Morgunblaðið - 08.02.1986, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1986
37
í húsnæði málmsmíðadeildar. Frá vinstri: Gunnlaugnr Björnsson, deildarstjóri, Magnús Garðarsson,
byggingafulltrúi, Bernharð Haraldsson, skólameistari, Sverrir og Baldvin Bjarnason, aðstoðarskóiameist-
ari.
Menntamálaráðherra heimsækir
Verkmenntaskólann á Akureyri
Sverrir Hermannsson, mennta-
málaráðherra, heimsótti skóla
á Akureyri eigi alls fyrir löngu.
Skoðaði hann aðstöðu og ræddi við
forráðamenn skólanna — auk þess
sem hann mætti „á Sal“ í verk-
menntaskólanum. Salur sá var
reyndar íþróttahöllin — en þetta
var í fyrsta skipti sem hringt er „á
Sal" í VMA síðan hann tók til
starfa.
Sverrir átti að mæta í Verk-
menntaskólann skömmu upp úr
hádegi en „villtist" í Glerárþorpi,
eins og hann sagði sjálfur og kom
því of seint. Nemendur Verk-
menntaskólans sýndu þó biðlund
og fögnuðu ráðherra er hann birtist
í Höllinni. Hélt Sverrir skörulega
ræðu fyrir nemendum — og endaði
á því að gefa öllum frí það sem
eftir var dagsins. Sagðist ekki geta
annað þar sem hann hafði látið bíða
svo lengi eftir sér.
Sverrir skoðaði síðan húsakynni
VMA ásamt Bemharð Haraldssyni,
skíðameistara, Magnúsi Garðars-
syni, byggingafulltrúa og Baldvin
Bjamasjmi, aðstoðarskólameistara.
Skapti Hallgrímsson, blaðamaður
Morgunblaðsins á Akureyri, fylgdi
á eftir og tók meðfylgjandi myndir.
Ráðherrann með VMA-peysu,
sem formaður skólafélagsins
Guðbjartur Jónsson (t.h.) færði
honum að gjöf.
ÓKEYPIS BÆKLINGUR
Starfsframi, betri vinna, betri laun
Eftir nám í ICS-bréf askólanum átt þú möguleika á auknum
starfsframa og betur launaöri vinnu. Þú stundar námiö heima
hjá þér á þeim hraða sem þér hentar. Nú stunda rúmar 8 milljón-
ir manna nám í gegnum ICS-bréfaskólann! Líttu á listann og
sjáöu öll þau tækifæri sem þér gefast. ICS-bréfaskólinn hefur
örugglega námskeiö sem hæfir áhuga þínum og getu. Prófskír-
teini í lok námskeiöa. Sendu miöann strax í dag og þú færö
ÓKEYPIS BÆKLING sendan í flugpósti. (Setjiö kross í aöeins
einn reit). Námskeiöin eru öll áensku.
□ Tölvuforritun
□ Rafvirkjun
□ Ritstörf
□ Bókhald
□ Vélvirkjun
□ Almenntnám
□ Bifvélavirkjun
□ Nytjalist
□ Stjórnun
fyrirtækja
□ Garóyrkja
□ Kjólasaumur
□ Innanhús-
arkitektúr
□ Stjórnun hótela
og veitingastaöa
□ Blaöamennska
□ Kælitækni og
loftræsting
Nafn:
Heímilisfang:................................................
ICS International Correspondence schools Dept. YYS, 312/314 High
Street, Sutton, Surrey SM11PR, England.
BORÐIÐ
KVÖLDMAXINK
SNEMMA
yy
early bird special.7..
FEBRIJARTILBOÐ
HAMBORGARI-FRANSKAR &COKE
á 99,00-50% afsl.
(milli kl. 17,30-18,30)
alla daga síódegis í Fefcrúar
VEITINGAHUSIÐ
SPRENGISANDUR
Bústaóavegi 153 © 6 88 0 88
Feargal Sharkey
FEARGALSHARKEY
Nýtur sín best
heima í faðmi
fj ölskyldunnar
Feargal Sharkey hefur undan-
farið átt vinsældum að fagna
meðal erlendra sem íslenskra popp-
unnenda og eflaust margir sem
hafa raulað lagið hans „A Good
Heart" fyrir munni sér undanfamar
vikur.
Feargal Sharkey er írskur en býr
nú í London ásamt eiginkonu sinni
Ellen og saman eiga þau soninn
Sean sem nú er fjögurra ára. Þegar
Feargal flutti til London árið 1983
átti hann lítið sem ekkert af pening-
um en ákvað að reyna að framfleyta
fjölskyldunni á tónlistinni. Konan
hans hvatti hann í hvívetna, en
sagði jafnframt að ef vel myndi til
takast myndi hún ekki vilja koma
nálægt því sem fylgdi frægðinni.
Þetta hefur Feárgal virt hingað til,
því konan og sonurinn koma sjaldan
fram í viðtölum eða öðru slíku. Og
þegar hann er ekki á tónleikaferð-
um einhversstaðar og getur slappað
af í faðmi fjölskyldunnar er eitt
umræðuefni sem aldrei ber á góma
og það er tónlist.
Feargal segir að fæðing sonarins
sé einstök reynsla. „Ég tók krakka
alltaf sem sjálfsagðan hlut og pældi
lítið í þeim. En þegar ég eignaðist
son minn breyttist þessi afstaða
mín. í fyrstu var ég hálf hræddur
við þessa litlu brothættu veru. Mér
finnst það núna meiriháttar að ég
skuli hafa átt þátt í að koma þess-
ari litlu fullkomnu manneskju í
heiminn. Mitt takmark er að hjálpa
syni mínum að verða að góðum
manni og spoma við því að spilla
honum með gjöfum og eftirlæti.
Af ást og umhyggju skal hann
hinsvegar fá nóg.“
PÓLÝFÓNKÓRINN
Kórskóli
Pólýfónkórsins
Framhaldsnámskeið
tengt 1. flutningi Messíasar
í Hallgrímskirkju
Þroskið rödd ykkar og tónlistarhæfileika með þátt-
töku i flutningi fegurstu tónlistar og undir leiðsögn
valinna kennara.
10 vikna námskeið hefst 10. febrúar. Kennt verður
eitt kvöld í viku á mánudögum kl. 20.00—22.00 í
Vörðuskóla, Skólavörðuholti.
Námsgreinar: Nótnalestur, tónheyrnar- og taktæf-
ingar, raddbeiting. Jafnframt verða raddæfðir kaflar
úr Messíasi eftir Hándel.
Kennarar: Helga Gunnarsdóttir
Margrét Pálmadóttir
Jón Karl Einarsson
Ingólfur Guðbrandsson, söngstjóri
Enn geta nokkrir nemendur bæst við.
Upplýsingar og innritun í síma 21424 (Steina) á
daginn og 72797 (Kristján Már), 45799 (Ólöf) og
38180 (Ása) á kvöldin eftir kl. 19.
Námskeiðsgjald aðeins kr. 1.500 fyrir 10 vikur.
Ókeypis fyrir þá, sem fá inngöngu i Pólýfónkórinn
og taka þátt í starfi hans (1 æfing í viku á miðvikudög-
um), sem hefst 12. þ.m.
Innritun kórfélaga ferfram í ofangreindum símum.
Pólýfónkórinn