Morgunblaðið - 22.04.1986, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL1986
68 88 28
Orrahólar
Lítil einstaklingsíb. á jarðh í
fjölbýlish. Nýjar innr. Laus.
Hagstæð kjör.
Seilugrandi
70 fm falleg íb. á 1. hæð i fjölb.
Vandaðar innr. Ákv. sala.
Akranes
3ja herb. falleg íb. í nýlegri
blokk. Mikið úts. Ákv. sala.
Klyfjasel — einbýli
Glæsil. einbýlish. Kj., hæð og
ris. Innr. í sérflokki. Husið er
nær fullb. Mögul. á tveimur íb.
íhúsinu.Ákv. sala.
Akurholt — Mosfellssv.
132 fm fallegt einbýlish. á einni
hæð. 40 fm bílsk. Stór lóð. Bein
sala eða skipti á stærra húsi í
Mosfellssv. eða Reykjavík.
Einbýli — Mosfellssv.
165 fm nýlegt einbýlish. ásamt
50 fm bilsk. Húsið er ekki fullb.
Fallegur og friðsæll staður við
þéttbýlið.
Atvinnuhúsnæði
Súðarvogur
250 fm jarðh., 125 fm jarðh. og
125 fm efri hæð. Húsið selst í
einu lagi eða hlutum.
Kópavogur
90 fm gott iðnaðarhúsn. með
mikilli lofthæð. Stórar inn-
keyrsludyr. Góð gryfja.
Borgartún
Skrifstofuhúsn., 120 fm á 2.
hæð. Tilb. u. trév. strax, 432 fm
á 3. hæð. Selst í einu lagi eða
hlutum. Afh. í maí nk.
INGILEIFUR EINARSSON
Hallbjörg
og Fischer
Myndlist
Valtýr Pétursson
í Ásmundarsal við Freyjugötu
stendur nú yfir sýning á málverk-
um eftir þau hjónin Hallbjörgu
Bjarnadóttur og Fischer. Það er
óþarfi að kynna Hallbjörgu
Bjamadóttur fyrir íslendingum á
miðjum aldri. Hún fæddist upp á
Skaga og fór í ferðalög út í lönd
og söng fyrir þjóðir. Ferili hennar
sem söngkonu var glæsilegur,
enda þótt hún væri nokkuð lengi
að ná fótfestu hér heima, en hún
fór ekki troðnar slóðir í túlkun
sinni og hafði ákaflega sérstæða
rödd. Hún hafði einnig sérstakar
aðferðir við túlkun sína á mörgum
ástsælum íslenskum þjóðlögum,
og fólk var stundum dálitla stund
að átta sig á túlkun hennar. En
Danir og aðrar þjóðir á megin-
landinu kunna vel að meta list
hennar, og þeim, er þetta færir í
letur, er í fersku minni kvöldstund
á skemmtistað í sjálfri Hamborg,
þar sem Hallbjörg átti húsið, eins
og sumir leikarar taka til orða,
Nú er hin dimma og kraftmikla
rödd Hallbjargar þögnuð, en Hall-
björg hefur snúið sér að málverk-
inu. Lengi var hún búsett fyrir
vestan haf og þar mun hún hafa
fyrst tekið til hendi við málverk
og fyrir nokkrum árum kom hún
hingað til lands og hélt sýningu
ásairit eiginmanni. En hann hefur
teiknað löngum og jafnvel verið
atvinnumaður á því sviði, þótt
hann sé menntaður lyfjafræðing-
ur. Ef þessi sýning, sem nú stend-
ur í Ásmundarsal, er borin saman
við fyrri sýningu þeirra hjóna hlýt-
ur maður að álykta, að ekki hafi
átt sér stað miklar breytingar í
myndgerð þeirra, en þau munu
nú vera komin aftur á gamlar
slóðir til Danmerkur. Það kemur
einnig vel fram í sumum þessara
verka og nefni ég því til sönnunar
málverk no 5, 6 og 8 og 9, allt
málverk af hörðum vetri Norður-
landa, þar er danskur vetur. Og
einmitt í þessum verkum fínnst
mér Hallbjörg ná mestum árangri
í litameðferð. Fischer er harðari
í verkum sínum og teikning er
nær honum en litameðferð, en öll
eru þessi verk nokkuð viðvanings-
leg í útfærslu og auðséð, að um
afþreyingu er að ræða hjá þessu
fullorðna fólki.
Hallbjörg náði feiknalegum
árangri í söng sínum, og enn
hljómar í útvarpinu hjá okkur
glansnúmer hennar, Jeg har elsk-
et dig sa længe jeg kan mindes,
en með því lagi gerðist hún söng-
kona á heimsmælikvarða. Þegar
um slíkan árangur er að ræða á
einhveiju listasviði er vart hugs-
andi, að það sama gerist aftur á
jafn óskyldu sviði og málverkið
er. En þau hjón mega vel við una
þann árangur, sem þau hafa náð
á efri árum. Að lokum sendi ég
þeim mínar beztu óskir og þakkir
fyrir sýninguna og allt, sem áður
var.
löggiltur fasteignasa
Suðurlandsbrauf
VZterkur og
>3 hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Parh. v/Langholtsveg
225 fm parhús á þremur hæðum með innb. bílsk. Húsið
afh. fokhelt, frágengið að utan. Teikningar og allar nán-
ari upplýsingar á skrifstofunni. Verð 3850 þús.
Lóð við Borgargerði
Höfum fengið til sölu 830 fm lóð með þyggingarleyfi
fyrir415 fm einbýlis- eða tvíbýlishús. Verð 2 millj.
[jS Bústoöir
UUM FASTEIGNASALA
Klapparstíg 26, sími 28911.
Abm. Helgi H. Jonsson.
Sölum. Hörður Bjarnason.
rrrrrrrrr
; , ,'T M SillU'IK! ..1i UiH
5 'H V 'irtt ft * rj'Sfí 1(1«,.
mm iSSil)
Húseignir og lóðir Hamars hf.
að Borgartúni 26 eru til sölu
Hér er m.a. um að ræða:
1. Fimm skemmur (10 burstir) hver um 458 fm (samtals 2290 fm).
2. Skrifstofubyggingu á tveimur hæðum, samtals 780 fm. Byggingaréttur fyrir 3.
hæðina fylgir.
3. Byggingaréttur að 2000 fm skrifstofubyggingu.
4. Byggingaréttur að 3000 fm byggingu.
5. Eignunumfylgir15000fmlóð.
Eignirnar (og ióðir) seljast í einu lagi eða hlutum.
Teikn. og upplýsingar á skrifstofunni.
EKánfvrvÐLunin
ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 SIMI 27711
I Sölusljóri; Svurrir Kristinuofl
Þorlwtur Guómundsson, flóium
Unn.lainn B*ck hrl., Ȓmi 12320
Þórólfur Halldórsson, löglr.
i-aziD
Sigurður Þórir
Myndlist
Valtýr Pétursson
Á Vesturgötu 17 stendur nú yfír
sýning á verkum Sigurðar Þóris,
en hann hélt síðustu sýningu í List-
munahúsinu sáluga fyrir nokkru.
Sú sýning vakti verðskuldaða eftir-
tekt, og er mörgum í fersku minni.
Þá sýndi Sigurður Þórir fyrst og
fremst olíumálverk, nú sýnir hann
myndir unnar með blandaðri tækni
og olíupastel, en aðeins tvær myndir
gerðar í olíulitum. Þeir, sem bundu
vonir við Sigurð Þóri eftir fyrri sýn-
ingu hans, verða ekki fyrir von-
brigðum eftir að hafa séð núverandi
sýningu á Vesturgötunni.
Sigurður Þórir virðist afar vand-
aður listamaður, sem fer eigin leiðir
og eltir ekki þá tízku, sem öllu
virðist ráða í augnablikinu. Hann
vinnur af öryggi og festu að því,
sem hann tekur sér fyrir hendur,
en ofarlega í huga hans má greina
samlíf karls og konu, og á stundum
verður hann nokkuð rómantískur í
verkum sínum, en sú rómatík er
með skáldlegu ívafí, eins og sjálfur
Chagall sé á ferð. En það er eðlileg-
ur og látlaus heimur, sem speglast
í þessum verkum Sigurðar Þóris,
og hann sýnir ágæta skólun, um
leið og hann kemur hugmyndum
sínum til skila. það er viss þokki í
þessum teikningum, liturinn er
samstilltur og sýnir vandvirkni, um
leið og hann nær yfírleitt tilgangi
sínum. Sýning Sigurðar Þóris er
laus við alla væmni, enda þótt við-
fangsefnið gefí á stundum fullkom-
ið tilefni til að misnota litameðferð.
Einstaka myndir vilja að vísu verða
of þungar í lit, ef svo má til orða
taka, það er eins og sums staðar
heimili landsins!
Sigurður Þórir
vanti svolítið meiri bjartsýni og
sprell. Teikningin er ofarlega í huga
Sigurðar Þóris, og það mætti segja
mér, að hann legði mikla áherslu á
hana yfírleitt, enda nær hann
árangri í samræmi við einmitt þetta
atriði.
Það er hvergi ofhleðsla á veggj-
unum í Galleríinu á Vesturgötu 17
eins og stendur. Þar er öllu stillt í
hóf, og það er menningarlegur blær
yfir þessari sýningu. Vönduð vinnu-
brögð eru einkennandi fyrir myndir
Sigurðar Þóris, en ef satt skal segja
virðist slík vinna fáséð í þeirri tízku,
sem nú um stundir ræður ríkjum í
hijáðum heimi. Þessi sýning hlýtur
að vera áfangi í þróun Sigurðar
Þóris á listabrautinni. Hann er hér
að fara aðrar brautir en hann fór
á síðustu sýningu sinni, en samt
blasir skyldleikinn við manni. Sem
sagt ungur maður í mótun, sem
virðist hafa fundið sér vettvang til
að hafa til miðviðunar. Þetta er
látlaus og sterk sýning, þegar vel
er að gáð. Eg enda þetta skrif með
því að óska þess, að eins vel gangi
fyrir Sigurði Þóri á komandi tímum
og að undanfömu. Hér sannast, að
myndlist er ekki eintómur hávaði —
miklu frekar mætti líkja henni við
breitt og megtugt fljót, er líður
endalaust áfram í tign sinni fram
til sjávar og sameinast þar óendan-
leikanum.