Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 8. FEBRÚAR1986 Grein Braga Þoka lék um miðbæ Reykjavík- ur ekki ósviðuð þeirri og huldi spor Sherlock Holmes. Undirritaður reikaði yfír hellulagt Lækjartorgið, næsti maður eins og þóst, máski úr öðrum heimi. Úr gluggum húsanna gægðust ljóstýrur og ljóðlína Tóm- asar lá í loftinu: Dauð ertu, borg, og aldrei mun æskan framar/ ást- fangin vitja þinna rökkvuðu garða! Ég hneppti seinasta hnappinum á útsölufrakkanum og kíkti í föllit augu húsanna. Hvar var skjól að fá gegn þessari nístingsköldu þoku? Jú, auðvitað fer ég inná Mensu, drekk þar súkkulaði, horfí út um hlýjar gáttir hins aldna húss á hina dularfullu þokukenndu veröld Lækj- artorgs, síðan labba ég inní List- munahúsið til móts við hugverk myndlistarmannanna. Ég hneppi frá útsölufrakkanum og svíf upp brakandi stiga hins aldna húss. Hvað er Mensa ekki opin á þessum tíma dags, með súkkulaðiilm í sál- inni, skeiða ég yfir ganginn inní hina glæstu sali Listmunahússins. Hugurinn upptendrast af hinni nýstárlegu list er þama blasir við augum, veggir eru að vísu auðir en þó hafa á nokkrum stöðum verið reistar upp hillur stútfullar af pott- um og pönnum. Á einni pönnunni hangir verðmiði, á honum stendun Heildverslun Jóns Jónssonar. Ég hrökklast niður brakandi eikarstig- ann útf húmið og á móti mér streymir áfram kvæði Tómasar: Aldrei framar mun fagnandi dagur rísa/og fara um dansglaðan hlátur um torg þín og stræti. Grein Braga: Ég rifja hér upp þetta augnablik vegna þess að það tengist í huga mínum stórmerkri grein er Bragi Ásgeirsson listmálari ritar hér í blaðið sunnudaginn 2. febrúar og hann nefnin Sjónmenntavett- vangur. í þessari grein segir Bragi meðal annars: Á undanfömum ámm hafa starfað hér í borg nokkr- ir sýningarsalir með ólíku svipmóti, sem allir hafa átt fyllsta rétt á sér og sett hafa skemmtilegan menn- ingarsvip á miðborgina. Hér skai fyrst nefna Listmunahúsið, sem að stásslegu yfírbragði var sýning- arsalur á heimsmælikvarða. Þar var jafnan reynt að vanda af fremsta megni til sýninga og opnanir þeirra voru hátíð út af fyrir sig. Dyr þess lokuðu á sl. hausti. Bragi tínir til fleiri sýningarsali er hafa gefíð upp öndina nýverið í miðborg Reykjavíkur. Eina helstu ástæðuna fyrir því að fímbulþokan hefír þiýst sér inn um gáttir þess- arra listamiðstöðva telur Bragi þá að öflugasti Qölmiðillinn, sjónvarp- ið, hafí sofnað á verðinum: „Nú er markaðurinn varla svo stór, að hann þyldi auðveldlega öll þessi gallerí sem starfandi voru, en ég fullyrði að það var ekki aðalástæðan, heldur tómlæti fjölmiðla og þá aðallega sjónvarpsins. Nú síðast hefur hin fræga ruslakista sjónvarpsins fyrir innlenda listamenn, sem áður kom eftir fréttir á föstudögum, verið flutt fram til kl. 19, en þá horfa næsta fáir á sjónvarp." Ég tek heils hugar undir þessa gagnrýni Braga Ásgeirssonar á íslenska sjónvarpið. Ég hef áður hreyft þeirri hugmynd að hinar einstöku listgreinar fái ákveðið pláss í dagskránni, þannig gæti myndlistin fengið pláss á föstudögum, ritlistin á miðvikudög- um o.s.frv. Miðvikudagsþáttur Óm- ars átti að sinna listinni en þar fer nú mest fyrir söngelskum stjóm- málagladíatorum. Blásum burt þokunni svo rætist ekki seinustu Iínumar í hendingu Tómasan Gleymd er þín saga og eigi sér enga minning./Eilífðin vaki hljóð yfír rústum þínum. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP / SJÓNVARP SÆFARINN Kolkrabbar og hafmeyjar ■■■■ „Kolkrabbar og 1 700 hafmeyjan" A < — heitir 4. þáttur framhaldsleikritsins „Sæ- farinn", sem er á dagskrá rásar 1 í dag kl. 17.00. Leikritið er byggt á sam- nefndri sögu eftir Jules Veme. Leikgerðin er eftir Lance Sieveking. Þýðandi er Margrét Jónsdóttir og leikstjóri er Benedikt Áma- son. í 3. þætti sagði frá því þegar mennimir þrír, sem féllu útbyrðis af leitarskip- inu, voru komnir um borð í kafbátinn Nautilíus, sem stjómað er af dularfullum náunga, Nemó að nafni. Hann gerði þeim ljóst að Bobby- socks ■HH Norskur sjón- Ol 00 varpsþáttur um t-i 1 — stúlkumar tvær er sigmðu í Söngvakeppni sjónvarpsstöðva Evrópu í fyrra er á dagskránni kl. 21.00 íkvöld. Fylgst er með sigur- göngu þeirra Elisabeth Andersen og Hanne Krogh og þeim fylgt eftir á söng- skemmtunum í Noregi og annars staðar. þeir væm fangar hans og að þeir yrðu að láta sér lynda að dveljast ævilangt neðansjávar. En þrátt fyrir hrifningu sína af tækni- undmm kafbátsins og ævintýraheimi hafdjúpsins, ákváðu þeir að grípa fyrsta tækifæri sem byðist til undankomu. Leikendur í 4. þætti em: Sigurður Skúlason, Róbert Amfínnsson, Pálmi Gests- son, Rúrik Haraldsson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Aðalsteinn Bergdal og Ell- ert Ingimundarson. Tækni- menn em Friðrik Stefáns- son og Runólfur Þorláks- son. John Wayne og Lee Marvin i hlutverkum sínum i bíómyndinni „Heimafólk**. Heimafólk ■i Bandaríska 00 gamanmyndin — „Heimafólk" frá árinu 1963 er á dagskrá sjónvarps kl. 22.00 í kvöld. Leikstjóri er John Ford og með aðalhlutverk fara: John Wayne, Lee Marvin, Elizabeth Allen, Cesar Romero og Jack Warden. Myndin gerist á Suður- hafseyju þar sem tveir liðs- menn úr Bandaríkjaflota hafa flenst eftir heimsstyrj- öldina. Annar rekur veit- ingahús en hinn er læknir. Þriðrji félaginn bætist í hóp- inn og dóttir læknisins sem á brýnt erindi við föður sinn. Þýðandi er Reynir Harð- arson. Samleikur í útvarpssal ■I Gunnar Bjöms- 35 son leikur á selló — lög eftir Skúla Halldórsson sem leikur með á píanó í útvarpi á rás lídagkl. 17.35. Lög Skúla em sönglög, þótt leikin séu á selló að þessu sinni. Meðal annars Gunnar Björnsson leikur á selló í útvarpi i dag. verða hér flutt góðkunn lög eftir Skúla, svo sem Barmahlíð við texta Jóns Thoroddsen, Draumljóð við texta Theódóru Thorodd- sen og Illgresi við texta eftir Öm Amarson. En auk þeirra verða leikin verk, sérstaklega skrifuð fyrir selló og píanó, eins og Prelúdía í H-dúr og Söngur sáðmannsins, sem er nýtt verk eftir Skúla. ÚTVARP LAUGARDAGUR 8.febrúar 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.15 Tónleikar, þulur velur og kynnir. 7.20 Morguntrimm. 7.30 íslenskir einsöngvarar og kórar syngja. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Tónleikar. 8.30 Lesið úr forystugreinum dagblaðanna. Tónleikar. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ. Stephensen kynn- ir. 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegt mál. Endurtek- inn þáttur frá kvöldinu áður sem Margrét Jónsdóttir flyt- ur. 10.10 Veðurfregnir. Óskalög sjúklinga, fram- hald. 11.00 Heimshorn — Finnland. Umsjón: Olafur Angantýs- son og Þorgeir Ólafsson. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.46 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar.Tónleikar. 13.50 Hér og nú. Fréttaþáttur ívikulokin. 15.00 Miödegistónleikar a. Slavneskur mars op. 31 eftir Pjotr Tsjaikovský. b. Scherzo capriccioso op. 66 eftir Antonín Dvorák. Sinfóníuhljómsveit Lundúna leikur; Istvan Kertesz stjórn- ar. c. Sinfónía nr. 8 í F-dúr op. 93 eftir Ludwig van Beet- hoven. Filharmoniusveitin i Berlín leikur; Herbert von Karajan stjórnar. 15.50 Islensktmál Guðrún Kvaran flytur þátt- inn. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.16 Veðurfregnir. 16.20 Listagrip. Þáttur um list- ir og menningarmál. Um- sjón. Sigrún Björnsdóttir. 17.00 „Framhaldsleikrit barna og unglinga: „Sæfarinn" eftir Jules Verne í útvarps- leikgerð Lance Sieveking. Fjórði þáttur: „Kolkrabbar og hafmeyjar". Þýðandi: Margrét Jónsdóttir. Leik- stjóri: Benedikt Árnason. Leikendur: Siguröur Skúla- son, Róbert Arnfinnsson, Pálmi Gestsson, Rúrik Har- aldsson, Aðalsteinn Berg- dal. Tinna Gunnlaugsdóttir og Ellert A. Ingimundarson. 17.35 Samleikur í útvarpssal Gunnar Björnsson leikur á 15.00 Kvöldstund með lista- manni — Endursýning. Megas rabbar viö Bubba Morthens sem einnig syng- urnokkurlög. Áður sýnt í sjónvarpinu 19. janúarsl. 15.45 (þróttir. Umsjónarmað- ur Bjarni Felixson. 18.00 Enska knattspyrnan. Umsjónarmaöur Bjarni Fel- ixson. 19.25. Búrabyggð (Fraggle Rock). Sjötti þáttur. Brúðumynda- flokkur eftir Jim Henson. Þýðandi Guðni Kolbeins- son. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. selló lög eftir Skúla Hall- dórsson sem leikur með á píanó. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.35 „Sama og þegiö" Umsjón: Karl Ágúst Úlfsson, Sigurður Sigurjónsson og örn Árnason. 20.00 Harmoníkuþáttur. Um- sjón: Einar Guðmundsson og Jóhann Sigurðsson. (Frá Akureyri.) 20.30 Sögustaðir á Norður- landi — Grenjaðarstaður í Aðaldal. Síðari hluti. Umsjón: Hrafnhildur Jóns- dóttir. (Frá Akureyri.) 21.20 Vísnakvöld LAUGARDAGUR 8. febrúar 20.00 Fréttirogveður. 20.30 Auglýsingar og dag- skrá. 20.35 Staupasteinn (Cheers). Sautjándi þáttur. Bandarísk- ur gamanmyndaflokkur. Þýðandi Guðni Kolbeins- son. 21.00 Bobbysocks. Norskur sjónvarpsþáttur um Elisabeth Andersen og Hanne Krogh, norsku stúlk- urnar sem sigruðu svo óvænt í Söngvakeppni sjón- varpsstöðva í Evrópu (fyrra. Fylgst er með sigurgöngu þeirra stallsystra og söng- skemmtunum ( Noregi og annars staðar. Gísli Helgason sér um þátt- inn. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 LesturPassíusálma(12) 22.30 Bréffrá Færeyjum. Dóra Stefánsdóttir segir frá. LAUGARDAGUR 8.febrúar 10.00 Morgunþáttur Stjórnandi: Sigurður Blön- dal. 22.00 Heimafólk (Donovan's Reef). Bandarisk gamanmynd frá 1963. Leikstjóri John Ford. Aðalhlutverk: John Wayne, Lee Marvin, Elizabeth Allen, Cesar Romero og Jack Warden. Myndin gerist á Suðurhafseyju þar sem tveir liösmenn úr Bandaríkjaflota hafa ílenst eftir heimsstyrj- öldina. Annar rekur veitinga- hús en hinn er læknir. Þriðji félaginn bætist f hópinn og dóttir læknisins sem á brýnt erindi við föður sinn. Þýðandi ReynirHarðarson. 23.50 Dagskrárlok. 23.00 Danslög. 24.00 Fréttir. 00.05 Miðnæturtónleikar. Umsjón: Jón Örn Marinós- son. 01.00 Dagskrárlok. Næturútvarp á rás 2 til kl. 03.00. 12.00 Hlé 14.00 Laugardagurtillukku Stjórnandi: SvavarGests. 16.00 Listapopp Stjórnandi: Gunnar Salvars- son. 17.00 Hringborðið Erna Arnardóttir stjórnar umræðuþætti um tónlist. 18.00 Hlé 20.00 Línur Stjórnandi: Heiöbjört Jó- hannsdóttir. 21.00 Milli stríöa Jón Gröndal kynnir dægur- lög frá árunum 1920-1940. 22.00 Bárujárn Þáttur um þungarokk í umsjá Siguröar Sverrisson- ar. 23.00 Svifflugur Stjómandi: Hákon Sigur- jónsson. 24.00 Ánæturvakt með Jóni Axel Ólafssyni. 03.00 Dagskrárlok. SVÆÐISÚTVÖRP REYKJAVÍK 17.03—18.00 Svæöisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni — FM 90,1 MHz. AKUREYRI 17.03—18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz. SJONVARP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.