Morgunblaðið - 18.04.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.04.1986, Blaðsíða 2
MORGlÍNÍáÍAÐlÐ, PÖSTtÍÓAGÍJFÍ 18.APRÍL 1986 Fats söng á Broadway Fats Domino söng hvem slagarann á fætur öðrum, sem hamt gerði fræga hér forðum daga, á sviðinu í Broádway við mikinn fögnuð íslenzkra aðdáenda sinna í gærkveldi. Mikil hnfning var í salnum. Ein umsókn um prestsembætt- ið dæmd ógild DÓMS- og kirkjumálaráðuneytið hefur komist að þeirri niðurstöðu að umsókn Cecils Haraldssonar um prestsembætti að Laugalandi í Eyjafirði sé ekki gild. Cecil Haraldsson tók embættispróf í guðfræði í Svíþjóð og er starfandi prestur þar. Eftir að umsókn hans barst óskaði Biskup íslands eftir því við dóms- og kirkjumálaráðuneytið að það skæri úr um það hvort hún væri gild eða ógild. Niðurstaða dóms- og kirkjumála- Ráðuneytið telur með vísan til ráðuneytisins byggist á lögum um umræddra laga nr. 36/1911 og forgangsrétt kandidata frá Háskóla íslands til embættis nr. 36/1911. Þar segir í fyrstu grein m.a. að eftir að Háskóli íslands er tekinn til starfa hafí þeir einir rétt til embætta hér á landi er tekið hafa embættispróf við Háskólann. Þó á þetta aðeins við um þær fræðigrein- ar sem þar eru kenndar og próf er haldið í. í bréfí ráðuneytisins til Biskups er greint frá einu tilfelli þar sem vikið er frá þessu skilyrðu hvað varðar presta innan þjóðkirkjunnar. Það var árið 1926 er séra Sveinbimi Högnasyni var veitt prestsembætti, en hann lauk guðfræðiprófi frá Kaupmannahafnarháskóla. Emb- ættisveiting hans var byggð á sér- stökum lögum nr. 30/1926. framkvæmda þeirra að það sé gild- andi réttur að prestar innan þjóð- kirkjunnar þurfí að hafa lokið prófí í guðfræði frá Háskóla íslands. Bemharður Guðmundsson fréttafulltrúi biskupsembættisins sagði að ekki yrði óskað eftir sér- stökum lögum frá Alþingi vegna þessa máls, heldur yrði lögð meg- ináhersla á að lög um starfsmenn þjóðkirkjunnar sem liggja fyrir Alþingi fái afgreiðslu. I þeim er tekið á málum sem þessum og losuð úr gildi gömul lög sem þetta varðar. Bemharður benti á að íslenskt guðfræðipróf væri tekið gilt, t.d. í Svíþjóð, að því tilskyldu að guð- fræðingamir taki próf í sænskum kirkjurétti. Arnarflugsmenn í Líbýu: Oljóst hvenær þeir komast úr landi EKKI er víst hvenær starfsmenn Amarflugs komast frá Líbýu, sagði Guðmundur Jón Helgason stöðvarstjóri félagsins i Tripólí i samtali við Morgunblaðið i gær. Hann sagði, að heyrst hefði, að ein flugvél hefði farið frá Tríp- ólí til Rómar og önnur til Parísar ígær. „Það er hugsanlegt, að við förum á morgun (föstudag) en það er ekki ákveðið ennþá né hvert verði þá farið; e.t.v. til Ankara í Tyrklandi," sagði Guðmundur Jón. Hann bætti því við, að flugvél Amarflugs væri alveg óskemmd og ekki neinar skemmdir að sjá á flugvellinum. Að sögn Guðmundar var fremur rólegt í Tripólí um það leyti sem samtalið fór fram (um kl. 14.30 að ísl. tíma), „að vísu heyrðum við sprengingu fyrir skömmu og loft- vamarskothríð í kjölfarið, en það var minna en oft áður,“ sagði hann. „Mestu lætin vom í árásinni að- faranótt þriðjudagsins, og daginn eftir teljum við okkur hafa heyrt og séð flugvélar, sprengingar í kjölfarið á því og svo sáum við mikinn eld hér vestan við okkur. En við getum ekki fullyrt hveijir það vom. Líbýumennimir héma em að reyna að telja sjálfum sér trú um að allt sé komið í Iag, en maður fínnur hvað þeir em trekktir. Það er ekki of gott að henda reiður á því, hvemig ástandið er í raun og vem,“ sagði Guðmundur. Amarflug er með samning um flug fyrir Líbýumenn, sem rennur út í ágústlok. „Það hlýtur að velta á ástandinu héma hvert framhaldið verður í þessu flugi," sagði Guð- mundur Jón. Hann bætti því við, að það væri dálítið ónotaleg reynsla að lenda í atburðum sem þessum, en íslend- ingamir hefðu það eftir atvikum gott þótt því væri ekki að neita, að atburðimir tælqu svolítið á taug- amar. „Við sitjum bara og bíðum og vonum að við komumst út sem fyrst." Hafnarfjörður: Bæjarráð hafnar viðræðum um „Bolungarvíkursamningu ERINDI Verkamannafélagsins Hlffar og félaga járniðnaðar- manna og byggingarmanna um viðræður um sérkjarasamning fyrir starfsmenn Hafnarfjarðar- bæjar á grundvelli samnings bæjaryfirvalda og verkalýðsfé- lagsins í Bolungarvík var af- greitt á fundi bæjarráðs Hafnar- fjarðar í gær. Bæjarráðsfulltrú- ar meirihlutaf lokkanna létu bóka að í kjölfar nýgerðra kjarasamn- inga í þjóðfélaginu væri ekki tímabært að taka upp viðræður á þessum nótum. í bókun fulltrúa meirihlutans, þeirra Ellerts Borgars Þorvaldsson- ar Sjálfstæðisflokki og Vilhjálms G. Skúlasonar Félagi óháðra borg- ara, er einnig vísað til þeirra kvaða sem 6veitarfélögin tóku á sig við gerð síðustu kjarasamninga með lækkun útsvars og þjónustugjalda. Þar segir einnig að ekki sé eðlilegt að þessir starfsmenn njóti einhverra allt annarra kjara en launþegar almennt í landinu. Markús Á. Ein- arsson bæjarfulltrúi Framsóknar- flokksins, sem er áheymarfulltrúi í bæjarráði, tók undir bókun meiri- hlutans. Bæjarráðsmaður minni- hlutans, Hörður Zophaníasson Al- þýðuflokki og Rannveig Trausta- dóttir Alþýðubandalagi, sem er áheymarfulltrúi, létu hins vegar bóka að þau hörmuðu þessa afstöðu meirihlutans. Bæjarráð fer með samningsrétt fyrir Hafnarfjarðarkaupstað og verður þessi afstaða ráðsins send til viðkomandi verkalýðsfélaga að sögn Ellerts Borgars Þorvaldsson- ar. Ákvörðun bæjarráðsins verður lögð fyrir bæjarstjómarfúnd í Hafn- arfirði næstkomandi þriðjudag. Morgunblaðið/Júlíus Hansína Gísladóttir verslunarstjóri í Kamabæ með hótunarbréf o g steininn sem lá ofan á midanum. Krefjast þess að bandaríski fáninn verði fjarlægður VERSLUN Kamabæjar að Laugavegi 66 hefur borist hótun um að verði auglýsing með banda- ríska fánanum, um „Wrangler“-gallabuxur, ekki fjarlægðar úr glugga verslunarinnar, muni „31- samtökin“ sjá svo um að það verði gert fyrir sunnudag. Er starfsfólk verslunarinnar kom til vinnu í gærmorgun var búið að úða aftan á frístandandi sýningarglugga framan við verslunina þessi orð: „Djöfulsins fasistar. Við hefðum getað brotið gluggann, þetta er bara aðvörun." Á miða þar hjá, sem steinn var ofan á stóð: „Down With The States, þið ljótu fasistar." Eftir hádegi í gær var hringt I verslunina og maður bað um að fá að tala við versl- unarstjórann, Hansínu Gísladóttur. Við hana sagði maðurinn: „Við erum frá „31-samtökunum“, ef þið eyðileggið ekki fánann munum við eyða honum fyrir sunnudag." Guðlaugur Bergmann í Kamabæ sagði í samtali við Morgunblaðið, að auglýsingaherferð frá „Wran- gler-gallabuxum" væri miðuð við samræmda upp- setningu auglýsinga í útstillingum, á veggspjöldum og auglýsingum, þar sem bandaríski fáninn er látinn undirstrika að umræddar gallabuxur séu frá Banda- ríkjunum. „Með þessari útstillingu er ekki verið að taka afstöðu með eða á móti Bandaríkjunum, einung- is verið að undirstrika hvaðan buxumar koma,“ sagði Guðlaugur. „Auðvitað get ég fjarlægt fánann, en spumingin er hvort við eigum að láta öfgahópa „terrorisera" okkur á þennan hátt. Á það ætla ég að láta reyna og ég mun því ekki fjarlægja fánann." Guðlaugur kvaðst myndu kæra þessa hótun til Rannsóknarlögreglu ríkisins. Sjómannafélag Reykjavíkur: Undirmenn á kaupskipum felldu kjarasamninginn UNDIRMENN á kaupskipum felldu nýgerðan kjarasamning Sjómannafélags Reykjavíkur og skipafélaganna í allshetjarat- kvæðagreiðslu, sem staðið hef- ur undanfarnar þijár vikur. Þegar talningu var lokið í gær kom í Ijós að samningurinn hafði verið felldur með um 71% at- kvæða. 29% greiddu samningnum atkvæði sitt. Liðlega helmingur undirmanna á kaupskipum tóku þátt í atkvæðagreiðslunni, eða 117 manns af um 220. Já sögðu 34, nei sögðu 83. Ríkissáttasemjari hefur boðað til sáttafundar í deilunni á þriðju- daginn. Þar verður reynt að fá fram endurbætur á samningnum, að sögn Guðmundar Hallvarðsson- ar, formanns Sjómannafélags Reykjavíkur. Á mánudaginn verða talin at- kvæði úr allshetjaratkvæða- greiðslu yfírinanna á farskipum um samskonar samning, sem byggður er á heildarsamkomulagi aðila vinnumarkaðarins frá 26. febrúar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.