Morgunblaðið - 18.04.1986, Side 13

Morgunblaðið - 18.04.1986, Side 13
sffiBUiKHift .igiaoHiWíio ) ki MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. ARRÍL“f98F TFTTpr Aðalfundur Iðnaðarbanka Islands Morgunblaðið/ól.K.M. AÐALFUNDUR Iðnaðarbanka íslands samþykkti í gær að auka hlutafé um 150 milljónir króna og verður hlutafé því samtals 340 milljónir króna, en einnig var samþykkt að gefa út jöfnunarhlutabréf fyrir 52 millj ónir króna. Samþykkt að auka hlutafé um 150 m. kr. — hlutafé verður samtals 340 milljónir króna AÐALFUNDUR Iðnaðarbankans samþykkti að auka hlutafé bank- ans um 150 milljónir króna með útgáfu nýrra hlutabréfa. Þá var einnig samþykkt að gefa út jöfn- unarhlutabréf að fjárhæð 52 milljónir króna, eða um 37,7%. Hlutafé Iðnaðarbankans eftir aukningu hlutafjár verður því 340 milljónir króna. Ein aðalástæða þess að bankaráð lagði fram tillögu um aukið hlutafé eru ákvæði laga um viðskiptabanka um eigið fé banka, sem tóku gildi um síðastliðin áramót. Eigið fé skal samkvæmt lögunum nema 5% af niðurstöðutölu efnahagsreiknings að viðbættum ábyrgðum, en að frá- dregnu eigin fé, peningum í sjóði og innstæðum í bönkum. Þetta skilyrði uppfyllir Iðnaðarbankinn að því er Ragnar Önundarson, bankastjóri, sagði í ræðu á fundin- um. Hins vegar uppfyllir bankinn ekki það skilyrði að bókfært verð fasteigna og búnaðar sé ekki hærra en 65% af eigin fé. Hlutfallið er 97%. Ragnar Önundarson, banka- stjóri, sagði meðal annars þegar hann fylgdi tillögu bankaráðs úr hlaði: „Við mat á því hve mikil aukning hlutafjár skyldi lögð til hér var fyrst og fremst tekið tillit til þeirrar fjárhæðar sem þurfti til að 65% skilyrðið væri uppfyllt, en sú fjárhæð nemur 120 m. kr. Enn- fremur þótti eðlilegt að taka tillit til fjárfestinga þess árs, en þar vegur lang þyngst löngu tímabær stækkun á afgreiðslusal aðalbank- ans.“ Hluthöfum bankans er veittur forkaupsréttur að nýjum hlutabréf- um í hlutfalli við hlutafjáreign sína og allt að 20% umfram hana. Ef hluthafar skrá sig ekki fyrir allri hlutafjáraukningunni verða bréfín seld á fíjálsum markaði. Rangar Önundarson sagði að bankinn gæti, vegna eðlilegra raun- vaxta á lánum, boðið sveigjanlega greiðsluskilmála og sagðist vona að hluthafar „sjái sér leik á borði í þessum efnum fremur en að sitja hjá“ við hlutafláraukninguna. Eigið fé Iðnaðarbankans um síð- ustu áramót var 240,5 milljónir króna og jókst um 36,5%. Raunaukning inn- lána 1985 var 16% — hlutdeild Iðnaðarbankans í innlánum viðskiptabankanna 9% INNLÁN I Iðnaðarbankanum jukust um rúmlega 1.000 milljónir króna á síðasta ári eða 58%. Raunaukning innlána var 16% og var liðið ár áttunda árið í röð sem innlán aukast að raungildi. Hlutdeild bankans í heildarinnlánum viðskiptabankanna jókst úr 8,4% í 9% árið 1985. Útlán hækkuðu um 57% á milli ára og námu í heild 3.158 milljónum króna um áramótin. Innlán í heild voru 2.837 milljónir króna. Hlutfall veltiinnlána af heildar- innlánum í bankanum lækkaði úr 16% í 13%. Þá minnkaði einnig hlutur almennra sparisjóðsbóka í 25%. Allt fram til ársins 1984 hafði hlutur þeirra verið 40-45%, en 1984 var hann kominn niður í 34%. Bón- usreikningar er langstærsti hluti innlána eða 56% (var 43% 1984) og innstæður á þessum reikningum námu 1.582 milljónum króna. Um 4% af innlánum var á gjaldeyris- reikningum. F.f litið er á samsetningu útlána þá jókst hlutdeild víxla úr 15% í 18% og verðtryggðra útlána úr 17% í 24%. Hlutfall óverðtryggðra skuldabréfa lækkaði úr 33% í 25%. Um 74% allra útlána Iðnaðar- bankans fara til atvinnulífsins, mest til iðnaðar og byggingarverktaka, 42,8% og til einstaklinga fara 24%. Hagnaður Iðnlánasjóðs 1985 var 192 millj. kr. IÐNLÁNASJÓÐUR afgreiddi 292 lán að fjárhæð 557 milljónir króna á síðasta ári. Þetta er 58% aukning frá fyrra ári. Hagnaður sjóðsins var 192 milljónir og að sögn Braga Hannessonar, banka- sljóra, er skýring góðrar afkomu sú að hækkun lánskjaravisitölu var 35% á sama tíma og erlend lán hækkuðu um 16%. Til vélakaupa veitti Iðnlánasjóður alls 271 milljón króna og 286 millj- ónum til bygginga iðnaðarhúsa. Úr vöruþróunar- og markaðsdeild voru afgreidd 71 umsókn að fjárhæð 40 milljónir króna og þá var 8,7 millj- ónum króna varið til kaupa á hluta- bréfum í þrem fyrirtækjum. Eigið fé Iðnlánasjóðs er 740 milljónir króna og hefur vaxið um 80% milli ára. Eigiðfjárhlutfallið í árslok var 26% á móti 23% 1984. Þetta hlutfall er ekki eins gott og 1983 þegar það var 29%. Morgunblaðið/Ól.K.M. DAVÍD Sch. Thorsteinsson, formaður bankaráðs Iðnaðar- bankans og Valur Valsson, bankastjóri, bera saman bækur sínar skömmu áður en aðalfundur bankans hófst í gær. Bankaráð Iðnaðarbankans: Davíð Sch. endurkjörinn DAVIÐ Sch. Thorsteinsson, framkvæmdastjóri, var endur- kjörinn formaður bankaráðs Iðnaðarbankans á aðalfundi bankans í gær. Bankaráðið er óbreytt og það skipa auk Davíðs: Sigurður Krist- insson, málarameistari, Brynjólf- ur Bjamason, framkvæmdastjóri, Ingólfur Finnbogason, húsa- smíðameistari og Sveinn Valfells. Varamenn eru þeir sömu nema að Guðjón Tómasson, fram- kvæmdastjóri, kom inn í stað Sveins Sæmundssonar. Aðrir varamenn eru: Magnús Helgason, Kristinn Bjömsson, Karl Maack og Leifur Magnússon. Endurskoð- endur em Ólafur Davíðsson, Sveinn Jónsson og Þorleifur Jóns- son. Innlán Iðnaðarbanka 1981—1985 á verð- lagi í desember 1985 í millj. kr. 3000 Iðnaðarbanki íslands: Tæplega 19 millj. kr. hagnaður á liðnu ári — heildartekjur hækkuðu um 122% á milli ára og gjöld um 117% HAGNAÐUR AF rekstri Iðnað- arbanka Islands á síðasta ári var 18,8 milljónir króna, en 1984 nam tap bankans 3,2 milljónum króna. Valur Valsson, bankastjóri, gerði grein fyrir afkomunni á aðal- fundi Iðnaðarbankans í gær og benti á að þegar tekið hefur verið tillit til breytinga á reikningsskil- um, vegna meðferðar á afskrift- arreikningi útlána, þá hafi af- koman batnað milli ára um rúm- lega 27 milljónir króna. Heildartekjur Iðnaðarbankans á liðnu ári námu 1.202 milljónum króna og jukust um 122% frá fyrra ári. Gjöld hækkuðu um 117% og urðu 1.183 milljónir króna. Valur sagði þessa miklu aukningu tekna og gjalda stafa annars vegar af mikilli aukningu inn- og útlána og hins vegar af því að verðbólga reyndist mun hærri 1985 en 1984. Heildarrekstrarkostnaður nam 239 milljónum króna og hækkaði hann um 72% frá 1984. Launa- kostnaður vegur þyngst og var 125,5 milljónir króna. Valur Valsson fjallaði um ástæð- ur bættrar afkomu og sagði meðal annars: „Aðalástæða tapsins árið 1984 var sú, að vaxtamunurinn, þ.e.a.s. mismunurinn á milli meðal- vaxta af íjármagninu sem við höf- um til ráðstöfunar og þeim fjármun- um sem við veijum fjármagninu til, þessi mismunur minnkaði veru- lega. Arið 1983 var þessi vaxta- munur rúmlega 10%, en árið 1984 aðeins 5,6. Það var því eitt af meginmarkmiðum okkar á síðasta ári að auka vaxtamuninn á ný til að snúa tapi í hagnað. Það tókst og reyndist vaxtamunurinn árið 1985 vera um 7,4% að meðaltali." Aðalfundurinn samþykkti að greiða út 8% arð, eða 11 milljónir króna. Arður fyrir árið 1984 var 5%.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.