Morgunblaðið - 18.04.1986, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR18. APRÍL1986
Víglundur Péturs-
son — Minning
Fæddur 9. desember 1908
Dáinn 4, mars 1986
Tíminn líður. Allt líf hefur sinn
gang og ekki er vitað fyrr en gripið
er í tauma hins lifandi lífs og það
látið hverfa sjónum okkar sem eftir
lifum.
Nú er látinn afi minn Víglundur
Pétursson. Þegar ég ri§a upp upp-
vaxtarár mín er hann sem greyptur
í hug minn. Hann var elstur af stór-
um systkinahópi, sem gerði það að
verkum að hann fór snemma að
heiman að vinna. Þetta hefur
eflaust mótað óharðnaðan ungling-
inn því ég man varla eftir honum
öðruvísi en sívinnandi. Hann fann
sér alltaf eitthvað að sýsla við. Ég
minnist þess þegar afi og amma
komu til okkar í Sölvanes um helgar
og í fríum sínum frá Akureyri. Það
var alltaf nóg að gera í sveitinni
og það sótti afi minn í. Það var oft
sem ég var með honum í þessum
aukaverkum hans, og lærði ég
mikið af því. Hann var vanur bú-
störfum, því hann var bóndi, síðast
á Fjalli í Kolbeinsdal, uns hann
varð að hætta vegna heilsubrests.
Þrátt fyrir þá mæði sem hamlaði
honum hrejrfings á seinni árum, var
ekki dregið að sér við bústörfin
heima í Sölvanesi. Þessi harka og
óbilandi áhugi hafði mikil áhrif á
mig. Hann var mér sem kennari
þann tíma sem hann var hjá okkur
á þessum árum. Ætíð hefur verið
mikið samband milli afa og okkar
systkinanna og eigum við þvf marg-
ar minningar og góðar um hann.
Nú þegar við kveðjum Víglund
er ekki hægt annað en að hugsa
með þakkiæti um það sem hann
gaf okkur í lifanda lífi.
Lifi minning afa míns.
Guðmundur Svanberg Pétursson
„Sælir eru hjartahreinir, þvi þeir
munu Guð sjá.“ Mér fínnst vel við
hæfi að hefja þessa minningargrein
um afa minn á þessum orðum frels-
arans. Ég er ekki í nokkrum vafa
að Guð hefur tekið á móti afa
opnum örmum.
Ég man best eftir afa sem sístarf-
andi, vandvirkum og jarðbundnum
eldri manni sem þótti vænt um að
geta hjálpað og aðstoðað aðra. Afi
var aldrei gefinn fyrir að bera til-
finningar sínar utan á sér en aldrei
duldist manni samt hvað honum
þótti innilega vænt um okkur sem
stóðu honum næst. Hann var dug-
legur að leggja okkur lífsreglumar
þó svo að ekki væri alltaf farið eftir
þeim. Afí eignaðist aldrei mikinn
veraldlegan auð en sá fjársjóður
dýrmætastur, sem hann átti hér á
jörð, fannst honum vera það líf sem
hann átti þátt í að vekja; bam,
bamaböm og bamabamaböm.
Ekkert veraldlegt átti þó hug hans
jafnmikið og gamli bfllinn hans.
Hann nostraði endalaust við hann
og hugsaði um hann eins og lifandi
vera. Afí var ákaflega farsæll bíl-
stjóri og var hann nýbúinn að fá
viðurkenningu sem honum þótti
mjög vænt um þ.e.a.s. viðurkenn-
ingu fyrir 20 ára öraggan akstur.
Afi var búinn að þjást lengi af
þeim sjúkleika sem dró hann til
dauða. Líkami hans var orðinn
gamall og lúinn en alltaf var hann
andlega hress og ávalt stutt í grín
og glens. Þó svo að hann væri
blessunarleg lausn fyrir afa að fá
að deyja, þá fylltist ég trega og
sorg þegar hann kvaddi. Hann var
óijúfanlegur hluti daglegs lífs og
vissulega verður hann það áfram.
Dauðinn er ekkert nema annað líf.
Við afkomendur hans höldum
áfram veraldlegri baráttu og þökk-
um fyrir minninguna um okkar ást-
kæra vin og félaga, Víglund afa.
Sólborg Alda Pétursdóttir
Kveðjuorð:
Björn Stefánsson
fv. skólastjóri
Það var á köldum og muskuleg-
um haustdegi árið 1938, sem fund-
um okkar Bjöms Stefánssonar bar
fyrst saman. Báðir voram við þá
að þreyta inntökupróf upp í eldri
deild Héraðsskólans í Reykholti, til
að stytta okkur leið gegnum skól-
ann. Einhvem veginn slömpuðumst
við gegnum þessi próf og urðum
‘herbergisfélagar næsta vetur í skól-
anum. Fljótt laðaðist ég að þessum
unga og geðþekka Ólafsfírðingi, þó
ég væri nær 8 áram yngri. Með
okkur myndaðist vinátta, sem hefur
haldist öll þessi ár. Mér fannst Bjöm
á þessum árum talsvert lífsreyndur
maður. Hafði m.a. verið á sfld á
Siglufirði og kunni frá mörgu að
segja. Næsta haust fylgdumst við
að og tókum próf upp í Kennara-
skóla íslands og þrátt fyrir að
margir sæktu um skólavist þar
sluppum við enn gegnum nálaraug-
að.
Við sátum næstu þrjá vetuma
við sama borðið í þessum ágæta
skóla og bundumst enn tryggari
vináttuböndum. Bjöm varð tíður
gestur hjá frændfólki mínu, þar sem
ég hafði athvarf um þessar mundir.
Bjöm gerðist strax fyrirliði okkar
bekkjarfélaganna og var bekkjar-
formaður öll árin, enda var hann
vel til foringja fallinn. Hann var
hörkugóður námsmaður, ljúfmenni
í allri umgengni, ósérhlífinn og
skyldurækinn til allra starfa. Enn-
fremur var hann eldri og lífsreynd-
ari en flest af bekkjarsystkinunum.
Þessi árgangur lauk burtfarar-
prófi frá Kennarskólanum við Lauf-
ásveg vorið 1942. Úti í heimi geisaði
þá stríð og válegar blikur vora á
lofti í heimsmálunum, enda fóram
við ekki varhluta af því. Gegnum
suðurglugga skólahússins mátti
greina miklar hemaðarfram-
kvæmdir á flugvellinum og véla-
gnýr og annar hemaðarskarkali
raskaði ró okkar við Laufásveginn.
En samt var þetta vonglaður hópur
ungmenna, sem hélt út í lífsstarfíð
á þessu styijaldarvori.
Leiðir skildi. — Bjöm hélt að
námi loknu norður til æskustöðv-
anna í Ólafsfirði. Gerðist þar kenn-
ari og síðar skólastjóri og strax
hlóðust þar á hann margþætt
ábyrgðar- og trúnaðarstörf. Bjöm
var mikill félagshyggju- og hug-
sjónamaður Hann var harðduglegur
og skyldurækinn til allra starfa.
Unni sinni heimabyggð og vildi láta
gott af sér leiða. Oft mun vinnudag-
ur hans hafa orðið alllangur og
hvíldarstundir fáar.
Atvikin höguðu því þannig að
leiðir okkar Bjöms skildi í allmörg
ár, en brátt kom að þvf að við
endumýjuðum okkar fomu kynni.
Um 20 ára skeið ferðaðist ég á
vegum Þjóðleikhússins um landið
með leikflokkum þess og var þá
leikið í flestum samkomuhúsum á
landinu. Oft kom ég ásamt sam-
starfsmönnum mínum til Ólafs-
flarðar og var þá leikið í hinu
glæsta félagsheimili þeirra, Tjam-
arborg, sem Bjöm átti sinn stóra
þátt í að koma upp. Jafnan gisti ég
þá á heimili Bjöms og hinnar geð-
þekku konu hans, Júlíönu. Böm
þeirra §ögur vora þá að vaxa úr
grasi. A heimili þeirra var gott að
koma, enda mun þar oft hafa verið
gestkvæmt. Snyrtimennska hjá
þeim hjónum átti vart sinn líka.
Óllu var þar vel fyrir komið. Hús
þeirra á Aðalgötu 20 var ekki há-
reist og ekki var þar hátt til lofts
né vítt til veggja, en þar ríkti hjarta-
hlýja húsbændanna og góður heim-
ilisbragur.
Nú að leiðarlokum vil ég þakka
Bimi langa samfylgd og tiygga
vináttu. Megi moldin verða honum
mjúk og líknsöm. Hann var jarð-
sunginn frá sóknarkirkjunni í Ólafs-
fírði laugardaginn 5. aprfl sl.
Ég leyfi mér fyrir hönd gamalla
skólasystkina úr Kennaraskólanum
að senda Júlíönu, bömum þeirra
hjóna og öðram nánum aðstandend-
um hugheilar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning þessa mæta
manns.
Klemenz Jónsson
raöauglýsingar
raðauglýsingar
raöauglýsingar
Askorun til eigenda og
ábyrgðarmanna fasteigna
um greiðslu fasteigna-
gjalda í Reykjavík
Fasteignagjöld í Reykjavík 1986 eru nú öll
gjaldfallin. Gjaldendur sem ekki hafa gert
skil innan 30 daga frá birtingu áskorunar
þessarar, mega búast við, að óskað verði
nauðungaruppboðs á eigum þeirra í sam-
ræmi við 1. nr. 49/1951 um sölu lögveða án
undangengins lögtaks.
Reykjavík 16. apríl 1986.
Gjaldheimtustjórinn í Reykjavík.
Seltirningar
Athygli er vakin á að sunnudaginn 20. apríl
kl. 14.00 verður í Seltjarnarneskirkju kynning-
arguðsþjónusta séra Ólafs Jóhannssonar
umsækjanda um prestsembætti í Seltjarnar-
nesprestakalli. Útvarpað verður á FM-bylgju
Sóknarnefnd Seltjarnarness.
Véltæknifræðingur
Járniðnaðarfyrirtæki úti á landi vill komast
í samband við véltæknifræðing sem hefur
hugmyndir um framleiðsluiðnað eða smíði á
hvers konar vélbúnaði. Eignaraðild kemur
mjög til greina.
Þeir sem hafa áhuga leggi inn fyrirspurnir á
augld. Mbl. fyrir 23. apríl nk. merktar:
„A — 8700“.
Kartöflu- og grænmetis-
ráðstefna
á'Hótel Sögu þriðjudaginn 22. apríl kl. 9.30-
17.00. Ráðstefnan er haldin á vegum Búnað-
arfélags íslands og Stéttarsambands
bænda. Flutt verða erindi um flokkun og mat
garðávaxta, geymslu, meðferð og innflutning
þeirra.
Skipst verður á skoðunum og kynnt viðhorf
hagsmunahópa.
Öllum er frjálst að taka þátt í ráðstefnunni
en óskað er eftir að þátttaka sé tilkynnt í
síma 19200 hjá bændasamtökunum fyrir 22.
apríl.
Bændasam tokin.
fundir — mannfagnaöir {
Skotfélag Reykjavíkur
Aðalfundur verður haldinn laugardaginn 19.
apríl 1986 kl. 14.00 að Dugguvogi 1.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundastörf.
Stjórnin.
Utboð
Tilboð óskast í uppsteypu og utanhússfrá-
gang húss á Jörfa við Vesturlandsveg í
Reykjavík.
Útboðsgögn fást á skrifstofu Umsýsludeildar
Pósts og síma, Landssímahúsinu við Austur-
völl, gegn 5000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Umsýslu-
deildar þriðjudaginn 6. maí kl. 11.00 árdegis.
Póst- og símamálastofnunin.
uppboö
Málverkauppboð
— Málverkauppboð
Myndir þær sem boðnar verða á málverka-
uppboði á Hótel Borg sunnudaginn 20. apríl
nk. verða sýndar í Gallerí Borg í dag, föstu-
dag, frá 10-18 og á morgun laugardag frá
14-18. Uppboðið hefst kl. 15.30 á Hótel
Borg á sunnudag.
nonG
Pósthússtræti 9.
Sími24211.