Morgunblaðið - 18.04.1986, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 18.04.1986, Qupperneq 1
64SIÐUR B STOFNAÐ1913 85. tbl. 72. árg. FÖSTUDAGUR18. APRÍL 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Vestrænir menn í Líbýu óttast hefndaraðgerðir Lögreglumenn undir stéli Boeing 747-þotunnar frá ísra- elska flugfélaginu E1 Al. 240 farþegar komu með henni frá New York og 150 bættust við í London. Sprengjan, sem reynt var að koma um borð undir fölskum botni í ferða- tösku, var stillt þannig, að hún hefði sprungið á leiðinni tilTelAviv. Hermdarverkin í gær sýna við hvað er að fást, segir Reagan, Bandaríkjaforseti Tripoli, Washington. AP. KYRRÐ virðist vera að komast á í Tripoli í Líbýu eftir árásir Banda- ríkjamanna en mikill ótti hefur gripið um sig meðal vestrænna manna í landinu við hefndaraðgerðir. Reagan, Bandarílg'aforseti, sagði í gær, að morðið á Bretunum þremur í Líbanon og tilraun til að myrða mörg hundruð manns um borð í ísraelskri flugvél sýndi við hvað væri að fást og að vestrænar þjóðir yrðu að standa saman gegn hryðjuverkamönnum. Sovétmenn hafa farið fram á það við framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, að hann beiti áhrifum sín- um til að draga úr spennu á Miðjarðarhafi. Miklar sprengingar bergmáluðu síðdegis í gær um Tripoli en að öðru leyti virtist kyrrt í borginni og verslanir og skólar voru aftur opnuð eftir árásir Bandaríkjamanna aðfaramótt þriðjudagsins. Khadafy kom í fyrrakvöld fram í sjónvarpi og hótaði Bandaríkjamönnum og Bretum hefndum og í gær sýndi líbýska sjónvarpið þegar hann vitj- aði særðra manna á sjúkrahúsi. Vestrænir sendimenn telja, að um 100 manns hafí farist í loftárásun- Vesturlandabúar í Líbýu, sem eru 18.000 talsins, þar af 8000 ítalir og 5000 Bretar, óttast mjög, að leitað verði hefnda á þeim og í gær reyndu nokkrir þeirra árangurs- laust að komast úr landi. Hafa sendiráð þeirra hyatt þá til að halda sig innandyra. Ymsar þjóðir, t.d. Belgar, Spánverjar, Italir og Kan- adamenn, hafa lagt á ráðin um allsheijarbrottflutning þegna sinna ef þörf krefur. Reagan, Bandaríkjaforseti, sagði í gær, að morðið á Bretunum þrem- AP/Símamynd Lögreglukonu minnst Breski leikstjórinn Michael Winner lagði í gær blómsveig að minnisvarða um bresku lögreglukonuna, Yvonne Fletcher, en hún féll fyrir byssukúlu frá sendiráði Líbýumanna í London. Minnismerkið er við gangstéttina þar sem Fletcher lést en í gær voru tvö ár liðin frá dauða hennar. Sænskir blaða- menn í verkfall? Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara SÆNSKIR blaðamenn hafa boð- að verkfall eftir viku, frá og með fimmtudeginum 24. apríl. Ef til þess kemur verður það í þriðja sinn á fjórum árum, sem blöð og aðrir fjölmiðlar í Svfþjóð lamast í víðtækum verkföllum. Undirrót deilunnar er, að blaða- útgefendur vilja ekki semja við blaðamannafélagið um kjör frétta- manna á útvarpi og sjónvarpi. Benda þeir á, að Félag skrifstofu- manna fari formlega með samn- ingsréttinn fyrir starfsmenn á ríkis- Qölmiðlunum og breyti engu um þótt flestir fréttamannanna þar séu Morgunbladsins. í blaðamannafélaginu. Hefur blaða- mannafélagið höfðað skaðabótamál á hendur útgefendum og telur, að þeir hafí brotið lög um samningsrétt stéttarfélaga. Ekki er hægt að segja, að mikill verkfallshugur sé í sænskum blaða- mönnum enda bjuggust þeir við, að samningar gengju sjálfkrafa fyrir sig eftir að samið var til tveggja ára við Alþýðusambandið og Samband skrifstofumanna. Út- gefendur hafa beðið stjómvöld um að sáttasemjari hafí milligöngu í deilunni, sem getur tekið til allt að 7.000 blaðamanna. ur í Líbanon og tilraunin til að drepa mörg hundruð manns um borð í ísraelskri flugvél væri harmleikur, sem sýndi við hvað væri að fást. Hann sýndi líka, að vestræn ríki yrðu að bregðast einarðiega við og standa saman gegn hryðjuverka- mönnum. Lét hann þessi orð falla skömmu áður en hann átti fund með Bob Hawke, forsætisráðherra Astralíu, sem nú er staddur I Washington. Evrópubandalagið skoraði í gær á Bandaríkjamenn og Líbýumenn „að fara að öllu með gát“ og ætla ráðamenn þess að reyna að draga úr spennunni eftir stjómmálalegum leiðum. Kom þetta fram hjá Van den Broek, utanríkisráðherra Holl- ands, að loknum fundi utanríkisráð- herra aðildarríkjanna, en hann sagði einnig, að ákveðið hefði verið að stórauka leyniþjónustusamstarf ríkjanna til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, hefur sent Perez de Cuellar, framkvæmdastjóra SÞ, bréf þar sem hann biður hann um að beita áhrifum sínum til að draga úr spennu á Miðjarðarhafí. í gær var þriðji dagur umræðna í öiygg- isráði SÞ um árásina á Líbýu. Sjá fréttir á bls. 20. AP/Símamynd Þrír breskir gisl- ar myrtir í Líbanon Komið í veg fyrir stórkostlegt hryðju- verk um borð í ísraelskri þotu London, Beirút. AP. ÖRYGGISVERÐIR á Heathrow-flugvelli í London komu í gær í veg fyrir hryðjuverk í ísraelskri farþegaþotu. Fundu þeir sprengju undir fölskum botni í ferðatösku og handtóku konu, sem kom með töskuna. Annars manns er ákaft leitað. Lík þriggja Breta, sem verið hafa í haldi mannræningja í Líban- on, fundust í gær í fjöllunum fyrir austan Beirút. Breskum sjónvarpsfréttamanni var rænt í Beirút í gærmorgun. Það var öryggisvörður ísra- elska flugfélagsins E1 Al, sem fann sprengjuna við leit í far- angri konunnar og var hún þá umsvifalaust handtekin. Er einn- ig leitað að arabískum vini kon- unnar, sem er írsk, en hún ber, að hann hafi beðið hana um að koma töskunni fyrir sig til Tel Aviv. Lögreglumenn segja, að konan hafi virst vera undir áhrif- um eiturlyfja og að ekki sé úti- lokað, að hún hafí ekki vitað um sprengjuna í töskunni. Sprengj- an var stillt þannig, að hún hefði sprungið í vélinni á leið hennar frá London til Tel Aviv og kon- unnar beðið sömu örlög og ann- arra um borð. Nærri 400 far- þegar ætluðu með flugvélinni. Lík þriggja Breta, sem hafa verið í haldi mannræningja, fundust í gær á þjóðvegi í fjöllun- um austur af Beirút. Höfðu þeir verið skotnir í höfuðið. Hringt var til útvarpsstöðvar drúsa í Líbanon og sagt, að samtök, sem styðja Khadafy, Líbýuleiðtoga, hefðu myrt mennina í hefndar- skyni fyrir árás Bandaríkjanna. Einn Bretanna, Alec Collett, hafði verið í haldi í eitt ár en hann vann fyrir Sameinuðu þjóð- imar að málefnum palestínskra flóttamanna. Hinum tveimur, kennurunum Leigh Douglas og Philip Padfield, var rænt 28. mars sl. Þá var breskum sjón- varpsfréttamanni, John P. McCarthy, rænt í gærmorgun skammt frá Beirút-flugvelli. Sundurlyndi á OPEC-fundi Genf. AP. EKKERT samkomulag varð í gær á þriðja fundardegi Opec- ríkjanna í Genf en þar er rætt um að draga úr olfuvinnslu og vinna þannig gegn verðlækkun- um. Svo mikill ágreiningur var meðal ráðherranna 13, að þeir deildu jafn- vel um hve mikil eftirspum yrði eftir olíu á heimsmarkaði á sumri komanda. Urðu þeir loks sammála um að biðja ráðgjafa sína um að benda á leiðir til að minnka olíu- vinnsluna og eiga þeir að segja á því sína skoðun í dag. Sérfræðingar segja, að olíuverðið muni verða á bilinu 12-15 dollarar fatið fram á sumar a.m.k.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.