Morgunblaðið - 27.03.1986, Side 31

Morgunblaðið - 27.03.1986, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1986 B 31. Tatsuya Nakadai lalkur Hidet- ora hlnn olilaera sam afsalar sér völdum tll gíruga sona sinna. breytti Kurosawa ekki út af vana sínum og lét stað og stund oftar en ekki blása sér nýjar hugmyndir i brjóst. Hann hefur hverja senu fastmótaöa í pappírnum, en það er sama hversu vel hann er undir- búinn, stundum kemur fyrir að hann breytir handritinu ef til að mynda veðrið er ekki eins og handritið gerir ráð fyrir. Dag einn var hann að taka viðamikla senu fyrir framan kastala sem byggður var sérstaklega fyrir myndina. Það hafði rignt um nóttina og jörðin var vot. Aöstoðarmennirnir voru lengi að koma „dauöum hermönn- um" fyrir í réttar stellingar og þegar tökur hófust var sólin komin á loft og þokuslæða læddist með hlíðum. Kurosawa ætlaði að bíða þar til þokan hyrfi en þá fannst honum hún Ijá atriðinu dulúðlegan svip og ákvað að filma það eins og það kom fyrir. Þokan hvarf þegar tökum lauk, en Kurosawa sá þegar filman kom úr framköllun að atriðið var miklu drungalegra og tilkomumeira og magnaðra en hann hafði getað ímyndað sér. Synirnir valdagráðugu, faðirinn elliæri Kurosawa er því ekki óvanur að sækja efni mynda sinna í smiðjur annarra listamanna, oftar en ekki í margra alda gamlar sögur. Rash- omon sótti hann í ævaforna goð- sögn japanska, Blóðuga hásætið er um austrænan Macbeth og í annarri mynd birtist í dulargervi enginn annar en Hamlet. Ran merkir stjórnleysi eða innri átök í japönsku og er hugmyndin að henni sprottin uppúr Lé kon- ungi Shakespeares og ef til vill Goriot gamla Balzacs. Kurosawa segir að hugmyndin hafi upphaf- lega veriö sú að fjalla um Motonari Mori, sautjándualdar stríðsjálk og syni hans þrjá sem allir eru þekktir í japanskri sögu fyrir sín fræknu stríðsafrek í anda feðranna. En Kurosawa lót ekki þar við sitja. Hann langaði að kanna hvað gerð- ist ef synirnir hefðu ekki veriö þessir perlusynir — og þá komu dætur Lés uppí hugann. Sagan sem Kurosawa var að segja gerist á miðöldum og því urðu afkvæmin að vera karlkyns; valdabrölt meðal kvenna var gersamlega óhugsandi íJapan íþanntíð. Lér er sem sagt orðinn að Hidet- ore lchimonji, öldruðum stríðs- hundi eins og þeir gerast klókastir, en vill nú öllum að óvörum setjast í helgan stein og njóta ævikvöids- ins fjarri blóðugum barningi og valdabrölti. Hidetore á þrjá syni: Taro er elstur og á því að erfa góssið. Hann neyðir gamlingjann föður sinn til að skrifa undir skjal þess efnis að hann komist til valda. Jiro er næstelstur og kemur Taro fyrir kattarnef til að setjast í hásætið sjálfur. Saburo er yngstur, traust- ur, en eins og Kordelía gleymir hann að stundum má satt kyrrt liggja: hreinskilni hans verður þess valdandi að hann er sendur í út- legð. Taro er kvæntur Kaede, metn- aöarfullri og morðóðri kvensnift, en það er hún sem hvetur Taro til að hefja valdabröltið, og dregur Jiro síðan á tálar þegar Taro hefur fengið náðarhöggið. Kurosawa hefur ekki gleymt fífl- inu, sem er ómissandi í leikverkum Shakespeares. Kyoami er sá eini sem snupra má Hidetore og hann er sá eini sem fylgir honum gegn- um þykkt og þunnt — allra leiðina inní storminn á heiðinni. Keisarinn Akira Kurosawa er eitt mesta kvikmyndaskáld sinnar tíðar, ekki aðeins í Japan heldur um gjörvalla heimsbyggðina. Hann er hálfátt- ræður og hefur unnið að kvikmynd- un í fimmtíu ár. Hann hlaut snemma viðurnefnið Keisarinn (Tenno) ekki síður fyrir gífurlegt skaplyndi en heimsfrægð og list- ræn afrek. Hann leitar fullkomnun- ar í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur og líður ekki mistök og slóðahátt. Allir sem vinna með honum bera óttablandna virðingu fyrir Keisaranum. Skap hans getur rokið uppí svo miklar hæðir a fresta verður æfingum og mynda- tökum dögum saman. Þeir sem gerst þekkja segja að mesti áhrifavaldurinn í lífi Kur- osawa sé eldri bróðir hans Heigo, sem fyrirfór sér þegar Kurosawa var 23 ára. Heigo var Ijóðskáld (benshi) sem naut virðingar á blómaskeiði þöglu myndanna, en var ýtt útí kuldann þegar hljóð- myndir komu til sögunnar. Kur- osawa fullyrðir að ekkert í verkum sínum sé sjálfsævisögulegt, en viðurkennir þó að sérhver mynda hans hafi þróast út frá einhverjum mikilvægum atvikum úr lífi sínu. í mörgum mynda hans má finna bróðurinn Heigo, manninn sem ekki er lengur þörf fyrir: í Sjö samúrai og Yojimbo eru það at- vinnulausu stríðsmennirnir og í Kagemusha er það staðgengillinn sem rekinn er útá kaldan klaka þegar fortíð hans er dregin fram í dagsljósið. Skoðanir á listamanninum Kur- osawa er ærið misjafnar og fara nánast eftir því hvaðan menn eru ættaðir. Samlandar hans eru vægast sagt sparsamir á lofsyrði og er ekki laust við að öfund ráði þar ferð, en leikstjórar í Vestur- heimi og Evrópu eiga ekki nógu sterk orð til að lýsa aðdáun sinni á manninum. Japanskir ieikstjórar fara flestir undan í flæmingi þegar talið berst að snilli Kurosawa. Leikstjórunum Mizoguchi og Ozu finnst hann gera grófar og harðneskjulegar myndir, og Oguri, sem geröi hina þekktu „Leirá", telur hann vera of vestrænan í hugsun. „Það er ekki nóg að stilla upp hóp hermanna og láta þá berjast til síðasta blóð- dropa," segir Oguri. A Vesturlöndum kveður við annan tón. Yngri leikstjórar eins og Spielberg, Walter Hill og Copp- ola segjast allir vera undir áhrifum frá Japanska risanum. það er auðvelt að nefna myndir sem leynt og Ijóst spretta upp úr myndum Keisarans. The Magnificient Seven með Steve McQueen er vestræn útgáfa af Sjö samúrai, The Outrage eftir Martin Ritt er endurgerð á Rashomon, Hnefafylli af dollurum eftir Sergio Leone er stæling á Yojimbo, heilu atriðin í Stjörnu- stríðsmyndinni fyrstu eru stolin úr Falda virkinu og Scarface eftir Brian de Palma endar á sama hátt og Blóðuga hásætið. Leyfum Sidney Lumet að hafa síöasta orðið: „Snilli er afl sem ekki er hægt að útskýra, það sprettur upp úr sál mannsins, og vangaveltur um listræn afrek Kur- osawa eru þvi útí loftið." HJÓ Háskólabíó — splunkuný tónlistarmynd um táninga Háskólabíó sýnlr um pásk- ana splunkunýja mynd, raunar svo nýja að hún verður ekkl frumsýnd I Bretlandi fyrr en I naestu viku. ÞaA er tónllstar- myndin „Tánlngar" en á fnim- mállnu nefnist hún Absolute Beglnners, sem er vel þekkt heitl á grænjöxlunum þegar þeir koma út I IfflA á tánlnga- aldri. Höfundur myndarinnar heitir Julian Temple, og er mynd þessi hans fyrsta stóra kvikmynd en áður hefur hann unnið að fjölmörg- um pönkmyndum. Julian Temple vann sér það til frægðar fyrir nokkrum árum að gera myndina „The Great Rock’n Roll Swindle" með pönkhljómsveitinni Sex Pist- ols. í „Absolute Beginners" koma fram margir leikarar og ekki síður frægttónlistarfólk, en meðal þeirra sem eiga lög í myndinni eru The Rolling Stones, The Kinks, Culture Club, Boy George, Sade og David Bowie, en titillag myndarinnar er þegar farið að heyrast á öldum Ijósvakans hér á landi. Nílargimsteinninn í Bíóhöllinni Bíóhöllin hefur tekið kvikmyndina „Nílargimsteininn“ (Jewel of the Nile) til sýninga. Myndin er beint framhald af kvikmyndinni „Ævin- týrasteinninn" sem hér hefur verið sýnd við mikla aðsókn. í aðal- hlutverkum eru Michael Douglas, Kathleen Turner og Danny De Vito. Góð þjónusta í Grófinni yfir páskahelgina ísbúðin vinsæla verður opin á skírdag, Iaugardag og 2. í páskum. Aðalstræti 4 Freyðandi aldinsafar og heitir drykkir. Opið skírdag og 2. í páskum kl. 14-21. bjílslMIIWn Vesturgötu 3 Opið fimmtudag, laugar- dag og 2. í páskum Salatbar í hádeginu og á kvöldin. Opið skírdag, laugardag og 2. í páskum Vorum að fá nýtt efni Vinsælustu myndirnar. Nýbúnir að opna sölutum, öl, sælgæti og dagblöðin. Opið skírdag, laugardag og 2. í páskum frá kl. 12.00-23.30. Myitdbanfbleigsn HAFNARSTRÆTI 2 SÍMI621101 Opið um hátíðarnar, skírdag upppantað, föstudaginn Ianga einkasamkvæmi, laugar- dag opið frá kl. 12.00—24.00, páskadag lokað, 2. í páskum opið frá kl. 12.00—01.00. R E S T A U R A N T S 1 M 1 1 7 7 5 9 Gleðilega páska

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.