Morgunblaðið - 08.02.1986, Page 48
BTT KORT AIIS SHtÐAR
ómissandi
LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Tap á uppboðsskíp-
um 240 milljónir kr.
Svipuð upphæð er á af skriftareikningi Fiskveiðasjóðs
NÆRRI lætur að fé á afskrifta-
reikningi Fúkveiðasjóða sé það
sama og tap sjóðsins vegna upp-
boðsldpanna svokðlluðu. Tapað-
ar skuldir og kostnaður vegna
viðgerða skipanna eru um 240
milljónir, en auk þess hefur sjóð-
urinn orðið fyrir einbveijum
frekari útgjðldum vegna upp-
boðanna. A afskriftareikningi
sjóðains voru i árslok 1984 273
miljjónir, en ehthvað hefur farið
út af honum á siðasta ári. Eigið
fé sjóðsins var á sama tíma 1,6
miHjarðar króna.
Er Helgi S. var boðinn upp hvfldu
á honum 65 milljónir króna M Fisk-
veiðasjóði. Hann var keyptur á 61,5
milljónir, seldur á 68 og viðgerðar-
kostnaður var 3 milljónir króna. Tap
ekkert Á Kolbeinsey hvfldu um 270
miHjónir króna. Hún var keypt á 176
miUjónir króna og seld á 178,8.
Viðgerðarkostnaður var 6 milljónir
króna. Tap 97,2 miUjónir. Á Sigur-
fara H hvfldu 281 milljón við uppboð.
Hann var keyptur á 187 milljónir
og verður seldur á 187,5. Viðgerðar-
kostnaður var 11 milljónir króna.
Tap 104,5 miUjónir. Á Sölva Bjama-
syni hvfldu 172 miUjónir króna við
uppboð. Hann var keyptur á 146
milljónir og hæsta tilboðið i hann
er 150,5 miUjónir króna. Viðgerðar-
kostnaður var 14 miHjónir króna.
Áætlað tap 35,5 milljónir.
Tölur um viðgerðarkostnað eru
ekki endanlegar þar sem enn ÖU
kuri eru ekki komin til grafar. Við-
gerðin á öllum skipunum miðaðist
við að fullnægja lágmarkskröfum
um sjóhæfni skipanna auk þess, sem
þau voru ÖU komin að 5 ára „klöss-
un“, að sögn stjómenda Fiskveiða-
sjóðs. Við tapið bætast svo ein-
hveijar upphæðir vegna forgangs-
krafna i útgerðir skipanna, þannig
að endanlegt tap verður að minnsta
kosti um 240 miUjónir króna.
Hálfu kílói af amf-
etamíni smyglað
Fíkniefnalögreglan i Reykjavík hefur upplýst stórsmygl á amfeta-
mtni. í fyrrinótt fundu lögregiumenn tæplega hálft kíló af amfetamlm
við húsleit i ibúð i Reykjavik. Fíkniefnin fundust i kjölfar handtðku
tveggja manna á miðvikudag, en við húsleit á heimili annars þeirra
fannst þá nokkurt magn af amfetamíni. t gær voru mennimir úrskurð-
aðir í Sakadómi i ávana- og fíkniefnamálum i 30 daga gæsluvarðhald.
Þá hefur fikniefnadeild lögreglunnar sett fram krðfu um gæsluvarð-
hald yfir sambýliskonu annars þeirra. Fjðlmargir hafa verið yfir-
heyrðir vegna rannsóknar málsins, en ætia má að andvirði fíkniefn-
anna á markaði hér sé um 10 miltjónir króna.
Mennimir tveir vom í Hollandi í
janúar og leikur gmnur á að þá
hafi þeir fest kaup á fíkniefnunum.
Ekki er upplýst hvemig amfetamín-
inu var smygiað hingað til lands.
„Rannsóknin beinist meðal annars
að því að kanna, hve mikið magn
af amfetamini barst til Iandsins, en
lflmr benda til að eitthvað af þvi
hafi verið komið i sölu,“ sagði Amar
-tj&k
Loðnu-
frysting
hafin
Ventmnnnyjmn, 7. febrúar.
LOÐNUFRYSTING hófst í Vest-
mannaeyjum i morgun, er Gigja
RE Landaði um 300 tonnum hér.
Var loðnan tekin til vinnslu i
frystihúsunum þrátt fyrir að
hlutfall hrygnu i aflanum hafi
verið full litið. Héðan frá Vest-
mannaeyjum eru gerð út tvð
slrip til veiða á loðnu til frysting-
ar, Gigja RE og Sighvatur
Bjaraason VE. Sighvatur mun
landa svipuðu magni i fyrramál- MorgunbieAið/Sigurgeír
ið og ætlunin er að skipin landi Loðnufrysting er nú að hefjast
um 300 tonnum sitt hvora dag- víða um land. í Vestmannaeyjum
var byijað að frysta i gærmorg-
hkj un.
Jensson, fulltrúi í fíkniefnadeild
lögreglunnar, í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi.
Mennimir sem sitja f gæsluvarð-
haldi hafa ftrekað komið við sögu
fíkniefnabrota hér á landi. Þetta er
eitt mesta amfetamínsmygl hér á
landi. Hið stærsta var upplýst f
maí 1984 þegar lögregla lagði hald
á 700 grömm af amfetamfni. í nóv-
ember síðastliðnum upplýsti lögregla
smygl á 520 grömmum af amfeta-
míni þegar þrír menn voru hand-
teknir eftir eltingarieik á Granda. í
sportbfl þeirra fundust 220 grömm
af amfetamfni og skömmu síðar 300
grömm í togaranum Breka. Þess
má geta að allt sfðastliðið ár lagði
lögreglan hald á 970 grömm af
amfetamfni.
Morgunblaðið/SigJóns.
Hugað að gróðri
Selfoaui.
UNDANFARNA daga hafa hlýir vindar blásið um kinn og þá
vill svo fara að upp vakna hugsanir og kenndir tengdar vorinu.
Þó enn sé vorsins langt að bíða er hugsunin þægileg. Margir
segjast finna jðrðina anga þegar hlýnar i veðri og má vel vera.
Guðmundur Daníelsson rithöfundur tekur sér gjaman hvfld frá
ritstörfum með því að rölta um garðinn og huga að því hvernig
höndum vetur konungur fer um gróðurinn. Guðmundur var á slíku
rölti síðdegis á dögunum þegar meðfylgjandi mynd var tekin, kvikur
að vanda.
SigJóns.
Þurfum nýtt skip
og kvóta fyrir það
— segir Ragnar Elbertsson oddviti í Grundarfirði
„ÞAÐ er þungt í okkur, enda
sárt að horfa á eftir þessu
Fyrstu viðbrögð við svæðabúmarkinu:
Tvöfalt fleiri kúm slátrað
EFTIR að Stéttarsamband bænda sendi bændum tilkynningu nm fram-
leiðslurétt þeirra á yfirstandandi verðlagsári hefur nautgripaslátrun
snnnanlands og vestan tvðfaldast. Sláturhússtjórar sem Morgunblaðið
hafði tal af telja að þetta séu fyrstu viðbrðgð þeirra við samdrætti i
mjólkurframleiðslunni og að slátrun kúa eigi enn eftir að aukast þegar
y líður að vori.
Grétar Halldórsson verkstjóri hjá
Sláturfélagi Suðurlands á Selfossi
sagði að 100 stórgripum, mest kúm,
hefði verið slátrað þar þessa vikuna
og væri það tvöfalt meira en venju-
lega. Taldi hann að þetta væru við-
brögð bænda við samdrættinum,
þeir væru að láta frá sér gallagrip-
—~_*jia. Sagði hann að hræðsla hefði
gripið um sig þegar menn fengu
fullvirðisútreikninginn en ekki væri
þó hægt að tala um örvæntingu.
Sagði Grétar að svipuð aukning
væri ( slátrun kúa f sláturhúsi SS á
Hvolsvelli.
Gunnar Aðalsteinsson sláturhús-
stjóri í Borgamesi sagði að eftir að
bændur fengu fullvirðisútreikning-
ana hefði það aukist að þeir förguðu
gripum, og gæfu jafnframt í skyn
að það væri út af kvótanum. Ein-
staka menn hefðu látið farga allt
upp í 5 kúm. Gunnar sagði að naut-
gripaslátrunin væri að minnsta kosti
tvöföld miðað við eðlilegar aðstæður.
Þórarinn Halldórsson sláturhússtjóri
á Akureyri sagði að enn hefði ekki
borið á aukningu í stórgripaslátrun
þar, en menn hefðu slíkt á orði og
átti hann von á að margar kýr kæmu
til slátrunar er liði að vori.
Kýrkjötið fer allt í vinnslu og áttu
sláturhússtjóramir von á að nægur
markaður yrði fyrir það á næstunni,
hvað sem gerðist ef stórfelldur nið-
urskurður kúa ætti sér stað. Mark-
aðurinn fyrir ungneytakjöt væri hins
vegar þrengri.
skipi. Við sjáum enga aðra
lausn en að fá hingað annað
skip og kvóta fyrir það og
munum fylgja þvi máli eftir
af hörku,“ sagði Ragnar El-
bergsson oddviti í Grundar-
firði þegar rætt var við hann
i gær vegna sölu Fiskveiða-
sjóðs á Sigurfara II til Akra-
ness.
Ragnar sagði að Grundfírðingar
hefðu ekki aðeins misst gott skip,
heldur einnig þriðjunginn af hrá-
efni fískvinnsiunnar. Þeir gætu
ekki leyst það mál öðruvísi en með
nýju skipi. Sagði hann að þeir
hefðu skrifað ríkisstjóminni bréf
með ósk um að fá að flytja inn
skip í stað Sigurfara og að fá
sambærilegan kvóta fyrir það.
Þingmenn kjördæmisins stæðu
með þeim í þessu máli og myndu
þeir flytja tillögu á Alþingi til að
gera innflutning skipsins möguleg-
an. „En þetta verður að gerast
fljótt," sagði Ragnar, „nú er að
koma vertíð, en við stöndum
frammi fyrir því að vanta hráefni
á þessum hábjargræðistfma okk-
ar.“
Ragnar sagði einnig: „Þetta er
Iíka spuming um byggðastefnu,
þegar byggðarlögin á landsbyggð-
inni, kannski innan sömu kjör-
dæma, eru að bítast um sömu
skipin og leggja allt í auðn hvert
hjá öðru. Fólkið streymir á suðvest-
urhom iandsins, Akranes er syðst
í okkar kjördæmi og nú eru þeir
líka famir að soga til sín atvinnu-
tækin. Við lýsum fullri ábyrgð á
hendur ríkisstjóminni í þessu
máli,“ sagði Ragnar Elbergsson.
Sjá einnig „Sigurfarí seldur
til Akraness frá Grundar-
firði“ á bls. 2.