Morgunblaðið - 18.04.1986, Blaðsíða 28
; MORGUNBLAÐID. FÖSTOPAGUR 18,APRÍL1986
28
Tíminn og vatnið?
Ljósmyndirá Mokka
Á morgun, laugardag 19. apríl, opnar Davíð Þorsteinsson ljósmynda-
sýningu á Mokkakaffi. Á sýningunni verður eitthvað á þriðja tug
mynda, allar svarthvítar og allar teknar á götum Reykjavíkur á
undanfömum þrem árum.
Davíð er Reykvíkingur að eðli og uppruna. Hann fæddist fýrir
vestan Læk og sunnan Hringbraut árið 1948. í rúman áratug hefur
hann búið fyrir austan Fjall. Hann hefur tekið ljósmyndir sem áhuga-
maður í allmörg ár en hefur ekki hengt myndir sínar á veggi fyrr
en nú.
Ljósmyndimar eru teknar á fömum vegi í gamla bænum og sýna
m.a. hús, malbik og menn, ýmis veður og bifreiðir mannanna. Þær
eru allar teknar á 35 mm filmu. Sýningin stendur næstu þijár vikur.
(Fréttatilkynniug.)
„Frjálsir vegfarendur“
funda á Gauki á Stöng
Samtökin Frjálsir vegfarend-
ur efna til almenns fundar nk.
sunnudag, 20. apríl, kl. 14.00 á
veitingahúsinu Gauki á Stöng.
Fjallað verður um umferð gang-
andi og hjólandi vegfarenda á
höfuðborgarsvæðinu.
Á fundinum flytur Sveinn Guð-
mundsson verkfræðingur erindi,
sem hann kallar „Ógöngur í Reykja-
vík“ og sýnir myndir af ýmsum
hrellingum, sem verða á vegi þeirra,
sem hyggjast fara leiðar sinnar
gangandi eða hjólandi. Þá mun
Gestur Ólafsson, arkitekt og for-
stöðumaður Skipulagsstofu höfuð-
borgarsvæðisins, flytja erindi sem
nefnist „Gönguleiðir á höfuðborgar-
svæðinu".
Öllum sveitarstjómarfulltrúum á
svæðinu er sérstaklega boðið til
fundarins ásamt fulltrúum frá
embætti borgarverkfræðings.
Stuttar þingfréttir
Seðlabankafrumvarp
tíl síðari þingdeildar
Ahugi á varaflugvelli fyrir millilandaflug
Fundir vóru í Sameinuðu þingi
og neðri deild í gær, fimmtudag,
og almennar útvarpsumræður,
eldhúsdagsumræður, um kvöld-
ið. Sameinað þing samþykkti
þijár þingsályktanir og neðri
deild afgreiddi Seðlabankaf rum-
varp til efri deildar, og sjö efri
deildar stjóraarfrumvörp til
þingnefnda.
Stjómarfrumvarp um Seðla-
banka var afgreitt, nokkuð breytt,
til efri deildar. Frumvörp um húsa-
leigusamninga, innheimtustofnun
sveitarfélaga, Söfnunarsjóð íslands,
söluskatt og fasteigna og skipasölu,
öll komin frá efri deild, vóru af-
greidd til þingnefnda.
Þj óðarbókhlaða
Sex af sjö nefndarmönnum íjár-
hags- og viðskiptanefndar efri
deildar mæla með samþykkt from-
varps um þjóðarátak til byggingar
þjóðarbókhlöðu. Fromvarpið gerir
ráð fyrir því að ákveðinn eigna-
skatthluti, sem áður rann til hús-
næðismála, renni næstu ár til þess
að ljúka þjóðarbókhlöðu.
Alþjóðaflugvöllur við
Sauðárkrók
Flotastjóm Atlantshafsbandalags-
ins hefúr lýst áhuga á því að kann-
aður verði möguleiki á því að
byggður verði varaflugvöllur (milli-
landaflug) fyrir Keflavíkurflugvöll.
Engar formlegar viðræður hafa þó
farið fram um þetta efni.
Flotastjómin hefur boðið fram
fjármagn til forathugunar málsins.
Engar hugmyndir liggja fyrir um
vamarsveit eða gæzlulið við vara-
flugvöll né eldsneytisrými fyrir
flugvélar Atlantshafsbandalagsins.
Framangreint kom fram í svari
utanríkisráðherra við fyrirspum frá
Steinari Karli Guðnasyni (A.-Rn.)
um alþjóðaflugvöll við Sauðárkrók.
I svari ráðherra er einungis rætt
um áhuga á varaflugvelli en hvergi
minnst á staðarval.
Dilkakjöt á Bandaríkja-
markað
Kostnaður við markaðskönnun
fyrir dilkakjöt í Bandaríkjunum á
liðnu ári reyndist um 780 þúsund
k.-ónur. Sölutilraun þessi bar ekki
áraogur. Þetta kemur fram í svari
landbúnaðarráðherra við fyrirspum
frá Davíð Aðalsteinssyni (F.-Vl.).
Fram kemur í svari ráðherra að
Sláturhús Kaupfélags Borgfirðinga
fullnægi kröfum bandarískra yfir-
valda varðandi kjötinnflutning.
Þijár þingsályktanir:
Afmæli
kristnitöku
Sameinað þing samþykkti
þijár þingsályktanir i gær:
í fyrsta lagi þingsályktun-
un, sem felur forsetum Al-
þingis að leggja línur um það,
hvera veg Alþingi minnist að
sínu leyti þúsund ára afmælis
kristnitöku íslendinga árið
1.000.
í annan stað þingályktun er
felur í sér heimild til að fullgida
samning um Alþjóðahugverka-
stofnun á vegum Sameinuðu
þjóðanna.
Og loks þingsályktun sem
felur í sér staðfestingu á al-
þjóðasamþykkt um öryggi físki-
skipa.
Fyrsta tillagan var borin fram
af forsetum þingsins og for-
mönnum þingflokka. Síðari til-
lögumar vóro fluttar af ríkis-
stjóminni.
Lögverndun starfsheitis kennara:
Menntamálanefndir sammála
Málfreyjur:
Varasvæðisf orseti
í heimsókn hér
í heimsókn hjá Landssamtök-
um málfreyja á Íslandi/ITC er
varaforseti V. svæðis ITC Dor-
een Barnett frá S-Afríku. Hún
kemur hingað frá Englandi og
dvelur hér dagana 17.-21. apríl
nk. en heldur síðan áfram til
Bandaríkjanna á fund hjá al-
þjóðastjórninni.
Varaforsetinn kemur til að hitta
íslenskar málfreyjur og fer m.a.
norður til Mývatns og afher.dir
deildinni F'lugu stofnskrána.
I Reykjavík verður fundur með
varaforsetanum laugardaginn 19.
Doreen Barnett varaforseti V.
Svæðis Málfreyja.
apríl nk. kl. 10.00 f.h. í Norræna
húsinu.
Þar flytur varaforsetinn, Doreen
Bamett, erindi og svarar spuming-
um.
Erindið verður flutt á ensku en
túlkur verður á fundinum.
Stjórnarfrumvarp til laga um
lögverndun á starfsheiti kennara
varð tilefni nokkurra orðaskipta
í neðri deild Alþingis í gær,
fimmtudag. Halldór Blöndal,
formaður menntamálanefndar
þingdeildarinnar, sagði af því
tilefni að menntamálanefndir
beggja þingdeilda hefðu unnið
saman að skoðun málsins, til að
flýta fyrir afgreiðslu þess, og
náð samkomulagi um efnisatriði
og málsmeðferð. FuIIur vilji
stæði til framgangs málsins á
þessu þingi.
Hjörleifur Guttormsson (Abl-Al.)
kvaddi sér hljóðs um þingsköp og
innti þingdeildarforseta eftir því,
hversvegna þetta tiltekna mál, sem
þingnefnd hefði þegar skilað áliti
um, væri ekki fyrirtekið á þessum
fundi.
Halldór Blöndal, formaður
menntamálanefndar, og Ingvar
Gíslason, forseti þingdeildarinnar,
sögðu efnislega, að samkomulag
hafi orðið um það milli forseta og
talsmanna þingflokka, að afgreiða
eitt stjómarfrumvarp (Seðlabanka-
fromvarp) til efri deildar, sem og
sjö önnur stjómarfromvörp (þegar
afgreidd í efri deild) til þingnefnda,
umræðulaust. Almennar útvarps-
umræður (eldhúsdagsumræður)
yrðu um kvöldið og dagfundur
styttur með hliðsjón af því að menn
hefðu nokkurt tóm til undirbúnings
þeirra. Auk þess hefðu þingmenn
eins þingflokks, Kvennalistans,
fjarvistarleyfi.
Nokkurt orðaskak varð af fram-
angreindu tilefni. Sverrir Hermans-
son, menntamálaráðherra, sagði
hér um samkomulagsmál að ræða,
sem tengt væri kjarasamningum
við kennara, og ekki ástæða til að
óttast um framgang þess, þrátt
fyrir það vinnulag sem forseti hafí
ákveðið í samráði við talsmenn
þingflokka.
Finnur opinberar vanþekkingu sína
á vaxtarrækt með ótvíræðum hætti
— segir Hjalti Gestsson dómnefndarmaður um ummæli
Finns Karlssonar eftir íslandsmótið í vaxtarrækt
Akureyri.
„í RAUN ERU ummæli þau
sem Finnur Karlsson við-
hafði eftir íslandsmótið i
vaxtarrækt svo fáránleg að
þau eru ekki svaraverð. Það
er slæmt þegar einstakling-
ur sem rekur vaxtarræktar-
stöð opinberar vanþekkingn
sina á vaxtarrækt með svo
ótviræðum hætti,“ sagði
Hjalti Gestsson á Akureyri,
er Morgunblaðið bar undir
hann ummæli Finns Karls-
sonar i blaðinu á þriðjudag
um Islandsmótið í vaxtar-
rækt sem fór fram um helg-
ina, en Hjalti átti sæti i dóm-
nefnd.
„Sú staðreynd að stór hluti
besta vaxtarræktarfólks á ís-
landi komi frá einni stöð á
Akureyri virðist óþolandi í aug-
um hans og fárra annarra aðila.
Það er staðreynd að það hafa
ætíð verið bæði Reykvíkingar
og Akureynngar sem skipa dóm-
nefnd hvetju sinni og dæma eftir
bestu samvisku. Sú regla er
einnig höfð að dómari dæmi
ekki nákominn ættingja - þannig
gekk ég til dæmis úr dómnefnd-
inni þegar Sigurður bróðir minn
átti i hlut,“ sagði Hjalti.
Hann sagði að sér virtist sem
margir, þar með talinn Finnur
Karlsson, skilji ekki þá stað-
reynd að í vaxtarrækt sé ummál
og kílóafjöldi ekki aðalatriðið.
„Finnur Karlsson er ekki með-
limur í Landsambandi vaxtar-
ræktarstöðva en þau samtök
héldu þetta mót. Hann hefur
því í raun ekki tillögurétt í þessu
máli og kemur það ekki við. Mun
hann sjálfur hafa sagt í sam-
tölum við menn að hann gangi
ekki i samtökin meðan Akur-
eyringur er formaður," sagði
Hjalti - en formaður nú er Gisli
Rafnsson frá Akureyri.
„Finnur hefur sagt að þetta
mál sé hneyksli - það er rétt að
því marki að það er hneyksan-
legt að hann, algjörlega þekk-
ingarlaus og fordómafullur,
skuli hella svívirðingum og sora
yfir dómara og mótsstjóm á
keppnisstað og klykkja siðan út
með takmarkalausu blaðri i fjöl-
miðlum. Ég tek sem dæmi að
Finnur segir að Jón Páll hafí
verið látinn koma á sviðið um
leið og Valbjörn Jónsson og
forkeppnin hafi þannig verið
eyðilögð fyrir Valbimi. Þetta er
alrangt - Jón Páll tók það upp
hjá sjálfum sér að stökkva inn
á sviðið um leið og Valbjörn og
braut Jón þannig i raun þær
reglur sem settar eru um móts-
haldið," sagði Hjaiti Gestsson.