Morgunblaðið - 27.03.1986, Blaðsíða 18
I
*
I
j
1
i
i
*
i
:
ffe i
3801 SHAM .TS HUDAŒfTMMH ,aiaA.inVnJOHOM
- MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ1986
Morgunblaðið/Bjarni
Sigríður Ella er nýkomin að utan og tekur þátt i sýningnnni.
Kristinn Sigmundsson fer með hlutverk Di Luna.
Kíkt inn
á æfingu á
II Trovatore
Það er líf og fjör í Gamla bíói
þessa dagana, verið að æfa
af fullum krafti óperuna II Trovat-
ore eftir Verdi.
„Það er mikið að gera,“ sagði
Garðar Cortes, þegar litið var inn
einn sólskinsdaginn.
„Æfmgar hafa verið strangar,
við erum að frá því klukkan tíu á
morgnana og til fjögur. Svo hefur
kórinn æft þegar kvölda tekur.
Þessi ópera er mjög skemmtileg,
reyndar talin meðal þeirra þriggja
ástsælustu sem um getur.
Sigpíður Ella er nýkomin til
landsins, en hún ásamt Hrönn
Hafliðadóttur fer með hlutverk
sigaunans Azucena. Það eru þær
Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Elísa-
bet F. Eiríksdóttir sem syngja hlut-
verk Leonoru, Elísabet Waage er
fylgikonan Inez. Greifann Di Luna
syngur Kristinn Sigmundsson og ég
er í hlutverki Manrico. Viðar Gunn-
arsson verður Ferrando. Þetta eru
aðalhlutverkin í sýningunni.
Við njótum svo liðsinnis kórs ís-
lensku óperunnar og hljómsveitar-
óperunnar, sem samanstendur af
félögum úr Sinfóníunni. Hljómsveit-
arstjórinn er kominn frá Vínaróper-
unni, Gerhard Deckert, og það er
Þórhildur Þorleifsdóttir sem leik-
stýrir."
„Búningarnir eru vægast sagt
frábærir,“ sagði Garðar og það
eru þær Una Collins og Hulda
Kristín Magnúsdóttir sem sáu um
hönnun þeirra. Auk þess sá Una
um leikmynd. David Walter lýsir
sýninguna.
Garðar Cortes og Elísabet F.
Eiriksdóttir.
fclk í
fréttum
Ljósmynd: Kurt Hardi
Blaðamannahópurinn fyrir framan Blaðamannaskólann í Árósum. Efri röð, talið frá vinstri: Ola-Peter
Solbakken, Rana Blad, Mo í Rana, Noregi; Kari Tervo, Oy Yleisradio Ab., Helsingfors, Finnlandi; Hans
Cederberg, sænska sjónvarpinu, Malmö, Svíþjóð; Lilith Waltenberg, Skánska Dagbladet, Malmö, Svíþjóð;
Timo Heino, FNB, Helsingfors, Finnlandi; Sölvi Sand, Adresseavisen, Levanger, Noregi; Lars Sönner-
gren, Vestmanlands LSns Tidning, Köping, Svíþjóð; Kristján Hallberg, Göteborg-Posten, Gautaborg,
Svíþjóð; Margot Dyrstad, NRK, Fjersynet, Tromsö, Noregi; Bjarne Myrstad, Bergens Tidende, Förde,
Noregi og Fríða Proppé, Morgunblaðinu, íslandi.
Neðri röð frá vinstri: Magnus Torsell, Vástra Nyland, Hangö, Finnlandi; Anne-Mette Holm, DR/Bom-
holms Radio, Rönne, Danmörku; Eleanor Martinsdotter, Allas Veckotidning, Malmö, Sviþjóð; Teije
Johansen, Rogalands Avis, Hafrsfjord, Noregi; Leena Sallinen, Etela-Saimaan Kustannus Oy, Lappeen-
ranta, Finnlandi; Kaare André Nilsen, Friheten, Oslo, Noregi, og May Kristin Olsen, Nordlys, lokalkont-
or Harstad, Noregi.
Norrænir blaða-
menn í Arósum
IÁrósum í Danmörku stendur nú
yfír 29. námskeið blaðamanna
á vegum Norðurlandaráðs, en nám-
skeið þetta, sem haldið er árlega
hefur yfirleitt sótt einn íslendingur
hveq'u sinni. í ár situr Fríða Proppé
blaðamaður á Morgunblaðinu, nám-
skeiðið, en samtals eru þar 18
blaðamenn frá öllum Norðurlöndun-
um.
Námskeiðið stendur yfir frá 1.
febrúar til 30. apríl, er þar fjallað
um velflest sem varðar Norðurlönd-
in, samvinnu þeirra og afstöðu til
heimsmálanna. Fyrirlesarar eru
allir þekktir stjómmálamenn og
háskóíakennarar frá öllum þessum
löndum. Frá Íslandi, Gylfí Þ. Gísla-
son prófessor og flutti erindi um
uppruna byggðar á íslandi og sér-
stöðu íslands á Norðurlöndunum.
Ennfremur um menningu og listir,
efnahagsmál og stjórnmál. Mjög
góður rómur var gerður að flutningi
Gylfa, en þetta er í þriðja sinn sem
hann annast framlag Islands. Þá
bauð utanríkisráðherra hópnum til
viðræðna á þingi Norðurlandaráðs
í Kaupmannahöfn. Þótti mönnum
mikið til koma, að ráðherra gæfi
sér tíma til slíks í því annríki sem
er á þeim þingum.
Auk þess að sitja þing Norður-
landaráðs fer hópurinn í tíu daga
ferð um Noreg, Svíþjóð, Finnland
og Danmörku seinni hluta apríl-
mánaðar til að kynnast samvinnu
landanna í raforkumálum. í lok
námskeiðsins verður og þegið boð
sendiráðs Þýzkalands í Kaup-
mannahöfn um nokkurra daga dvöl
íBerlín.