Morgunblaðið - 18.04.1986, Síða 20

Morgunblaðið - 18.04.1986, Síða 20
MQRGUNBLAfm FÓgTUDAGUfr 18. APHÍL1986 m. Loftárásir Bandaríkjamanna á Líbýu Nidal hótar árásum á Bandaríkj amenn Hryðjuverkaforinginn Abu Nidal, sem eftírlýstur er um allan heim, sagði á miðvikudag að loftárásar Bandaríkjamanna á Líbýu yrði hefnt grimmilega og róttækir shítar hótuðu að jafna Hvita húsið við jörðu. Sýrlendingar, íranar og Líbýu- Súdan: Bandarískir sendiráðsmenn kallaðir heim Washington. AP. BANDARÍKJAMENN hafa ákveðið að kalla heim marga starfsmenn við sendiráð Bandaríkjanna í Súdan og fjölskyldur þeirra af ótta við hryðjuverk. Ekki er vitað hvenær sendiráðsmennimir fara frá Khartoum, sem bandarískir embættismenn halda fram að sé griða- staður fyrir libýska hryðjuverkamenn. Ákvörðun þessi var tekin eftir að bandarískur sendiráðsstarfs- maður var skotinn í höfuðið á götu í Khartoum, höfuðborg Súdans, á þriðjudag. Að auki hefur bandaríska utan- ríkisráðuneytið gefið út tilkynningu þar sem Bandaríkjamenn eru varað- ir við að ferðast til borgarinnar. Sendiráðsmenn og íjölskyldur þeirra í Khartoum telja um 400 og þar eru einnig um 700 aðrir Banda- ríkjamenn. Um 2.000 Bandaríkja- menn eru í öðrum hlutum Súdans, bæði við þróunarhjálp og olíuiðnað. menn hafa krafíst þess að múham- eðstrúarríki setji ailsheijar bann á Bandaríkin og Bandaríkjamenn verði reknir úr öryggisráði Samein- uðu þjóðanna. Um 500 shítar úr Flokki guðs (Hezbollah) brenndu bandaríska og ísrælska fána í rústum bandaríska sendiráðsins í Beirút. Sendiráðið sprakk í loft upp 1984 er gerð var á það sjálfsmorðsárás með þeim afleiðingum að 62 létu lífið. Mótmælendumir kyijuðu „Eyð- um Ameríku" sem þeir gengu eftir götunum í átt að sendiráðinu. Zuheir Kanj, sem er háttsettur innan Hezbollah, sagði við múginn: „Hvíta húsið verður jafnað við jörðu eins og þetta sendiráð." í tilkynningu frá Fatah-bylting- arráðinu, sem Abu Nidal stjómar, sagði að flokkurinn ætlaði að láta þung högg ríða á Bandaríkjamönn- um. Aröbum var ráðlagt að „halda sig fjarri bandarískum stofnunum, sem em helsta skotmark okkar. Abu Nidal er gefið að sök að hafa unnið rúmlega hundrað hryðjuverk gegn Bandaríkjamönn- um, Israelum og hófsömum aröbum síðan hann klauf sig frá Frelsissam- tökum Palestínu (PLO) 1974. Nidal er grunaður um að hafa staðið að baki sprengingunni í farþegaþotu TWA 2. apríl. Þar létust fjórir Bandaríkjamenn. Hálf milljón mótmælti í 90 borgum á Italíu Frankfurt, Peking', Amman, Malaga, Madrid, Stokkhólmi. TALSVERT hefur verið um mótmæli við sendiráð Bandaríkjanna vegna loftárásar þeirra á Líbýu aðfaranótt þriðjudagsins. Þannig særðust 17 lögreglumenn og 10 manns voru handteknir í Vestur- Þýskalandi, er um 10 þúsund manns í mörgum borgum landsins mótmæltu loftárásinni. Öryggisráðstafanir hafa verið hertar við bandarisk sendiráð víða um heim af ótta við hryðjuverk og í Vestur- Þýskalandi hefur verið sett á útgöngubann við herstöðvar á nóttunni frá 12 á miðnætti til klukkan 5 á morgnana. Á Spáni, Ítalíu, í Austurríki og Um 75 arabar söfnuðust saman Pakistan söfnuðust einnig þúsundir við sendiráð Bandaríkjanna og manna saman. í sumum tilfellum var um friðsamlegar aðgerðir að ræða, en í öðrum tilfellum þurfti lögregla að hafa afskipti af mót- mælunum. í 90 borgum Ítalíu safn- aðist um hálf milljón manna saman eftir að skólum var lokið og kom gagnrýni bæði á hlut Bandaríkja- manna og Líbýu að átökunum. Bretlands í Peking, hrópandi vígorð og formælingar í garð Bandaríkja- manna. Mótmælendur sem margir hverjir sögðust vera líbýskir náms- menn brenndu síðan bandaríska fánann. Um 30 manns söfnuðust saman fyrir fram bandaríska sendiráðið í Amman. Óeirðalögregla koma fljótt Þrjú blóðuglík AP/Símamynd Þijú blóðug lík fundust á þjóðvegí í fjöllunum fyrir austan Beirút í Líbanon í gær. Eru það lík þriggja Breta, sem rænt hafði verið. Maður, sem sagðist vera talsmaður fyrir samtök, er nefna sig Arabísku byltíngarsellurnar, sagði að mennirnir hefðu verið teknir af lífi í hefndarskyni fyrir árásir Bandaríkja- manna á Líbýu fyrr í vikunni. Lík mannanna þriggja sjást hér vafin í plastpoka í líkhúsi í bænum Bahdoum í Líbanon. Skoðanakönnun Daily Telegraph: Meiri hluti Breta á móti loftárásunum London, AP. MARGARET THATCHER, forsætisráðherra Bretlands, vann sigur í atkvæðagreiðslu í neðri deild brezka þingsins, er atkvæði voru greidd um tillögu stjórnarandstöðunnar um að víta hana fyrir að styðja loftárásir Bandaríkjamanna á Líbýu. Var tillagan felld með 325 atkvæðum gegn 206. Skoðanakannanir í Bretlandi sýna hins vegar, að meirihluti Breta er andvígur árásunum og stuðningi Thatcher við þær. Ræða Thatcher í umræðunum um tillöguna hlaut miklar undirtekir á meðal óbreyttra þingmanna íhaldsflokksins. Þingmenn stjóm- arandstöðunnar gerðu hins vegar harða hríð að henni með ásökunum um, að Bretland yrði nú aðal skot- mark hryðjuverkamanna og að aðgerðir Bandaríkjamanna myndu ekki verða til þess að hræða neinn frá hryðjuverkum. Gallup-skoðanakönnun á vegum dagblaðsins Daily Telegraph í gær, benti hins vegar til þess, að meiri- hluti Breta væri loftárásunum andvígur, því að samkvæmt niður- stöðum hennar eru 65% þeirra á móti þeim en 29% styðja þær. á staðinn og stöðvaði mótmælin. Þá mótmæltu unglingar loftárásinni við bandaríska sendiráðið í Stokk- hólmi. Brutu þeir þijár rúður þar með gijótkasti áður en lögregla leysti hópinn upp. Fyrirtækið IBM hefur hætt við söluráðstefnu fyrir Suður-Evrópu, sem halda átti í Madrid á Spáni 20.-21. apríl, vegna hótana Líbýu- manna um hryðjuverk á Spáni. Þá hafa um 85% hótelpantana Banda- ríkjamanna á Spáni verið afturkall- aðar af ótta við hryðjuverk. Þá hefur bandaríska sjónvarpsstöðin NBC hætt við að kvikmynda tvær myndir í Suður-Evrópu vegna spennunnar milli Líbýu og Banda- ríkjanna og af ótta við hryðjuverk. Æ fleiri útlendingar vilja yfirgefa Líbýu TrípóK.AP. VESTRÆNIR sljómarerindrek- ar segja að æ fleiri útlendingar í Líbýu vilji yfirgefa landið. Að sögn kanadísks sendiráðs- manns vilja um 300 af 1.000 Kan- adamönnum fara og breskur sendi- ráðsmaður segir að um helmingur þeirra 5.000 Breta, sem vinna í landinu, vonist til að komast í burtu. Utanríkisráðuneytið í London lætur ekkert uppi um það hvort ráðgert hafi verið að flytja breska þegna brott frá Líbýu. Um 18.000 sérfræðingar frá Vesturlöndum starfa við olíuiðnað í Líbýu og að auki vinna þar um 30.000 Tyrkir og 30.000 manns frá Suður-Kóreu. Belgíska sendiráðið í Trípólí fer með málefni Bandaríkjamanna. Að sögn belgísks sendiráðsstarfsmanns ráðleggja þeir fólki einfaldlega að hafa hægt um sig, bíða og sjá til og fara ekki út. Um 7.000 ítalir eru í Líbýu og íhugar ítalska stjómin nú að flytja þá á braut. Að auki má geta þess að um 2.000 Frakkar, 300 Hollend- ingar og 100 Belgar vinna í Líbýu. Sérfræðingur McDonnel Douglas-flugvélaverksmiðjanna: ísing á vængjum olli Ganderslysinu Ottawa. AP. Frá slysstaðnum við Gander. Ottawa, AP. FULLTRÚI McDonnell Douglas- flugvélaverksmiðjanna hélt því fram í gær að ísing á vængjum væri eina raunhæfa skýringin á flugslysinu í Gander 12. desem- ber sl., en þá fórust 248 banda- rískir hermenn, sem voru á heim- leið í jólafrí, og átta manna áhöfn, er DC-8 þota frá Arrow- flugfélaginu fórst í flugtaki. Þotan steyptist til jarðar nokkr- um sekúndum eftir að hún lyfti sér frá flugvellinum í Gander. Rann- sókn hefur leitt í ljós að frostregn var meðan flugvélin staldraði við í Gander, en sjónarvottar kveðast ekki hafa séð hvort ís var á vængj- um þotunnar eða ekki. Fulltrúi McDonnell Douglas, Ralph Bmmby, segir ekki þurfa nema örlítinn ís á frambrún vængja til að flugeiginleikar þotunnar rask- ist verulega. Ofrishraði hennar aukist um allt að 20-30% við smá- vægilega ísingu. Bmmby var kvaddur á fund rannsóknamefndar flugslysa í Kanada og hélt þar fram að ísing væri langlíklegasta skýringin á slysinu. Nefndin hefur þó ekki úti- lokað ýmsa möguleika aðra, svo sem hreyfílbilun, skemmdarverk eða þann möguleika að flugvélin hafi farizt vegna mistaka flug- manna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.