Morgunblaðið - 08.02.1986, Qupperneq 3
MORGÚNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1986
3
Reinhard Meiners, forsljóri fiskihafnarinnar í Bremerhafen:
„Viljum beinar siglingar
með gáma til Bremerhaven“
Morgunblaðið/Júlíus
Reinhard Meiners, forstjóri fiski
hafnarinnar í Bremerhaven.
lendingar vildu leggja aukna áherslu
á útflutning á ferskum fiski og
gámafiski, því auðvitað þyrfti að
tryggja eins mikla atvinnu í landinu
og unnt væri.
Ágúst Guðmundsson afgreiðir viðskiptavin f sjónvarpsmyndinni „Ást
í kjörbúð".
Ágúst Guðmundsson leikstjóri:
Ein íslensk og önn-
ur erlend væntanleg
ÁSTIN getur blómstrað á ólíklegustu stöðum, eins sjást mun um páska-
leytið, þegar íslenska sjónvarpsmyndin „Ást i kjörbúð" verður væntan-
lega sýnd, að sögn leikstjórans Ágústar Guðmundssonar. Hann skrifaði
handrit myndarinnar, auk þess að leika eitt aðalhlutverkanna.
Myndin er framleidd af íslenska í samtali við Morgunblaðið kvaðst
sjónvarpinu. Ágúst er væntanlegur Ágúst vonast til að geta hafist handa
hingað til lands á næstu vikum til
að ljúka eftirvinnslu myndarinnar,
en hann hefur undanfarið dvalið í
Lundúnum við frágang á kvik-
myndahandriti sem hann skrifaði að
mestu á sl. sumri. Er þar um að
ræða kvikmynd sem hann leikstýrir,
en hún verður framleidd af erlendum
aðilum og alfarið kvikmynduð er-
lendis.
við kvikmyndatökur á komandi
sumri, þó enn ætti eftir að ganga
frá fjármálahlið málsins og ekki
væri hægt að segja hvenær ná-
kvæmlega yrði farið af stað eða
myndin fullgerð. En þó að langt um
líði þar til næsta breiðtjaldsmynd
Ágústar birtist, mun leikstjórinn
gera það öllu fyrr, sem starfsmaður
kjötdeildar kjörbúðarinnar.
Laun þingmanna og verkalýðsforingja:
Skil ekkert í
manneskjunni að
láta þetta út úr sér
— segir Aðalheiður Bjamfreðsdóttir, for-
maður Sóknar, um Guðrúnu Helgadóttur
„ÉG SKIL ekkert í manneskjunni að láta þetta út úr sér,“ sagði
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, formaður starfsmannafélagsins Sókn-
ar, er hún var spurð álits á ummælum Guðrúnar Helgadóttur, al-
þingismanns, um að laun þingmanna væru mun lægri en laun ýmissa
annarra, þar á meðal verkalýðsforingja. Aðalheiður kvaðst hafa i
föst mánaðarlaun 32.815 krónur, en laun þingmanna eru nú 68.128
krónur á mánuði.
Aðalheiður sagði að Guðrún
Helgadóttir hlyti að hafa átt við
einhveija einstaka menn, sem
störfuðu í ýmsum opinberum
nefndum og ráðum fyrir utan
störf sín hjá verkalýðshreyfing-
unni. „Það má auðvitað finna slíka
menn innan verkalýðshreyfingar-
innar, en að alhæfa svona um
laun forystumanna í verkalýðs-
hreyfingunni er gjörsamlega út í
hött," sagði Aðalheiður.
Hjördís Antonsdóttir, gjaldkeri
Sóknar og starfsmaður á skrif-
stofunni, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að það hefði hleypt illu
blóði í Sóknarkonur að lesa
ummæli þingmannsins í Morgun-
blaðinu um hin háu laun verka-
lýðsforingja, þar sem ummælin
voru þess eðlis að þau hefðu því
eins getað átt við formann Sókn-
ar. „Það er því rétt að upplýsa
okkar félagskonur um að laun
formannsins eru ekkert í líkingu
við það sem Guðrún Helgadóttir
fullyrðir í þessari ræðu sinni,"
sagði Hjördís.
FORRÁÐAMENN fiskihafnarínn-
ar í Bremerhaven í Vestur-Þýska-
landi óska eftir því að beinum
siglingum togara og gámaskipa á
milli Reykjavíkur og Bremer-
haven verði komið á. Þetta kom
fram í samtali blaðamanns Morg-
unblaðsins við Reinhard Meiners,
forstjóra fiskihafnarínnar í
Bremerhaven í gær.
Reinhard Meiners sagðist hafa átt
viðræður um þessar óskir við Hall-
dór Ásgrímsson sjávarútvegsráð-
herra, Matthías Bjamason viðskipta-
ráðherra og Kristján Ragnarsson
formann LIÚ um þessi mál, og hefðu
þeir tekið málaleitan hans vinsam-
lega, án þess þó að nokkuð hefði
verið afráðið í þessum efnum.
„Vissulega höfum við átt mikil
viðskipti við íslendinga í gegnum
árin, og verið ánægðir með þau, en
við teljum að gera megi enn betur,
og að gæði fisksins aukist til muna
ef flutningatími sparast, með því að
komið verði á beinum ferðum, og
fisknum, hvort sem hann kemur
ferskur úr togurunum eða úr gámum
verði landað beint í Bremerhaven,"
sagði Meiners. Hann sagði að mikið
tapaðist í gæðum og kostnaður ykist
til muna þegar fisknum væri landað
í Cuxhaven og hann síðan fluttur
landleiðina til Bremerhaven.
Meiners sagði að fiskurinn frá
íslandi skiptist nokkuð jafnt á milli
fiskihafnarinnar í Bremerhaven og
Cuxhaven, en að þeir í Bremerhaven
vildu gjaman auka hlutdeild sína í
löndunum, því að yfir 60% fisksins
væri seldur í gegnum fiskihöfnina í
Bremerhaven. Þannig væri ákveðinn
hluti alltaf fluttur landleiðina frá
Cuxhaven til Bremerhaven, og við
það tapaðist bæði tími og íjármunir.
„Það liggur í hlutarins eðli að
þýskir togarar, sem eru mjög fáir,
anna ekki fiskmarkaðnum í Þýska-
landi, og því geta erlend fiskiskip
og gámaskip selt fisk í Þýskalandi,"
sagði Meiners, „en til þess að halda
markaðnum og jafnvel auka við
hann verða íslensk fiskiskip og
gámaskip að taka upp reglulegar
ferðir, að okkar mati beint frá
Reylq'avík til Bremerhaven og togar-
amir beint frá veiðistaðnum til
Bremerhaven."
Meiners sagðist ánægður með þær
undirtektir sem hann hefði fengið
hér, en auðvitað væri það endanlega
í höndum einstakra útgerðarfyrir-
tækja og Eimskips hvort af beinum
ferðum á milli borganna yrði. Hann
sagðist hafa fullan skilning á þvi að
að væri pólitískt spursmál hvort ís-
i......—
1
DAIHATSU
sýning
Frá kl. 1-5
Allir gæðabílarnir frá Daihatsu.
Daihatsuumboðið í'SSS/o3' 8 733