Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1986 47~ „Lofar gódu“ — sagði Þorgils Óttar „ÞETTA lofar góðu, “ sagði Þor-' gils Óttar Mathiesen er hann var inntur eftir Ifðan sinni f hægra hnónu, eftir að hann losnaði við hækjurnar í gærkvöldi og fór á sína fyrstu æfingu með landslið- inu í handknattleik í þrjár vikur. Þorgils Óttar meiddist sem kunn- ugt er f leik gegn Pólverjum f Baltic-Cup-keppninni f byrjun janúar. „Þetta kom nokkuð vel út. Ég er betri núna en þegar ég reyndi síðast. Þessar nýju spelkur, sem ég nota núna, halda mun betur að báðum megin. Ég tók klukkutíma æfingu í kvöld (gærkvöldi) og þetta gekk allt vel og fóturinn bólnaði ekki. Ég fer hægt í sakirnar og er undir handleiðslu læknis og sjúkra- þjálfara. Það verður svo bara að koma í lós hvernig þetta kemur til með að reynast næstu vikur," sagði Þorgils Óttar. Þorgils Óttar verður ekki með í æfingleiknum gegn B-liðinu sem fram fer í Keflavík annað kvöld. Norðmenn koma hingað og leika tvo landsleiki um aðra helgi og er vonandi að hann geti beitt sér þá aðfullu. Fyrsti sigur Anton Steiner ANTON Steiner frá Austurrfki sigraði f bruni karla f heimsbikar- keppninni í Morzine í Frakklandi í gær. Þetta var fyrsti sigur Stein- er f bruni. Svisslendingurinn Gustav Oehrli varð annar og Peter Wirnsberger frá Austurrfki þriðji. Anton Steiner er 27 ára gamall og hefur aldrei unniö keppni fyrr í heimsbikarnum. Hann var sjö hundruöustu úr sekúndu á undan Oehrli, sem startaði númer 41. Wirnsberger var svo aðeins einum hundraðasta úr sekúndu á eftir Oehrli. Gerhard Pfaffenbichler frá Austurríki varð fjórði og landi hans, Leonhard Stock, fimmti. Peter Muller frá Sviss varð sjötti en hann er nú í öðru sæti í heimsbikarnum samanlagt. Færa varð startið neðar vegna þoku í efri hluta brautarinnar og styttist hún til muna við það. Sigur- vegarinn fékk brautartímann 1:38.85 mín. Staðan í heimsbikarnum eftir brunið hefur lítið breyst og er nú þannig: Marc Girardelli, Lúxemborg, 192 Peter MUIIer, Svise, 164 Peter Wimsberger, Austurrfki, 137 Markus Wasmeier, V-Þýskal. 131 Ingemar Stenmark, SvfþjóA, 127 Rok Petrovic, Júgóslavfu, 125 Pirmin ZUrbriggon, Sviss, 115 Michael Mair, ítalfu, 102 Hubert Strolz, Austurrfki, 95 Franz Heinzer, Sviss, 92 Morgunblaóiö/Júlíus • Gunnar Þór Jónsson læknir landsliðsins, bindur hár um hné Þorgils Óttars fyrir æfinguna f gærkvöldi. Nýju speikurnar eru við hlið Óttare. Viggó Sigurðsson fylgist vel með. Öruggt hjá Njarðvík NJARÐVÍKINGAR sigruðu Vals- menn örugglega, 95-73, f úrvals- deildinni f körfuknattleik í Njarð- vik í gærkvötdi. Leikurinn var jafn f fyrri háifleik og var staðan f hálfleik 42-39 fyrir Njarðvfk. Valsmenn skoruðu fyrstu 9 stig- in í leiknum áður en Njarðvíkingar komust á blað. Njarðvíkingar söx- uðu smátt og smátt á forskot Valsmanna og er níu mínútur voru liðnar af leiknum jöfnuðu þeir í fyrsta sinn, 17-17. Suðurnesja- menn komust í fyrsta sinn yfir í leiknum eftir 14 mínútur er staðan var 25-24. Liðin skiptust síðan á um að hafa forystuna og leiddu Njarðvíkingar með þremur stigum í leikhléi. Njarðvíkingar breyttu svo heldur betur gangi leiksins í seinni hálf- leik. Þegar staðan var 56-45 eftir fjórar mínútur skoruðu Valsmenn ekki stig í 5 mínútur og færðu Njarvíkingar sér það í nyt og breyttu stöðunni í 69-45. Þá voru úrslitin ráðin og hélst þessi munur út leikinn. Valsmenn léku mjög illa á þessum kafla og fór bókstaflega allt í handaskol hjá þeim. Bestu leikmenn Njarðvíkinga í þessum leik voru Kristinn Einars- son og Valur Ingimundarson. Stig UMFN: Kristinn Einarsson 24, Valur Ingimundarson 20, Helgi Rafnsson 14, Jóhann Kristbjörnsson 14, Ingimar Jónsson 10, Ámi Lárusson 7, Ellert Magnússon 4 og ísak Tóm- asson 3. Stig ValsJóhannes Magnússon 15, Tómas Holton 11, Leifur Gústafsson 9, Sturla örlygs- son 8, Kristjón Agústsson 8, Einar Ólafsson 7, Jón Steingrímsson 7, Bjöm Zoega 6 og Torfi Magnússon 4. •Ellert Schram •Hólmbert Friðjónsson m • Marcelo Housmann •Leon Brown •Ásgelr Elfasson Er tilkoma erlendra leikmanna íslenskri knattspyrnu til góðs? SVO gæti farið að fslensk knatt- spyrna verði f sumar með nokk- uð öðru sniði en undanfarin ár Að minnsta kosti eitt iið, KR, mun hafa erienda leikmenn innansveitar, og talsverðar Ifkur eru á að f tiði ÍBK leiki sömuleið- is útlendingur. Þetta er þó langt í frá nýnæmi í íþróttunum hér — skemmst er að minnast „útlendinganna" sem fyrir nokkrum árum settu mikinn svip á körfuknattleikinn. Margt hefur verið sagt og skrifaö um reynsluna af þeirri tilraun körfu- knattleiksmanna til að Iffga upp á íþróttina, og flestir eru sam- mála um að bandarísku leik- mennirnir hafi ekki unnið körfu- knattleiknum skaða, líklega frem- ur hið gagnstæöa. En hvað um knattspyrnuna? „Eftir nokkuð stöðugan út- flutning bestu íslensku knatt- spyrnumannanna á undanförn- um árum er kannski kominn tími til að við fáum eitthvaö erlendis frá í staðinn," sagði Ellert Schram, formaður KS(. „Ég sé ekki að útlendir leikmenn geti gert neitt nema gagn, svo fram- arlega sem þeir eru sannir og góðir íþróttamenn." Ekki er vafi á að argentínsku bræðurnir Barcelo og Rene Housmann, sem KR-ingar hafa fengið til liös við sig, eru fram- bærilegir knattspyrnumenn, og annar þeirra, Rene, er reyndar heimsþekktur fyrir knattleikni. Leikmaðurinn sem Keflvíkingarn- ir eru með til „athugunar" er hinsvegar aiveg óþekktur, Leon Brown heitir hann og er 21 árs Englendingur. „Við Keflvíkingar höfum misst þrjá góða framlínu- menn síðan á sl. sumri þannig að ég gat ekki neitað því að kíkja á hann þegar hann óskaöi eftir því," sagði Hólmbert Friðjóns- son, þjálfari Keflvíkinga. „Mér sýnist hann hafa góða tækni, hann er flinkur með boltann, en hann væri varla að reyna fyrir sér hér á landi ef hann hlypi inn í atvinnumannalið í Bretlandi. Það er alveg Ijost," sagði Hólmbert. Samkeppni? Hólmbert sagðist Ifta á þetta svipuðum augum og erlenda þjálfara sem starfað hafa fyrir íslensk knattspyrnulið um árabil. „Á tímabili kom upp umræða um það hvort ætti að loka á þá, á þeim forsendum að þær tækju atvinnu frá íslendingum en ég held að það hafi bara gert is- lenskum þjálfurum gott að kljást við þá. Þeir komu með nýjar aðferðir og hugmyndir inn í ís- lenska knattspyrnu. Ég held að þaö sama verði upp á teningnum með leikmennina. íslenskir strák- ar hafa bara gott af samkeppn- inni og ef þessir leikmenn eru góðir þá læra þeir af þeim. Fyrir utan að áhorfendur munu kunna að meta þetta," sagði Hólmbert. „Ég held það verði erfitt fyrir íslenska stráka að standa í þessu í algjörri áhugamennsku við hlið- ina á mönnum sem fá borgað fyrir að leika knattspyrnu," sagði hinsvegar Ásgeir Elíasson, þjálf- ari og leikmaður Fram. „Ég held líka að þó áhorfendum fjölgi eitt- hvað til að byrja með þá komist menn fljótt að því að þó hér leiki t.d. einn sæmilegur útlendingur með hverju liði þá verður lítil breyting í knattspyrnunni. í körfuboltaliði eru bara 5 leik- menn og þá munar mikið um eina stjörnu, en í knattspyrnunni þyrfti 3—4 leikmenn í hvert lið til að gera sama gagn. Það hefur ekk- ert lið efni á því," sagði Ásgeir. Atvinnumennska? „Jú, allir leikmenn í íslensku knattspyrnunni eru áhugamenn að nafninu til," sagði Ellert Schram, þegar hann var spurður hvort hingað koma útlenskra leik- manna stangaðist á við áhuga- mannareglurKSÍ. „KSÍ hefuraldr- ei rengt þær upplýsingar sem félögin hafa gefið okkur um slíka hluti. Félögin hafa sjálf haft frum- kvæöi að því aö veita leikmönn- um umbun fyrir erfiði þeirra í einhverri mynd, og mér finnst að KSÍ eiga frekar að hvetja til þess en letja að félögin greiði leik- mönnum sínum ef þau hafa efni á því. Varðandi erlenda leikmenn þá hefur KSÍ sett reglur sem koma eigi í veg fyrir að leikmenn séu keyptir hingað með ör- skömmum fyrirvara, kannski í einn eða tvo leiki. Þeir leikmenn sem hér leika veröa að vera bú- settirá íslandi," sagöi Ellert.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.