Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986
45
Itrekaðar fyrirspurnir um
Dýraverndunarfélag íslands
Kæri Velvakandi! fyrirspum um Dýravemdunarfé-
Einhvem tíma snemma í haust lag Islands. Annaðhvort hefur
birtir þú fynr mig ofursaklausa þessi fyrirspum ekki komist fyrir
Makalausar veislur
og fjölskyldulíf
Kæri Velvakandi.
Heldur finnst mér dapurt hvað
fjölskyldulíf á íslandi á undir högg
að sækja. Ekki nóg með að foreldrar
vinni frá morgni til kvölds, heldur
er fólk sífellt hvatt til að vera alls
staðar annar staðar á kvöldin en
heima hjá sér.
Það jafnast ekkert á við gott
íjölskyldulíf bæði fyrir böm og
foreldra. Það er alltaf verið að ræða
um húsnæðisvanda og erfiðleika
hjá fólki sem er að byggja en til
hvers er öll sú fyrirhöfn ef það
tollir aldrei heima hjá sér? Maður
skyldi ætla að fólk vildi njóta góðs
af heimilum sínum þegar búið er
að koma þaki yfir höfuðið. En ónei,
alltaf er eitthvað sem glepur. Við
skulum hugsa okkur visst fyrirtæki
í bænum. A þeim bæ er haldið upp
á jólin með því að halda makalausa
veislu síðasta vinnudag fyrir jól.
Síðan er önnur veisla daginn fyrir
gamlársdag, makalaus að sjálf-
sögðu líka. Nú, blessað fólkið verður
að fá sér þorramat með vinnufélög-
unum, annað er ekki hægt. Þetta
er bara smábrot af þeim tilefnum
sem fólk á vinnustaðnum gefur sér
til að efna til veislu og án maka
að sjálfsögðu. Ég held að það sé
ekki illa meint hjá yfirboðurum
fyrirtækja að líða slíkt heldur er
þetta vafalaust hugsunarleysi. Ég
vildi óska þess að þeir sem lesa
þetta fari að íhuga hvemig þessum
málum er farið á þeirra vinnustðð-
um. Það er svo sannarlega þess
virði að gefa fjölskyldunni meiri
gaum og hlúa að henni eins vel og
við getum.
Með þökk fyrir birtinguna
5349-8116
Forval Alþýðubandalagsing i Reykjavtk:
V erkalýðsf oringinn varð
útundan í skotgrafahernac
_ 'segir Ásmundur Stefánsson foreeti ASÍ
Ljót útreið
Erfiðismaðurinn útreið fær ljóta,
öryggis flokksins ei lengur má njóta.
Hann kann að grafa - en gáfumenn skjóta,
Guðmundur Jónsson var ennþá að róta...
Hákur
augu réttra aðila eða þeir ekki
séð ástæðu til þess að svara
henni.
Þar sem mig langar til að fá
svar við þessum spumingum, sem
ég þá bar fram, hripa ég nú
þessar línur og vonast til þéss
að í þetta skiptið sjái þeir sem
hlut eiga að máli sér fært að
svara.
Fyrsta spumingin mín er sú
hvort áðumefnt félag sé lifandi
eða dautt? í öðm lagi hvenær og
af hveijum var Dýravemdunarfé-
lag íslands stofnað? í þriðja lagi
hvenær var síðast aðalfundur
haldinn og hveijir sitja í stjóm
félagsins? í fjórða lagi hvenær
verður næst aðalfundur haldinn
og hvar? Og í fímmta og síðasta
lagi hvemig tengist „Flóamark-
aður“, sem er í Hafnarstræti,
Dýravemdunarfélagi íslands?
Virðingarfyllst,
Skúli Helgason, prentari.
Mannasiðir að
heilsa í
upphaf i máls
Góðan daginn Velvakandi!
Má ég biðja þig að birta nokkur
orð um veðurfregnir í sjónvarpi og
útvarpi. Yngvi Hrafn er nú að
breyta og bæta útsendingar sjón-
varps til okkar. Meðal annarra hafa
komið á skjáinn nýir menn, konur
og karlar er segja okkur veður-
fregnir. Allt skemmtilegt fólk er
heilsar áður en það segir okkur
fréttimar. Svo er og um hina eldri
góðkunningja okkar, að undantekn-
um einum manni er einatt kemur án
þess að heilsa. Það era æði margir
orðnir leiðir á að sjá þennan mann
á skjánum, mann sem kann ekki
eða vill ekki þann mannasið, að
heilsa áður en hann tekur til máls.
Svo eru það veðurfregnimar í
útvarpinu. þar segir án þess að
heilsað sé: „Þetta er á veðurstofu
íslands," kaldranaleg setning, í stað
þess að sagt væri: „Góðan dag eða
gott kvöld, Veðurstofa íslands,
veðurfréttir."
Einkaflugmannsnám-
skeið
Haldið verður einkaflugmannsnámskeið sem hefst
15. febrúar og stendur til aprílloka. Upplýsingar
gefnarísíma 28970. Flugfarhf.
Vesturflug hf.
—Norskt—
prjónagarn
Mjúkt babygarn.
Hlýtt peysugarn.
Nýkomið litaúrval af
PeerGynt, Mamsell,
Fritidsgarn, Pritty,
Triplex, Butterfly.
Lanett,
Prjónauppskriftir
í úrvali.
IÐNTÆKNISTOFNUN
Eftirtalin námskeið verða haldin á næstunni hjá-
Iðntæknistofnun:
Málmtæknideild:
17.—19. feb.Málmsuða — fræðilegt námskeið fyrir
stjórnendur.
24.-27. feb. Logsuða — námskeið ætlað iðnaðar-
mönnum.
Vinnuvélanámskeiðin:
10.—20. feb. Vinnuvélanámskeið á Egilsstöðum,
Hótel Valaskjálf. Upplýsingar í síma
97-1636.
Verkstjórnarfræðslan:
12.—15. feb. Verkskipulagning — haldið á Akur-
eyri.
Farið yfir undirstöðuatriði verkskipu-
lagningar, upplýsingaöflunar og tíma-
stjórnunar ásamt notkun á tölvum við
skipulagningu og áætlanagerð.
17.—20. feb. Stjórnun — haldið á Akureyri.
Farið yfir undirstöðuatriði í verktil-
sögn, líkamsbeitingu við vinnu,
stjórnun breytinga og samskipta-
stjórnun.
26. feb.— 1. mars
Vinnuhagræðing — haldið í Reykja-
vík.
Farið yfir undirstöðuatriði í vinnuha-
græðingu, vinnurannsóknum og
launakerfum.
Námskeið í Reykjavík eru haldin í
húsakynnum Iðntæknistofnunar,
Keldnaholti, nema annað sé tekið
fram.
Upplýsingar og innritun hjá stofnunni
ísíma (91)68-7000.
Geymið auglýsinguna.
I
i
4
4
i
j
4
<
Sjáandi, hlustandi.