Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986 25 Umferðin 1985 eftir Valgarð Briem Snemma árs 1984 lét ég í ljós í biaðagrein í Morgunblaðinu áhyggj- ur af því að sá árangur sem náðist á norrænu umferðaröryggisári 1983 þegar dauðaslysum í umferð- inni fækkaði úr 21 árið áður í 17, kynni að verða til þess að vegfar- endur færu að vanmeta hættuna, slaka á varfæmi og slysum mundi flölga. Þessi ótti var ekki að ástæðulausu. Dauðaslysin 1984 Valgarð Briem urðu 24 og í þeim létust 27 manns. Það má því segja að á árinu 1985 hafi nokkur breyting orðið til batnaðar. Þá létust 23 í jafn mörg- um slysum. Samt samsvarar þetta nær 2 mannslífum á mánuði hverjum og við það geta umferðaryfirvöld ekki unað. Ekki verður þeirri staðreynd heldur unað að árið 1985 slösuðust nær 600 manns. Fjölgaði þeim verulega frá fyrri ári og hafa aldrei verið fleiri. Að vísu varð nokkur fækkun meiriháttar meiðsla, en minniháttar meiðslum flölgaði vem- lega og urðu langtum fleiri en nokkm sinni fyrr. Ástæða er til að ætla að fækkun þeirra sem létust eða slösuðust mikið í umferðinni 1985 sé að þakka aukinni notkun bflbelta. Það er gleðiefni að slysum á bömum 14 ára og yngri fækkaði nokkuð 1985 og hafa þau ekki verið færri síðan 1979 að norræna um- ferðarárinu undanskyldu. Er þetta sérstakt gleðiefni, þegar haft er í huga hve mjög bömum á þessum aldri hefur fjölgað og öku- tækjum einnig. Er þess að vænta að þær sérstöku varúðaraðgerðir sem gerðar hafa verið í námunda skóla og bama- heimila eigi þar nokkum þátt í. Það vekur athygli að dauðaslys í umferð urðu flest í júní og októ- ber, eða 4 í hvomm þessara mán- aða. Hinsvegar urðu slys með meiðslum á fólki langflest í júlí, eða 75. Þar af urðu 33 slys í dreifbýli og er það sjötti partur allra slysa í dreifbýli af völdum umferðar á árinu öllu. Allt á þetta sér sínar skýringar. Hinsvegar skortir vemlega á að orsakir umferðarslysa séu nægilega kannaðar svo unnt sé að beita rétt- um aðgerðum gegn þeim. Þegar litið er á heildartölur slysa er e.t.v. ekki ástæða til örvænting- ar. Skv. skráningu Umferðarráðs, en þaðan er framangreindur fróð- leikur dreginn, vom alls skráð 7.061 umferðarslys 1985, sem er nærri 300 færri en árið áður. Á hitt er að líta að þótt tölur þessar séu sambærilegar frá ári til árs, em þær ekki tæmandi. Slysa- tölur spítalanna gefa allt aðrar og alvarlegri niðurstöður. Er nú rætt um að samræma þessar skýrslur svo unnt sé að draga af þeim sann- ari niðurstöðu. Hvað sem því líður em tölur þessar nægilega alvarlegar til þess að hvetja kennara og foreldra, ökumenn og aðra vegfarendur til aukinnar aðgæslu. Umferðarslysin kosta okkar litla þjóðfélag allt of mikið. HOfundur er hsestaréttarlög- maður og formaður Umferðar- ráðs. I æðstu sljómar en hinn hluti fræjanna fluttur úr. Framleiðslan nemur 1.25 billjónum dollara á ári og rennur stór hluti þeirra aftur til bændanna sjálfra. Átta verksmiðjur hafa verið byggð- ar í Vestur-Kanada á síðast liðnum ámm, og skapast þar atvinna fyrir 1200 manns. „Orðið Canola segir raunar ekk- ert um sjálfa framleiðsluna", segir Baldur, „heldur er það aðeins vöm- heiti. Viðskiptalöndin em mörg, en mestur er útflutningurinn til Japan, og nemur hann 36% af neyslu matarolíu þar. Jafnframt rannsókn- um sínum hefur Baldur haft það starf með höndum hin síðari ár að kynna Canola á erlendum vett- vangi. Auk þess hefur hann starfað í Kfna, en þar hafa Kanadamenn skipulagt aðstoð við kynbætur á „rape“-jurtinni. Baldur segir tæknivæðingu og nýjan tækjabúnað hafa skipt sköp- um við þær rannsóknir sem hann stundar, og vissulega sé enn verið að bæta framleiðsluna, enda sé samkeppnin hörð á heimsmarkaðn- um. Olfan er notuð sem uppistaða í matarolfu, smjörlíki, salatolíur og bökunarfeiti. Uppskemtími Canola er sfðsumars eins og hveitis og verður sjálf jurtin allt að eins og hálfs metra há og ber gul fjögurra- laufa blóm. Fullþroska fræ inni- halda 40-44% olíu og em svört, brún eða gulleit. Baldur Stefánsson er fæddur á Vestford f Manitóba. Foreldrar hans Jónína og Guðmundur stunduðu búskap. Baldur tók þátt í sfðari heimsstyijöldinni, en í stað þess að setjast að við bú foreldra sinna við lok stríðsins hóf hann nám f land- búnaðarvísindum og valdi plöntu- vísindi sem sérgrein. Baldur segir að tímamót hafi orðið í rannsóknum sínum á „rape“-fræjum fyrst um 1960 og síðan 1966, þegar honum tókst að einangra tiltekin gen, en það tók um 10 ár að fá framleiðendur til að bregðast við þeirri nýjung. Þær framfarir, sem hér hefur verið um rætt, hafa þvf aðallega orðið á rúm- um áratug. „Mér rann það til ri§a“, segir Baldur, „að á fyrstu ámnum eftir stríð vomm við að flytja út hveiti, bygg og hafra á hlægilega lágu verði og fluttum inn hráefni til að vinna úr matarolíur. Fyrir mér vakti að ná því marki að við þyrftum ekki að vera háð innflutningi, og það vildi svo til að afraksturinn varð Canola." „Vissulega hef ég ekki unnið einn“, segir hann. „Ég hef alltaf átt því láni að fagna að hafa gott samstarfsfólk, því má aldrei gleyma." Hann segist ekki sjálfur hafa auðgast á uppfinningum sínum en lætur sér það f léttu rúmi liggja. Slíkt segir hann vera örlög vísinda- mannsins. „Það sem skiptir mestu máli er að bændumir hafa það svolítið betra og neytendur fá betri vöm,“ segir Baldur að lokum. AF ERLENDUM VETTVANGI Sovétríkin: eftir CAROLJ. WILLIAMS Embættísmenn skála í stikkilsbenasaft Afengisvarnarherferð haldið áfram með litlum árangri SOVÉSKIR embættismenn skála nú í gosdrykkjum þegar þeir taka á móti erlendum gestum. Og bindindismenn, sem áður fyrr héldu til haga vodkaflösku til að draga fram úr pússi sínu ef gest bæri að garði, sitja nú uppi vinlausir, slík er fyrirhöfnin að ná f sopann. Fyrir átta mánuðum fyrir- ar tölur hafa birst um árangur skipaði Mikhail S. Gorbac- af þessari herferð til höfuðs yrir átta mánuðum fyrir- skipaði Mikhail S. Gorbae- hev, leiðtogi Sovétríkjanna, að dregin yrðu saman seglin í áfeng- isframleiðslu, verð á áfengi yrði hækkað og opnunartími áfengis- verslana takmarkaður. Gorbachev sagði að grípa yrði til þessara aðgerða til að losa þjóðina við sinn stærsta vanda og mesta böl: Áfengið. Hert áfengislög Staðreyndin er sú að nú er erfiðara að verða sér úti um áfengi í Sovétríkjunum en áður. Aftur á móti koma þessar hindranir aðeins í veg fyrir að hófdrykkjumenn drekki minna, en stórtækir drykkjusvolar láta öldungis ekki deigan síga. Reyndar sjást dauðadrukknir menn æ sjaldnar á götum úti og rónar bæjarins eru að mestu horfnir úr málmslöngunum í iðr- um Moskvu. En það er trúa margra að drykkjuskapurinn hafi einfaldlega færst inn fyrir veggi heimilanna. „Eina breytingin er sú, að nú þarf ég að bíða lengur í biðröð- um,“ sagði Moskvumær, sem hún stóð og beið eftir að geta keypt vodka handa eiginmanni sfnum. Og vissulega eru biðraðimar lang- ar við áfengisútsölur. Svarta- markaðsbrask með brennivín hef- ur færst í aukana og brugg og spíri eru eftirsóttur vamingur. Sovésku ríkisfjölmiðlamir hafa rekið kröftugan áróður gegn diykkjuskap, sem stjómin segir að standi heilsu verkalýðsins fyrir þrifum, dragi úr vinnuafköstum og þar með þjóðarframleiðslu. Engin furða að erfitt sé að fram- fylgja þrotlausum fimm ára áætl- unum! Daglega birtast fregnir af stórkostlegum árangri og áföllum í baráttunni við áfengisbölið, baráttu, sem miðar að því að láta renna af annálaðri drykkjuþjóð. Undanfarið hefur sovéskum fréttaskýrendum orðið starsýnt á skuggahliðar áfengisvamarað- gerðanna. Áfengisbrask hefur sjaldan verið meira í Sovétríkjun- um og skyldi engan undra: Fram- boð á áfengi skreppur saman, en eftirspumin stendur í stað. Óprúttnir rakarar Mangarar kaupa birgðir af vodka af vinveittum starfsmönn- um áfengisverslana ríkisins og dreifíngaraðiljum og selja fyrir tvöfalt verð eftir að verslunum er lokað. Að sögn almennra borgara selja leigubflstjórar áfengi síðla nætur og einnig er hægt að kaupa vodka undir borðið á rakarastofum. Þar líta svartamarkaðsbraskaramir inn og skilja eftir hina eftirsóttu vöm. Sovéskir flölmiðlar hafa hingað til verið ófærir um að gefa heildar- mynd af ástandinu og hinum ýmsu vandkvæðum á því að fram- fylgja nýju áfengislögunum. Eng- áfenginu og embættismenn stjómarinnar hafa þráfaldlega neitað blaðamönnum bandarísku fréttastofunnar Associated Press um viðtöl um áfengisvamarher- ferðina. í blöðum og sjónvarpi er aðal- lega fjallað um einstök mál og tilfelli, þar sem áfengislagabrjótar hafa verið staðnir að verki og hlotið makleg málagjöld. í dagblaðinu Vechemyaya Moskva var nýverið vitnað í dag- bók lögreglumanns. Þar greindi frá konu nokkurri sem var gripin við að laga „samogon" - brugg - í baðherbergi s$nu. Verðir lag- Æðstí bindindismaður So vétríkj anna Áhrif herferðarinnar koma hvað best fram á opinberum vett- vangi. Háttsettir sovéskir emb- ættismenn sjást núorðið örsjaldan neyta áfengra drykkja opinber- lega og opinberir starfsmenn leggja sig í líma við að fylgja fordæmi æðsta bindindismanns þjóðarinnar, Mikhails Gorbachev sjálfs. Á nýársdag var haldin mikil móttaka fyrir erlenda sendiráðs- starfsmenn $ Kreml. Boðið var upp < k á kampavín, én sovéskir embætt- ismenn bergðu aðeins á gosdrykk með stikkilsbeijabragði úr há- fættum glösum. Sama er upp á teningnum þegar sovéskir ráðamenn bjóða útlendingum til veislu, hvort sem vera skal með smáu eða stóru sniði, í einkahófum eða opinber- Ávaxtasaf! í háfættum glösum. anna komust á sporið þegar ná- grannar konunnar kvörtuðu und- an megnri áfengisstækju f blokk- inni. Það er síður en svo nýlunda í Sovétríkjunum að almenningur leggi stund á brugglistina, þvf að Sovétmenn hafa um langt skeið bruggað sitt eigið vín. Sem að sjálfsögðu er ólöglegt athæfi þar, eins og víða annars staðar á hnattkúlunni. Fyrstu mánuðina eftir að nýju lögin um sölu áfengis voru sett var þeim stranglega framfylgt. En löghlýðni þessi reyndist ekki hafa skotið djúpum rótum og nú er svo komið að bjór, létt vfn, koníak og aðrar veigar sjást á borðum veitingastaða í Moskvu um hádegisbil. Bannið við sölu áfengis á börum og matsölustöð- um fyrir klukkan tvö eftir hádegi er kinnroðalaust virt að vettugi. En hvorki fjölmiðlar né yfirvöld sýna þess nokkur merki að fallið verði frá áróðursherferðinni. TASS fréttastofan birti nýlega skýrslu frá sovéskum yfirvöldum. Þar segir meðal annars: „Sovéska þjóðin viðurkennir og styður þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið til að vinna bug á áfengisbölinu.“ Og stjómmálaráðið komst að þeirri niðurstöðu að enn væri brýnt að beijast gegn drykkju- skap til að auðvelda verkstjórum að halda uppi aga á vinnustað og auka afköst f iðnaði. lega. Sovétmennimir sýna staka hófsemi í diykkjusiðum sfnum og þiggja aðeins eitt vínglas eða tvö, ef í hart fer. Áður fyrr lumuðu bindindis- menn iðulega á vodkaflösku til að geta staðið undir nafni sem góðir gestgjafar þegar drykkfelld- ir kunningjar kæmu óforvarendis í heimsókn. Nú er öldin önnur og fæstir nenna að leggja á sig að standa f þrotlausum biðröðum fyrir kurteisi sakir. Þijúhundruð manna biðraðir Mörgum áfengisútsölum hefur verið lokað og þær, sem enn eru starfandi, mega hafa opið frá klukkan tvö til sjö síðdegis. Bið- raðimar taka aftur á móti að hrannast upp á hádegi og þegar gáttum áfengisverslana er lokið upp híma allt að þijúhundruð þyrstir Sovétmenn fyrir utan. Maður nokkur frá Vladimir, iðnaðarborg austur af Moskvu, kvartar undan þvf að barir reyni nú að venja viðskiptavini af þjóð- ardrykknum Vodka með því að bjóða eingöngu upp á hanastél. „Og hvers ertu bættari?" spyr hann og svarar um hæl: „Ekki nóg með að þú þurfir að drekka þrisvar sinnum meira til þess að finna fyrir sömu áhrifum, heldur máttu gjöra svo vel að borga þrefalt verð fyrir.“ Höfundur er fréttaritari bandarisku fréttastofunnar Associated Press f Moskvu. *\

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.