Morgunblaðið - 22.04.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.04.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL1986 Sambandsmenn til Grænlands Akureyri. FORRÁÐAMENN iðnaðardeild- ar Sambandsins fara í dag til Grænlands til samningsgerðar við þarlenda aðila um samstarf við uppsetningu sútunarverk- smiðju og skinnasaumastofu í Julianehaab. Það er fyrirtækið KNA, sem er í eigu grænlensku landstjórnarinnar, sem á í hlut. „Við höfum verið að þreifa fyrir okkur undanfarin misseri með það í huga að flytja út þekkingu okkar á þessu sviði — til að nýta betur þann mikla kostnað sem við höfum lagt í þróun á sútunartækni okkar — bætt vinnubrögð og efnafræðileg atriði," sagði Jón Sigurðarson, for- stjori iðnaðardeildar SÍS, í samtali, við Morgunblaðið í gær, en hann er einn þeirra sem fer til Grænlands í dag. Takist samningar verða menn iðnaðardeildar ráðgjafar Grænlend- inga um allt skipulag, kaup á vélum og tækjum, fyrirkomulag vinnslu og efnafræðileg atriði verksmiðj- unnar. Ekki gat Jón á þessu stigi sagt um hve stórar íjárhæðir væri um að ræða í þessu sambandi. * Islenzkum sjómanni bannað að koma til Sovét- ríkjanna — segist ranglega sak- aður um sölu klámrita ÍSLENZKUM sjómanni hefur verið bannað að koma til Sovét- rikjanna og á yfir höfði sér fangelsun þar komi hann þang- að. Hann er sakaður um sölu klámrits í Múrmansk, sem hann segist saklaus af. Sjómannafé- lag Reykjavikur hefur mótmælt þessari málsmeðferð, „enda hafi maðurinn verið ákærður af ósýnilegum dómstól vegna sölu á klámblöðum, sem hann hafi aldrei selt. Síðar komi skilaboð um að hann megi aldrei koma til hafnar í Sovétríkjunum og þar með stuðlað að því að hann missi atvinnu sína.“ Guðmundur Halldórsson, skip- veiji á skipum Eimskipafélagsins segir, að hann sé ákærður fyrir að hafa selt sovézkum verkamönn- um klámrit, sem sé algjör Qar- stæða. Þetta eigi að hafa gerzt rétt eftir komu skipsins og sjómaðurinn hafi líklega þurft að benda á ein- hvem til að bjarga eigin skinni, hafí þetta þá ekki verið uppspuni frá rótum, og hann hafi orðið fyrir valinu vegna þess, að hann hafi verið í mjög áberandi skjólgalla. Útilokað sé að maðurinn hafi getað þekkt einhvetja skipverja með nafni. „Sovétmönnum kemur ekkert við hveijir eru á íslenzkum farskip- um, en með þessu virðast þeir geta rekið hvem sem er úr plássi. Nú má ég ekki koma í neina Guðmundur Halldórsson sjó- maður hjá Eimskip: „Harkaleg örlög fyrir upplognar sakir.“ sovézka höfn og verð alltaf að flytja mig á milli skipa, þegar skipið, sem ég er á, fer til Sovét- ríkjanna. Ég veit heldur ekki hvað ég á að gera ef áætlun skips, sem ég kann að vera á, verður breytt og því beint til hafnar í Sovétríkj- unum. það er að minnsta kosti erfítt að bíða fyrir utan, meðan skipið er í höfn. Þetta em harkaleg örlög fyrir upplognar sakir," sagði Guðmundur Halldórsson. Samkvæmt brefi frá útlendinga- eftirlitinu í Múrmansk á þessi atburður að hafa gerzt við komu Stuðlafoss þangað 17. janúar á þessu ári. Skipstjóra skipsins var þá kynnt þessi niðurstaða. Hann óskaði því eftir skriflegum úr- skurði, en fékk ekki. Guðmundur Halldórsson skipti síðar um skip og kom aftur til Múrmansk með Goðafossi 11. febrúar síðastliðinn, en var neitað um landgöngu. I bréfí frá Sjómannafélagi Reykja- víkur til sendiherra Sovétríkjanna á Islandi vegna þessa, segir meðal annars, að félagið skilji vel þá miklu siðgæðisvitund, sem í hinni sovézku þjóð búi, en undrist réttar- farið. Afrit af bréfínu hefur verið sent utanríkisráðherra íslands. Morgunblaðið/Ól.K.M. Hreinsað fyrir sumardaginn fyrsta Starfsfólk fyrirtækja í Grófinni i Reykjavík hreinsaði í gær gangstéttir fyrir sumardaginn fyrsta. Þjóðhagstofnun spá- ir 3,5% hagvexti í ár TEKJUR íslendinga hækkuðu um rúmlega 40% á síðasta ári. Beinar taxtahækkanir voru mun minni eða 32—33%, en í niður- stöðu könnunar Þjóðhagsstofn- unar á skattframtölum er bent á að rekja megi mismuninn til lengri vinnutíma og launa- skriðs. í riti Þjóðhagsstofnunar, Ágrip úr þjóðarbúskapnum, sem kemur út á næstu dögum segir að fyrstu vís- bendingar úr skattframtölum bendi til að tekjur hafí hækkað meira en áður var reiknað með eða, eins og áður segir, um 40% í stað 36%. A þessu ári er gert ráð fyrir að kaup- taxtar hækki um rúmlega 20%, en þegar tekið er tillit til vinnutíma, launaskriðs og fleira má búast við að heildarlaun hækki um 25—26%. Á síðasta ári jókst kaupmáttur um 5—6% og miðað við heildarlaun reiknar Þjóðhagsstofnun með að kaupmáttur aukist um 4—5% á þessu ári og þar með sé að mestu unnin upp kaupmáttarrýmunin 1982 til 1983. í endurskoðun Þjóðhagsstofnun- ar á efnahagshorfum er spáð svip- uðum hagvexti og undanfarin ár, eða 3,5%. Þjóðartekjur eru taldar hafa aukist um 3,5% á síðasta ári og á þessu ári er reiknað með að þær aukist um rúmlega 5%. Eru það einkum lækkandi olíuverð og nokkur hækkun fiskverðs erlendis, sem hafa þar áhrif. Að jafnaði hækkaði verðlag um 34% frá upphafí til loka síðasta árs, en Þjóðhagsstofnun spáir 10% verð- hækkun á yfirstandandi ári. Viðskiptahallinn á síðasta ári var 4,5% af landsframleiðslu á móti 5% árið 1984. í ár er talið að viðskipta- hallinn verði 2,5%. Erlendar skuldir námu í lok liðins árs tæplega 61 þúsund milljón króna eða 55% af landsframleiðslu. utlit er fyrir að þetta hlutfali lækki niður í 50% á þessu ári. Ástæðumar em einkum tvær, vaxandi þjóðar- tekjur og lækkun á gengi banda- ríkjadollars. Vaxtabyrði af erlend- um skuldum hefur heldur lést að undanfömu í kjölfar vaxtalækkana erlendis. UMSÓKNIR um skólastjórastöður við tvo nýja skóla í Reykjavík voru lagðar fram á fundi Fræðsluráðs Reykjavíkur á mánu- daginn. Alls bárust sex umsóknir um stöðu skólastjóra við Granda- skóla og fimm umsóknir um stöðu skólastjóra við Selásskóla. Auk þess voru lagðar fram umsóknir um stöður yfirkennara við Voga- skóla og Fellaskóla. Arnarflug: Spuming um veð fyrir ríkisábyrgð MIKIL óvissa ríkir um það hvort þeir niu aðilar sem hafa, ásamt hinum nýja hluthafa Arnarflugs, Helga Þór Jónssyni, sýnt áhuga á að auka hlutafé Amarflugs í tæpar 97 milljónir, muni end- urnýja tilboð sitt á næstu dögum eða ekki. Ræðst það að miklu leyti af því hvort ríkisstjómin fellst á að veita Amarflugi ríkis- ábyrgð fyrir láni upp á 2—2,5 milljónir doUara, eða fyrir 80—100 milljónum króna. Að sögn Helga Jóhannssonar, framkvæmdastjóra Samvinnu- ferða/Landsýnar, er ríkisábyrðin algert skilyrði hlutafjáraukningar- innar af hálfu níumenninganna. Fjármálaráðuneytið hefur nú beiðn- ina til meðferðar, en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins reyn- ist torvelt að finna veð fyrir ríkis- ábyrgðinni. Ríkisstjómin mun fjalla um málið á fundi sínum í dag. Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra vildi ekki tjá sig um málið í gær. Helgi Þór Jónsson, sem keypti hlutabréf Flugleiða í Amarflugi á dögunum á 3 milljónir króna, hefur lýst sig fúsan til samstarfs við níu- rnenningana. Samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins mun hann til- búinn til að leggja fram allt að 30 milljónir króna til hlutafjáraukning- ar, ef af henni verður. Fræðsluráð Reykjavíkur: Ellefu umsóknir um skólastjórastöður Umsækjendur um stöðu skóla- stjóra við Grandaskóla eru Guðrún Helga Sederholm kennari við Breið- holtsskóla, Helgi Árnason kennari við Seljaskóla, Kristjana M. Krist- jánsdóttir yfírkennari við Laugar- nesskóla, Kirstján Sigfússon kennari við Hlíðaskóla, Margrét Hvannberg kennari við Vesturbæjarskóla og Sigurlín Sveinbjamardóttir kennari við Austurbæjarskóla. Um stöðu skólastjóra við Selás- skóla sóttu Guðrún Helga Sederholm kennari við Breiðholtsskóla, Kristín Hólmfríður Tryggvadóttir kennslu- fulltrúi á Fræðsluskrifstofu Reykja- nesumdæmis, María Nordahl kenn- ari við Árbæjarskóla, Sigurlín Svein- bjamardóttir kennari við Austur- bæjarskóla og Þorsteinn Ólafur Alexandersson kennari við Öldusels- skóla. Að sögn Ragnars Júlíussonar formanns Fræðsluráðs taka þessir tveir skólar til starfa 1. september næstkomandi. Á fundinum voru einnig lagðar fram umsókn frá Sigfúsi J. Johnsen kennara við Vogaskóla um stöðu yfírkennara við Vogaskóla og um- sókn Yngva Hagalínssonar um stöðu yfirkennara við Fellaskóla, en hann er settur yfírkennari þar. Starfsheiti kennara lögverndað FRUMVARP menntamálaráð- herra um lögverndun á starfs- heiti og starfsréttindum grunn- skólakennara, framhaldsskóla- kennara og skólastjóra, varð að lögum í gærkvöldi. Það var samþykkt samhljóða í efri deild Alþingis og hafði áður hlotið samþykki i neðri deild. Fundir voru í báðum deildum Alþingis í gærkvöldi og fjölmörg mál á dagskrá og búizt var við að þingfundir stæðu fram á nótt. Þing- fundum verður framhaldið í dag, en þinglausnir verða síðan á morg- un, síðasta vetrardag. Hafnarfjörður: Fallið frá kyrrsetn- ingarbeiðni GRÆNLEN SKI skelveiðibátur- inn Bjal Junior frá Nuuk lét úr höfn í Hafnarfirði í gærkvöld eftir að samkomulag hafði tekist miUi skipstjóra bátsins og fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins Vél- taks I Hafnarfirði um tilhögun greiðslu fyrir viðgerð og endur- smíði í skipinu, sem unnin var þar í bænum. Þar með var fallið frá kyrrsetningarkröfu, sem lögmaður Véltaks setti fram i fógetarétti í Hafnarfirði á föstu- dagskvöldið. Þá um kvöldið tókst samkomulag milli skipstjórans og Véltækni um að skipstjórinn frestaði brottför frá íslandi fram yfir helgi, svo hægt yrði að komast að samkomulagi um yfirfærslu greiðslu. Skipstjórinn hafði ætlað að sigla á föstudaginn án þess að ganga frá samkomulagi um greiðslu, þar sem hann taldi fyrirtækið ekki hafa staðið við gefin fyrirheit um að ljúka viðgerðinni á tilsettum tíma. í gær settust lögmenn skipstjór- ans og fyrirtækisins saman og fóru yfír skýrslur og reikninga yfír verk- ið í tvo tíma. Að því búnu var gengið frá formlegu samkomulagi „í sátt og samlyndi," eins og Val- garður Sigurðsson, lögmaður Vél- taks, orðaði það í samtali við blaðið í gærkvöld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.