Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986 Vegið að hafnfirskum templurum eftírArna Gunnlaugsson Einn frambjóðenda við nýafstað- ið prófkjör Alþýðuflokksins í Hafn- arfirði sá ástæðu til að lýsa yfir í málgagni flokksins á staðnum fylgi sínu við opnun áfengisútsölu í Hafnarfirði. Var í viðtalinu vegið að hafnfírskum templurum og sagt, að „það væri ekki á valdi fárra ofstækisfullra templara að taka ákvarðanir fyrir aðra og þeir ekki yfir aðra hafnir, hvað varðar mann- réttindi". Hvort hér var á ferðinni forskrift flokksforustunnar um templara eða bara einkaskoðun frambjóðandans get ég ekki upp- lýst. Hinsvegar þarf ekki að koma á óvart, þótt ráðist sé á templara úr herbúðum Alþýðuflokksins, svo mikill er þar orðinn undirlægjuhátt- urinn við áfengisauðvaldið undir forustu bjórpáfans Jóns Baldvins Hannibalssonar. — Það er af, sem áður var, þegar sá flokkur gekk fram fyrir skjöldu í baráttu fyrir betra og fegurra mannlífi. Þá þekktist þar ekki minnimáttar- kennd gagnvart Bakk'usi. Ungu mennimir í flokknum hefðu gott af því að kynna sér skelegga baráttu ástsælasta for- ingja Alþýðuflokksins, fyrr og síðar, Jóns Baldvinssonar, gegn áfengis- drykkjunni. Hann var t.d. annar tveggja þingmanna, sem hafði nægan kjark og manndóm til að greiða atkvæði gegn undanþágum frá bannlögunum. Hver treystir sér til að brigsla honum um ofstæki? Og hver getur með góðri samvisku kastað stéinum að templurum fyrir að berjast fyrir bindindi og bræðra- lagi? Vígorð áfengissinna leysa engan vanda Að tala um, að templarar hugsi og taki ákvarðanir fyrir aðra, er auðvitað hreinn þvættingur. Sér- hver, sem hefur óbijálaða dóm- greind, á að geta hugsað sjálfstætt. Það er helst, þegar áfengið eða önnur eiturlyf trufla heilasellumar, að hugsunin verði brengluð. Þegar Hafnfirðingar taka 22. feb. nk. afstöðu til opnunar áfengis- útsölu í bænum sínum, er þeim almennt vel treystandi til að láta heilbrigða dómgreind, yfírvegað mat, ábyrgðartilfmningu og um- hyggju fyrir sínum samborgurum ráða afstöðu sinni. — Fólk á ekki að þurfa að láta innantóm slagorð NÝJUNG ■ NÝJUNG ■ NÝJUNG TÖLVUVÆDD BÍLAVIÐSKIPTI » Að kaupa eða selja notaðan bíl Nú höfum við tekið í notkun er oft tímafrekt og þreytandi tölvu til að auðvelda viðskipta- vinum okkar að finna réttan bíl og réttan kaupanda. „ENGIN TÍMASÖUN“ Sértu kaupandi, færðu á augabragði tölvuritaðar upplýsingar um: 4 Alla bfla á söluskrá eftir verðflokkum. 4- 4 Afla bfla á söluskrá eftir tegundum. 4- •4 Alla bfla á söluskrá eftir árgerðum. 4- 4 Alla bfla á söluskrá eftir skiptamöguleikum. 4- Sértu seljandi, færðu söluskráningu á methraða og tölvan fylgist stöðugt með hvort kaupandi býöst að þínum bíl Söiugögn eru tölvuprentuö í einu vetfangi Árni Gunnlaugsson „Rannsóknir hafa leitt í ljós að mest er drukkið hér á landi á þeim stöð- um, þar sem auðveldast er að nálgast áfengi. Fækkun á áfengisútsöl- um er því ráð til að draga úr drykkjunni eða stöðva vöxt hennar. Það er m.a. skoðun færustu rannsóknar- manna hjá heilbrigðis- stofnun Sameinuðu þjóðanna...“ áfengispostula um „ofstækisfulla templara" o.fl. villa sér sýn. Vígorð áfengissinna leysa engan vanda. Eiga ekki hugtökin ofstæki og aft- urhald oft vel við um þeirra eigin viðhorf í áfengismálum? í öðru hafnfirsku blaði, Fjarðar- póstinum, segir ungur maður það vera sjálfsögð mannréttindi að geta fengið keypt áfengi í Hafnarfírði. Virðist hann vilja bera lof á það „frelsi", sem þar ríkti fyrir síðustu aldamót, þegar áfengi var selt í næstum hverri sölubúð. Hann og aðrir ættu að kynna sér það hörmu- lega ástand, sem þá var á mörgum hafnfirskum heimilum af völdum áfengisdrykkju. Hver vill í alvöru stuðla að því, að sú þróun endurtaki sig? Verður kanske áfengisútsala fyrsta sporið á þeirri afturhaldsleið? Ummæli heiðurs- borgarans Við, sem andmælum óheftu áfengisfrelsi, erum kallaðir „arg- asta afturhald" í skrifum unga mannsins. Ég get ekki annað en vorkennt honum og hans skoðana- bræðrum og ekki gefið þeim betri ráð en að hugsa sig vel um, áður JL/esió af meginþorra þjóöarinnar daglega! Auglysinga- síminn er224 80 en þeir halda áfram tryggðinni við málstað Bakkusar. Ef þeim er hlýtt til unga fólksins sem ég dreg ekki í efa, ættu þeir að minnast þesss, að nýlega gáfu þekktir læknar í Reykjavík þá lýsingu á áfenginu á ráðstefnu í Reykjavík, að það væri „höfuðóvinur æskunnar". Og hveijir þekkja betur en læknamir, hvar skórinn kreppir í þessum efn- um? Ungu fólki væri hollt að hafa það í huga, sem fyrsti og eini heiðurs- borgari Hafnarfjarðar, Bjami Snæ- bjömsson, læknir, sagði í athyglis- verðri grein um áfengismálin í Vísi 26. mars 1966, svohljóðandi: „Fé- lagslyndi og heilbrigt skemmt- analíf, þar sem ekki er haft vín um hönd, er besta ráðið til að útrýma feimni, hlédrægni og minnimáttarkennd, en eykur sjálfstraustið og gerir manninn að nýtum þjóðfélagsþegn.** Að misbjóða frelsinu Þeir, sem láta sér afleiðingar áfengisdrykkju í léttu rúmi liggja, hafa oft hátt um ást sína á frelsi og mannréttindum, þegar veija skal drykkjuna. Sömu menn þegja, þegar frelsið er skert á öðmm svið- um. Þá slokknar frelsisástin. Af hveiju em þessir menn sjálf- um sér ósamkvæmir í baráttunni fyrir frelsi einstaklingsins? Af hveiju beijast þeir t.d. ekki fyrir afnámi banns á hnefaleikum, fyrir frelsi fólks að fá að reykja hvar sem er, fyrir afnámi sóttvamarlaga, fyrir því, að leyfð verði fleiri eiturlyf en áfengi o.s.frv.? Vita þeir ekki, að oft er nauðsynlegt að hefta athafnafrelsið vegna almannahags- muna? Og hversu oft hefur einmitt í skjóli áfengisfrelsis sprottið ánauð og eymd og margir orðið ófijálsir af völdum drykkjunnar? Er það ekki sama og að misbjóða dýrmætu frelsi, þegar frelsishugtakið er not- að til framdráttar málstað áfengis- vina? Áfengið er kveikjan að fíkniefnaneyslu Nýlega var af hálfu ríkisstjómar- innar haldin ráðstefna um fíkni- efnavandamálið. Þar komu fram ýmsar nýjar upplýsingar um hið geigvænlega ástand, sem hér ríkir í þeim málum, m.a. stóraukin drykkja unglinga. í viðtali útvarps- ins eftir ráðstefnuna við Tómas Helgason, prófessor, sagði hann, að „áfengisneyslan væri tvímæla- laust aðalvandamálið“, önnur fíkniefnaneysla byijaði með áfeng- isneyslu og væri henni alltaf sam- fara. Áfengið er því kveikjan að annarri fíkniefnaneyslu og heldur henni við. Hvatti Tómas til hertrar baráttu gegn áfengisneyslunni og líkti sölu fíkniefna við fjöldamorð. Fjölgun útsölustaða eykur áfengisdrykkju Á því er enginn vafí, fjölgun út- sölustaða áfengis myndi gera slæmt ástand í áfengis- og öðrum fíkni- efnamálum enn verra. Rannsóknir hafa leitt í ljós að mest er drukkið hér á landi á þeim stöðum þar sem auðveldast er að nálgast áfengi. Fækkun á áfengisútsölum er því ráð til að draga úr drykkjunni eða stöðva vöxt hennar. Það er m.a. skoðun færustu rannsóknarmanna hjá heilbrigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna, en stofnunin hvatti fyrir nokkrum árum aðildarríkin til bar- áttu og raunhæfra ráðstafana gegn áfengisbölinu. Hvemig getur ábyrgt, hugsandi fólk látið slíkar ráðleggingar sem vind um eyru þjóta? Áfengisútsala í Hafnarfirði og Garðabæ yrði þeim sveitarfélög- um aldrei til framdráttar. Hún myndi hinsvegar auka tjónið, vandræðin og þá margvíslegu ógæfu, sem af áfenginu getur stafað. Hver telur það eftirsókn- arvert? Megi sem flestir Hafn- firðingar bera gæfu til að forða bænum sínum frá þeim ófarnaði. Höfundur er hæstaréttarlög- maðurí Hafnarfirði. --n-J&LÉiL,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.