Morgunblaðið - 27.03.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1986
B 13
80 ára í dag:
Friðrik Jóns-
son frá Hvestu
í Drápuhlíð 46 hér í borg býr
maður einn að nafni Friðrik Jóns-
son, kenndur við bæinn Hvestu í
Amarfirði þar sem hann bjó um
árabil ásamt konu sinni, Sigríði
Þórðardóttur, sem látin er fyrir
nokkrum árum, og §órum bömum
þeirra hjóna. Þegar ég hringdi
dyrabjöllunni í fyrsta sinn í Drápu-
hlíð 46 og við stóðum augliti til
auglitis, fannst mér eins og ungl-
ingurinn væri varkár bæði til orðs
og æðis og hefði vaðið fyrir neðan
sig gagnvart þessum ókunnuga
gesti sem gerði sig svo heimakom-
inn að líta inn til hans. Á þeirri
stundu hófust kynni okkar Friðriks
og æ síðan hefur maðurinn verið
mér hugleikinn.
Því fækkar óðum þessu fólki af
aldamótakynslóðinni, og þess vegna
er það eins og að hreppa fjársjóð
að fá að kynnast manni eins og
Friðriki Jónssyni. Þetta fólk lærði
í uppvexti sínum að standa á eigin
fótum, trúa á mátt sinn og megin,
vera trútt yfir litlu, vera ekki upp
á aðra komið, heiðarlegt, skulda
engum neitt og umfram allt að
þekkja sinn vitjunartíma. Þá þótti
það lært fólk sem var læst og skrif-
andi, en það var langt í frá að allir
fengju tækifæri til að draga til stafs
eða kveða að, vegna þess að vinnan
var talin haldbetri til lífsafkomu en
bókarstagl í þá daga. Það er því
ekki einkennilegt að slíkir menn
skeri sig úr hópi samtímans eins
og hann er í dag, og við nánari
kynni finnst mér Friðriki hafi varð-
veist vel það sem honum var miðlað
ungum. Það hefur ekki týnst í tím-
ans straumi, sem væri kannski
ástæða til — slíkar óhemjubreyting-
ar sem gengið hafa yfir þjóðina síð-
ustu áratugina; má segja að áttræð-
ur maður sé búinn að lifa tímana
þrenna. Hann var svo lánsamur að
vera í hópi þeirra sem fengu þá
menntun sem möguleg var í þá
daga, og betur væri komið fyrir
þjóðinni ef henni hefði varðveist það
gegnum tíðina að böm hennar
hefðu aldrei annað lært en reikning,
lestur og skrift; þá væri hún ekki
sokkin upp fyrir haus í skuldir og
vitleysu. Stutt er í það að skóla-
gangan og lærdómurinn gangi af
þjóðinni dauðri. Nú eru það fínir
og rándýrir tindátar á skrifstofum
í Reykjavík sem stjóma útvegs-
bónda á landsbyggðinni, og það eru
þeir sem segja honum fyrir verkum,
þeir sem ráða því hvort hann eða
hvað hann veiðir í sinni eigin land-
helgi, eða hvort hann setur fleiri
eða færri skepnur á. Af þessu má
sjá hvort við höfum gengið til góðs
götuna fram á veg.
Já, í dag er afrakstur þess fólks
sem vinnur að þjóðarframleiðslunni
í stjómarhöndum menntamannanna
sem menntaðir hafa verið af alþýðu
Sumaráætlun Flugleiða
Sumaráætlun Flugleiða í milli-
landaflugi tekur gildi 30. mars.
Flopð verður til 19 áfangastaða
í 12 Iöndum. Ný flugleið verður
tekin í notkun 20. mai, Reykja-
vík/Vagar i Færeyjum/Glasgow.
Ennfremur verður i sumar, auk
beins flugs til Parísar, flogið
þangað með viðkomu í Frank-
furt. Nýr áfangastaður er Nuuk
á vesturströnd Grænlands, en
þangað er flogið einu sinni í viku
í samvinnu við Grænlandsflug.
Yfír háannatímann verða 15
ferðir til Lúxemborgar á viku, ellefu
til Kaupmannahafnar og sjö til New
York og London, eða alla daga
vikunnar. Færri ferðir verða til
annarra staða.
Sumaráætlun innanlandsflugs
tekur gildi 19. maí. Þar verður
sætaframboð nokkuð meira en í
fyrra. Flestar ferðir verða til Akur-
eyrar, 33 ferðir á viku. Til Vest-
mannaeyja verða 24 ferðir á viku,
16 ferðir til Egiisstaða og 17 tií
Isafjarðar.
Til innanlandsflugs verða í sumar
notaðar fjórar F-27-skrúfuþotur, en
þijár DC-8-63 og tvær B-727 til
millilandaflugs.
Húseigendur
Með hækkandi sól fer í hönd tími við-
halds og viðgerða. Meistarafélag húsa-
smiða vill benda þeim sem hugsa til
framkvæmda á nokkur góð ráð. Leitið
til þeirra sem reynslu hafa og bera
ábyrgð á sínu verki. Gerið skriflegan
samning um það sem vinna á og hvernig
það á að greiðast.
Varðandi kaupgreiðslur þá koma þrjár
aðferðir helst til greina. í fyrsta lagi
tímavinna, þá þurfa aðilar að gera sér
grein fyrir því hvað útseldur tími kostar.
I öðru lagi þá er til mælingataxti sem
hefur fast verð á flestu því sem kemur
fyrir í viðgerðar- og viðhaldsvinnu. í
þriðja lagi tilboðsvinna, þá þarf að til-
greina það vel og skrifa niður hvað vinna
á.
Meistarafélag húsasmiða veitir fúslega
allar upplýsingar í síma 36977 frá mánu-
degi til föstudags á milli kl. 13 og 15.
Meistaraf élag húsasmiða.
þessa lands. Því finnst mér ekkert
skrýtið að þessum mönnum biöskri
stjómarfarið og tíðarandinn eins og
hann er í dag í allri sinni dýrð. Ég
viðurkenni það að margt af því
gamla mátti breytast á betri veg,
en stökkið var bara of langt og nú
er um seinan að snúa við.
Eins og áður segir bjó Friðrik
fyrir vestan á bænum Hvest í Ket-
ildalahreppi í Amarfírði á föðurleifð
sinni. Mér er sagt að hann hafí
verið góður bóndi, farið vel með
skepnur og uppskorið eins og hann
sáði. Trúnaðarstörfum gegndi hann
fyrir sveit sína og fórst það vel úr
hendi sem annað sem hann hefur
lagt fyrir sig. Friðrik er vel greindur
og mikill fróðleiksbrunnur, og
fínnst mér synd að enginn úr her-
búðum hinna sískrifandi bókaút-
gefenda skuli hafa uppgötvað hann.
Þeir kæmu ekki að tómum kofanum
því þrátt fyrir 80 árin er Friðrik
vel em, kvikur og lifandi persónu-
leiki.
í upphafí lýsti ég okkar fyrstu
kynnum. Þá reyndi ég að ímynda
mér hvaða mann hann hefði að
geyma, en það er erfítt, því þótt
maðurinn sé htjúfur á yfírborðinu
og fráhrindandi við fyrstu sýn, þá
em það oft einkenni okkar bestu
manna þegar lengra er leitað, og
fyrir innan brynjuna slær milt og
gott hjarta sem slær pínu örar ef
eymd einhvers er í nálægð. Slíkum
mönnum er alltaf ávinningur að
kynnast og þeir em mannbætandi.
Ég óska þér, Friðrik, hjartanlega
til hamingju með áttræðisafmælið,
og megi lukkudísimar leika við þig
í friðarins nausti.
Vinur að vestan.
hvergi meira
irval af ávöxtuml
og fersku.jllí
grænmeti!
ppelsínur B.C epli
0 Prh3- AA.00
270 pr. kc
^Sgjum!
Nyjung!
Paskaegg fyrir
sykursjúka
iS48ft
^^Kjötborðið
Konfektkassi
láskatilboði
AÐEINS
Pvrir börnin.
7Umandi popPkorn
og kaldur Svali
Lifandi ungar
1 t 'X
WBFTB.
PrlS?Sv'nakjöt-•
TyyéS^Mýtt-Reykt:
t?;CLambakjöt--Mautakjöt
Páskahangikjöt
- ■ Svali18stk.
A AÐEINS >0.80
195,00 pr.stk
Kalkún398p°°
Endur
Daglega úr reyk...
Læri — Úrbeinað iæri
Framp. Úrbeinaður framp.
Húsavíkurhangikjnt
sérlega Ijúffengt
Opið á laugardag fyrir páska frá 10—16
í Mjóddinni Austurstrætí