Morgunblaðið - 18.04.1986, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR18. APRÍL1986
Hvers vegna
þorðirðu ekki?
— spyrja sænsku blöðin Torbjörn IMilsson
„HARMLEIKUR" - „Hræðilegt
áfall" - „Grimmileg örlög“. Á
þessa leið voru fyrirsagnir
sænsku dagblaðanna eftir að
Gautaborg hafði tapað fyrir Barc-
elona í undanúrslitum Evrópubik-
arsins, í einum mest spennandi
leik sem sést hefur á Spáni.
Eftir 3:0 sigur Gautaborgar í fyrri
leiknum áttu flestir von á að liðið
kæmist alla leið í úrslitaleikinn.
Barcelona þurfti að vinna leikinn i
fyrrakvöld með að minnsta kosti
fjögurra marka mun til að komast
áfram. Eftir venjulegan leiktíma var
staðan 3:0 fyrir Barcelona og liðin
því jöfn samanlagt. Ekkert var síð-
an skorað í framlengingunni, en
Barcelona vann vítaspyrnukeppn-
ina 5:4.
„Svo nálægt - og svo sárt“,
sagði Aftonblaðið í fyrirsögn sem
náði yfir heila opnu. „Barcelona lék
mjög vel. Þetta var eitthvað allt
annað lið en var hér í Gautaborg
fyrir hálfum mánuði", sagði blaðið.
„Þeir voru alls ekki grófir. Þeir tóku
mikla áhættu - og unnu“.
Expressen nefndi að lið Gauta-
borgar hafi átt tvö stangarskot í
leiknum, eitt skot í slá og að dóm-
arinn hafi dæmt eitt mark ógilt.
‘Svona óheppni höfum við aldrei
Keila:
>
Helgi og Birna
slógu í gegn
HÖRKUSPENNANDI keppni var á
Páskamótinu í keilu sem lauk um
síðustu helgi f keilusalnum f
Öskjuhlíð. Keppt var í einstakl-
ings-, para- og liðakeppni. Úrslit
f einstakiingskeppni karla urðu
þannig:
1. Höskuldur Höskuldsson
2. Þorgrímur Einarsson
3. Halldór Halldórsson
4. Skjöldur Árnason
5. Halldór R. Halldórsson
Einstaklingskeppni kvenna:
1. HrafnhildurÓlafsdóttir
2. Bryndís Halldórsdóttir
3. Dóra Sigurðardóttir
4. Birna Þórðardóttir
5. Hafdís Hafsteinsdóttir
Parakeppnin var mjög spenn-
andi og tóku 18 pör þátt í henni.
Eitt par lék þar áberandi vel og
skaut öllum öðrum pörum afturfyr-
ir sig en það voru hjónin Helgi
Ingimundarson og Birna Þórðar-
dóttir.
1. Helgi Ingimundarson —
Birna Þórðardóttir.
2. Ásgeir Heiðar —
Dóra Sigurðardóttir.
3. Höskuldur Höskuldsson —
Svava Rafnsdóttir.
4. Alois Raschhofer —
Sóiveig Guðmundsdóttir.
5. SkjöldurÁrnason —
Hrafnhildur Ólafsdóttir.
Liðakeppnin var einnig mjög
spennandi og bar þar hæst úrslita-
leik milli Fellibyls og NASA, en það
lið var skipað 2 Keflvíkingum og 2
Bandaríkjamönnum sem náð hafa
umtalsverðum árangri í keilusaln-
Skíði:
Hafsteinn
endurráðinn
HAFSTEINN Sigurðsson, lands-
liðsþjálfari i alpagreinum, hefur
verið endurráðinn landsliðsþjálf-
ari SKÍ út næsta keppnistímabil.
Hafsteinn hefur verið þjálfari
•»!iðsins undanfarinn ár með góð-
um árangri.
Þjálfaranámskeið (B-námskeið)
í alpagreinum fer fram á ísafirði
dagana 17. til 24. apríl. Leiðbein-
endur á námskeiðinu verða Haf-
steinn Sigurðsson og Ingvar Ein-
arsson.
um á Keflavíkurflugvelli. Leikur
þessi var mjög spennandi og réð-
ust ekki úrslit hans fyrr en í síðustu
skotunum. Fellibylur sigraði meö
650 stigum á móti 598. En úrslit
í liðakeppninni urðu sem hér segir:
1. Fellibylur
2. NASA
3. Keiluvinir
4. Víkingasveitin
5. Glennurnar
Einnig voru veitt verðlaun fyrir
hæstu skor, og hlaut Höskuldur
Höskuldsson hæstu skor karla,
237 stig og Birna Þórðardóttir fyrir
hæsta skor kvenna, 198 stig.
fyrr orðið vitni að á knattspyrnu-
vellinum", sagði blaðið.
En Expressen gagnrýnir einnig
Torbjörn Nilsson harðlega fyrir að
hafa neitað að taka vítaspyrnu í
vítakeppninni eftir leikinn. Torbjörn
Nilsson er markheppnasti leik-
maður Evrópukeppnanna í knatt-
spyrnu á þessum áratugi, og án
vafa besti skotmaður sænska liðs-
ins. En hann hefur haft orð á sér
fyrir að vera slæmur á taugum
þegar mikið liggur við.
„Hvers vegna þorðirðu ekki?“
spyr Expressen í tveggja síðna
fyrirsögn. Og Nilsson svarar í við-
tali við blæðið: „Ef þú vilt ekki taka
víti þá á ekki að þvinga þig til þess.
Og ég vildi ekki taka þetta víti“.
Vítaspyrnuna sem um ræðir - þá
fimmtu - tók Ronald Nilsson og
brenndi af. Með því að skora hefði
hann tryggt liðið sínu sæti í úrslit-
unum.
• Stöðugt fjölgar þeim sem iðka
Keilu sem keppnisiþrótt.
AP/Simamynd
• Einn leikmanna Gautaborgar f leiknum sögulega á Nou Camp í
Barcelona.
Knattspyrnu-
hneyksli
á ítalfu
TÍU manns hafa verið handteknir
og þrír framkvæmdastjórar ft-
alskra fyrstudeildarliða hafa ver-
ið yfirheyrðir vegna ólöglegrar
veðmálastarfsemi.
Giuseppe Marabotto, saksókn-
ari í Torino, sem hefur með rann-
sókn málsins að gera sagði á
miðvikudaginn að samtök í Torino
og Róm skipulegðu ólöglega veð-
Körfubolti:
Kvennaliðið á Polar Cup
ÍSLAND hefur einu sinni áður
tekið þátt í Polar Cup kvenna fyrir
12 árum síðan, þannig að allur
stúlkurnar eru að leika sína fyrstu
landsleiki. Lítið vitum við um getu
hinna liðanna en þó vitum við að
þau eru öll töluvert betri en ís-
tenska liðið. Finnska og sænska
liðið hafa skipst á um Norður-
landarneistaratitilinn síðustu ár.
• Jón Helgi Jóhannesson, framkvæmdastjóri Royal Fried Chicken,
afhendir Hreini verðlaunin.
Á úrslitaleikinn
DREGIÐ hefur verið i getraun
þeirri er veitingastaðurinn Roy-
al Fried Chicken og Flugleiðir
hf. héldu varðandi heimsmeist-
aramótið f handknattleik í Sviss
fyrr á þessu ári.
Vinningshafi reyndist vera
Hreinn Jónasson í Kópavogi.
Verðlaunin eru eins og fram
hefur komið helgarferð með
Flugleiðum fyrir 2 til London og
auk þess miðar á úrslitaleikinn í
Mjólkurbikarnum á Wembley er
fram fer nú á sunnudaginn.
(Fréttatilkynning)
I landsliðinu eru eftirtaldir leik-
menn: Kolbrún Leifsdóttir ÍS, fyrir-
liði, Guðrún Gunnarsdóttir ÍR,
varafyrirliði, Auður Rafnsdóttir
ÍBK, Guðlaug Sveinsdóttir ÍBK,
Björg Hafsteinsdóttir ÍBK, Hafdís
Helgadóttir ÍS, Helga Friðriksdóttir
ÍS, Þóra Gunnarsdóttir ÍR, Vala
Úlfljótsdóttir ÍR, Þórunn Magnús-
dóttir UMFN.
Þjálfari er Kolbrún Jónsdóttir og
aðstoðarþjálfari er Margrét Eiríks-
dóttir, fararstjóri Þóra Steffensen
og dómari með liðinu verður Krist-
björn Albertsson.
Til að fjármagna ferðina gáfu
stúlkurnar út blað „Uppkast" og
voru mörg fyrirtæki sem lögðu
okkur þar lið og kunnum við þeim
bestu þakkir fyrir. Þá var Guðrún
Ólafsdóttir umboðsmaður fyrir
Lotti-íþróttavörur á íslandi svo
rausnarlegt aö gefa landsliðinu
bæði keppnis- og upphitunarbún-
inga. Þarf ekki að tíunda hversu
mikill styrkur það er.
2ttovjumtiTní>it>
málastarfsemi
knattspyrnu, og
tengslum
að sumir
við
hinna
grunuðu hefðu reynt að hafa áhrif
á úrslit leikja í fyrstu og annarri
deild síðan 1985.
Engir leikmenn voru sagðir
koma við sögu í þessu máli, en
sem kunnugt er voru nokkrir
heimskunnir knattspyrnumenn,
þeirra á meðal Paolo Rossi, settir
í löng leikbönn vegna þátttöku í
ólöglegum veðhringjum. Fram-
kvæmdastjórarnir sem tengjast
málinu nú eru Italo Allodi hjá
Napoli, Tito Corsi frá Udinese og
Franco Janich frá Bari. Allodi sagði
af sér embætti strax eftir yfir-
heyrsluríNaplolí.
Einu löglegu veðmálin í tengsl-
um við knattspyrnu á ítalíu eru rík-
isreknar getraunir.
Gunnlaugur
tekur við
af Guðmundi
Akureyri.
GUNNLAUGUR Björnsson hefur
tekið við þjálfun 1. deildar liðs
Þórs í knattspyrnu kvenna af
Guðmundi Svanssyni.
Guðmundur hefur þjálfað stúlk-
urnar undanfarin þrjú ár og byrjaði
með þær í vetur - en hefur nú látið
af störfum. Þórsliðið varð í 5. sæti
1. deildarinnar í fyrrasumar.
Gunnlaugur Björnsson lék hér á
árum áður með KA en hefur nokk-
uð fengist við þjálfun undangengin
ár.