Morgunblaðið - 27.03.1986, Page 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ1986
KJÖRSKRÁ
Kjörskrá til borgarstjórnarkosninga, sem fram fara
31. maí nk., liggur frammi almenningi til sýnis á
Manntalsskrifstofu Reykjavíkurborgar, Skúlatúni
2, 2. hæð, alla virka daga frá 30. mars til 28.
april nk., þó ekki á laugardögum.
Kjörskrárkærur skulu hafa borist skrifstofu borgar-
stjóra eigi síðar en 16. maí nk.
Kjósendur eru hvattir til þess að athuga, hvort
nöfn þeirra séu á kjörskránni.
Reykjavík 27. mars 1986
Borgarstjórinn i Reykjavík
^ Kjörskrá
Vegna bæjarstjórnarkosninganna á Selfossi
31. maí 1986, liggur frammi á bæjarskrifstof-
unni Eyrarvegi 8, frá og með 1. apríl til 28.
apríl nk. á venjulegum skrifstofutíma. Kæru-
fresturertil 16. maí.
Bæjarstjórinn á Selfossi
GCDIRGRIPIR
línsverksmiðjunum dönsku. Diskurinn kostar 1.490
krónur.
Bréfapressur, handunnar úr gleri. Framleiðandi er
GLER í Bergvík. Þær kosta 1.090 krónur.
Jafnframt leyfum við okkur að benda á dagatal fyrir
1986 með gömlum Reykjavikurmyndum.
Á því em myndir og uppdrættir af Reykjavík allt &á
árinu 1725 og fram til okkar daga. Almanakið fæst í
bókaverslunum.
Þessa veglegu gripi hefur Afmælisnefnd Reykja-
víkur látið framleiða í tilefni 200 ára afmælis Reykja-
víkur.
Minnispeningar í vönduðum gjafaöskjum, slegnir í
sterlingsilfur og kopar. Silfurpeningurinn kostar
2.750 krónur en koparpeningurinn 950 krónur. Ef
keypt er 1 sett í gjafaöskju, kostar það 3.500 krónur.
Um er að ræða takmarkað upplag.
Veggdiskur, framleiddur af Bing & Gröndal postu-
Af mælisnef nd Reykjavíkur
Aðalfundur Ferða-
félags Islands:
Davíð Ólafs-
son kjörinn
heiðursfélagi
59. aðalfundur Ferðafélags ís-
lands var haldinn miðvikudaginn
5. mars sl. og sóttu fundinn 121
félagsmaður. Fundarstjóri var
Eyþór Einarsson, segir í frétt
frá félaginu.
Forseti félagsins, Höskuldur
Jónsson, setti fundinn og minntist
látinna félaga, þeirra Páls Jónsson-
ar, sem lést 27. maí 1985 og Jóns
Snæbjömssonar, sem lést 6. sept-
ember 1985. Páll Jónsson var í
stjóm Ferðafélagsins frá 1947-
1978 og ritstjóri Arbókar frá 1968—
1982. Páll var kjörinn heiðursfélagi
Ferðafélagsins árið 1980. Jón
Snæbjömsson var einn af endur-
skoðendum félagsins og kosinn til
þess starfs árið 1976.
í skýrslu stjómar fyrir árið 1985
kom fram að það ár var gott ferða-
ár og umtalsverð aukning á far-
þegum miðað við 1984, eða 14,7%.
Á síðasta ári var mikið unnið að
viðgerðum og endurbótum á sælu-
húsum félagsins. Eldra húsið á
Hveravöllum er orðið sem nýtt,
einangrun og klæðning var sett
neðan á loftið í sæluhúsinu í Land-
mannalaugum, í Þórsmörk var lokið
við endumýjun á Skagfjörðsskála
og það sem mesta athygli vekur
e.t.v. er stór og góð „verönd"
meðfram húsinu að sunnan og
vestan, sem var afar vinsæl hjá
gestum okkar í veðurblíðunni sl.
sumar. Ferðafélagið hóf að gera
göngustíga í Langadal árið 1984
og var því verki haldið áfram.
Öll vinna í sambandi við viðgerðir
og viðhald á sæluhúsunum var
unnin í sjálfboðavinnu og er það
dugmikið fólk á öllum aldri, i sem
ver frístundum sínum í þágu Ferða-
féiagsins.
Tvær nýjar göngubrýr voru settar
upp á árinu, Önnur á Fúlukvísl á
Kili, hin á Kaldaklofskvísl, sem er
á leiðinni milli Landmannalauga og
Þórsmerkur.
Á árinu kom út fyrsta bókin í
ritröð, sem Ferðafélagið hefur hafið
útgáfu á og nefnd hefur verið
„Fræðslurit FI“. Þessi bók ber heit-
ið „Gönguleiðir að Fjallabaki", þ.e.
lýsing á gönguleiðum út frá Land-
mannalaugum um „Laugaveginn“
til Þórsmerkur. Höfundur er Guðjón
Ó. Magnússon, kennari.
Ferðafélaginu barst peningagjöf
úr dánarbúi Páls Jónssonar, fyrrv.
ritstjóra Árbókar, og á að veija
raunvöxtum af upphæðinni til þess
að verðlauna ljósmynd í Árbók fé-
lagsins.
Davíð Ólafsson, seðlabankastjóri,
fyrrverandi forseti Ferðafélagsins,
var kjörinn heiðursfélagi af stjóm
félagsins og afhent skrautritað
skjal því til staðfestingar á aðal-
fundinum.
Fundarsókn var óvenjugóð og af
því má ráða, að verulegur fjöldi
félaga lætur sig varða mál Ferðafé-
lagsins, enda augljós gróska í öllu
starfi þess.