Morgunblaðið - 12.01.1986, Síða 20

Morgunblaðið - 12.01.1986, Síða 20
20 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR12. JANÚAR1986 Eyþór Ólafsson, framkvæmdastjóri Iceland Waters „Lœkkandi dollar skilar lægra verði heim “ Birgir Harðarson framkvæmdastjóri Eimskip í Norfolk „Gerðum rétt að draga saman seglin“ Knut Berg framkvæmdastjóri Flugleiöa í New York „Ætlum ekki í slag við þá stóru “ H Halldór J. Kristjánsson „Góðar undirtektir umboðsaðila“ n Halldór Helgason „Vantar þorskblokk “ n Guðjón B. Ólafsson „Aðeins hægt að spá um nœstu þrjá mánuði“ n Magnús Gústafsson framkvæmdastjóri Coldwater Seafood Corporation „Neikvœð umrœða um verkun fisks fyrir Bandaríkja- markað er áhyggjuefni“ Jóhann Scheving framkvæmdastjóri hjá Álafossi í New York „Söluhorfurnar á hinn bóginn góðar“ n Úlfur Sigurmundsson viðskiptafulltrúi „Nœsta ár þó ekki jafnhagstœtt og 1985“ Forstöðumenn íslenskra fyrirtækja í Bandaríkjunum Veltan hjá fyrirtækjum í Bandaríkjunum í eigu íslenskra aðila, nálgaðist að líkindum 400 milljónir dollara á nýliðnu ári. Eins ogfram kemur í viðtölum fréttaritara Morgunblaðsins við forsvarsmenn stærstu fyrirtækjanna, gengu viðskiptinyfirleitt vel á árinu, sala á vöru og þjónustu jókst hjá flestum stærstu fyrirtækjunum miðað við 1984, enda þótt bæði söluaukning og rekstrarafkoma hafi verið misgóðar eftir _ fyrirtœkjum. Framkvœmdastjórarnir eru yfirleitt varkárir í spám um framvindu árið 1986, bœði vegna óvissu um þróun dollaragengis og vegna misgóðrar markaðsstöðu söluvarnings þessara fyrirtœkja í Bandaríkjunum. Þó virðastflestir gera sér vonir um að nýbyrjað ár verði íþað minnsta jafn gott og það liðna. Flest þessara fyrirtœkja hafa skrifstofur og vinnustöðvar á austurströnd Bandaríkjanna, fyrir sunnan og norðan New York-borg, og sum þeirra hafa aðsetur ísjálfri stórborginni. Frá Jóni Ásgeiri Sigurðssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Bandaríkjunum. Birgir Harðarson Birgir Harðarson hjá Eimskip: Hörmungar- ár í Ameríku- siglingum" „Ég held að þetta hljóti að stefna upp á við á næsta ári,“ sagði Birgir Harðarson hjá Eimskip þegar fréttaritari Morgunblaðsins ræddi við hann. „Hlutdeild þeirra sem eftir eru í flutningum milli íslands og Ameríku hlýtur að aukast við það að Hafskip hverfur út úr myndinni." „Þetta hefur verið hörmungarár fyrir Ameríkusiglingar skipafé- laganna. Farmflutningar milli ísiands og Ameríku standa ekki undir sér, þeir bórga sig engan veginn. Bæði kemur til að frystur fiskur hefur verið Iestaður beint og fluttur með Hofsjökli, en í minna mæli með gámaskipum. Auk þess hefur Rainbow Naviga- tion tekið bróðurpartinn af flutn- ingum fyrir herinn." „Við höfum haldið í horfinu með flutningum yfir Atlantshafið til Evrópu, en staða þeirra flutninga er nokkuð óviss núna, dollarinn hefur lækkað með þeim afleiðing- um að minna er um flutninga frá Evrópu til Bandaríkjanna á þeim vörutegundum sem eru háðar slík- um gengissveiflum. Á hinn bóginn hefur dollarinn ekki lækkað nógu mikið til að útflutningur aukist frá Bandaríkjunum til Evrópu." „Farmgjöld á milli Ameríku og Evrópu hafa lækkað vegna minnk- aðs flutningamagns og vegna auk- ins framboðs á skiparými frá fleiri aðilum. Framboð skiparýmis mun hafa hækkað um 15—20 prósent. Á sama tíma hafa taxtar farm- gjalda lækkað í dollurum og auk þess hefur dollarinn lækkað." „Við þurfum á meiri flutningum að halda frá Bandaríkjunum til Evrópu. Vissar vörur sem eru á stöðugu heimsmarkaðsverði, eins og efnavörur og brotamálmar, halda sínum hluta. En við eigum undir högg að sækja með til dæmis iðnaðarvörur. Ég vona það besta og býst við að heldur horfi til bjartari tíma ef dollarinn heldur áfram að falla,“ sagði Birgir Harð- arson. „Afdrif Hafskips hafa áhrif á alla hina, það er alltaf alvarlegt þegar keppinautur dettur út. Það segir okkur að við verðum að fara varlega í sakirnar og ég held að Eimskip hafi gert rétt í að draga saman seglin um sinn. í stað þess að vera með Bakkafoss, Laxfoss og City of Firth erum við núna aðeins með Bakkafoss og leigu- skipið Doris í sömu flutningum." Guðjón B. Ólafsson Guðjón B. Ólafsson, hjá Iceland Seafood: „Besta ár frá byrjun“ „Þetta verður að teljast gott ár fyrir okkur sem fyrirtæki," sagði Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Ice- land Seafood Corporation (sem er í eigu Sambandsins), í viðtali viö fréttaritara Morgunblaðsins. „Það hefur orðið talsverð söluaukning frá fyrra ári. 1985 varð besta sölu- ár okkar frá byrjun og rekstraraf- koman var einnig sú besta frá upphafi. I fyrra seldum við fyrir réttar 120 milljónir dollara á árinu en núna seldum við fyrir um 135 milljónir dollara. Salan hefði orðið meiri ef ekki hefði komið til vöru- skortur. Iceland Seafood er núna stærsti framleiðandi og seljandi á unnum fiskréttum fyrir stofnana- markað í Bandaríkjunum. Markaðurinn hefur snúist úr því að vera kaupendamarkaður í selj- endamarkað, verðflokkar hafa hækkað og þorskblokkin mest. Verð á blokkinni var í ársbyrjun 1,04 dollarar en er núna, 1,30 doll- arar. En það er ekki hægt að spá nema fram í apríl á næsta ári. Við sjáum ekki hvernig málin munu þróast fyrr en búið er að bæta úr birgðaskortinum. Keppinautar okkar eru ekki aðrir fiskframleiðendur, heldur aðrir matvælaframleiðendur," sagði Guðjón B. Ólafsson. „Fiskur- inn er ekki þýðingarmikill hluti markaðarins og því verðum við mjög varir við ailar snöggar sveifl- ur á Ameríkumarkaðinum, mun meir en á öðrum sölusvæðum. Eins og ég sagði hefur verðið á þorsk- blokkinni hækkað, en hvort verðið helst stöðugt, hækkar eða lækkar, það sjáum við ekki fyrr en eftir tvo til þrjá mánuði," sagði Guðjón. Eyþór Ólafsson hjá Iceland Waters: Tvöfölduðum söluna á árinu „Við tvöfölduöuni söluna á þessu ári miðað við síðasta ár,“ sagði Eyþór Ólafsson hjá Icelandic Wat- érs, dótturfyrirtæki Sölustofnunar lagmetis, þegar fréttaritari Morgun- blaðsins innti hann eftir árangrinum árið 1985. „Viðskiptin hafa gengið vonum framar og við náðum aukn- ingu bæði með eigin vörumerki, „Icelandic Waters“, og í sölu undir öðrum vörumerkjum. Eyþór Ólafsson Bæði eftirspurn og sala jukust á þessu ári, sérlega hvað viðkemur okkar eigin vörumerki. Við höfum verið að byggja upp sölukerfið í Bandaríkjunum, en aukin mark- aðshlutdeild næst aðeins á löngum tíma, það er meðal annars af þeim ástæðum sem við seljum líka undir öðrum vörumerkj um, svo sem King i Oscar. Við erum eina íslenska fisk- ; sölufyrirtækið sem selur beint til neytenda. Sú markaðssetning er flókin og dreifingarkostnaðurinn geysímikill. Við erum með vöruhús í New York og dreifum afurðum þaðan til heildsöluvöruhúsa víða um Bandaríkin. Ennfremur erum við komnir með gott kerfi umboðs- manna, þeir eru um 50 á öllum helstu markaðssvæðunum. Stór hluti af söluvörunni, til dæmis murta og kavíar, fer beint í svo- kallaðar sælkerabúðir, það er stöð- ug sala allan ársins hring, en þó mest fyrir jólin og páska. Reksturinn hefur semsagt geng- ið vel og við megum vel við una, en það er varla við því að búast að salan tvöfaldist aftur á næsta ári, þótt horfurnar séu góðar,“ sagði Eyþór. „Öll innflutt vara hér fer hækk- andi á næsta ári og þó átta sig allir á því að söluvara mun hækka um 5—10 prósent í dollurum. En þróun dollarans hefur samt sem áður verið óhagstæð í þeim skiln- ingi að lækkandi dollar skilar lægra verði heim til íslands."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.