er um 1100 m2, að hluta til á tveim-
ur hæðum. í fyrra fékkst íjárveiting
til hönnunar eftir talsverða bið en
síðan var frekari Qárveiting til
framkvæmda strikuð út við §ár-
hagsáætlun nú. „Það liggur ljóst
fyrir að ekkert verður úr fram-
kvæmdum strax. Við erum heldur
ekki búnir að fá umrædda lóð en
skipulagsnefnd benti okkur á hana.
Við höfum ekki sótt formlega um
hana,“ sagði Tómas Búi.
Draumalóð slökkviliðsins er á
hominu gegnt lögreglustöðinni, við
Þórunnarstræti, en hún hefur ekki
fengist. „Það er besti staðurinn sem
við gátum fengið — vegna samvinnu
lögreglu og slökkviliðs. En margir
bæjarfulltrúar og bygginganefnd-
armenn hafa sagt að það væri of
góð lóð fyrir slökkviliðið. Ég er að
sjálfsögðu alfarið á móti því,“ sagði
Gísli Kristinn Lórenzson, í samtali
við Morgunblaðið í dag. „Slökkvilið-
ið er sá þáttur í bæjarlífínu sem
alls ekki er hægt að leggja niður —
og forráðamenn bæjarfélaga gera
sér oft ekki grein fyrir mikilvægi
slökkviliða að mínu mati,“ sagði
Gísli.
Húsakostur slökkviliðs Akur-
eyrar er mjög þröngur nú að sögn
Tómasar Búa slökkviliðsstjóra.
Liðið geymir tæki á mörgum stöð-
um í bænum og m.a. er einn bfla
liðsins ætíð geymdur úti undir ber-
um himni.