Morgunblaðið - 18.04.1986, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 18.04.1986, Blaðsíða 7
 Ferðamálaskóli Útsýnar í samvinnu við V erzlunar skólann „ÁHUGI á störfuin í ferðaþjónustu er geysimikill og umsóknum rignir yfir okkur. Á það bæði við síörf á söluskrifstofu og farar- stjóm erlendis. Margt áhugasamt og efnilegt fólk langar í þessi störf, en þekkinguna skortir, enda engin menntastofnun, sem sinnir þessu verkefni enn sem komið er. Úr þessu vill Útsýn fyrir sitt leyti bæta með samþjöppuðu námskeiði undir leiðsögn fólks með mikla starfsreynslu,“ segir í frétt frá Útsýn. Um er að ræða 10 daga nám- skeið, sem stendur yfir dagana 22. apríl til 6. maí i samvinnu við Verzlunarskóla íslands. í fréttinni frá Útsýn segir m.a.: „Ferðaskrifstofan Útsýn hefur Ofanleiti 1. Kennsian fer fram kl. áður haldið fararstjóranámskeið með góðum árangri. Nú stendur fyrir dyrum víðtækara námskeið í samvinnu við Verzlunarskóla ís- lands, og þar mun kennsla fara fram í nýju skólabyggingunni, Kvótinn er bú- inn og báta- f lotinn snú- inn heim Stykkishólmi, 16. april. HÚN verður ekki löng vetrarver- tíðin hjá okkur hér í Hólminum núna. En ströng hefir hún verið því vel hefir veiðst og kapp ríkt á um að koma aflanum í verkun og þannig að sem mest eða allt kæmist í fyrsta flokk og hefir allt verið gert bæði í landi og á sjó að svo mætti verða. Kvótinn er senn að enda hvað þorskinn áhrærir og í þessari viku munu allir taka upp netin eftir þvi sem mér er tjáð, en hvað verður svo? Sumir hyggja á rækjuveiðar og eru að búa sig í að veiða. Sumir eru enn ekki ákveðnir. Aðrir leggja bátunum og bíða eftir skelveiðinni sem hefst í júlí—ágúst, ef að líkum lætur. Þórsnes hf. mun hafa tekið við langmestum afla, bæði eru flest- ir bátar sem leggja þar á land og svo hitt að þeir bátar munu hafa mestan kvóta. Hæsti bátur á þessari vertíð er mb. Þórsnes, skipstjóri er Kristinn Ó. Jónsson, sem hefír jafnan verið hér hinn farsælasti skipstjóri og ekki í fyrsta skipti sem hann er í fararbroddi, duglegur og sækinn og auðvitað með góða skipshöfn, því það gildir í allri veiði. Að vísu höfðu menn vonast til aukningu á kvóta, enda er mikill fískur á miðum að sögn þeirra sjó- manna sem ég hefí átt tal við. Nú er hinsvegar ljóst að sjávarútvegs- ráðherra leggur ekki til að auka þorskveiði í ár, heldur sjá hverju fram vindur í rannsóknum, en þær skera úr um veiði og því ekkert annað að gera en hlýta því. Arni VJterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! 19.15—22.00 á virkum dögum (nema 23. apríl) og 2 laugardaga kl. 14.15-17.00, samtals 30 kennslustundir. Kennsla fer fram í 3 deildum samtímis. Kennslugreinar verða: 1. Uppbygging og útgáfa farseðla, byggð á allra nýjustu upplýsingum og hagkvæmustu fargjöldum, kenn- arar verða Jónas Jónasson, Flug- leiðum hf. og Gyða Sveinsdóttir, Útsýn; 2. Fararstjóm á erlendri grund. Hagnýtar leiðbeiningar um dagleg störf fararstjóra og fram- kvæmd þeirra, kennarar Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Útsýnar, Pétur Bjömsson, aðalfararstjóri o.fl. og 3. Störf Frí-klúbbsfarar- stjóra. Leiðbeiningar um félags- starf, íþróttaiðkun, leiki, keppnir, samkomuhald og skemmtanastjóm. Nám þetta er miðað við hina nýju línu í sumarleyfínu hjá Frí-klúbb Útsýnar, sem notið hefur geysi- mikilla vinsælda hjá fólki á öllum aldri, kennarar: Erlingur Karlsson, Ingibjörg Hj. Jónsdóttir og Jónína Benediktsdóttir. Sameiginlegir fyrirlestrar verða einnig fyrir aila hópana um sölusál- fræði og sölutækni undir leiðsögn Hauks Haraldssonar. Þeir sem námskeiðið stunda með góðum árangri frá viðurkenningar- skjal sem getur greitt fyrir atvinnu- umsókn, þótt ekki veiti það ákveðin starfsréttindi. Umsækjendur skulu vera á aldrinum 20—38 ára. Skráning og greiðsla námskeiðs- gjalds, sem er kr. 5.000 fer fram í Utsýn, Austurstræti 17, II. hæð, laugardaginn 19. apríl kl. 14—16. Frekari upplýsingar em veittar í Útsýn í síma 26611/25124 á skrif- stoftitíma. Athygli er vakin á, að námskeiðið hefst nk. þriðjudag og því lýkur 7. maí,“ segir í fréttinni frá Ferða- skrifstofunni Útsýn. + HÚS1Ð 1UÁ1.PARSTÓO HKÍ fyrtr böm og 'UAHMAKGÓTtt TS »«•622266 aPlÐMJLAn S01A8HRINCÍNM Verðlaunahafar ásamt nýju merki Rauða kross-hússins að Tjamargötu 35, Reykjavík. Hjálparstöð Rauða kross íslands: Fær merki o g nýtt nafn Rauða kross-húsið“ HJÁLPARSTÖÐ Rauða kross íslands á Tjamargötu 35 var gefið nafn ekki alls fyrir löngu og heitir það nú „Rauða kross húsið“. Haldin var hugmyndasamkeppni um nafnið og um gerð merkis fyrir hjálparstöðina. Samkeppnin fór fram meðal gesta allra fé- lagsmiðstöðvanna í Reykjavik og Kópavogi ásamtnokkrum krökk- um úr tveimur skólum á Reykj avíkursvæðinu. í dómnefnd áttu sæti starfsmenn og framkvæmdanefnd stöðvarinnar. Sex einstaklingar og einn hópur Verðlaun námu einnig 15.000 úr félagsmiðstöðinni Bústaðir áttu bestu hugmyndina að nafni fyrir stöðina að mati dómnefndar og varð „Rauða kross húsið“ fyrir valinu. Verðlaun námu 15.000 krónum alls. Þijár bestu tillögumar að merki hússins áttu Regína Loftsdóttir fyrir mynd sína „Sef“, Guðrún Ingvarsdóttir fyrir myndina „Vel- kominn" og hópur er kallar sig „Campagne club“ úr félagsmið- stöðinni Þróttheimum fyrir hug- mynd sína „Haukur í homi“. krónum. íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur, Tómstundaráð Kópavogs og Lionessuklúbbur Reykjavíkur lögðu fram fé til þessara viðurkenninga. Leitað var til Ástmars Ólafssonar auglýs- ingateiknara við endanlega út- færslu á merkinu. Rauða kross húsið er ætlað bömum og unglingum upp að 18 ára aldri sem telja sig þurfa á aðstoð að halda. Það veitir húsa- skjól, mat, snyrti- og þvottaað- stöðu gestum að kostnaðarlausu. Stöðin getur tekið við allt að tíu manns í einu og reynir að liðsinna . þeim er þangað leita með vanda- mál sín eftir bestu getu, að sögn Ólafs Oddssonar, forstöðumanns. Hann sagði að til stöðvarinnar leituðu böm með ýmis vandamál, persónuleg og félagsieg. Sum ættu við fíkniefnavanda að etja, samskiptaerfíðleika við foreidra eða aðrar erfiðar heimilisaðstæð- ur. Starfsmenn stöðvarinnar em bundnir þagnarskyldu gagnvart gestum stöðvarinnar. Engin skráning fer fram á persónulegum upplýsingum og gesturinn sjálfur skilgreinir vanda sinn. Gestir stöðvarinnar taka þátt í heimilis- haldi stöðvarinnar meðan á dvöl stendur. HELGARDAGSKRA NA USTSINS Föstudagur 18 apríl Hrönn og Jónas Þórir leika á fiðlu og píanó fyrir matargesti. Toni Moro söngvari, sem komið hefur fram í frægustu næturklúbb- um Evrópu er gestur okkar í kvöld. Jónas Þórir og Helgi Hermanns leika dans- tónlist til allra hæfi. Opiðtil kl. 03. Laugardagur 19. apríl Hrönn og Jónas Þórir sjá um að láta matar- gestum líða vel. Gestur kvöldsins: Toni Moro. Dansinn dunar við und- irleik Jónasar Þóris og söngvarans Helga Her- manns. Opið til 03. NÍ0ST Sunnudagur 20. apríl: Hrönn, Jónas Þórir og Helgi Hermanns sjá um stemmninguna. Gestur kvöldsins: Toni Moro. Sérstaklega velkomnir Melaskólanemendur árgangar 1963, ’64, ’65, ’66, ’67, ’68. Opið til 01. Þú nýtur þess að vera gestur okkar Borðapantanir í síma 17759. HfÓÍÍGÚ&BLAÓá), FÖÖTUlÍÁGURlk; APRÍL' Í9ÖÍS Um helgina verðum við með i sýningarsal okkar sýningu á glæsilegum islenskum bað- og eldhi réttingum. Einnig verðum við með hreinlætistæki, blöndunartæki og ilisar. Sértu að byggja eða breyta þá ertu á rétta staðnum, við komum tökum mál, teiknum og gerum í heildarpakkann eða hvern llð fyrlr sig þér að kostnaðarlausu. Opið laugardag og sunnudag frá kl. 1—17. Smiðjuvegi 38 202 Kópavogi P.O. Box 476 tllboð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.