Morgunblaðið - 18.04.1986, Síða 16

Morgunblaðið - 18.04.1986, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR18. APRÍL1986 „Miller skilurhvorki upp né niður í eigin verkum “ John V. Hagopian John V. Hagopian heitir maður af armenskum ættum en fæddur og uppalinn í Bandaríkjun- um; prófessor í bók- menntum við Ríkisháskóla New York-fylkis og kunnur gagn- rýnandi og fyrirlesari víða um lönd. Hann er nú staddur hér á landi og raunar ekki í fyrsta sinn; í fyrrakvöld flutti hann fyrirlest- ur um William Faulkner við Há- skóla íslands og í kvöld kl. 18.00 ræðir hann um bandarísku leik- ritaskáldin Arthur Miller og Tennessee Williams í Þjóðleik- húskjallaranum. Hagopian var tekinn tali á heimili vinar síns, Frank Ponzi, í Mosfellssveit þar sem hann dvelst með eiginkonu sinni, rússneskrar ættar. „Ég er reyndar ekkert frægur," sagði Hagopian og brosti breitt; „ekki miðað við stórkarlana í brans- anum. Ástæðan er sú að ég hef enn ekki gefið út Stóru Bókina sem allir bókmenntafræðingar og/eða gagn- rýnendur verða að senda frá sér ef þeir ætla að ná í lesendur fyrir utan vissa hópa. Ég hef fremur haslað mér völl á afmörkuðum svið- um. Faulkner-fræðingar ættu til að mynda að kannast við mig. Ég ætla að minnsta kosti,“ brosandi enn, „aðvonaþað!“ Hagopian var þá spurður um efni fyrirlesturs þess sem hann hélt í Odda í fyrrakvöld um Faulkner. „í þessum fyrirlestri reyni ég aðallega tvennt. í fyrsta lagi er hreinlega að gera Faulkner að- gengilegan fyrir allan almenning. Því verður ekki mótmælt að hann er afskaplega erfiður höfundur — stfll hans, setningaskipun, orða- forði: þetta er allt þannig að venju- legir lesendur verða að leggja tölu- vert á sig til að njóta verka hans tii fulls. Og ég vil gjaman hjálpa fólki til þess. Faulkner er að mínum dómi einhver allra mesti rithöfund- ur samanlagðrar bókmenntasög- unnar og eini raunverulegi snilling- urinn sem Bandaríkjamenn hafa enn eignast. Yfirsýn hans er svo mikil; hann bjó til heilan heim þar sem er Yoknapatawpha-sýsla og kom þar fyrir ástríðufullu, stór- brotnu fólki. Það er ómaksins vert að kynnast persónum hans og lífi þeirra og ég lít eiginlega á mig sem einn af postulum Faulkners; ég er að boða fagnaðarerindið; látið þetta ekki fara fram hjá ykkur! Hins vegar er ég í þessum fyrirlestri að þróa hugmyndir mínar um það sem ég kalla ástarsiðferði Faulkners. Kannski á ég eftir að skrifa bók um þessar hugmyndir, þegar þær eru orðnar fullmótaðar. Það sem ég á við er að Faulkner hefur samúð með, eða altént skilning á, fram- ferði þessara ofstopafullu persóna sinna — svo lengi sem þær láta stjómast af ást. Hann er ekki endilega hlynntur ofbeldinu sem þær eiga til að beita en hann skilur alla vega hvað liggur að baki. Á hinn bóginn eru til persónur í bók- um hans sem eru uppfullar af göf- ugum hvötum, sjálfsfóm og hjálp- fysi, en afneita ástinni. Þessar persónur em í miklu minni metum hjá höfundinum en hinar sem láta ástina ráða gerðum sínum. Sam- kvæmt þessu ástarsiðferði er ástin það sem gerir sérhverja persónu að mannlegri veru. Þetta er svona ramminn utan um hugmyndir mínar en þetta er í rauninni afar flókið mál og menn skyldu varast að reyna að einfalda Faulkner." Fyrirlestur Hagopians á föstu- daginn verður sem fyrr segir í Þjóð- leikhúskjallaranum og hefst klukk- an fjögur síðdegis. Það er gert til þess að gefa leikhúsfólki færi á að hlusta og taka þátt í umræðum á eftir, en þess má geta að Þjóðleik- húsið frumsýnir á næstunni eitt frægasta leikrit Arthur Millers, í deiglunni. Geðklofa leikrit „Þeir Miller og Tennessee Will- iams eru ásamt Edward Albee merkustu leikritahöfundar eftir- stríðsáranna í Bandaríkjunum. Ég held að enginn þeirra geti beinlínis talist stórkostlegur höfundur en þeir eru að minnsta kosti mun athyglisverðari en samtímamenn þeirra. Það er komin hefð fyrir því að flokka þá þannig að Miller sé sá þjóðfélagslega meðvitaði; hann vilji breyta heiminum og bæta hann, eða það segir hann altént sjálfur — Tennessee Williams sé aftur á móti sálfræðilegur höfundur sem velti fyrir sér samskiptum fólks, ekki síst á kynferðissviðinu — og loks að Edward Albee sé heim- spekingurinn í hópnum og glími einkum við hinar stóru spumingar um hlutskipti mannsins í veröldinni. Frægasta leikrit Albees, Hver er hræddur við Virginíu Woolf?, gæti að vfsu á köflum verið eftir Tenn- essee Wiiliams en þó má greina hin stóru viðfangsefni hans bak við átök fólksins á sviðinu. Gott og vel, þama höfum við þijá afar ólíka höfunda. En ég held því fram að þetta sé ekki svona einfalt. Reyndar fullyrði ég blákalt að Arthur Miller skilji hvorki upp né niður í sínum eigin verkum og það þótt fáir höfundar hafí í ríkara mæli ritað um sín eigin verk og útskýrt þau. Hann hefúr skrifað óteljandi formála og greinar um leikritin sín en þetta er allt eintóm vitleysa! Hann heldur því fram að verk sín séu af félagslegum rótum mnnin og hefur til dæmis oft ráðist harkalega að Tennessee heitnum Williams fyrir naflaskoðun og sjálfsþótta meðan ótal vandamál heimsins bíði úrlausnar á leiksvið- inu, nánar tiltekið í verkum Millers sjálfs. Þetta er bull. Undiraldan í verkum Millers er nefnilega sú sama og í verkum Williams og í fyrirlestri mínum í Þjóðleikhúskjall- aranum leiði ég rök að því að bæði Sölumaður deyr og í deiglunni séu í eðli sínu geðklofa verk, ef svo má að orði komast. Á yfírborðinu fjalla þau um félagslegan vanda en undir niðri eru það sálfræðilegar hvatir sem reka persónumar áfram. Ég lít svo á að Sölumaður deyr sé fyrst og fremst um Biff, ekki Willy Loman, og það hvemig hann reynir að verða að manni andspænis föður sínum. Miller segir sjálfur að leikrit- ið sé rannsókn á hlutskipti nútíma- mannsins í kapítalísku þjóðfélagi. Hann um það. Elia Kazan — sannkallað skrímsli! Sama er uppi á teningnum með í deiglunni. Þar er athyglinni beint að nomaofsóknum í Salem í Banda- ríkjunum þegar heilt þorp gekk af göflunum og Miller hefíir sjálfur talað um hliðstæðumar við komm- únistaofsóknir McCarthys og nóta hans sem stóðu sem hæst er leikrit- ið var skrifað. En þegar leikritið er brotið til mergjar kemur í ljós að þungamiðja þess er hinn alda- gamli ástarþríhymingur og kyn- ferðislegt samband Proctors, Elísa- betar konu hans og stúlkunnar Abigail. Elísabet er köld, uppþom- uð; Abigail er ung og ástríðufull og andstæðumar milli þeirra eru kjami verksins. Miller gerir sem minnst úr þessu í öllum formálunum sínum og talar bara um söguna og sagnfræðilega nákvæmni sem hann segist fylgja í einu og öllu. En það er bara fírra. Hann lætur Abigail vera 17 ára í stað 11 ára eins og hún var í raun og vem; þar með gerir hann hana að kynferðisveru en ekki bami og leikritið verður mögulegt. Mér fínnst ótækt að Miller komist upp með að hamra á sagnfræðilegri nákvæmni sinni þegar svona er í pottinn búið og um þetta allt saman ætla ég að tala á föstudaginn. Wiiliams þurfti að glíma við allt önnur vandamál en Miller. Hann var náttúrlega hommi og skrifaði flest verk sín fyrir „byltinguna" þegar hommum var gert kleift að koma úr felum og ræða opinskátt um vandamál sín. Hann varð þess vegna iðulega að dulbúa viðfangs- efni sín og af því skapaðist spenna sem einkennir bestu leikrit hans, A Streetcar Named Desire og Cat on a Hot Tin Roof. Streetcar er frábært leikrit sem höfundurinn eyðilagði því miður með nauðgunarsenunni, en þá verðum við að hafa í huga að bak við bæði Williams og Miller stóð leikstjórinn Elia Kazan — sannkallað skrímsli! Kazan hafði mestan áhuga á aðsókninni og ýtti undir þá hluta leikrita þessara höfunda sem hann vissi að myndu kitla fjöldann og draga hann í leik- hús. Það var Kazan að kenna að ýmsar persónur Williams voru ein- faldaðar og þeim jafnvel umtumað. Blanche í Streetcar er til að mynda næstum alltaf leikin eins og hún sé hreinasti engill en sannleikurinn er sá að hún er krabbameinið í verkinu og það er blátt áfram nauðsynlegt að gert sé út af við hana. Elska og dái og dýrka Faulkner Edward Albee læt ég hins vegar að mestu leyti liggja milli hluta í fyrirlestri mínum en vera má að hann verði á dagskrá í umræðunum á eftir. Ég vona reyndar að umræð- umar verði góðar; þær em oftast John V. Hagopian prpfessor flytur fyrirlestra hér á landi, m.a. um I deiglunni eftir Art- hur Miller sem Þjóð- leikhúsið sýnir á næstunni. skemmtilegasti og ftjóasti hluti slíkra fyrirlestra og ég treysti á að íslensku hlustendumir verði ósmeykir við að leggja orð í belg.“ Að hvaða höfundum hefur þú beint mestri athygli á ferlinum, ef þessir leikritahöfundar era undan- skildir? „Það er náttúrlega Faulkner. Ég elska og dái og dýrka og virði Faulkner mest allra manna! — en þú varst líklega ekki að spyija um hann. Ætli Vladimir Nabokov myndi ekki lenda ofarlega á mínum lista yfir uppáhaldshöfunda, ég hef rannsakað hann töluvert upp á síð- kastið. Nabokov fékk reyndar aldrei Nóbelsverðlaunin — sem Faulkner fékk þó — enda era það oft skrýtnir höfundar sem fá þau verðlaun. Þá á ég ekki við rithöfunda litlu þjóð- anna, eins og Halldór ykkar Lax- ness, heldur fugla á borð við Salvat- ore Quasimodo eða þá Pearl S. Buck. Pearl S. Buck fékk Nóbels- verðlaunin, geturðu ímyndað þér annað eins?! Joyce hins vegar ekki. En annars var ég að taia um Nab- okov. Ég vildi óska að ég kynni rússnesku betur; ég hef mikinn hug á að kynna mér fyrstu bækur hans Tilbúnir sjávarréttir frá Skagaströnd: Rækjurúllur og sjávarréttabaka Útflutningnr á rækjurúllum reyndur NÝIR TILBÚNIR sjávarréttir frá nýstofnuðu fyrirtæki á Skagaströnd, Marska hf., eru að koma í verzlanir. Um er að ræða rækjurúllur og sjávarréttabökur. í bígerð er að reyna útflutning á rækjurúllunum. Steindór R. Haraldsson, fram- leiðslustjóri Marska, er „höfundur" réttanna tveggja. Vöraþróun hefur staðið yfír um all langt skeið og starfsmenn Marska notið aðstoðar Iðntæknistofnunar íslands við það verk, og era réttimir þeir fyrstu, sem þróaðir era í nýju tilraunaeld- húsi stofnunarinnar. Þá gerði stofn- MorgunbUAið/ólafur K. Magnússon FORSVARSMENN Marska reyna hina nýju sjávarrétti fyrirtækisins. Matsveinn á Loftleiðahótelinu skellir rækjurúllu á disk Steindórs R. Haraldssonar, framleiðslustjóra og „höfundar“ réttanna, og Heim- ir L. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Marska, bíður eftir að röðin komi að sér. unin í fyrsta sinn neytendakönnun, en hún skar úr um hvaða réttir af sex tilraunaréttum væra líklegastir til vinsælda. Að sögn Heimis L. Fjeldsted, framkvæmdastjóra Marska, og Steindórs Haraldssonar er markmið Marska að framleiða vörar í háum gæðaflokki og era réttimir tveir markaðssettir undir kjörorðinu „sjávarréttir sælkerans". f fram- haldi verða þróaðir fleiri réttir og er von á þeim næstu, lfklegast for- réttum, með haustinu. Á fundi, þar sem nýja framleiðsl- an var kynnt íjölmiðlum, sagði Steindór réttina snauða að hitaein- ingum, t.d. væru aðeins 94 kaloríur í hveijum 100 grömmum af rækju- rúllunum, og þær því lrjömar fyrir þá sem halda vildu línunum. Hver

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.