Morgunblaðið - 27.03.1986, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1986
B 11
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsdeild Sjálfsbjargar
Nýlokið er sveitakeppni með
þátttöku 9 sveita. Sveit Jóhanns
P. Sveinssonar sigraði, hlaut 194
stig. I sveit Jóhanns spiluðu ásamt
honum: Lýður Hjálmarsson, Sigurð-
ur Bjömsson, Theodór A. Jónsson
og Halldór Sveinsson.
Lokastaðan varð annars þessi:
Vilborg Tryggvadóttir 182
Hlaðgerður Snæbjömsdóttir 179
Sigurrós Sigurjónsdóttir 146
Stefán Sigvaidason 119
Spilamennsku vetrarins lýkur
með tveggja kvölda tvímenningi
sem verður spilaður 7. og 14. apríl.
Bridsdeild Barðstrend-
ingafélagsins
Þegar aðeins 5 umferðir em eftir
í Barometerkeppni félagsins er
staða efstu para þessi (30 pör):
Sigurbjöm Armannsson
- Helgi Einarsson 372
Þórarinn Ámason
- Ragnar Björnsson 251
Sigurður ísaksson
- Edda Thorlacius 193
Friðjón Margeirsson
- Valdimar Sveinsson 189
Jónína Halldórsdóttir
- Hannes Ingibergsson 159
Viðar Guðmundsson
- Amór Ólafsson 102
Gunnlaugur Þorsteinsson
- Hermann Ólafsson 7 0
Bjöm Bjömsson
- Birgir Magnússon 65
Síðustu 5 umferðimar verða spil-
aðar mánudaginn 7. apríl nk. Spilað
er í Síðumúla 25, og hefst keppni
stundvíslega kl. 19.30. Keppnis-
stjóri er Hermann Lámsson.
Mánudaginn 14. apríl hefst síðan
Firmakeppni félagsins.
Bridsfélag Akureyrar
Halldórsmótið, minningarmótið
um Halldór Helgason, hefst þriðju-
daginn 1. apríl. Skráning er þegar
hafin hjá stjóm félagsins og verður
henni lokað kl. 20 á sunnudags-
kvöld 30. mars.
Fyrirkomulagið er sveitakeppni
með board-a-match sniði og tekur
yfir 4—5 spilakvöld. Félagar em
hvattir til að vera með í þessari
síðustu reglulegu keppni vetrarins.
Nú stendur yfir einmennings-
keppni og firmakeppni hjá félaginu.
Minnt er á Opna mótið í tvímenning,
sem verður 5.-6. apríl nk. Skráning
stendur yfir hjá þeim Gretti Frí-
mannssyni, Þórami B. Jónssyni og
Páli H. Jónssyni, auk þess sem Ólaf-
ur Lámsson annast skráningu
sunnan heiða. Flugleiðir bjóða mjög
hagstæð fargjöld á þetta Öpna mót.
Fargjald m/gistingu í 2 nætur fyrir
keppendur að sunnan, býðst á 3.800
kr. pr. spilara. (Heimilt að taka
makann með, þó spilakunnáttunni
sé ekki fyrir að fara). Keppnisstjóri
verður Ólafur Lámsson.
Brídsdeild Skagf irðinga
Sl. þriðjudag var spiluð eins
kvölds tvímenningskeppni. Þriðju-
dag eftir páska verður einnig á
dagskrá eins kvölds tvímennings-
keppni, opin öllum. Spilað er í
Drangey v/Síðumúla 35 og hefst
spilamennska kl. 19.30.
Keppnisstjóri er Ólafur Lámsson.
Brídsfélag Suðurnesja
Sex umferðum af níu er lokið í
Suðumesjamótinu í sveitakeppni og
stefnir í hörkukeppni um efsta
sætið.
Staðan:
Sigurður Steindórsson 128
Hjálmtýr Baldursson 125
Nesgarður 118
Maron Bjömsson 93
Bjöm Blöndal 80
Sjöunda umferðin verður spiluð
7. apríl í Grófinni kl. 20. Fimmtu-
daginn 3. apríl verður aftur á móti
spilaður eins kvölds tvímenningur
í Fjölbrautaskólanum. Hefst sú
keppni einnig kl. 20.
LUXfMBORG
Landamæri Luxernborgar liggja að
Þýskalandi, Frakklandi og Belgíu.
Vegakerfi þessara landa skila þér
auðveldlega á áfangastað.
Dyr að töfrum Evrópu
Flug til Luxemborgar fram og til
baka kostar frá kr. 13.350.* Þarbjóð-
ast einnig bestu bílaleiguverð í
Evrópu: Bíll í viku á aðeins kr. 61001*
Evrópustrætó Flugleiða-flugleiðin Keflavík/Luxemborg-hefurferjað
þúsundir íslendinga til Findel flugvallar. Sumir halda strax áfram ferðinni,
aðrir dvelja lengur í Luxemborg. Þeir bera margt úr býtum.
Hvort sem þú unnir fögrum listum, eða hefur lyst á góðum mat getur
Luxemborg satt þig. Hér er gaman að njóta útivistar í skógivöxnu
fjalllendi, skoða markverða staði og lifa Ijúfu lífi á hótelum og gistihúsum.
Hertogadæmið Luxemborg heilsar gestum sínum með hógværð og
yndisþokka: Fagurgrænir akrar, þróttmikill trjágróður, vínviðurinn í
hæðunum meðfram Mósel, lítlð sveitaþorp í þröngu gljúfri, kyrrlátt
mannlíf í skjóli kastala og kirkju. í Luxemborg kristallast menning tveggja
þjóða. Landið hefur sérstöðu sem þú getur fært þér í nyt.
Við bjóðum þér bestu bílaleiguverð í Evrópu!
" Verö miftað vift PEX largjald eftir 1. april 1986, og bilaleigubll i B flokki.
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofur.
Söluskrifstofan Lækjargötu sími 27477, Hótel Esju sími 685011, Álfabakka 10 sími 79500.
Upplýsingasími: 25100
FLUGLEIÐIR