Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986
... að fagna hon-
um á sérstæðan
hátt.
TM R«fl. U.S. Pat Off.-all rlghts reserved
•1982 Loa Angetes Times Syndlcate
HÖGNI HREKKVÍSI
Akveðnar reglur um
sætaferðir 1 Bláfjöll
Endurtakíð
söngdagskrá
Jóhönnu G.
Möller
Kæri Velvakandi!
Gætirðu ekki komið þeirri ósk
okkar á framfæri við hljóðvarpið
að það endurtaki söngdagskrá
þeirra Jóhönnu G. Möller og Láru
Rafnsdóttur sem flutt var í desem-
bersl.
Við höfum undanfarin ár fylgst
af áhuga með tónleikum Jóhönnu
í útvarpinu en sökum veikinda fóru
þessir tónieikar fram hjá okkur, en
okkur hefur verið sagt að þeir hafi
verið afar glæsilegir.
Ingibjörg Jóhannsdóttir
frá Löngumýri
og Björg Jóhannesdóttir,
Reynimel 22.
Kristín skrifan
Kæra Guðrún.
í upphafi vil ég benda þér á að
ég er að skrifa þessar greinar sem
eiginkona meðlagsgreiðanda en
ekki vegna bama hans, sem eru
mér vissulega jafn mikils virði og
honum. Eitt vil ég segja þér, að
auðvitað veit ég ósköp vei að það
eru margir einstæðir foreldrar sem
þurfa á öllu sínu að halda til að
geta séð sér og sínum sómasamlega
farborða. En svo er líka til sá hópur
sem baðar sig uppúr þessu einstæða
heiti, hefur hátt en hefur ekki yfir
neinu að kvarta. Þú bendir á í grein
þinni að sem betur fer séu bamalög-
in fyrir bömin, ekki foreldrana. En
hvað sem lögunum líður þurfa
blessuð bömin yfir höfuð að gjalda
fyrir gerðir foreldra sinna, hvort
sem um er að ræða hjónaband,
skilnað eða lausaleiksböm og væri
eflaust hægt að ræða endalaust þær
hliðar sem snúa að bömunum, þær
eru örugglega jafn margar og böm-
in.
í þessari umræðu minni hef ég
ekki komið að öðm máli sem mér
finnst allt í lagi að stugga örlítið
„Böm týnd í Bláfjöjlum." Þessi
frétt vakti óhug allra. Öll þjóðin tók
þátt í angist foreldranna á meðan
á leitinni stóð, sem guði sé lof fékk
farsælan endi.
Það hefur sótt á hug minn eftir
að hafa farið með í „hópferð" í
við. Það em meðlagsgreiðslur til
þeirra unglinga sem em famir að
þéna umtalsverða peninga. Þeir em
ófáir átján ára, því ekki ganga allir
menntaveginn. I því sambandi má
einnig geta þess að ekki hafa allir
meðlagsgreiðendur gengið mennta-
veginn og hafa tekjur í samræmi
við það.
Til að fyrirbyggja misskilning
þeirra sem þetta lesa þá er ég að
reyna að vekja umræðu um með-
lagsgreiðslur þegar þiggjandinn er
kominn með aðra fyrirvinnu. Vissu-
lega er meðlagsupphæðin lág fyrir
þá sem hafa ekki fyrirvinnu. En
þessi upphæð getur verið stór þegar
fjölskyldumaður greiðir hana og oft
margfalda. Og væri alit í lagi ef
aðstoð foreldris við böm sín væri
metin í einhvetju öðm en bein-
hörðum peningum.
Svona að endingu þá tel ég mig
ekki hafa meira að segja um þetta
efni í bili enda hefur ætlun mín
vissulega borið þann árangur sem
til var ætlast, að hræra upp í þess-
um málum. Því Guðrún, það veitir
svo sannarlega ekki af að rífa þessa
tijábúta upp með rótum og hrista
þá örlítið til.
Bláfjöll á skíði, þar sem allt niður
í 6 ára böm vom í fylgd með 9 ára
bömum, hvort foreldrar geri sér
almennt grein fyrir því að böm
þeirra em algjörlega á eigin vegum
á fjöllum uppi, þegar Jjeim er gefið
leyfi til slíkra ferða. A þessu svæði
má segja að oft sé allra veðra von
og getur þá orðið ófært á stuttum
tíma. Böm hafa þá lagt í þá hættu
að leggja af stað gangandi. Við
munum öll eftir baminu sem fannst
fjúkandi í stórhríð fyrir hreina til-
viljun. Þá höfðu unglingar sem
annast áttu bamið lagt af stað
gangandi en sagt því að bíða í skál-
anum sem það gerði ekki.
Bflstjórar, sem sjá um þessa
flutninga, em varkárir og þaulvanir
slíkum ferðum, hafa lýst áhyggjum
sínum yfir að hópar þessir séu
algjörlega eftirlitslausir. Þetta em
sætaferðir. Fólk er flutt á staðinn
og sótt aftur á ákveðnum tíma
e.t.v. af öðmm en óku upp eftir um
morguninn. Fólk fær oft far til
baka með kunningjum eða aðrir
bætast við sem fengu far með
kunningjum í fjöllin. Farið er tii
baka á ákveðnum tfma og fá þeir
far sem em mættir. í fyrmefndu
tilfelli var það athugull bflstjóri sem
hafði orð á að eitthvað væri að en
ábyrgðin er ekki þeirra og á ekki
að vera það. Er því ekki kominn
tími til að ákveðnar reglur séu
settar um ferðir bama og unglinga
sem ekki em í fylgd með fullorðn-
um. Það er illt til þess að hugsa
að alvarlegir hlutir þurfi að gerast
til þess að við áttum okkur á hætt-
unum sem alltaf hafa verið til stað-
ar. Slíkt hirðuleysi getur orðið dýr-
keypt.
M.K.S.
Guðrúnu svarað
Víkverji skrlfar
Laugardalurinn er orðinn eitt
allra skemmtilegasta útivistar-
svæði í Reykjavík og nágranna-
byggðum. Sundlaugin, íþróttavell-
imir, Laugardalshöllin garðurinn
og dalurinn allur veita fólki á einum
og sama stað fjölbreytt tækifæri til
útivistar og íþróttaiðkunar. Dag
hvem má sjá fólk á öllum aldri við
íþróttaiðkun og útivist í Laugardal
og eftirtektarvert er að fylgjast með
þeirri góðu aðstöðu, sem þar er
komin fyrir íþróttamenn okkar til
þess að stunda æfingar nánast allt
árið um kring.
Auk sundlaugarinnar og Laugar-
dalshallar em nú 3 íþróttavellir í
Laugardal. Enn er margt ógert í
dalnum og verður skemmtilegt að
fylgjast með uppbyggingu þessa
íþrótta- og útivistarsvæðis fram til
aldamóta. Þama er mikið land-
flæmi, sem hægt er að leggja undir
þessa starfsemi smátt og smátt og
augljóst, að staðið hefur verið að
áætlunargerð og framkvæmdum af
miklum stórhug.
*
IMorgunblaðinu í gær mátti lesa
frétt um að Bretar ætluðu að
veija ákveðnum fjármunum til
athugunar á smíði geimflugvélar,
sem flogið gæti milli Bretlands og
Astralíu á einni klukkustund. Þetta
leiðir hugann að því, hvað Bretar
hafa oft haft frumkvæði og forystu
um tækninýjungar af þessu tagi,
þótt þeim hafi ekki tekizt að fylgja
þeim eftir með uppbyggingu stór-
iðnaðar á grundvelli þeirra. Voru
það ekki Bretar, sem fyrstir þjóða
smíðuðu farþegaþotur af Comet-
gerð, sem ruddu brautina fyrir
þotuöldina? Þeir misstu hins vegar
frumkvæðið í hendur Bandaríkja-
manna, sem fram á síðustu ár hafa
verið nær allsráðandi í smíði á
farþegaþotum þar til nú að samevr-
ópsk fyrirtæki veita þeim harða
samkeppni. Það voru líka Bretar,
sem ásamt Frökkum stóðu fyrir
smíði Concord-þotanna, sem aldrei
hafa náð að hazla sér völl í far-
þegaflugi að nokkru marki, þótt
þær hafí vafalaust verið merkileg
tæknileg nýjung. Þegar þessi for-
saga er höfð í huga, þarf engum
að koma á óvart, þótt Bretar ríði
nú á vaðið með nýja byltingu í
samgöngumálum. Ef hægt verður
að fljúga milli Bretlands og Astral-
íu á einni klukkustund í bytjun
næstu aldar mun það hafa bylting-
arkennd áhrif á samskipti þjóða um
heim allan. Og miðað við það, sem
á undan er gengið er engin ástæða
til að ætla annað en að þetta verði
að veruleika.
XXX
egar benzínsjálfsali Skeljungs
fór að selja benzín á rúmlega
12 krónur lítrann varð Víkveija
hugsað til þess, að eitthvað í þessa
veru gæti benzínverðið orðið í raun,
ef við íslendingar nytum þeirra rétt-
inda, sem aðrar þjóðir búa við, að
smásöluverð á benzíni og olíu lækki
hér, þegar verðhrun verður erlendis.
En það er sjálfsagt til of mikils
mælzt, að slíkar kjarabætur skili
sér til okkar neytenda hér — eða
hvað, Matthías Bjamason, við-
skiptaráðherra?