Morgunblaðið - 22.04.1986, Side 25

Morgunblaðið - 22.04.1986, Side 25
MORGÚNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGIIR 22. APRÍL 1986 25 Námsbraut Einars var langskóla- nám eins og það var kallað þá. Hann útskrifaðist sem stúdent úr Menntaskólanum í Reykjavík árið 1941. Leggur stund á lögfræðinám í Háskólanum og verður cand. juris 1947 og héraðsdómslögmaður 1952. Að loknu háskólanámi gerist Einar starfsmaður Fjárhagsráðs og jafnframt skrifstofustjóri Sölu- nefndar vamarliðseigna. Hann gegnir starfi fulltrúa í íjármála- ráðuneytinu 1954—57, en ræðst þá til Sambands ísl. samvinnufélaga og verður fulltrúi forstjóra og spari- sjóðsstjóri Samvinnusparisjóðsins 1957—63, jafnframt því að veita forstöðu Lífeyrissjóði Sambandsins til ársins 1960. Árið 1962, á 60 ára afmæli Sambandsins, samþykkti alþingi lög um Samvinnubanka íslands og árið 1963 tekur Samvinnubankinn til starfa með yfirtöku Samvinnu- sparisjóðsins. Einar Ágústsson er ráðinn fyrsti bankastjóri Samvinnu- bankans. Því starfi gegnir hann til ársins 1971. í tíð Einars sem banka- stjóra varð ör vöxtur í starfsemi bankans, en einmitt á þessum árum óx bankanum fiskur um hrygg. Þórunn studdi Einar dyggilega í störfum og stjómmálabaráttunni. Hún bjó og býr yfir sérstökum persónutöfmm og er hvers manns hugljúfí. Mér fannst alltaf mikið jafnræði með þeim hjónum enda ríkti á milli þeirra gagnkvæmt traust og virðing og sterkir strengir bundu þau saman í farsælu hjóna- bandi. Þómnn bjó Einari vistlegt og smekklegt heimili. Þegar komið var þar inn fyrir þröskuldinn andaði á móti manni þægilega vinalegt and- rúmsloft. Árið 1962 verða veruleg straum- hvörf í lífí Einars, en þá byrjar virk þátttaka hans í stjómmálum með kjöri í borgarstjóm Reykjavíkur. Vann Einar mikinn sigur fyrir Framsóknarflokkinn í þessum kosn- ingum. Glæsimennska Einars í sjón og reynd, stór vinahópur, aðlaðandi framkoma og þessi persónuleiki sem laðaði að sér fólk vom eigin- leikar sem juku fylgi hans. Mönnum þótt gott að geta átt Einar að vini. Frami Einars á braut stjórnmálanna var mikill og glæsilegur. í alþingis- kosningunum 1963 er Einar í fram- boði fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavík og vann þar sinn annan kosningasigur. Hann er svo þing- maður Reykvíkinga óslitið til ársins 1978, að hann tekur sér hvíld frá stjómmálunum. Hann er skipaður sendiherra í Danmörku frá 1. janúar 1980 ojg er hann jafnframt sendi- heira Islands á Ítalíu í ísrael og Tryklandi. Á sviði stjómmálanna gegndi Einar margvíslegum trúnaðarstörf- um. Ber þá fyrst að nefna að hann varð utanríkisráðherra í stjórn Ólafs Jóhannessonar 1971 og aftur í stjóm Geirs Hallgrímssonar 1974 til 1978. í ráðherratíð hans áttu íslendingar tvisvar í landhelgisdeil- um við Breta. Einar Ágústsson átti virkan hlut í því að leiða þau deilu- mál til lykta á farsælan hátt fyrir okkur íslendinga. Hann var borgar- ráðsmaður í Reykjavík 1963—’64. f Hafnarstjórn 1962—’71. í stjórn Landsvirkjunar 1971—’80. Formað- ur utanríkismálanefndar Alþingis 1978—’79. Formaður öryggismála- nefndar 1978—’79. Fyrir Framsóknarflokkinn gegndi Einar mörgum trúnaðar- störfum. Hann sat í miðstjóm flokksins frá 1960 og varaformaður hans frá 1967—80. Var formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur 1958—1961. í framkvæmdastjórn flokksins frá því í febrúar 1968 til 1980. Einar Ágústsson var mörgum góðum mannkostum búinn. Áður hefur verið minnst á vinsældir hans með öfluðu honum fylgis á sviði stjórnmálanna. Fyrir utan kjörfylg- ið átti hann vini í ölium flokkum. Pólitískar skoðanir hans komu ekki í veg fyrir það. Og þrátt fyrir ljúf- mennsku og hlýtt viðmót var Einar ákveðinn og hélt fast við sínar skoðanir á hveiju sem gekk. Einar var ljóðelskur, hafði gott minni, las mikið og var vel að sér í sögu lands og þjóðar. Hann naut trausts og virðingar í störfum sínum á sviði stjórnmálanna og hann var virðulegur og vel metinn fulltrúi þjóðar sinnar sem sendiherra. Einar Ágústsson var hamingju- maður í einkalífi. Grundvöllur gæf- unnar var Þórunn, sem hann gekk að eiga 7. október 1948. Foreldrar Þórunnar voru Sigurður Þorsteins- son hafnargjaldkeri í Reykjavík og kona hans, Kristjana Einarsdóttir. Þau Einar og Þórunn eignuðust Qögur böm: Helgu, fædda 21.7 1949, gift Daníel Sigurðssyni. Þau eiga tvö böm, Einar Þór og Hildi- gunni, búsett í Reykjavík. Emu fædda 5.1 1954, gift Jens Ingólfs- syni. Þau eiga eina dóttur, Þóm. Þau em búsett í San Diego, Kali- fomíu. Þóm, fædda 17.12. 1958, en hún lést í bifreiðaslysi 10. janúar 1970 og Sigurð, fæddan 19.9.1960, sem er við nám í hagfræði í Kaup- mannahöfn. Það var mikið áfall fyrir Þómnni og Einar, þegar þau misstu Þóm. Hún var óvenjulega yndisleg stúlka og við hana bundnar bjartar fram- tíðarvonir. Sjálfur slasaðist Einar hættulega í bifreiðaslysinu og ekki var séð fyrir, hvemig honum reiddi af. Við hjónin höfum oft minnst þessara dimmu daga og jafnframt dáðst af hugrekki og þreki Þómnn- ar. Þegar Þóra var jarðsett var Einar mikið sjúkur á spítala. En það var eins og Þómnn fengi æðri styrk og eins og hetja bar hún sára sorg sína og veitti Einari og bömun- um styrk á þessum myrku janúar- dögum. Einar fékk aftur heilsu en þó mun slysið hafa skilið eftir andleg og líkamleg sár, þótt tíminn hafí smám saman lagt þar yfír sínar hulins hendur. Það var mikil reynsla, sem þau Einar og Þómnn gengu í gegnum á þessum tíma. En lífíð varð að halda áfram og það má telja það merkileg örlög að fyrsta bamabarn- ið, Einar Þór, skyldi í heiminn borinn níu dögum eftir að Þóra lést. Þannig er það að Ijósið og myrkrið skiptast á. Andstæðumar em gmndvöllur lífsins. Ekkert líf án dauða og enginn dauði án lífs. Við lát Einars Ágústssonar verð- ur mér og konu minni hugsað til fyrri ára, er við saman áttum svo margar góðar sundir með þeim Einari og Þómnni. Þau vom í flokki vinahópsins, sem hélt mikið saman eftir að Einar hóf störf hjá sam- vinnuhreyfingunni. Þetta var fólk á besta aldri í blóma lífsins, tengt sterkum vin- áttuböndum, auk þess sem störfín fyrir samvinnuhreyfinguna tengdu menn saman. Ég er sannfærður um, að samstaða þessa hóps, en í honum vom forystumenn úr Sambandinu og samstarfsfyrirtækjum þess, átti dijúgan þátt í farsælli þróun innan samvinnuhreyfíngarinnar á þessum ámm. En árin líða og tíminn brýtur skörð í vinahópinn, og eftir verða minningamar. Þær lifa áfram meðan aldur endist sem dýrmæt eign, og enginn getur tekið þær frá okkur. Góðar minningar verma sálina, ekki síst þegar aldur færist yfir. Þær eiga sinn þátt í því að menn verði sáttir við lífið og tilver- ASEA rafmótorar Nú eru ASEA rafmótorar í næsta nágrenni viðskiptavina sinna: — AUSTURLAND: Rafmagnsverkstæði Leifs Haraldssonar, Seyðisfirði VESTMANNAEYJAR: Geisli, Vestmannaeyjum. SUÐURNES: Rafiðn, Keflavík VESTFIRÐIR: Póllinn, ísafirði NORÐURLAND: Raftækni, Akureyri. Sölumenn okkar veita frekari upplýsingar ef óskað er. •#"RÖNNING SSmcS & ve<W>Yrðl a Nú 0X00 &eð T við eríió írnu^. ^‘Thðnnun jótt3arða sa^a': öryee1 Og nú hefur á ný komið stórt skarð í vinahópinn og söknuður og tregi fyllir hugann. En þannig er gangur lífsins, menn koma og fara og enginn megnar að stöðva tímans rás. Menn fagna þeim sem koma og syrgja þá sem fara. Nú er það Einar Agústsson, sem farinn er frá okkur. Of snemma gekk hann á vit feðra sina, en á þó að baki litríka ævi og merkilegt starf fyrir land ogþjóð. Ég óska Einari heilla á þeirri vegferð, sem hann nú hefur lagt upp í. Ég þakka honum störfin fyrir samvinnuhreyfinguna og ég þakka honum samstarf og vináttu í gegn- um árin. Guð blessi minningu hans. Við Margrét vottum Þórunni, SJÁBLS. 42 ^0t0^T\ ssg 31^ °5Rl5 32X ^|pl5 33X 2|bi5 /M4RT Vatnagörðum 14 - Sími 83188 Fólksbílahjólbarðar vœntanlegir í maí. i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.