Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986 Enska knattspyrnan: Mörgum leikjum f restað f dag teningurinn ræður úrslitum Frá Bob Hennessy, fróttarhara Morgunblaðsins f Englandi. FIMM leikjum f ensku knattspyrn- unni sem eru á íslenska get- raunaseðlinum var fresta strax í gœr vegna snjóa og útlit er fyrir aö enn fleiri leikjum verði aflýst í dag. Það verður því að öllu óbreyttu teningurinn sem ræður mestu um úrslit leikja í dag. Leikjunum sem nú þegar hefur verið frestað i 1. deild er leikur Aston Villa og West Ham, Ipswich og Arsenal, Watford og Everton, sem eru allir á íslenska getrauna- seðlinum og svo leik Sheffield Wednesday og Leicester. í 2. deild hefur leik Crystal Palace og Ports- mouth og Barnsley og Sheffield Wednesday verið frestað og eru þeir báðir á íslenska getraunaseðl- inum, auk þess hefur leik Bradford og Middlesbrough verið frestað. Mikið fannfergi var í Englandi í gær og því talið ráðlegt að fresta þessum leikjum strax. Það verður því teningurinn sem verður alsráð- andi í getraunum ensku knatt- spyrnunnarum þessa helgi. Whiteside íieikbann Norman Whiteside, leikmaður með Manchester United, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann. Hann var bókaður í leiknum gegn West Ham um síðustu helgi. Hann tekur leikbannið út 16. febrúar. og síðan næsta leik á eftir. Stórmót í badminton EITT stærsta badmintonmót árs- ins verður haldið nú um helgina á tveimur stöðum, f Seljaskóla og TBR-húsinu. í Deildarkeppni Badmintonsam- bands íslands, eins og mótið heitir fullu nafni, taka þátt allir bestu badmintonmenn landsins. Leikið verður í 1. og 2. deild, samtals 18 lið víðsvegar að af landinu. Sérstök opnunarathöfn verður kl. 10 ár- degis í dag, laugardag. íþróttir helgarinnar Handbolti A- og B-landslið karla leika í Keflavík á sunnudag kl. 20. í auka- keppni um fyrstudeildarsæti leika KR og Þróttur kl. 15.30 í Laugar- dalshöll og HK og Haukar í Digra- nesi kl. 17.00. Báðir leikirnir á laugardag. í fyrstu deild kvenna leika FH og Fram kl. 14 á laugar- daginn í Hafnarfirði og Víkingur og KR í Laugardalshöll kl. 14.15 á laugardag, og Stjarnan leikur gegn Haukum í Digranesi kl. 14. Körfubofti Einn leikur fer fram í úrvalsdeild- inni um helgina, KR og ÍR eigast við í Hagaskóla á sunnudagskvöld- ið kl. 20. í fyrstu deild kvenna leika KR og ÍR í Hagaskóla kl. 20.30 á sunnudagskvöldið og ÍS og Haukar á mánudagskvöldið kl. 20. I íþróttahúsi KHÍ. í fyrstu deild karla veröa tveir leikir: Grindavík gegn Þór í Grindavík laugardag kl. 14 og ÍS—Þór í Hagaskóla á sunnudag kl. 14. Fimleikar Landskeppni, ísland — Skotland í Laugardalshöll sunnudag kl. 15. Sund Sundmót Ægis i sundhöllinni á sunnudag kl. 15. Frjálsar iþróttir Meistaramót íslands innanhúss 1986 verður haldið í Laugardals- höll og Baldurshaga um helgina. Hefst á laugardagsmorgun kl. 10.00. Badminton Deildarkeppni Badmintonsam- bands íslands verður háð í Selja- skóla og TBR-húsinu á laugardag og sunnudag. Skfði Stórsvigskeppni KR, Skálafelli — laugardag og sunnudag. Skíðamót Skíðaráðs Akureyrar í Hlíðarfjalli laugardag og sunnudag. • Karl Þráinsson f iandsliðsbúningnum: Fer hann með til Sviss eða ekki? Er Karl Þráinsson gjaldgengur á HM? • John Sivebæk fær sennilega sitt fyrsta tækifæri með Manch- ester United á morgun gegn Liv- erpool. Fær Sivebæk að leika með llnited á sunnudaginn? Talið er líklegt að danski leik- maðurinn, John Sivebæk, leiki sinn fyrsta leik á morgun, sunnudag, er Manchester United mætir Liver- pool. Hann kemur til með að leika á miðjunni í stað fyrirliðans, Bryan Robson, sem er í leikbanni. Hann var sem kunnugt er rekinn af leik- velli gegn Sunderland á dögunum. Sivebæk hefur aðeins æft með Manchester United í 9 daga og sagði Ron Atkinson, þjálfari, að danski leikmaðurinn félli vel inn í liðið. STÚDENTAR sigruðu Grindvík- inga f 1. deildinni í körfuknattleik á fimmtudaginn með 67 stigum gegn 66. Mikilvægur sigur fyrir IS í fallbaráttunni og nú allt útlit fyrir að þeim takist að halda sér f deildinni. Grindvfkingar eru í harðri baráttu við Þór um annað sætið en liðin leika f Grindavík á morgun. Þetta er ekki fyrsti leikurinn í Grindavík sem lyktar með eins stigs mun. Það er nánast reglan að slíkt gerist nú eftir að þeir fengu hiö nýja íþróttahús. Mikil spenna og skemmtilegheit eru það sem einkenna leikina í nýja húsinu og heimamenn fjölmenna til að sjá skemmtilega leiki. Þeir og leik- menn UMFG heimta annað sætið í deildinni og á morgun ætla þeir að leggja Þórsara að velli og tryggja sér þar með sætið. Staðan í hálfleik á fimmtudaginn var 31:28 fyrir heimamenn og síð- an komust þeir í níu stiga forskot ÓVÍST er hvort Karl Þráinsson, sem nú æfir með handknattleiks- landsliðinu, komist með liðinu til Sviss. Ástæðan er „tæknilegs" eðlis; þann 15. janúar sl. gaf HSÍ mótstjóminni f Sviss upp nöfn 20 leikmanna íslands, og- nöfn þriggja aukamanna til við- bótar. Nafn Karls var ekki þar á meðal, og nú er allsendis óvfst að hægt sé að gera breytingar á hópnum, eða hvort endanlegur 16 manna hópur verði að vera skipaður leikmönnum úr stóra hópnum. en Stúdentar minnkuðu muninn og náðu sex stiga forystu um tíma. Undir lokin var mikil spenna eins og venjulega þar suðurfrá. Árni Guðmundsson skoraði úr vítaskoti og kom ÍS þar með einu stigi yfir og þrátt fyrir góða tilraun til að tryggja sérsigurinn á lokkasekúnd- unum hittu heimamenn ekki körf- una þó litlu munaði og sigurinn var ÍS. Eyjólfur Guðlaugsson og Óli Þór voru stigahæstir heimamanna, skoruðu 20 stig hvor en Helgi Gústafsson skoraði 19 stig fyrir IS og Árni Guðmundsson 16. STAÐAN í 1. deildinni í körfu- knattleik er þessi eftir leikinn f gærkvöldi: Fram 16 16 0 1356:977 32 UMFG 17 10 7 1207:1226 20 UBK 16 7 9 1063:1172 14 Þór 14 5 9 943:963 10 ÍS 14 4 10 891:963 8 Reynir 16 4 11 892:1061 8 Að sögn Jóns Erlendssonar hjá HSÍ óskaði Bogdan landsliðsþjálf- ari eftir því nú í vikunni að geta nýtt Karl Þráinsson, með þátttöku í HM í huga, og er HSÍ að kanna möguleika þess að gera breytingu á hópnum. Þeir tuttugu menn sem HSÍ til- kynnti í HM er skipaður eftirtöldum leikmönnum: Einar Þorvarðarson Kristján Sigmundsson Brynjar Kvaran Ellert Vigfússon Þorgils Ottar Mathiesen Geir Sveinsson Bjarni Guðmundsson Jakob Sigurðsson Siguröur Gunnarsson Guðmundur Guðmundsson Þorbergur Aðalsteinsson * Kristján Arason Þorbjörn Jensson Sigurður Sveinsson Atli Hilmarsson, Alfreð Gíslason Páll Ólafsson TENNISKONAN snjalla Chris Evert Lloyd sagði á blaðamanna- fundi f gær að hún væri alts ekkert á þeim buxunum að hætta keppni f tennis þrátt fyrir að hún væri orðin 31 árs gömul. „Ég hef tekið hvert ár fyrir í einu frá því ég var 18 ára og aldrei gert nein framtíðaráætlanir varð- andi tennis. Núna hef ég ákveðið að keppa á þessu ári því mér finnst ég ekki enn hafa náð eins hátt og ég kemst í íþróttinni. Síðasta sumar var besta sumarið mitt og ég á frekar von á því að ég bæti mig enn frekar í sumar," sagði hún Valdimar Grímsson Júlíus Jónasson Og til vara: Egill Jóhannesson Jón Árni Rúnarsson Guðmundur Albertsson í dag ríkir óvissa um þátttöku fjölmargra leikmanna úr þessum 20 manna hópi. Sigurður Sveins- son og Þorgils Óttar Mathiesen eru vafasamir vegna meiðsla, og Þorbergur Aðalsteinsson og Alfreð Gíslason vegna skuldbindinga hjá félögum sínum erlendis. Ósk Bogdans um Karl Þráinsson sem er nýstaðinn upp úr erfiðum meiðslum, gefur einnig til kynna að litlar líkur séu á að Valdimar Grímsson og Guðmundur Alberts- son, sem báðir eru örvhentir, eins og Karl, verði í hópnum. Endanlegan 16 manna hóp þarf ekki að gefa upp, samkvæmt regl- um HM, fyrr en 24. febrúar, tveim- ur dögum áður en keppnin hefst. við blaðamenn. Lloyd hefur sigrað í 143 keppn- um á sínum ferli og var lengi vel í fyrsta sæti yfir bestu tenniskonur heims en hefur undanfarin ár stað- ið nokkuð í skugga Martinu Navr- atilovu. „Ef ég næ aftur toppsæt- inu af henni þá hætti ég örugglega ekki strax því það er alveg út í hött að hætta þegar maður er á toppnum. Annars mun tilfinning mín fyrir því hvort mér finnst gaman að leika eða ekki ráða því hvenær ég hætti, en ekki hvort ég verð númer eitt eða 100," sagði Lloyd að lokum. Tekst ÍS að halda sætinu? sigruðu Grindvíkinga með einu stigi Chris Evert Loyd ekki á þeim buxunum að hætta ítennis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.