Morgunblaðið - 08.02.1986, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986
félk í
fréttum
Hér eru nokkrar af stúlkunum, er tóku þátt í keppninni, að óska Monicu
til hamingju með sigurinn.
Monica Schnarre frá Kanada
„Face of the eighties ’86“
Sú sem fór með sigur úr býtum í
keppninni um „Face of the eigh-
ties“ að þessu sinni er Monica
Schnarre, fjórtán ára gömul hnáta frá
Kanada. Hún var valin úr hópi tuttugu
og tveggja stúlkna.
Eins og lesendur vita eflaust fer
þessi keppni fram árlega á vegum
Eileen Ford og við íslendingar höfum
sent stúlkur héðan nokkrum sinnum.
Monica hlaut þriggja ára samning hjá
Eileen Ford sem hljóðar upp á 250.000
dollara tekjur auk demanta og loðfelds
og fleira. Stúlkan sem kemur frá Tor-
onto og er í gagnfræðaskóla vonast til
að fá tækifæri til að koma fram í
kvikmyndum seinna meir en gerir sig
ánægða með fyrirsætustörfin til að
byija með.
Hún hefur nú verið að æfa sig í
þeirri grein síðastliðna átta mánuði og
segir „þetta var alveg þess virði, að
minnsta kosti leið mér þannig þegar ég
sá myndir af mér eftir þessa æfíngu.
KARITAS OG VILHJÁLMUR
Estée Lauder
að gefa út bók
Estée
Lauder
Það má án efa finna á
mörgum heimilum
krukku uppi í skáp merkta
Estée Lauder, dagkrem,
rakakrem...
Snyrtivörur hennar hafa
farið um heim allan og í
dag eru bæði framleiddar
vörur fyrir karlmenn og
konur.
Estée hefur nú nýlega
sent frá sér bók, „Estée, a
success Story". Hún lítur
vel út, miðaldra kona, sem
heldur sér vel til og hugsar
um útlitið.
„Ef ég lít ekki vel út
með allar þessar snyrtivör-
ur, hver ætti þá að gera
það,“ segir frúin.
„Egbjó
ekki undir Eyja-
fjðllum, maður segir
bara svona“
Þau Vilhjálmur og Karitas gleðja yngstu sjónvarpsáhorfenduma
með léttu spjalli í Stundinni okkar þessa dagana. Það eru
þau Eggert Þorleifsson og Sigrún Edda Bjömsdóttir sem bregða sér
í hlutverk tveggja bama og settar em á svið sögur úr
raunveruleikanum, þó að sjálfsögðu aðeins litaðar.
„Krakkar em spennandi mannvemr, en jafn-
framt kröfuharðir áhorfendur og þau láta ekki
auðveldlega plata sig sagði Sigrún Edda
sem fer með hlutverk Karitasar.
„Mér fínnst virkilega gaman að
leika fyrir böm og ég hef gert
þó nokkuð af því að leika þau, í
augum bamanna em allir hlutir
jafn merkilegir og hver minnsta
athöfn vekur athygli þeirra. Það er
svo undarlegt að þau virðast hafa lag
á því að láta alla hluti og atvik verða að
ævintýmm. Þannig reyni ég svo að ganga
út frá hlutunum, þegar ég leik fyrir þau.
Okkur fullorðna fólkinu hættir nefnilega oft
til að missa þennan hæfíleika.
Þegar ég leik Karitas hættir mér kannski
ósjálfrátt til þess að hafa dóttur mína sjö ára í
huga og hennar viðbrögð. Ég stend mig stundum
að því að bregðast við á hennar hátt.
Hverjir sömdu textana að þessum þáttum?
„Þeir Sveinbjöm Baldvinsson og Sigurður Valgeirsson
sömdu þá í sameiningu og em að minnsta kosti búnir
með fjóra þætti.
— Ertu að fást við eitthvað fleira núna?
„Já, ég er að leika í Land míns föður og einnig að æfa
hlutverk í Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson, sem Bríet Héðins-
dóttir leikstýrir og gerir leikgerð við.
„Hvermg er að búa undir fjöllum. Mamma
sagði mér nefnilega að þú hefðir búið undir
Eyjafjöllunum."
(VÚmundur).
„Asninn þinn, ég bjó ekkert undir fjöllun-
um, maður segir bara svona.“
(Karitas).
Þaraa eru þau að ræðast við Karitas og
Vilhjálmur. Hann er borgarbara, klæðir sig
samkvæmt tískunni. Karitas aftur á móti
kemur úr sveitinni og er hagsýnni í fatamál-
unum og Iífsmynstrinu yfirleitt.