Morgunblaðið - 18.04.1986, Page 47

Morgunblaðið - 18.04.1986, Page 47
-MÖRGíInWÍaÐIÐ; jktérÚDÁGUR 18. A^Íl 1986- - 47" Pálmar skoraði 31 það dugði þó ekki ÍSLENDINGAR töpuðu fyrir Port- úgal, 77:81, í Evrópukeppninni í körfuknattleik í Laugardalshöll í gærkvöldi. Portúgalir höfðu 12 stiga forskot í leikhléi, 32:44, eftir mjög slaka byrjun íslenska liðs- ins. Pálmar Sigurðsson var eini leikmaður íslands sem náði að sýna sínar róttu hliðar. Hann skoraði 31 stig þar af 22 í seinni hálfleik. Það var augljóst hvert stefndi í upphafi fyrri hálfleiks. Portúgalir komust 11 stig yfir þegar fimm mínútur voru liðnar af leiknum, 4:15. íslendingar náðu að laga stöðuna eða réttara sagt Símon Ólafsson sem gerði fyrstu níu stig- in og er 6 mínútur voru iiðnar var staðan 9:15 fyrir Portúgala. Nær þeim í fyrri hálfleik komust Islend- ingar ekki. Hittni var afar slæm og sömu sögu má segja um fráköstin. Portúgalir komust mest í 22. stiga forskot er staðan var 19:41 og 3 mínúturti! leikhlés. Síðustu mínúturnar í fyrri hálf- Vorfagnaður hjáGR VORFAGNAÐUR GR verður hald- inn í golfskálanum f Grafarholti á morgun, laugardag kl. 20.00. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá. Allt útlit er fyrir að uppselt verði á fagnaðinn og þvf nauðsynlegt að tryggja sér miða hjá framkvæmdastjóra. ísiand — Portúgal 77:81 leik náði íslenska liðið að klóra í bakkann og minnkaði muninn nið- ur í 12 stig. Léku þá maður á mann og tókst vel upp. Þetta var eini leikkaflinn í hálfleiknum sem íslenska liðið sýndi góða baráttu. í leikhléi hafa íslensku strákarnir áreiðanlega fengið að heyra það hjá Einari Bollasyni, þjálfara. Þeir tóku sig saman í andlitinu og náðu að halda í við Portúgalina og var munurinn þetta 10 til 15 stig, en vantaði herslumuninn. Leikurinn virtist svo gott sem tapaður er staðan var 57:72 er tæpar sjö mínútur voru til leiksloka. Þá tók Pálmar til sinna ráða og sýndi hreint stórkostleg tilþrif og skoraði þá 10 stig í röð og voru körfurnar margar hverjar mjög glæsilegar, óð inn í gegnum vörnina eða þriggja stiga körfur sem snertu varla hringinn. Munurinn var svo 11 stig er 2 mínútur voru eftir og Portúgalir með sigurinn í höndunum og spil- uðu uppá að halda knettinum. ís- lendingum tókst þó að saxa á muninn og var hann fjögur stig er upp var staðið. Leikurinn var eins og áður segir „Það eru ekki mjög slakur að hálfu íslenska liðs- ins. Pálmar stóð að vísu nokkuð uppúr og Símon sýndi sinn besta leik í keppninni, sérstaklega í upphafi. Valur Ingimundarson var ekki svipur hjá sjón og sést best á því að hann skorar aðeins sex stig og öll úr vítaskotum. Liðið réð hreinlega ekki við hraða Portúgal- ana, sem spiluðu mjög fast og komust upp með það. Dómarar leiksins eru sérkafli útaf fyrir sig. Þeir voru hreint út sagt hörmulega lélegir. Voru ekki samkvæmir sjálfum sér og gerðu marga furðulega hluti. Dómararnir voru sænskur og norskur og er furðulegt að norskur dómari skuli dæma þennan leik þar sem íslend- ingar og Norðmenn voru þeir einu sem ekki höfðu tapað leik og eiga eftir að leika innbyrðis á íaugar- daginn. Þessi úrslit eru því mjög hagstæð fyrir norska liðið og var dómarinn að mati undirritaðs mjög hlutdrægur í dómgæslu sinni. Möguleikar íslands eru þó ekki úr sögunni þar sem (sland á að leika gegn Norðmönnum á morg- un, laugardag. Ef þeim tekst að sigra vinna þeir keppnina þar sem innbyrðisleikur ræður ef lið eru jöfn að stigum. Áhorfendur ættu því að hvetja íslenska liöið gegn Norðmönnum á morgun með því að fylla Höllina. - Val Morgunblaðið/Júlíus • Jón Kr. Gíslason skorar hér I leiknum gegn Portúgal f gærkvöldi. íslenska liðið náði sér ekki á strik og tapaði með 77 stigum gegn 81. Norðmenn heppnir að vinna Skota — besti leikur mótsins til þessa alltaf jólin“ — sagði Einar Boilason þjálfari „VIÐ komum bara ekki tilbúnir í þennan leik. Það er hreint ótrú- legt hvað dómararnir voru slakir og létu Portúgala komast upp með grófan leik. Við áttum bara ekki von á þessu,“ sagði Einar Bollason, landsliðsþjálfari, eftir leikinn. „Það eru ekki alltaf jólin í þessu. Ég er þó stoltur af strákunum að missa ekki móðinn í seinni hálfleik,- Pálmar og Símon voru þeir einu sem sýndu sitt rétta andlit, aðrir léku undir getu. Við getum unnið Norðmenn á laugardaginn ef okkur tekst vel upp með stuöningi áhorf- enda,“ sagði Einar og var ekki allt- of hress með frammistöðu dómar- anna í leiknum og taldi það vera hneyksli að láta norskan dómara dæma svona mikilvægan leik. NORÐMENN sigruðu Skota f besta leik Evrópumótsins f körfu- bolta til þessa, 86:83, f Laugar- dalshöll f gærkvöldi. Leikurinn var jafn og spennandi allan tfmann og var staðan f hálfleik 48:44 fyrir Norðmenn. Frammistaða Skota kom nokkuð á óvart f þessum leik og gat sigurinn endað hvoru megin sem var. Skotar byrjuðu mjög vel og er fimm mínútur voru liðnar af leikn- um var staðan 8:16 fyrir Skota. Norðmenn söxuðu jafnt og þétt á forskotið og komust yfir í fyrsta sinn í leiknum er staðan var 29:28 og sjö mínútur til leikhlés. Síöan Stig 3. stiga körfur Vfta- skot Frá- köst Leik- tfmi Villur Bolta tapað Bolta stolið Stoð send. Varin skot Pálmar Sigurðsson 31 5 11/8 1 33 3 — 3 1 — Páll Kolbeinsson 2 0 0 1 16 5 — 1 1 1 Torfi Magnússon 2 0 2/2 4 24 3 — 0 2 2 Þorvaldur Geirsson 0 0 0 2 8 3 — 1 1 1 Símon Ólafsson 14 0 5/4 10 30 5 — 0 0 0 Matthías Matthíasson 8 0 4/4 1 14 1 — 0 0 2 Guðni Guðnason 2 0 2/2 4 19 12 — 1 0 0 Birgir Mikaelsson 6 0 0 3 8 2 — 0 0 0 Jón Kr. Gíslason 5 0 2/1 5 21 0 — 0 1 1 Valur Ingimundarson 6 0 6/6 2 27 4 — 2 5 ■■ 0 Noregur—Skotland 86:83 var jafnræði með liðunum og leiddu Norðmenn með fjórum stig- um í leikhléi eins og áður segir. í upphafi seinni hálfleiks misstu Skotar sinn besta leikmann útaf, Ralton Way, sem hafði þá gert 18 stig. Þá héldu aliir að leikurinn væri endanlega tapaður Skotum. Þeir voru þó ekki á sama máli og börðust eins og Ijón og var jafnt, 66:66, þegar 2 mínútur voru til leiksloka. Síðustu mínúturnar voru svo æsispennandi og þegar ein og hálf mínúta var til leiksloka var staðan 83:81 fyrir Norömenn. Skotar jafna þegar 56 sekúndur eru eftir, 83:83. Síðan missa Norðmenn knöttinn og Skotar hefja sókn en fengu dæmda á sig sóknarviliu þegar 35 sekúndur voru eftir og það dugði Norðmönnum því þeir skoruöu þriggja stiga körfu í lokin og tryggðu sér sigurinn, 86:83. Bestu leikmenn Skota voru Ral- ton Way, sem skoraði 18 stig, lain McLean, sem skoraði 16 og Steve Hoffman, sem gerði 16. Hjá Norð- mönnum var Haakon Austerfjörd, sem skoraði 32 stig þar af 22 í fyrri hálfleik. Aritel Bec, sem geröi 16 og Georg Posti með 13. Pálmar í öðru sæti ' — hefur gert 70 stig í þremur leikjum PÁLMAR Sigurðsson er í öðru sæti yfir stigahæstu leikmenn mótsins eftir leikina í gærkvöldi. Pálmar hefur gert 70 stig en Norðmaðurinn Haakon Auster- fjörd hefur gert einu stigi meira. Haakon og Pálmar eru í nokkr- um sérflokki. Þriðji leikmaður á listanum er Ralton Way með 58 stig og í fjórða sæti er Valur Ingi- mundarson með 45 stig. Norð- maðurinn á að vísu einn leik til góða þar sem þeir leika í kvöld gegn Portúgal. írar leika við Skota en íslendingar sitja hjá og leika á morgun gegn Norðmönnum og gæti þaö orðið úrslitaleikur móts- ins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.