Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986
Iðnrekendur um Þróunarfélagið:
/"
Lánasjóðir iðnaðarins
endurskoði afstöðu sína
STJÓRN Félags íslenskra iðn-
rekenda hefur beint þeim tilmæl-
um til stjórna lánasjóða iðnaðar-
ins og til bankaráðs Iðnaðar-
bankans að þeir endurmeti af-
stöðu sína til Þróunarfélags ís-
lands og að athugað verði hvort
þróun iðnaðarins sé ekki betur
borgið utan Þróunarfélagsins en
innan, að þvi er segir í frétt frá
félaginu.
í ályktun stjórnar FÍI er harmað
að „það skyldu verða örlög Þróunar-
félags íslands hf. á sínum fyrstu
starfsdögum að þurfa að þola póli-
tísk afskipti af verkefnum stjómar
félagsins þvert ofan á allar fyrri
Reglur um
krítarkort
Viðskiptaráðherra, Matthias
Bjarnason, hefur nú falið verð-
Iagsstofnun að kanna hvort notk-
un krítarkorta eins og henni er
nú háttað samræmist lögum um
verðlag, samkeppnishömlur og
óréttmæta viðskiptahætti. Meðal
annars er verið að kanna hvort
notkun kortanna megi takmarka
við ákveðin viðskiptasvið og at-
hugað hvort heppilegt sé að þau
séu notuð við matvælakaup.
Matthías Bjamason sagði í samtali
við Morgunblaðið, að hann teldi rétt
að kanna þetta og koma á einhveijum
reglum eða lögum um notkun kort-
anna. Ósanngjamt væri til dæmis
að kostnaði vegna notkunar kort-
anna væri velt út í almennt verðlag
og legðist þannig einnig á þá, sem
ekki notuðu kortin. Tiyggja bæri,
að þeir, sem staðgreiddu vörur sínar,
byggju ekki við iakari kjör en þeir,
sem notuðu kortin. Einnig væri
nauðsynlegt að kanna hvemgi þess-
um hlutum væri háttað í nágranna-
löndunum.
yfirlýsingar stjómvalda um að félag-
ið ætti að starfa á eðlilegum við-
skiptagmndvelli án pólitískrar íhlut-
unar af daglegri starfsemi", eins og
segir í ályktuninni.
Stjóm Félags íslenskra iðnrek-
enda telji að með þessu sé búið að
eyðileggja trú manna á að þetta fé-
lag fái starfsfrið fyrir stjómmála-
mönnum og telji raunar líkur á, að
félagið verði lítið annað en nafn-
breyting á Framkvæmdastofnun.
Frá stjómarfundi Þróunarfélagsins í gær. Frá vinstri: Gunnlaugur
Sigmundsson framkvæmdastjóri, Guðmundur G. Þórarinsson, Gunn-
ar Ragnars, Þorsteinn Ólafsson, Jón Ingvarsson og Björa Þórhalls-
son.
Stjórn Þróunarfélagsins:
Björn Þórhallsson
kjörinn formaður
BJÖRN Þórhallsson, viðskipta-
fræðingur og varaforseti ASÍ,
var S gær kjörinn formaður
stjóraar Þróunarfélags íslands.
Varaformaður var kjörinn Þor-
steinn Ólafsson, framkvæmda-
stjóri hjá SÍS og ritari Gunnar
Ragnars, forstjóri Slippstöðvar-
innar á Akureyri.
Á stjómarfundi Þróunarfélags-
ins, sem haldinn var í gær, föstu-
dag, var auk stjómarkjörs gengið
endanlega frá ráðningu Gunnlaugs
Sigmundssonar í stöðu fram-
kvæmdastjóra. Eins og kunnugt er
sögðu þeir Davíð Scheving Thor-
steinsson og Hörður Sigurgestsson
sig úr stjóm félagsins vegna af-
skipta forsætisráðherra af ráðningu
Gunnlaugs í stöðu framkvæmda-
stjóra. Þeirra sæti í stjóminni tóku
Bjöm Þórhallsson og Gunnar Ragn-
ars.
Morgunblaðið/Emílía s-/
Úrvalslið Norðurlanda, fremri röð: Curt Hansen, Helgi Ólafsson
og Bent Larsen. Aftari röð: Harry Schussler, Guðmundur Sigur-
jónsson, Yijola, Simen Agdestein, Ulf Anderson, Rassmussen
og Jóhann Hjartarson.
Norðurlönd-Bandaríkin í skák:
Stefnir í hörkuuppgjör
„Stórskotalið norrænna og bandarískra skákmanna er mætt til
leiks og það stefnir í hörkuuppgjör," sagði Einar S. Einarsson,
forseti Skáksambands Norðurlanda, í samtali við Morgunblaðið
í gærkvöldi. Þá voru allir sterkustu skákmenn Norðurlanda og
Bandarikjanna utan bandaríski stórmeistarinn Lev Alburt mættir
til leiks. Alburt var væntanlegur til landsins i morgun.
Forseti íslands verður við setn- son og Friðrik Ölafsson, en jafn-
ingu keppninnar í Menntaskólanum
í Hamrahlíð. Setningarathöfn hefst
klukkan 13 og mun kór MH syngja.
Um hálftvö setjast kappamir að
tafli. Ekki er ljóst hvort Alburt
teflir í dag, en hans sæti tekur þá
DLugy, heimsmeistari unglinga.
Þeir Ulf Anderson og Bent Larsen
leiða lið Norðurlanda, en í því eru
fímm íslenskir skákmenn - allir
stórmeistarar okkar, Helgi Ólafs-
son, Margeir Pétursson, Jóhann
Hjartarson, Guðmundur Siguijóns-
framt teflir Jón L. Amason í úrvals-
liði Norðurlanda.
Yasser Seirawan leiðir banda-
ríska liðið en hann er eini skákmað-
urinn, sem hefur yfir 2600 Elo-stig.
Jafnframt tefla kunnir skákmenn
eins og Kavalek, Larry Christian-
sen, Lev Alburt, Walter Browne
og Robert Byme í bandaríska lið-
inu. Á morgun fer síðari umferðin
fram og verður einnig klukkan
13.30 í Menntaskólanum í Hamra-
hlíð.
Tekist á um kaup og
kjör um miðja vikuna
Af sölum engnm samnings- eða verkf alls-
rétti einstakra félaga, segir formaður BSRB
Sama loðnuverð áfram
Á FUNDI Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins í gær varð samkomulag um,
að lágmarksverð á loðnu til bræðslu
frá 11. febrúar til loka vetrarloðnu-
vertíðar 1986, skuli vera óbreytt
fíá því sem gildir til 10. febrúar
þ.e. 830 krónur hvert tonn. Verðið
er miðað við samtölu fítu- og þurr-
efnisinnihalds er nemur 24%. Sam-
tala þessi reiknast þó aldrei lægri
en 23%. Aðrir verðskilmálar eru
óbreyttir.
ÚTLIT er fyrir að um miðja
næstu viku hefjist eiginlegar
samningaviðræður um kaup og
kjör milli BSRB og samninga-
nefndar rikisins. Samningafund-
ur hefur verið boðaður á mið-
vikudagsmorguninn og þar
munu samningamenn ríkisins
væntanlega leggja fram töluleg-
ar útf ærslur á þeim atriðum, sem
fjallað var um í bréfi rikisstjóra-
arinnar tíl launþegasamtakanna
sl. miðvikudag, að þvi er Kristján
Thorlacius, formaður BSRB,
sagði eftir samningafund aðila í
gær.
Ekki dró til tfðinda á fundinum
í gær, sem stóð í um eina klukku-
Tónlist á íslandi 1 Norræna húsinu:
Fyrirlestrar um tónlist á mið-
öldum o g hljómsveitarleik
í NORRÆNA húsinu stendur
yfir sýningin „Tónlist á íslandi"
en þar er islensk tónlistarsaga
rakin frá þvi sögur hefjast. Nú
um helgina verða haldnir tveir
fyrirlestrar í tengslum við sýn-
inguna, í dag talar Gunnar
Egilsson klarinettleikari um
þróun hljómsveitarleiks á ís-
landi og á morgun sunnudag
fjallar dr. Jakob Benediktsson
um tónlist og tónlistariðkun á
íslandi á miðöldum.
Aðaluppistaða sýningarinnar í
Norræna húsinu er ljósmyndaröð
þar sem sjá má myndir af mörgum
þeim, sem komið hafa við sögu í
tónlistarlífi íslendinga frá þvf fyrir
aldamót til dagsins í .dag, bæði
einstaklingum og hópum. Þá eru
á sýningunni ýmsir sögufrægir
munir, mörg helstu hljóðfæri
landsins, handrit, nótur og bækur.
Gunnar Egilsson mun í fyrir-
lestri sínum rekja sögu hljómsveit-
arleiks allt frá því að Lúðurþeyt-
arafélag Reykjavíkur hélt fyrstu
opinberu tónleika, sem sögur fara
Jakob Benediktsson
af, í Reykjavík árið 1876, fram til
dagsins í dag. Með fyrirlestrinum
verða flutt tóndæmi úr gömlum
hljóðritunum af hljómsveitarleik
eftir því sem kostur er.
Dr. Jakob sagði f samtali við
blaðið að hann myndi m.a. flalla
um þær heimildir sem við íslendi-
ngar eigum um tónlist og tónlistar-
iðkun hér á landi á miðöldum.
Gunnar Egilsson
„Heimildimar eru slitróttar, en það
sem varðveist hefur er mest kirkju-
tónlist, og mun ég gera nokkra
grein fyrir því helsta á því sviði.
Það em engin heil nótnahandrit
til, en mikið af brotum, sem menn
hafa verið að tína saman nú á síð-
ustu ámm og ákvarða frá hvaða
tíma þau em, og er þar um merki-
legar rannsóknir að ræða. Heilleg-
asta tónverkið sem til er frá mið-
öldum er Þorlákstíðir, tfðasöngur
heilags Þorláks, sem Dr. Róbert
A. Ottósson gaf út á sínum tíma
og skrifaði um doktorsritgerð."
Dr. Jakob sagði að enn minna
væri vitað um hljóðfæri þessa
tímabils. „Nokkur hljóðfæri em
nefnd frá þessum tíma, en við
vitum ekki í hve miklum mæli þau
vom notuð, það er talað um hörpu,
og f einni heimildinni er talað um
orgel sem Amgrímur Pálsson flutti
hingað frá Noregi, en hvort það
var notað eða hvert það fór veit
enginn. Enginn veit í rauninni hve
mikið af hljóðfæmm barst hingað
frá öðmm löndum."
Dr. Jakob sagðist flalla um þetta
frá handritasjónarmiði, „í tónlist-
arsögu er ég algjör leikmaður og
geri enga tilraun til að rekja þetta
frá þeirri hlið, til þess skortir mig
allan lærdóm".
Fyrirlestramir verða sem fyrr
segir í dag og á morgun og heQast
klukkan 17 báða dagana.
stund, að öðm leyti en því að af
hálfu BSRB vom lagðar fram tillög-
ur sem svar við hugmyndum fjár-
málaráðuneytisins um samnings-
og verkfallsrétt opinberra starfs-
manna. Þær tillögur vom birtar í
Morgunblaðinu á miðvikudaginn.
Tillögur BSRB fara í flestum atrið-
um saman við tillögur ríkisins -
að undanskildu því gmndvallarat-
riði, að BSRB vill ekki afnema
verkfallsrétt starfsmanna í lög-
gæslu, heilbrigðisgeiranum og
stjómarráðinu, eins og gert er ráð
fyrir í tillögum fjármálaráðuneytis-
ins.
Tillögur BSRB em svohljóðandi:
„1. Samningsréttur verði í hönd-
um einstakra stéttarfélaga starfs-
manna.
2. Verkfallsréttur ogframkvæmd
verkfalls verði í höndum félaganna.
3. Til verkfallsákvörðunar þurfí
samþykki í allsheijaratkvæða-
greiðslu þess félags eða starfshóps,
sem kjaradeilan tekur til.
4. Kjaradeiluneftid verði lögð
niður.
5. Ekki verði lögbundin skylda
til að leggja fram sáttatillögu."
„Krafa okkar um að samnings-
og verkfallsrétturinn sé óskoraður
hjá félögunum er það, sem helst
skilur á milli okkar," sagði Kristján
Thorlacius. „Þessar hugmyndir
okkar em nátengdar þeirri umræðu,
sem nú fer fram um skipulagsmál
samtaka okkar. Við sögðum á fund-
inum að við hlytum að vona a ríkis-
valdið kæmi til móts við okkur á
jákvæðan hátt í þessu máli, svo
ekki þurfí að koma til þess að ein-
stakir hópar þurfi að beijast fyrir
réttindum sínum, til dæmis með
hópuppsögnum utan skipulags.
Gangi tillögur ríkisins eftir þá
tæki við öngþveiti,“ sagði Kristján
Thorlacius. „Við myndum þurfa að
skipuleggja baráttu okkar eftir
eigin leiðum, eins og verkalýðs-
hreyfíngin þurfti að gera fyrrir setn-
ingu vinnulöggjafarinnar 1938 -
við yrðum, með öðmm orðum, í
svipaðri stöðu og félög Alþýðusam-
bandsins vom í kringum 1920. “