Morgunblaðið - 27.03.1986, Blaðsíða 20
m <pr
20 B
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAG UR 27. MARZ1986
Listamaðurinn
er bóndi og bakari
— segja þeir Steinþór Steingrímsson og Sverrir Ólafsson
myndlistarmenn, sem sýna saman rösklega 50 myndverk
— málverk, skúlptúra og lágmyndir — í Listasafni ASÍ
dagana 31. mars til 13. apríl.
„Listamaðurinn er eins og bóndi, sem yrkir sína jörð af því hann
hefur þörf fyrir það. Gagnrýnandinn kemur á eftir og gegnir svip-
uðu hlutverki og framleiðsluráð landbúnaðarins: dregur framleiðsl-
una í dilka, flokkar, stimplar og skilgreinir,“ svarar málarinn og
píanistinn Steinþór Steingrímsson þegar blaðamaður spyr eins og
af gömlum vana, hvað vaki fyrir þeim félögum, honum og Sverri
Ólafssyni skúlptúrista, í myndverkum þeirra, rúmlega 50 talsins, sem
þeir hyggjast stilla upp í Listasafni ASÍ, almenningi til sýnis dagana
29. mars til 13. apríl.
Og Sverrir hnykkir á svarinu með
annarri líkingu: „Við erum eins og
bakarar; reynum að gera góða
tertubotna, sem menn utan úr bæ
skreyta svo með glassúr og sultu.“
Sem sagt, þeir telja það ekki sitt
hlutverk að skilgreina list sína né
réttlæta - segjast raunar enga af-
sökun né skýringu hafa á henni,
aðra en þá að þeir séu að svala
þörf. „Það er nóg til af fólki í veröld-
inni sem fínnst allaf að maður þurfi
að hafa einhveijar skynsamlegar
ástæður fyrir öllu sem maður gerir.
Myndlistin heldur manni gangandi,
það er allt og sumt, og er að því
leyti ámóta mikilvæg fyrir okkur
og sólin og atómsprengjan er fyrir
jörðina," segir Steinþór, og lætur
eins og þetta sé deginum ljósara.
Steinþór fæddist að Hólum í
Hjaltadal fyrir 57 árum. Hann er
sjálfmenntaður í málaralistinni, en
hefur stundað hana með nokkrum
hléum frá 1942. Þess á milli hefur
tónlistin átt hug hans allan, en
Steinþór er þekktur píanisti hér á
landi. Hann hefur haldið margar
einkasýningar og tekið þátt í nokkr-
um samsýningum.
Það eru 38 ár í vor síðan Sverrir
leit fyrst dagsins ljós í Bíldudal.
Hann á akademískan feril að baki
í myndlistinni, stundaði nám í
handíðadeild Kennaraskóla íslands
og síðar í Myndiista- og handíða-
skólanum. Og það eru ekki nema
um þrjú ár síðan hann kom heim úr
þriggja ára útlegð í Englandi, þar
sem hann hafði sína eigin vinnu-
stofu og kynnti séf glerskúlptúr.
Hann hefur áður haldið nokkrar
einkasýningar og tekið þátt í fjölda
samsýninga víða um lönd.
Steinþór og Sverrir hafa báðir
ferðast mikið um heiminn og leita
stundum fanga í reynslu sína af
% ' v <
!fc
Morgunblaðið/Bjami
„Höfum enga afsökun fyrir því sem við erum að gera,“ segja þeir
félagar Steinþór Steingrímsson málari og píanisti og Sverrir Ólafs-
son skúlptúristi. Þeir sýna saman í Listasafni ASÍ á næstunni, og
hafa ákveðið að tileinka konum sínum sýninguna. Það er Sverrir
sem situr.
mannlífi á fjarlægum slóðum. „Ég
neita því ekki að hin frumstæða list
Afnkubúa heillar mig og hefur
sjálfsagt einhver áhrif á það sem ég
er að gera,“ segir Sverrir. Steinþór
segist líka hafa séð ýmislegt á
Páskaliliur - Páskaliljuskreytingar
Núeigumviðfullthúsaf'fe9ur"PaSkp^servíettur og
páskaliljur Páskaliljuskreytingar
páskadúkar Páskakerti o.m.fl.
ftekatöjurípottwn
Þær eru tilvaldar til framhaldsræktunar
heima fyrir.
I*
Allir stofupálmar, smáir sem stórir,
seldir meö 20% afslætti.
Athugið
Um páskana verður opio
sem her segir.
Skírdagur
Föstudagunnn langi . • ■ ‘oko°
Laugardagur ........ '
páskadagur.........,0QK;°
2. í páskum ........
Blómum
interflora WÍÖa VCfOld
flakki sínu sem haft hefur áhrif á
efnisvalið, en bætir því við að píanó-
ið sé þó sjaldnast langt undan í
verkum sínum. Þeir segja að Island
sé besta landi í heimi, og það sé
gott að vera listamaður hér. „Þetta
er að vísu hungurbransi, sem maður
gæti ekki stundað nema vera vel
kvæntur, en áhugi íslendinga á
myndlist er geysimikill," segja þeir
í kór og bæta við að líklega væri
það sniðugasta og frumlegasta sem
þeir gætu gert að tileinka konum
þeirra og bömum sýninguna.
„Það er best við gerum það bara
- það yrði þá það eina frumlega við
sýninguna," segir Sverrir, sem
hefur þá eindregnu skoðun að
ekkert sé nýtt undir sólinni og allt
hafi verið gert einhvem tíma áður.
- GPA
Helgihald á
ísafirði
um páskana
ísafirði.
NÚ um páskahátíðina verður
helgihald að venju þróttmikið og
athyglisvert eins og tíðkast hefur
á ísafirði um árabil. Starfandi
prestur hér nú, sr. Kristján Valur
Ingólfsson, ætlar þó að auka
safnaðarstarfið með tveim nýjum
messutímum. Miðnæturmessu i
ísafjarðarkirkju á laugardag
fyrir páska og árdegismessu kl.
8 að morgni páskadags.
Á skírdag verður guðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 21.00, á föstu-
daginn langa verður bænastund í
kirkjunni kl. 14.00 og kirkjukvöld
með upplestri og tónleikum kl.
21.00. Auk föstusálma og lesturs úr
píslarsögunni verða fluttir þættir úr
Sálumessu (Requiem) eftir franska
tónskáldið Gabriel Fauré. Flytjend-
ur verða Sunnukórinn og Kór ísa-
Qarðarkirkju ásamt söngvurunum
Margréti Bóasdóttur, Ingibjörgu
Gunnlaugsdóttur og Gunnlaugi Jón-
assyni. Undirleik annast Ralph R.
Hom, María Kyriakou og Stefanía
Sigurgeirsdóttir.
Lestra og kynningarorð annast
Auður Hagalín, Þórleifur Pálsson
og sr. Kristján Valur Ingólfsson.
Stjómandi verður Margrét Bóas-
dóttir.
Á laugardag fyrir páska verður
miðnæturmessa kl. 23.00 eins og
áður sagði og á páskadag hefst
hátíðarhald með ardegismessu kl.
8.00. Að henni lokinni verður
kirkjugestum boðið í kaffi eða kakó
í safnaðarheimili kirkjunnar, sem
nýlega hefur tekið til starfa að
Sólgötu 1. Hátíðarguðsþjónustan
hefst svo kl. 10.00 í kirkjunni en
kl. 14.00 verður hátíðarguðsþjón-
usta í Hnífsdalskapellu. Á annan í
páskum messar svo sr. Kristján
* ‘ Ulfár