Morgunblaðið - 14.03.1986, Síða 7
____________________MQRGUNBLAÐJÐ, FÖSTUPAfiUR 14.'MARZ1986
Hártogun hjá
Þjóðviljanum
eftirDavíð Oddsson
borgarstjóra.
DAGBLAÐIÐ Þjóðviljinn hefur
haldið áfram að hamast með
sérkennilegum hætti vegna
ósannindaffétta þess um hækk-
un á húsaleigu í borgarhúsnæði,
þar sem gefið var í skyn, að
allar leiguíbúðir borgarinnar,
tæplega 1.000 að tölu, hefðu
hækkað um 67%. Þetta hefur
verið rekið ofan í blaðið, sem
situr uppi með skömmina.
Þá er næsta hálmstráið grip-
ið og það verður að stórum
staur í höndum Þjóðviljans.
Því haldið fram með stríðsfyrir-
sögnum í Þjóðviljanum, að ég
Davíð Oddsson
hafi sagt ósatt, þegar ég upp-
lýsti, að innifalið í húsaleigu í
hinum umræddu íbúðum væri
hiti og rafmagn. Þetta er auð-
vitað hártogun hjá Þjóðviljan-
um, sem blaðið leyfír sér að
slá upp með þeim hætti, sem
það hefír gert, og endurtekur
ósmekkleg svigurmæli sín og
persónulegar svívirðingar í
leiðurum.
Upphaf þessa moldviðris má
rekja til hækkunar á framleigu-
íbúðum á Vatnsstíg 11, en
umræðan hefur snúist um
hækkun á húsaleigu í tveimur
framleiguhúsum, Vatnsstíg 11
og Síðumúla 21. Hvað Vatns-
stíg 11 varðar þá er allur orku-
_________________________l
kostnaður, bæði hiti og raf-
magn, innifalinn í hinni lágu
húsaleigu, reyndar var sums
staðar ekki um nema 2.000 kr.
greiðslu að ræða, en annars
staðar um kr. 3.100 og hafði
ekki hækkað í eitt ár. í Síðmúl-
anum er innifalið í húsaleigu,
sem nú er kr. 4.200, allur
hitakostnaður og sameigin-
legur raforkukostnaður. Af
þessu sjá menn hvert tilefnið
er til hinna stóryrtu yfirlýsinga
Þjóðviljans í leiðurum og 5
dálka fyrirsagnar, þar sem
undirritaður er lýstur ósann-
indamaður. Það er aumt að
horfa upp á þetta blað verða
sér til skammar dag eftir dag.
FERMINGARTILBOÐ
TECHNKS
Já, það er stórglæsilegt fermingartilboðið frá Teclmics
í ár. HljómtæKjasamstæöan SYSTEM Z-50. Öll annáluðu
TECHNICS gæðin á sínum stað og verðið er nú einstakt
vegna magninnkaupa og tollalækkana. Nú slær fjölskyldan
saman í veglega gjöf, gjöf sem á eftir að veita varanlega
^^ánægju.
WJAPIS
BRAUTARHOLT 2 SlMI 27133
fermincartilboð kr. 28.650.- stgr. útb. frá kr. 7.000.-
jurti-sf.