Morgunblaðið - 09.02.1986, Qupperneq 4
4_____________________MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR1986
• •
„Ofl sem vilja múlbinda
allt andóf og gagnrýni“
— segir Eiríkur Stefánsson sem rekinn var úr Kaupfélagi Fáskrúðsfjarðar.
Fáskrúðsfirðingar sammála um að vöruverð sé lægra í verzlun Verkalýðsfélagsins
Eirikur Stefánsson, formaður verkalýðsfélags- og sjómannafélags Fáskrúðsfirðinga með tveimur starfs-
stúlkum verslunar verkalýðsfélagsins, Rut Guðmundsdóttur, sem er til vinstri, og Jónu Báru Jakobs-
dóttur. Myndina tók Arni Sæberg, ljósmyndari Morgunblaðsins í verslun verkalýðsfélagsins sl. föstudag.
Fáskrúðsfirði, 7. febrúar. Frá Hjámari
Jónssyni blaðamanni Morgunblaðsins.
„ÁSTÆÐAN fyrir þessum
brottrekstri er sú að það eru
öfl, sem vilja múlbinda allt andóf
og gagnrýni gegn stjórn kaup-
félagsins. Það er óneitanlega
dálítill Hriflubragur á þessu.
Menn verða að vera hlýðnir og
trúir þegnar kaupfélagsins til
þess að fá að vera i því,“ sagði
Eiríkur Stefánsson, formaður
verkalýðs- og sjómannafélagsins
á Fáskrúðsfirði, sem rekinn hef-
ur verið úr kaupfélagi Fáskrúðs-
firðinga, KFFB, fyrir þá sök að
verkalýðsfélagið rekur verslun á
staðnum.
I stjórn kaupfélagsins eiga sæti
þrír menn. Morgunblaðið náði tali
af tveimur þeirra og vildi hvorugur
tjá sig um málið við blaðamann.
Það var nær einróma álit Fáskrúðs-
firðinga sem rætt var við að brott-
reksturinn væri ekki réttmætur og
undarlega að honum staðið.
Vöruverð 15—18%
lægra
Verkalýðsfélagið hóf rekstur
verslunar í desember 1984 í þá
nýreistu húsnæði sínu, sem byggt
var mikið til í sjálfboðaliðavinnu,
að sögn Eiríks. Hann segir að rekst-
urinn hafi gengið vel og vöruverð
þar sé 15—18% læga en í kaup-
félaginu, samkvæmt könnum sem
gerð var fyrir 6—8 mánuðum. Fá-
skrúðsfirðingum bar einnig saman
um það, að vöruverð þar væri lægra
en í kaupfélaginu, þótt vöruúrvalið
væri minna.
Eiríkur sagði að ráðist hefði verið
í byggingu verkalýðsfélagshússins,
vegna þess að það fé sem félagið
hefði átt útistandandi, meðal annars
hjá kaupfélaginu, hefði sífellt verið
að rýma. Þegar hann hefði tekið
við verkalýðsfélaginu í júlí 1983
hefði félagið átt 700 þúsund hjá
kaupfélaginu, sem hefði verið á
lægstu innlánsvöxtum, þótt verð-
bólgan þá hefði verið 110—120%.
Það hefði staðið í stappi við kaup-
félagsstjórann þá að ná út þessum
peningum.
Forkólfar í kaup-
félaginu stofnuðu
pöntunarfélag
Hugmyndin að verslunarrekstr-
inum hefði ekki komið upp fyrr en
byggingin var komin vel á veg og
ijóst að þar myndi verða ónotað
rými. Sjö af tíu mönnum í stjóm
og trúnaðarmannaráði verkalýðs-
félagsins væru félagar í kaupfélag-
inu og nú ætti að víkja sér úr því
fyrir verslunarrekstur. „Ég er
starfsmaður verkalýðsfélagsins og
verð að framfylgja samþykktum
þess. Stofnun verslunar var sam-
þykkt á almennum félagsfundi og
fyöldi félaga í verkalýðsfélaginu er
einnig félagar í kaupfélaginu,"
sagði Eiríkur.
Hann benti á að ýmsir aðrir fé-
lagar í kaupfélaginu hefðu verið
með sjálfstæðan rekstur í sam-
keppni við það svo ámm skipti og
ekki hefði komið til tals að gera
þá brottræka úr því. Þá hefðu for-
kólfar í kaupfélaginu fyrir nokkmm
ámm stofnað pöntunarfélag og þeir
og fjöldskyldur þeirra þar af leið-
andi minnkað viðskipti sín við
kaupfélagið, án þess að gripið hefði
verið til aðgerða gegn þeim.
Skoðanakúgun
Eiríkur sagði það vera mjög
mikilvægt fyrir félaga í verkalýðs-
félaginu að vera einnig félaga i
kaupfélaginu, sem væri langstærsti
atvinnurekandi á staðnum, og geta
þannig haft áhrif á ákvarðanir sem
vörðuðu þá. Á síðasta aðalfundi
hefði kaupfélagsstjórinn verið felld-
ur sem fulltrúi á aðalfund Sam-
bandsins, meðal annars fyrir at-
beina sinn, og það væri greinilega
ekki fyrirgefið. „Hér er auðvitað
ekki um neitt annað að ræða en
skoðanakúgun. Þeir vilja meina mér
aðgang að þessum fundum vegna
þess að ég hef skoðanir og læt þær
óhræddur í ljós. Ég gæti jafnvel
trúað því að þessi brottrekstur eigi
rætur sínar að rekja til innsta
hrings Sambandsins. Ef menn
standa ekki upp og klappa fyrir
öllu sem þessir menn leggja til eins
og gengur og gerist í Kreml, þá em
þeir taldir óalandi og ófeijandi. Ég
er undrandi á að stjómin skuli láta
draga sig út í svona óhæfu, því
fæst af fólkinu í kaupfélaginu
stendur á bak við þá. Þeir hefðu
átt að bíða eftir aðalfundinum sem
verður í mars og bera málið upp
þar,“ sagði Eiríkur.
„Við munum ekki gefast upp á
rekstri verslunarinnar eftir að svona
er komið. Við höfum aldrei verið
harðari en nú. Verkalýðsfélagið
mun krefjast þess að brottvikningin
verði dregin til baka og það viður-
kennt að um hrapalleg mistök hafi
verið að ræða. Andinn í bænum er
þannig að ég spái því að annað
hvort verði ég aftur tekinn inn í
félagið eða öll stjómin neyðist til
að segja af sér, því þetta er gert í
engu samráði við félagsmenn,"
sagði Eiríkur Stefánsson að lokum.
Stjórnarmenn vildu
ekki tjá sig
Gunnar Jónasson, stjómarfor-
maður kaupfélagsins, vildi ekki
ræða við blaðamann um brottrekst-
urinn er náðist í hann. Sama gilti
um Kjartan Siggeirsson, stjómar-
mann.
„Þetta em fáránleg og úrelt
vinnubrögð. Það er ekki nema heil-
brigt að hafa fleiri en eina verslun
í bænum,“ sögðu þær Þómnn Jó-
hannesdóttir og Ásgerður Alberts-
dóttir er þær vom inntar eftir áliti
sínu um brottrekstur Eiríks úr
kaupfélaginu, þar sem þær vom að
koma frá því að versla í verslun
verkalýðsfélagsins.
I sama streng tóku þau Jóhanna
Kristín Hauksdóttir, nafna hennar
Amþórsdóttir og Benedikt Sverris-
son. Önnur verslun ætti fullan rétt
á sér og verðið hjá verslun verka-
lýðsfélagsins væri lægra en hjá
kaupfélaginu. „Mér finnst þetta
framtak alveg til fyrirmyndar,"
sagði Benedikt.
Sjaldan veldur einn_____________
Fólk sem Morgunblaðið hitti að
máli í verslun kaupfélagins sagði
sumt hvert að það ætti ekki til orð
yfir brottreksturinn, því hann væri
heimskulegur. Aðrir tóku ekki eins
djúpt í árinni. „Ég er afskaplega
lítið inni í þessum málum. Eg er
hins vegar hlynnt því að tilsé önnur
verslun í byggðarlaginu. Ég versla
í þeim báðum. Vömverð er jrfírleitt
lægra hjá verkalýðsfélaginu, en þar
er minna vöraúrval. Það kann vel
að vera að Eiríkur eigi einhveija
sök á brottrekstrinum. Sjaldan veld-
ur einn þá tveir deila,“ sagði Sigríð-
ur Guðmundsdóttir, sem var að
versla í kaupfélaginu.
„Okkur þykir þetta miður og
ekki réttmætur brottrekstur. Mér
fínnst að ef Eiríkur á að víkja sem
félagi í kaupfélaginu, þá ættu ýmsir
aðrir að gera það einnig, sem bæði
em félagar í kaupfélaginu og með
rekstur í samkeppni við það,“ sagði
Páll Ágústsson, skólastjóri. Hann
sagðist versla bæði í kaupfélaginu
og annars staðar. „Það er gott að
versla í kaupfélaginu. Þar er gott
starfsfólk og gott vömúrval," sagði
hann ennfremur.
Gerræðisleg ákvörðun
„Þetta er gerræðisleg ákvörðun
og kom manni mjög á óvart. Margir
félagar í verkalýðsfélaginu em
einnig félagar í kaupfélaginu, og
verkalýðsfélagið sem slíkt stóð að
því að setja þessa verslun á stofn,"
sagði Steinn Jónasson, varaformað-
ur verkalýðsfélagsins á Fáskrúðs-
firði.
„Ég sé ekki ástæðu til þess að
trúa því að formanni félagsins sé
vísað úr kaupfélaginu á þeirri fór-
sendu sem gefin er upp í bréfinu
sem hann fékk frá stjóm kaup-
félagsins. Persónulega held ég að
það séu allt aðrar ástæður sem
liggja þama að baki, þó ég vilji
ekki tjá mig um þær nú. Þessu máli
er engan veginn lokið,“ sagði hann
ennfremur.
Steinn sagði að verslunin hefði
verið stofnuð vegna þess að mönn-
Steinn Jónasson varaformaður
verkalýðs- og sjómannaf élags
Fáskrúðsfjarðar.
um þótti verðlag í kaupfélaginu
heldur hátt. Það væri staðreynd að
margt hefði batnað í kaupfélaginu
eftir tilkomu hennar og nægði þar
að benda á að nú væm þau brauð
yfirleitt ný sem þar væm boðin til
sölu, en misbrestur hefði verið á
því áður en verkslýðsfélagið hóf
verslunarrekstur. Hann sagði að
það hefði ekki verið tekin ákvörðun
um framhald á verslunarrekstri
verkalýðsfélagsins og yrði það ekki
gert fyrr en útkoma þessa árs lægi
fyrir. „Ég tel hins vegar að tæplega
sé hægt að leggja verslunina niður,
nema fyrir hendi sé eitthvert annað
afl sem þrýsti vömverði niður. Ég
vona að þetta mál leysist farsæl-
lega, því það er nauðsynlegt að
verkalýðsfélagið og stjóm kaup-
félagsins hafi með sér gott sam-
starf, þar sem kaupfélagið er
stærsti atvinnurekandinn á staðn-
um,“ sagði Steinn að lokum.
„Framtak verkalýðsfélagsins til fyrirmyndar," segir Benidikt Sverr-
isson, sem þaraa er ásamt konu sinni, Jóhönnu Kristínu Araþórs-
dóttur (f .m.), dótturinni Önnu Sigríði, og Jóhönnu Kristínu.
„Fáránleg og úrelt vinubrögð," sögðu þær Ás- „Ég versla í báðum verslununum," segir Sigriður
gerður Albertsdóttir (t.v.) og Þórunn Jóhanns- Guðmundsdóttir (t.v.), sem er þarna í kaupfélags-
dóttir. Þær standa þarna fyrir utan versiun verka- versluninni ásamt Mörtu Svernsdóttur.
lýðsfélagsins.