Morgunblaðið - 12.01.1986, Blaðsíða 30
I e
30
a
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR12. JANÚAR1986
iC I I IUI iVirHyNiANN/i
Lslka Robert Redford og Paul Newman einhvem tíma saman aftur? Nú þykjast
menn hafa fundið góða sögu handa þeim tveimur: „Lonesome Dove“ eftir nýlegri
skáldsögu Larry McMurtrys, sem fjallar um kúasmala f Texas á árunum eftir
borgarastyrjöldina f Bandarfkjunum.
Divine f Lust in the Dust
I stuttu máli
Fyrir átta árum lék austurríska
vöövafjalliö Arnold Schwarzeneg-
ger í mynd sem hér Pumping Iron.
Heitinu er nokkuð erfitt að snara
yfir á móðurmálið en vísar til þeirr-
ar iðju kraftlyftingamanna að
höndla meira eða minna níðþung
lóð eins og ekkert sé. Núna hefur
veriö frumsýnd framhaldsmynd
Schwarzenegger-myndarinnar,
sem heitir Pumping iron II — The
Women og hafa, eins og heitið
gefur til kynna, konur tekið við af
körlunum úr fyrri myndinni og
pumpa nú járn eins og óðar væru.
Annars segir myndin frá fjórum
kraftakonum, sem halda til Las
Vegas í líkamsræktarkeppni (frek-
ar en kraftlyftingakeppni) og
spurningin er hver fer með sigur
af hólmi, hræðilega stór og mikil
kvenvera frá Ástralíu, sem er Ijós-
árum á undan kynsystrum sínum
í öllu öðru en kvenlegum eiginleik-
um, eða einhver meira í líkingu við
konu, sem þú getur verið viss um
að meiða ekki á dansgólfinu, eins
og gagnrýnandi breska blaðsins
The Guardian kemst að orði.
Étum
Bartel
Paul Bartel sem gerði myndina
Étum Raoul (Eating Raoul, sýnd í
Regnboganum fyrir svona tveimur
árum), er kominn aftur á kreik með
nýrri mynd sem heitir Lust in the
Dust. Með aðalhlutverkiö fer
hinn/hin óborganlegi/lega Divine
(stjarna John Waters-myndanna)
en aðrir sem leika í myndinni eru
Tab Hunter, Cesar Romero og
Henry Silva. í þetta sinn skopast
Bartel, sem þykir grínaktugur
mjög, að amerísku vestramyndun-
um. Hann setur Divine í hlutverk
drottningar Chili Verde, fjallstórr-
ar, kynóðrar kvenpersónu, sem
fæst við gullgröft í villta vestrinu.
Hunter leikur nafnlausa byssu-
manninn, sem Divine þráir svo
mjög en Cesar Romero leikur
rabbía.
Nýjasta
mynd Altmans
Nýjasta mynd Robert Altmans
var frumsýnd fyrir jólin í Bandaríkj-
unum. Hún heitir Fool for Love og
er gerð eftir samnefndu leikriti
leikarans og leikritaskáldsins, Sam
Shepards. Sjálfur reit Shepard
kvikmyndahandritið eftir leikriti
sínu og sjálfur leikur hann aðal-
hlutverkið í myndinni Eddie. Kim
Basinger leikur á móti honum
stúlku sem heitir May og Harry
Dean Stanton leikur „Gamla mann-
inn“. Myndin fjallar um ástir Eddi-
Kim Basinger f Fool for Love
es og May en samskipti þeirra
gange ekki árekstralaust fyrir sig
svo ekki sé meira sagt og Gamli
maðurinn er áhorfandi enda hon-
um málið skylt því að hann er faðir
þeirra beggja, með sitt hvorri
konunni þó.
John G. Avildsen er að gera the
Karate Kid númer tvö. Allir sömu
leikarar verða í nýju myndinni.
Cannon-fyrirtækið er með tvær
myndir í framleiðslu: Franco Zeffi-
relli er að gera Otello með Placido
Domingo. Og George Pan Cos-
matos, sem stýrði Rambo, er að
gera Cobra með sjálfum Sylvester
Stallone (og konu hans Nielsen).
Robert Redford fékk Óskarinn
fyrir fyrstu tilraun hans í leikstjóra-
stólnum. Það var 1980, en nú hefur
hann loks fundið nýtt verðugt
handrit. Það er eftir David Ward
(sem samdi The Sting) og heitir
The Milagro Beanfield War. en
fyrst leikur hann í Legal Eagles
sem Ivan draugabani Reitman er
aögera.
— The Women
Annar leikstjóri.sem ekkert hef-
ur heyrst til í bráðum sex ár. Það
er hann Stanley Kubrick, sem
byrjaði á Full Metal Jack sl. haust.
Aðalleikari er Matthew Modine
(Birdy). Myndin er um afleiðingar
Víetnamstríðsins.
Frá Frakklandi fréttum við að
Claude Lelouch sé að gera fram-
haldið af Manni og konu, með
hrærði hjörtun fyrir um það bil
tuttugu árum. Jean-Louis Trintig-
ant og Anouk Aimée stíga inn í
gömlu rullurnar. Nýjasta mynd
Lelouchs, Boléro, hefur verið sýnd
í Regnboganum undanfarnar vikur.
Frank Oz er að gera nýja kvik-
myndaútgáfu af Litlu hryllings-
búðinni. Meðal leikenda eru Rick
Moranis og Steve Martin.
Hasarnaglinn James Cameron
hefur fengið það verkefni að gera
framhaldið af Ridley Scott-mynd-
inni Alien, sem heitir auðvitað Ali-
ens. Gæti orðið erfitt því flestar
persónurnar í fyrri myndinni hurfu
úti ígeimnum.
Hal Ashby vinnur að Átta milljón
aðferðum til að gefa upp andann
með Jeff Bridges og Rosanna
Arquette.
Isabella Rosselini, dóttir Ingrid
Bergmans, leikur í Blue Velvet sem
David (Fílamaður) Lynch er að
gera.
Jean-Jacques Annaud er að
leggja síðustu hönd á Nafn rósar-
innar. Myndin er tekin í Þýskalandi
og Ítalíu.
Alþjóðleg mynd er í smíðum í
Danmörku. Hún heitir Ovri: Jean-
Claude Carriére skrifaði, Donald
Sutherland leikur, Henning Carl-
sen stjórnar.
Man einhver eftir The Hustler,
tuttugu og fimm ára gamalli mynd
með Paul Newman og Jackie Glea-
son? Martin Scorsese heldur
mikið upp á þá mynd og hyggst
nú gera framhald. Það ætti að
takast því Newman hefur gefið
jáyrði og Gleason einnig. Þá er
bara eftir að tala við Piper Laurie
og George C. Scott.
Háskólabíó:
Chuck Norris
ógnar veldi
gömlu harð-
jaxlanna
„Þagnarskyldan", sem Há-
skólabíó frumsýndi sl. mið-
vikudag, er tíunda mynd
Chuck Norris. Myndin markar
viss tímamót hjá kappanum,
því í henni gerir Chuck alvar-
lega tilraun til að losna undan
oki austurlensku sjálfsvarnar-
íþróttarinnar karate, sem ein-
kennt hefur myndir hans hing-
að til.
Chuck Norris hefur löngum
verið borinn saman við tvo aðra
harðjaxla, hinn hálffimmtuga
Clint Eastwood og hinn hálf-
sjötuga Charles Bronson. Allir
leika þeir þöglu hetjuna sem
ekkert bítur á. En það var ekki
fyrr en „Þagnarskyldan" var
sýnd að gagnrýnendur viður-
kenndu Chuck sem mögulegan
arftaka hinna tveggja.
Það sem gerir feril Chuck
Norris eilítið merkilegan er að
hann var hermaður í Kóreu í
mörg ár áður en hann kynntist
júdó og karate, sem hann varð
sérfræðingur í síðar meir. Hann
varð laus við herskyldu árið
1962; hafði þá þegar fengið
svarta beltið í karate og vann
fyrir sér sem kennari; setti á fót
karateskóla. Hann varð heims-
meistari í milliþungavigt árið
1968 og hélt titlinum ósigraður
til ársins 1974, er hann hætti
öllum barsmíðum.
Meðal nemenda hans var
kvikmyndaleikarinn Steve
McQueen, sem hvatti Chuck til
að leggja stund á leiklist. Chuck
hefur leikið í bíómyndum síðan
1975. Hann fékk aukahlutverk
i nokkrum Bruce Lee-myndum,
en vann engin sérstök afrek.
Chuck Norris leikur harðjaxl i
„Þagnarskyldunni".
Það var ekki fyrr en hann fór
að gera myndir á eigin vegum
að hjólin tóku að snúast. Hann
hefur gert margar myndir síðan
1980 og hafa flestar þeirra
notið vinsælda, að minnsta
kosti á heimaslóðum hans.
„Þagnarskyldan" er næst-
nýjasta myndin hans (handritið
var upphaflega skrifað fyrir
Clint Eastwood sem leit ekki
við því) en hann féll í áliti hjá
þeim, sem hældu honum fyrir
„Þagnarskylduna", eftir að nýj-
asta mynd hans, „Invasion
USA", var frumsýnd sl. haust.
(Sú þykir ómerkileg eftiröpun á
Rambó og álíka hryllingi.)
Gagnrýnandinn Rob Roe
skrifaði í Los Angeles Herald
Examiner eftir að hann sá
Þagnarskylduna: „Það er ekki
hægt annað en dást að Chuck
Norris. Hann er ekki góður leik-
ari og hann veit það. Sérgrein
hans er að sparka andstæðing-
inn niður og skjóta úr byssu.
Chuck gleymir aldrei að hann
er að leika ofur einfaldar per-
sónur, en einmitt þess vegna
kýs ég hann fremur en hinn
flókna persónuleika Sly Stall-
one!"
HJÓ